NT - 24.08.1985, Side 15
m Laugardagur 24. ágúst 1985 15
Ltl wr Skák
Verða Kínverjar næsta
skákstórveldið?
■ Sænska skákkonan Pia Cramling stóð sig með ágætum á skákmóti Búnaðarbankans, sem haldið var 1984. Hér hefur hún skák sína
við Jón L. Árnason. Stefán Valgeirsson formaður bankaráðs leikur fyrsta leikinn fyrír Cramling.
■ Þegar einangrunarstefna sú
sem kínverskir valdhafar höfðu
fylgt áratugum saman tók að
láta undan við byrjun síðasta
áratugar jafnt á menningarsvið-
inu sem hinu pólitíska og efna-
hagslega fóru Kínverjar að láta
æ meira á sér kveða í íþrótta-
keppnum af ýmsu tagi. Skáklist-
in var þar ekki undanskilin.
Kínverjar voru fyrst með í
Olympíumóti árið 1978 og hafa
æ síðan verið meðal þátttöku-
þjóða og sækja það fast að gera
sig gjaldgenga í hvers kyns
skákkeppnum jafnframt því
sem þeir hafa boðið sterkum
skákmönnum hins vestræna
heims til keppni innanlands.
1978, þegar Argentínumenn
stóðu fyrir Olympíuskákmót-
inu, voru menn fullir efasemdar
gagnvart skákgetu Kínverja.
„Við komum hingað til að
læra,“ sögðu þeir auðmjúkir
þegar 1. umferð mótsins fór
fram. íslendingar voru and-
stæðingar þeirra í fyrstu umferð
og við þóttumst þá vera með
allþokkalegt lið. Skákstíll Kín-
verja kom þar skýrt fram, við
töpuðum 1:3 og var grátlegt að
horfa upp á hvern sveitarmeð-
liminn á fætur öðrum falla í
tveggja leikja gildrur andstæð-
inganna.
Nú sjö árum síðar eru þeir
ekki lengur vanmetnir. Skák-
stíllinn hefur kannski ekki
breyst svo mikið því enn er
talað um kínverskar drottning-
arfórnir sem á fyrstu Olympíu-
mótunum máttu heita vöru-
merki kínverskrarskáklistar, en
meginmunurinn liggur í þeirri
þekkingu og reynslu sem
fremstu skákmenn þeirra hafa
aflað sér.
Það eru því ófáir sem spáð
hafa því að um næstu aldamót
muni Kínverjar ógna stórveld-
um skáklistarinnar verulega og
í raun virðast aðeins tíma-
spursmál hvenær þeir eignast
sinn eigin Kasparov.
Margt virðist þó benda til
þess að næsta kynslóð skák-
meistara muni slá í geg.i en ekki
sú sem nú heldur uppi merkinu
með sóma. Kínverjar hafa að
sönnu eignast tvo fulltrúa á
milliliðamótinu. í Mexíkó tcfldi
1. borðsmaður þeirra frá síðasta
Olympíumóti, Qi, og á milli-
svæðamótinu í Biel tefldi skák-
maður að nafni Li. Þeir stóðu
sig báðir allþokkalega.
Það er þó ekki síður í kvenna-
flokki skákíþróttarinnar sem
Kínverjar geta gert sér vonir
um stór afrek á næstu árum.
Pia Cramling hin sænska hef-
ur ekki reynst sú ógnun við
veldi sovéskra kvenna sem von-
ast hafði verið eftir því á nýliðnu
millisvæðamóti á Kúbu átti hún
í miklum erfiðleikum með að
komast áfram og er ekki séð
fyrir endann á þeirri baráttu
hennar því hún þarf að heyja
aukakeppni um laust sæti í
áskorendamótinu. Susza
Polgar, ungverska skákundrið,
sýnir kvennakeppni í skák ekki
mikinn áhuga og teflir eingöngu
í karlakeppnum.
Annað tveggja millisvæða-
móta fór fram í Zheleznovodsk
sem er bær í Georgíu. Fáum kom
á óvart að sigurvegarinn væri
sovéskur. Litinskaja mikil val-
kyrja sovéskra, hlaut 11 vinn-
inga af 15 mörulegum en 2.
sætið kom í hlut 24 ára gamallar
kínverskrar stúlku, Mien -
Quien Wu. Wu hlaut lOVivinn-
ing sem er gott vinningshlutfall
en meiri athygli vakti þá
frammistaða hennar gegn so-
vésku skákkonunum. Pær voru
alls fimm talsins, auk Litinskaju
þær Zaitzewa, Gurieli, Matw-
eewa og síðast en ekki síst Nona
Gaprindhasvili. Wu vann fjórar
skákir og tapaði einni - fyrir
sigurvegaranum. Fjórar konur
komast áfram úr hvoru móti og
tapið fyrir Wu reyndist
Gaprindhasvili,'sem var heims-
meistari kvenna um 16 ára
skeið, (1962-1978) dýrkeypt;
hún hafnaði að lokum í 5. sæti
og situr heima þegar áskorenda-
mótið fer fram. Menn skyldu
ekki halda að skákkonur vorra
tíma séu einhverjir aukvisar.
Það nægir að minna á frammi-
stöðu Piu Cramling á Búnaðar-
bankamótinu á síðasta ári en
þar sigraði hún m.a. Lev Alburt
sem þetta sama ár varð bandarísk-
ur meistari í best skipaða meist-
aramóti fyrr og síðar. Gaprind-
hasvili vann eitt sinn hið fræga
, Helgl
Olafsson
stórmeistari
skrifar
um skák
Lone - Pine skákmót og voru þá
heldur ekki neinir aukvisar á
ferðinni það sinnið. Raunar er
það merkilegt hversu hátíðlega
sumir karlmenn taka viðureign-
ir sínar við kvenpeninginn og
tapi þeir eru þeir lengi að ná sér.
Höfum við um það alíslensk
dæmi.
Það kom fram hér áðan að
skákstíll kínverja er með sókn-
djarfara móti sem kemur inn á
það sem mér hefur einlægt
fundist, að skáklistin, teórían
og fleira er meira og minna
landfræðilegt fyrirbrigði. Það
nægir stundum að vita hvaða
byrjanir sterkasti skákmaður
hverrar þjóðar teflir, aðrir land-
ar feta dyggilega í fótsporin:
Hvítt: Wu (Kína)
Svart: Zaitzewa (Sovétríkjun-
um)
Caro-Kann
1. e4 c6
2. d4 dS
3. Rc3 dxe4
4. Rxe4 Rf6
5. Rxf6 exf6
(Fremur sjaldséð afbrigði sem
þó hefur sést í skákum Korts-
nojs m.a. í einvígi hans við
Karpov 1978.)
6. c3 Bd6
7. IId3 0-0
8. Re2 He8
9. Dc2 g6
10. Be3 Rd7
11 h4!
(Ein besta áætlun hvíts, sem
reynir að opna kóngsstöðu
svarts lítillega.)
11. .. Rf8
12. h5 Be6
13. hxg6 fxg6
14. c4 De7
15. 0-0-0 DI7
16. Hh6!
(Sóknarmöguleikar hvíts liggja
eftir h-línunni.)
16. .. b5
17. c5 Bc7
18. Hdhl f5
(Hvítur hótaði 19. hxh7! Rxh7
20. Bxg6 o.s.frv.)
19. g4! Bd5
20. Hlh4 f4?
(Uggir ekki að sér. Best var 20.
- Be4.)
iiiiii 111 BHI
IHI B #111111111 i
iiiiiiiiiii ;| i B
SIIIABASIHII
11 H liffilBI
11 IIIÍLlt
flfHWIIö Bll 111
1111 |B
21. Hxh7! Df6
(Eftir 21. - Rxh7 22. Bxg6 nær
hvítur óstöðvandi sókn.)
22. Hh8t Kg7
23. Bd2 He7
24. b3
(Hvíta staðan er unnin en áður
en lokaatlagan hefst tryggir Wu
varnir sínar.)
24. .. Hae8
25. g5! Dxg5
26. Rxf4 Dglt
27. Kb2 BI3
28. Rxg6 Rxg6
29. H8h7t Kf6
30. Bxg6 Hxh7
31. Df5t!
- Zaitzewa gafst upp cnda stutt
í mátið.
Frá Fjölbrautaskólanum
í Breiðholti
Innritun í öldungadeild Fjölbrautakólans
í Breiðholti fer fram dagana 28., 29. og 30.
ágúst í húsakynnumstofnunarinnarviðAust-
urberg kl. 18.00-21.00.
Greiða á gjöld jafnhliða því sem nemendur
velja námsáfanga. Mat á fyrra námi svo og
sérstök námsráðgjöf er veitt innritunardag-
ana. Sími skólans er 75600.
Dagskóli F.B. verður settur í Bústaðakirkju
laugardaginn 31. ágúst kl. 10.00 árdegis.
Allir nýnemar eiga að koma á skólasetning-
una.
Allir nemendur dagskólans fá afhentar stunda-
skár mánudaginn 2. september kl.9.00-
14.00 og eiga þá að standa skil á gjöldum.
Kennarar F.B. eru boðaðir á almennan
kennarafund mánudaginn 2. september og
hefst fundurinn kl. 9.00 árdegis.
Skólameistari ______________
Frá grunnskóla
Kópavogs
Grunnskólarnir í Kópavogi verða settir með
kennarafundum í skólunum mánudaginn 2.
september n.k. kl. 9.00 fyrir hádegi.
Næstu dagar verða notaðir til undirbúnings
kennslustarfs.
Nemendur mæti sem hér segir:
föstudaginn 6. september 9. bekkur börn
fædd 1970, kl. 9.00
föstudaginn 6. september 8. bekkur börn
fædd 1971, kl. 10.00
föstudaginn 6. september 7. bekkur börn
fædd 1972, kl. 11.00
mánudaginn 9. september 6. bekkur börn
fædd 1973, kl. 9.00
mánudaginn 9. september 5. bekkur börn
fædd 1974, kl. 10.00
mánudaginn 9. september 4. bekkur börn
fædd 1975, kl. 11.00
mánudaginn 9. september 3. bekkur börn
fædd 1976, kl. 13.00
mánudaginn 9. september 2. bekkur börn
fædd 1977, kl. 13.00
mánudaginn 9. september 1. bekkur börn
fædd 1978, kl. 14.00
Forskólabörn 6 ára (fædd 1979) og foreldrar
þeirra verða boðuð í viðtal símleiðis frá
9.-13. september. Skólaganga forskóla-
barna hefst mánudaginn 16. september.
Skólafulltrúi.
REYKJAVÍKURIIÖFN
Hafnarhúsið við Tryggvagötu/
húsnæði til leigu:
Á jarðhæð 135m2 geymsluhúsnæði með
innkeyrsludyrum. >•
Á jarðhæð 295m2 geymsluhúsnæði með
innkeyrsludyrum.
Á 2. hæð 408m2 geymsluhúsnæði (vörulyfta
sem opnast inn í geymslurýmið).
Á 3. hæð er 76m2 geymslurými.
Allt laust húsnæði er óeinangrað og óupphit-
að.
Upplýsingar um skilmála og leigukjör gefur
umsjónarmaður fasteigna Reykjavíkurhafn-
ar á skrifstofutíma í síma 28211.