NT - 24.08.1985, Blaðsíða 19
fTF j Laugardagur 24. ágúst 1985 19
LlU fþróttir
Bikarkeppni KSÍ
Hvoit fagnar Valþór
eða Guðmundur sigri?
■ Hann er á morgun, leikur-
inn sem allir hafa beðið eftir,
úrslitaleikur Fram og Keflavík-
ur um bikarinn. Klukkan 14
mun Guðmundur Haraldsson,
miUiríkjadómari, blása í flautu
sína og tveimur stundum síðar
(ef ekki verður framlengt) verð-
ur það annað hvort Valþór Sig-
þórsson, fyríriiði ÍBK,eða Guð-
mundur Steinsson, fyrirliði
Fram, sem lyftir bikarnum á
loft, trylltur af ánægju.
Þetta er í níunda skipti sem
Fram leikur til úrslita um bikar-
inn, en ÍBK hefur þrívegis kom-
ist í úrslitin. Einu sinni áður
hafa þessi lið átt kappi saman
um bikarinn. Það var árið 1973,
nánar tiltekið hinn 12. septem-
ber.
Leikur þessi var fyrsti úrslita-
leikurinn, sem fram fór á Laug-
ardalsvellinum, hinir höfðu allir
verið leiknir á gamla, góða
Melavellinum. Að venjulegum
leiktíma loknum var staðan 0-0,
en er tvær mínútur voru liðnar
af framlengingunni skoraði Jón
Pétursson fyrir Fram. Steinar
Jóhannsson jafnaði strax fyrir
Keflvíkinga, en Marteinn
Geirsson gerði sigurmark leiks-
ins á 102. mínútu, 2-1 fyrir
Fram. Mjögskuggsýntvarorðið
í seinni hluta framlengingarinn-
ar, en Eysteinn Guðmundsson,
dómari, lét þó leika leikinn til
enda.
Þetta var eini tapleikur ÍBK
allt keppnistímabilið, liðið varð
öruggur sigurvegari í 1. deild,
hlaut 26 stig af 28 mögulegum.
En tvennan varð ekki Keflvík-
inga. Þess má geta að þjálfari
liðsins fyrir 12 árum var hinn
kunni Joe Hooley.
Þjálfari Fram í dag lék þenn-
an fræga, dimma leik gegn ÍBK.
Ásgeir Elíasson mun einnig
hefja leikinn á morgun og vafa-
lítið óskar hann þess að sömu
úrslit verði upp á teningnum og
í fyrra sinnið.
Hólmbert Friðjónsson, þjálf-
ari ÍBK,er þó eflaust ekki til
viðræðu um Fram-sigur. Þessi
mikli bikarmaður leiddi Fram
til sigurs í keppnunum 1979 og
1980. Hólmbert kannast þó einn-
ig við súra eplið, því árið 1981
máttu Framarar þola 1-2 tap
gegn ÍBV í bikarúrslitunum.
Sigurður Einarsson:
Sigraði í Innsbruck
■ Sigurður Einarsson sigraði í
spjótkasti á frjálsíþróttamóti
Innsbruck, Austurríki, í vik-
unni. Hann kastaði 87,80 metra
og bætti persónulegan árangur
sinn um 3,5 metra slétta.
Sá sem varð í öðru sæti kast-
aði spjótinu 77 metra, svo sjá
má að sigur Sigurðar var örugg-
ur. Hann átti einnig kast upp á
82,92 metra.
„Þetta var sjöunda mótið,
sem ég hef keppt á síðan í
júlílok,“ sagði Sigurður í gær-
kvöldi. „Ég hafði áður kastað
best 82,28 metra á móti í Finn-
landi, en þá var rigning. Ég hef
verið dálítið óheppinn með
veður, í Innsbruck var nær Iogn,
en nokkuð heitt, Það rigndi
einnig á öðru móti sem ég
keppti á,“ sagði Sigurður.
Sigurður stefnir nú að því að
reyna að komast á Grand Prix
mótin í Köln og Köblenz, sem
haldin verða á morgun og
þriðjudag.
■ Framarar hafa þegar unnið tvo titla I ár, Reykjavíkurmótið og
á myndinni fagna þeir sigrí í meistarakeppninni. Bætist þríðji
titillinn í safnið á morgun? NT-mynd: S»enir.
Þessir skoruðu mörkin
■ Ómar Torfason er mark’a-
hæstur Framara í 1. deild í
sumar, hann hefur skorað níu
mörk. Guðmundur Steinsson
hefur gert átta og nafni hans
Torfason sjö. Samanlagt hafa
þessir þrír því skorað 24 af 28
mörkum Fram í deildinni.
Kristinn Jónsson hefur þrí-
vegis skorað og Pétur Ormslev
hefur gert eitt.
Ragnar Margeirsson hefur
líkt og Ómar gert níu mörk í 1.
deildinni og Sigurjón Kristjáns-
son hefur sex sinnum horft á
eftir tuðrunni í netið. Helgi
Bentsson hefur gert fjögur mörk
og fimm leikmenn hafa svo
skorað eitt mark, þeir Gunnar
Oddsson, Óli Þór Magnússon,
Sigurjón Sveinsson, Björgvin
Björgvinsson og Ingvar Guð-
mundsson. ÍBK hefur því gert
24 mörk.
Athyglisvert er að í sex síð-
ustu deildarleikjum sínum hafa
Framarar aðeins gert sex mörk.
Á sama tíma hafa þeir hins
vegar fengið á sig 12 mörk.
Keflvíkingar hafa hins vegar
skorað 14 mörk í sínum sex
síðustu leikjum og aðeins fengið
á sig þrjú.
En varast ber að draga af
þessu nokkrar ályktanir, bikar-
inn er jú allt annað en deildin.
„Lístvel
á leikinn“
■ „Mér líst bara vel á
þennan leik,“ sagði Guð-
mundur Steinsson marka-
skorari Framara er hann
var spurður um komandi
úrslitaleik í bikarkeppni
KSÍ. „Þetta verður jafn
leikur en ég vona að við
Framarar séum að ná okk-
ur uppúr þeim öldudal sem
við höfum verið í að undan-
förnu. Þá höfum við harma
að hefna því við lágum
fyrir Keflvíkingum í Kefla-
vík fyrir stuttu. Ég er þó
bjartsýnn á Framsigur í
þessum leik.“
„Ræðst á
einu
marki“
■ „Ég á von á því að
þessi leikur ráðist á einu
marki. Ég mun allavega
gera mitt besta til að fá
ekki á mig mark,“ sagði
Þorsteinn Bjarnason mark-
vörður ÍBK um bikarleik-
inn á sunnudaginn. „Fram-
arar eru með sterka fram-
línu og spila hraðan fót-
'bolta. Við spilum líka op-
inn og hraðan leik svo von-
andi verður viðureignin
skemtntileg. Ég er bjart-
sýnn á að okkur takist að
sigra þennan leik.“
Liðin Liðin Liðin
■ Liðin sem leika til úrslita um bikarinn á morgun verða þannig skipuð: Lið Fram: Markvördur: Fríðrik Fríðriksson Aðrir loikmenn: Þorsteinn Þorsteinsson Ormarr örlygsson Pótur Ormslev Viðar Þorkelsson Krístinn Jónsson Sverrir Einarsson Guðmundur Steinsson ómar Torfason Guðmundur Torfason Stoinn Guðjónsson Haukur Bragason Jón Sveinsson örn Valdimarsson Þorsteinn Vilhjólmsson Ásgeir Elíasson Einar Björnsson Lið ÍBK: Markvörður: Þorsteinn Bjarnason Aðrir leikmenn: Jón Kr. Magnússon Sigurjón Sveinsson Ragnar Margeirsson Freyr Sverrisson Helgi Bentsson Valþór Sigþórsson Ingvar Guðmundsson Sigurður Björgvinsson Ólafur Gottskálksson Gunnar Oddsson Björgvin Björgvinsson óli Þór Magnússon Jóhann Magnússon Sigurjón Kristjónsson Kjartan Einarsson.
Knattspyrnan
um helgina
■ Heil umferð verður leikin í 2. og
3. deild íslandsmótsins í knattspyrnu
í dag. Þá verða tveir leikir í úrslita-
keppni 4. dcildar.
Á Húsavík leika Völsungur og
Fylkir í 2. deild og ennfremur ÍBÍ og
ÍBV, Breiðablik og KS, Njarðvík og
Skallagrímur og Leiftur og KA. AUir
byrja leikirnir kl. 14.
í A-riðli 3. deildar leika HV og
Selfoss, Ármann og Grindavík, Vík-
ingur, Ólafsvík, og ÍK og Reynir,
Sandgerði, og Stjarnan.
I B-riðli keppa Þróttur, Norðfirði,
og Leiknir, Fáskrúðsfirði, Valur,
Reyðarfirði, og Magni, Huginn og
HSÞb og Einherji og Tindastóll.
Leikurinn á Vopnafirði er stórleikur
deildarinnar. Austri situr yfir í B-
riðlinum í dag.
Allir leikirnir í 3. deiid hefjast
einnig kl. 14. í úrslitakeppni 4.
deildir leika Hafnir og Augnablik og
Reynir og Vaskur. Síðarnefndi
leikurínn hefur enga þýðingu, þar eð
Reynir er þegar búið að tryggja sér
stæti í 3. deild. Augnablik verður
aftur á móti að vinna Hafnir, því
Uðið er þremur stigum á eftir ÍR í
riðU sínum. ÍR og AugnabUk eiga
svo eftir innbyrðis leik.
■ Nýtt félagsheimil K.R. verður
vígt við hátíðlega athöfn í dag kl.
13.30. Jafnframt verður haldinn hinn
árlegi K.R. dagur með stærra sniði
en verið hefur undanfarin ár á hinu
glæsilega félagssvæði við Frosta-
skjól.
Hinn 11. júlí sl. gengu í gildi lög um greiðslujöfnun
fasteignaveðlána til einstaklinga. Tilgangur þeirra
er að jafna greiðslubyrðina. Greiðslubyrði af greind-
um lánum skal ekki þyngjast þótt lánskjaravísitala,
byggingarvísitala og/eða raunvextir hækki meira en
laun.
í greiðslujöfnun felst að hækki laun minna en
viðmiðunarvísitala (þ.e. lánskjaravísitala eða
byggingarvísitala) er hluta af endurgreiðslu lánsins
frestað þar til laun hækka á ný umfram viðmið-
unarvísitöluna. Þetta gerist með þeim hætti að
mismunur launavísitölu og viðmiðunarvísitölu er
færður á sérstakan jöfnunarreikning. Skuld á
jöfnunarreikningi telst hluti af höfuðstól lánsins og
um hana gilda því sömu kjör og tilgreind eru í
lánssamningi. Þessi skuld er síðan endurgreidd
hlutfallslega þegar launavísitalan hækkar umfram
viðmiðunarvísitölu, eða eftir upphaflegan lánstíma,
ef þá er enn skuld á jöfnunarreikningi.
Greiðslumarkið ergjaldfallin afborgun auk vaxta, á
því verðlagi sem í gildi var 1. mars 1982, hafi lán
verið tekið fyrir þann tíma. Hafi lán verið tekið eftir
1. mars 1982 er greiðslumarkið á því verðlagi sem
gilti við lántöku.
Á gjalddaga láns er greiðslumarkið framreiknað
miðað við breytingu á launavísitölu, sem Hagstofa
íslands reiknar út, og borið saman við þá fjárhæð
sem greiða ætti af láninu samkvæmt lánssamningi
(afborgun, vextir og verðbætur).
Greiðslujöfnunin nær sjálfkrafa til allra sem fá sín
lán greidd út eftir gildistöku laganna.
Einstaklingar, sem fengið hafa fullverðtryggð lán úr
byggingarsjóðunum fyrir gildistöku laganna og eru
í greiðsluerfiðleikum, geta sótt um greiðslujöfnun
fyrir 1. sept. 1985:
1. Vegna komandi gjalddaga.
2. Vegna fyrri gjalddaga.
3. Vegna komandi og fyrri gjalddaga.
Eins og fyrr segir geta einstaklingar, sem eru í
greiðsluerfiðleikum, sótt um greiðslujöfnun vegna
fyrri gjalddaga. Þeim verður gefinn kostur á að
fresta greiðslu, eða hluta af greiðslu, afborgana,
vaxta og verðbóta á næsta heila ári hvers láns.
Heimilt er að fresta greiðslu á allt að þeirri fjárhæð
sem á jöfnunarreikningi stæði, ef ákvæði þessara
laga hefðu gilt frá lántöku.
Þessi frestun vegna fyrri gjalddaga gildir aðeins
einu sinni.
Umsóknareyðublöð liggja frammi hjá Húsnæðis-
stofnun ríkisins og bæjar- og sveitarstjórnarskrif-
stofum.
Umsóknum skal skilað til Húsnæðisstofnunar
ríkisins fyrir 1. sept. 1985.
Reykjavík, 24. ágúst 1985.
[>o0Húsnæðisstofnun ríkisins