NT - 24.08.1985, Síða 24
HRINGDU ÞÁ í SÍRVIA 68-65-62
Við tökum við ábendingum um fréttir allan sólarhringinn. Greiddarverða 1000 krónur fyrirhverja ábendingu sem leiðir til
fréttar í blaðinu og 10.000 krónur ffyrir ábendingu sem leiðir til bitastæðustu fréttar mánaðarins. Fullrar nafnleyndar er gætt
NT, Sídumúla 15, Reykjavík, sími: 686300, auglýsingar 18300
Kvöldsimar: áskrift og dreifing 686300 é ritstjórn 686392 og 687695 • íþróttir 686495
nda saman að 100
ta hiukrunarheimih
Fjársöfnun um allt land í haust
■ Svo virðist sem atvinnu-
ástandið í Hafnarfirði hafi skánað
mikið frá því sem var allan sl.
vetur, en þá var atvinnuleysi
með versta móti í Firðinum. Nú
eru aðeins um 20 manns á at-
vinnuleysisskrá, að sögn Gunn-
ars Sveinbjörnssonar á Félags-
málaskrifstofu Hafnarfjarðar.
Sagði hann að slíkt væri svipað
og í venjulegu árferði, það væri
' einkum fólk, sem gæti ekki
stundað erfiðisvinnu.
Þegar atvinnuleysið var hvað
verst sl. vetur voru rúmlega 200
manns á atvinnuleysisskrá.
Munaði þar mest um að vinna lá
niðri hjá Bæjarútgerðinni. Þeg-
ar fyrirtækið fór aftur af stað sl.
vor, undir nýjum eigendum,
skánaði ástandið til mikilla
muna. Þrátt fyrir það voru í júlí
og fyrri hluta ágúst um 70 manns
á atvinnuleysisskrá.
Gunnar sagði að þarna hefði
fyrst og fremst verið um að ræða
konur, sem stunda ræstingar-
störf og vinna við mötuneyti
skólanna, en ráðningatími
þeirra er 9 mánuðir og gengur
oft erfiðlega að útvega konun-
um vinnu hina þrjá mánuðina.
Nú eru skólarnir að fara aftur af
stað og þessar konur því komn-
ar í störf.
Þó ástandið sé þokkalegt
núna sagðist Gunnar samt óttast
að það yrði erfitt með haustinu.
Hann sagðist vera hræddur um
að það stefndi í vandræðaástand
þegar uppsagnir Hagvirkis
koma til framkvæmda, en stór
hluti starfsfólks fyrirtækisins er
búsettur í Hafnarfirði.
■ Sex félagasamtök og stofn-
anir hafa bundist samtökum um
að reisa og reka umönnunar-
og hjúkrunarheimili fyrir liðlega
100 manns, að Kleppsvegi 64 í
Reykjavík. Teikningar hafa
verið samþykktar og tók forseti
Islands fyrstu skóflustunguna í
gær. Að stofnuninni standa: Al-
þýðusamband íslands, Sam-
band lífeyrisþega ríkis og bæja,
Sjómannadagsráð, Stéttarsam-
band bænda, Reykjavíkurborg
og Þjóðkirkjan.
I frétt frá samtökunum segir
að nú séu skráðir á biðlista
rúmlega hálft þriðja þúsund
manns á Stór-Reykjavíkur-
svæðinu, sem þarfnist vistrýmis
af félagslegum og heilsufarsleg-
um ástæðum. Urlausn sé því
mjög brýn.
Fjár til framkvæmdanna mun
verða aflað meðýmsum hætti. í
haust er stefnt að almennri fjár-
söfnun um land allt og er ætlun-
in að það fé sem safnast á
Reykjavíkursvæðinu renni til
ofangreindra framkvæmda, en
a
að hjúkrunarheimili aldraðra á íóðinni við Kleppsveg 64, Guðríður Elíasdóttir fylgist með. -mynd Sverrír
Hafnarfjörður:
Atvinnuástandið skánað
Varnarliðið og gjaldeyrislög:
Hverra hags-
muna eru
þessir menn
að gæta?
- spyr Albert Guðmundsson, vegna
túlkunar utanríkisráðherra
■ „Ég spyr bara; hverra
hagsmuna eru þessir menn
að gæta? Okkar eða Banda-
ríkjamanna? Það er ekki
hægt að misskilja þessa grein
í varnarsamningnum. Hún
segir skýrt og greinilega að
Ameríkananum beri að lúta
íslenskum gjaldeyrislögum í
einu og öllu,“ sagði Albert
Guðmundsson, fjármálaráð-
herra, þegar hann var inntur
álits á túlkun utanríkisráðu-
neytisins á 10. grein varnar-
samningsins, sem greint var
frá í NT í gær.
„Ég get ekki ímyndað mér
að Seðlabankanum sé heim-
ilt að gefa út reglugerðir um
varnarliðið, sem eru lögum
frá Alþingi yfirsterkari.
Varnarsamningurinn hefur
lágagildi og öllum ákvæðum
hans ber að framfylgja eins
og öðrum lögum í landinu,"
sagði Albert þegar hann var
spurður um núgildandi regl-
ur um gjaldeyrisnotkun varn-
arliðsins, sem Seðlabankinn
setti 1983.
Þegar Albert var spurður
hvað hann ætlaði sér að gera
þessu máli, sagðist hann ætla
að ræða það í ríkisstjórninni
við fyrsta tækifæri.
Ingibjörg Hafstað í Útvarpsráði:
„Alltaf leiðin-
legt að vera
hafður að fífli“
■ „Það er nefnilega alltaf
leiðinlegt að láta hafa sig að
fífli,“ voru niðurlagsorð í
bókun Ingibjargar Hafstað,
útvarpsráðskonu, um ráðn-
ingu Markúsar Arnar Ant-
onssonar í stjórastöðurnar
umdeildu hjá sjónvarpinu,
en bókunin var lögð fram á
fundi Útvarpsráðs í gær.
Markús Á. Einarsson
sagðist á fundinum harma
ráðninguna, sem væri í trássi
við vilja meirihluta Útvarps-
ráðs og Árni Björnsson
kvaðst hafa velt því fyrir sér
hvers vegna ráðningin var
yfir höfuð borin undir ráðið,
þar sem vilji þess hafi að
engu verið hafður.
Fulltrúar Sjálfstæðis-
flokksins gerðu athugasemd-
ir við bókun Ingibjargar
Hafstað og sögðu hana fela í
sér dylgjur.
Hótel- og veitingaskólinn:
söfnunarfé á landsbyggðinni til
verkefna heima í héraði.
Einnig segja samtökin vitað
að ýmsar stofnanir, félög og
fyrirtæki séu þess albúin að
styðja og styrkja framkvæmdir
til almannaheilla. Til að auð-
velda þeim aðilum að leggja
sinn skerf af mörkum hafa m.a.
verið hugsaðar tvær leiðir.
í fyrsta lagi er ætlunin að
komið verði fyrir tré úr málmi í
anddyri hins nýja heimilis. Lauf
trésins verða úr kopar og er
hugmyndin að þeir sem vilja
leggja heimilinu liðsinni greiði
ákveðið gjald fyrir lauf sem þeir
kjósa að merkja sér með nafni
eða merki. Lauf þessi verða í
þrem stærðum og verð þeirra:
100, 300 og 500 þús. kr. eftir
stærð. Greiðslutími þess er
hugsaður 2-3 ár eftir samkomu-
lagi.
1 annan stað geta stærri fyrir-
tæki eða fjársterkir aðilar kosið
að minnast ákveðinna atburða,
náinna ættingja eða annars með
því að leggja fram andvirði eins
eða fleiri vistrýma, sem ýmiss
dæmi eru til um í svipuðum
tilvikum.
Þess má geta að íslendingar
sem orðnir eru 75 ára og eldri
eru nú um 10.500 talsins, helm-
ingur þess hóps er ekkjur.
Stroku-
fangi
■ Lögreglaleitarnúfangasem
slapp af Litla-Hrauni seint í
fyrrakvöld. Þegar NT hafði
samband við lögreglu á Selfossi
og Reykjavík í gær, hafði ekkert
frést af manninum. Gert hefur
verið viðvart á þeim stöðum
sem talið er líklegast að maður-
inn leiti á.
Nýtt skólahús í Kópavogi
Bæjarstjórn samþykkt teikningar en menntamálaráðuneytið ekki gefið grænt Ijós
■ Hótel- og veitingaskólinn á
við mikla húsnæðiserfiðleika að
etja. Hann er nú til húsa á Hótel
Esju í 700 fermetra húsnæði en
nemendur í skólanum eru um
100 talsins. Það þýðir að um 7
fermetrar eru á hvern nemarida
en samkvæmt dönskum stöðlum
um sambærilega skóla er reikn-
að með 23 fermetrum á nem-
anda.
Forráðamenn skólans eygja
nú lausn á þessum vanda, því
skólanum hefur nú verið úthlut-
uð lóð undir nýtt hús við Mennta-
skólann í Kópavogi. Að sögn
Friðriks Gíslasonar, skóla-
stjóra, er þegar búið að teikna
húsið og samþykkja teikn-
ingarnar af bæjarstjórn og bygg-
inganefnd Kópavogs. Arkitekt’
aðhúsinu er Benjamín Magnús-
son en húsið er um 4000 fer-
metrar að stærð.
Starfsemi skólans mun breyt-
ast verulega þegar hann kemst í
nýja húsnæðið. Sagði Friðrik,
að eiginlega mætti tala um að í
nýja húsinu yrðu fjórir skólar og
rúmlega það. Skólinn verður
með þessu fyrirkomulagi deild
út frá Menntaskólanum og mun
jafnframt breyta um nafn og
kallast námsleið í hótel- og
matvælagreinum. Verður boðið
upp á kennslu í matvælafram-
leiðslu, matreiðslu, fram-
reiðslu, kjötiðn og bakstri, en
kennslan í bakstri verður
tvíþætt, annarsvegar brauð-
bakstur og hinsvegar kökugerð.
Síðan eru áform uppi um að
bjóða upp á ýmsar hliðargreinar
eins og t.d. leiðsögumanna-
kennslu og námskeið fyrir hótel-
stjórnun og móttöku, auk margs
annars sem snertir ferðamanna-
iðnaðinn í landinu.
Friðrik sagði, að þó búið væri
að fá samþykki yfirvalda í
Kópavogi fyrir byggingunni,
væru ýmis ljón enn í veginum.
T.d. væri eftir að fá samþykki
menntamálaráðuneytisins fyrir
þessum breytingum og nýja
skólahúsinu, auk þess sém eftir
væri að fá fjárveitingu fyrir
byggingunni.