Morgunblaðið - 07.12.2003, Síða 42

Morgunblaðið - 07.12.2003, Síða 42
42 | 7.12.2003 Fyrir nokkru hafði samband viðmig kona sem á 26 ára gamlanson sem lengst af var mikið „mömmubarn“ og enn er í foreldra- húsum. „Ég er farin að hræðast að hann geti ekki slitið sig lausan og gifti sig kannski aldrei, hvernig get ég hjálpað honum að losna við þá félagsfælni sem mér finnst hann sýna, án þess að honum sárni og finnist að verið sé að ýta honum frá?“ spurði konan. Sú þróun virðist vaxandi að börn séu æ lengur í foreldrahúsum og að um þau sé hugsað nánast eins og þau séu „eilífir unglingar“. Þetta stafar vafalaust með- fram af mjög breyttum þjóðfélagsað- stæðum, fólk er margt hvert svo lengi við nám að það er í „barnshlutverki“ vegna þess miklu lengur en ella væri. Fyrst og fremst er heppilegt fyrir alla að komast burt úr foreldrahúsum þegar þeir eru uppvaxnir og þar með því hlutverki að vera óábyrgur sem barn. Þetta getur þó verið snúið, einkum ef efnahagur er slæmur. En oft má þó finna lausnir á slíku, t.d. væri hugs- anlegt að skipta við ættingja og vini á húsnæði, senda sitt ungmenni og fá í staðinn annað. Þetta er gert með góð- um árangri hvað skiptinema áhrærir og hefur gefist nokkuð vel. Það er þó all- tént þroskandi reynsla að vera á öðru heimili og kynnast öðrum siðum. Þetta fyrirkomulag ætti að geta virkað þótt í sama landi sé. Hafi ungi maðurinn á hinn bóginn fé á milli handa þá er eðli- legt að hann fái sér sem fyrst húsnæði þar sem hann getur búið. Sumir leigja húsnæði einir eða þá í félagi við kunn- ingja. Slík sambúð getur verð mjög þroskandi og skemmtileg en stendur venjulega ekki mjög lengi. Þetta getur þá verið stökkpallur út í lífið og í sam- búð eða hjónaband. Hafi ungu fólki ekki tekist að skapa sér nægilega trausta sjálfsímynd þá má reyna að hjálpa upp á sakirnar. Sé um félagsfælið fólk að ræða er hægt t.d. að gefa því aðgang að námskeiðum þar sem búast má við ungu fólki til að blanda geði við. Sumir hafa lélega sjálfsmynd að hluta t.d. hvað varðar jafnaldra sína, hafa kannski lent í einelti eða öðru. Þá má reyna að koma þessu fólki til hjálpar með því að gefa því tækifæri til að gera sem mest úr útliti sínu, þannig að það sé að minnsta kosti „í fullkomnu lagi“ að þessu leyti. Til er fólk sem vinnur við að ráðleggja öðrum hvað varðar hárgreiðslu, fatnað og framkomu. Benda má á þennan mögu- leika til að styrkja veika sjálfsmynd og bjóða fjárhagsaðstoð ef þörf er á. Síðast en ekki síst þarf ungt fólk að fá frið til að átta sig sjálft á kringumstæðunum og möguleikunum. Uppalendur verða að horfast í augu við að uppeldinu er lokið og unga fólkið verður sjálft að taka stökkið út í lífið og gera það með sínum hætti. Það reka sig allir á en flestir lifa það af og eru þá reynslunni ríkari. Hin- ir eldri verða að skilja að tími predikana og skipana er liðinn en tími vináttu og skilnings milli fulltíða fólks tekinn við. Guðrún Guðlaugsdóttir Álitamál Hvernig á að styrkja sjálfsmynd „mömmudrengs“? Stendur þú andspænis erfiðum aðstæðum? Guðrún Guðlaugsdóttir veltir upp möguleikum í stöðunni | gudrung@mbl.is Jamie Oliver Orecchiette með spergilkáli og ansjósum Þetta verðið þið að prófa. Penne og rigatoni er fínt í staðinn fyrir orecchiette og fæst víðast hvar. Handa 4 2 væn höfuð spergilkál 2 hvítlauksrif, afhýdd og söxuð 8 ansjósuflök 2 - 4 lítil, þurrkuð chili, mulin að smekk 4 vænar smjörklípur 455 g þurrkað orecchiette sjávarsalt og svartur, nýmalaður pipar 2 hnefar Parmaostur eða að smekk Notið lítinn hníf til að skera litlu höfuðin af stilknum og leggið þau til hliðar. Af- hýðið stilkinn, skerið neðan af honum eftir því sem þarf og hendið því. Skerið stilkinn í litla bita og setjið í stóran pott með hvítlauk, ansjósum, chili og helm- ingnum af smjörinu. Setjið lok yfir og látið malla hægt í 8–10 mínútur meðan þið sjóðið pastað í söltuðu, sjóðandi vatni. Það tekur svipaðan tíma, lesið leiðbeining- arnar á umbúðunum. Ég geri þetta reyndar stundum öðruvísi (og held það sé betra), en það er að sjóða spergilkálið með pastanu síðustu 4 mínúturnar. Þá verð- ur kálið nógu mjúkt til að borða en heldur bæði áferð og fallegum lit. Látið vatnið renna af pastanu, geymið smávegis af pastavatninu og bætið past- anu í hinn pottinn. Takið pottinn af hitanum. Saltið og piprið að smekk, bætið í af- ganginum af smjörinu og stórum hnefa af Parmaosti. Blandið vel, bætið í ögn af pastavatninu ef með þarf til að losa um pastað og gera það gljáandi. Berið strax fram, með afganginum af Parmaostinum stráðum yfir. Sæludagar með Jamie Oliver, PP-Forlag, 2003.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.