Morgunblaðið - 21.12.2003, Blaðsíða 3
21.12.2003 | 3
4 Flugan
Flugan flögraði um bæinn og
skoðaði Reykjavík.
6 Birna Anna
segir frá nokkrum ráðum fyrir nýliða
í fjölskylduboðum um jólin.
8 Púlsinn
Rebekka Rán Samper dregur upp
mynd af Åsne Seierstad höfundi
bókarinnar Bóksalinn í Kabúl.
10 Maður meðal manna
Hjörtur Magni Jóhannsson Fríkirkju-
prestur í Reykjavík segir alla menn
presta. Með oddi pennans og egg
orðsins berst hann gegn mismunun þjóð-
kirkjuskipulagsins.
16 Hræðist leiðann
Michael Young er einn athyglisverðasti
hönnuður sinnar kynslóðar. Max Borka
sýningarstjóri segir að Michael hafi kom-
ið með popp og gleði inn í
hönnunarheiminn.
21 Læknir og listamaður
Magnús Ágústsson barnahjartalæknir í
Bandaríkjunum hefur kunnað að lifa
lífinu. Þrátt fyrir erilsamt og krefjandi
starf hefur hann fundið tíma til að
sinna höggmyndalist.
24 Að hitta ekki á réttu gjöfina
Það eru ófá skref sem stigin eru nú í
desember í því skyni að finna réttu
jólagjöfina. Stundum eru gjafirnar
misheppnaðar þegar við sjáum að
glampann vantar í augu þess sem
heldur á gjöfinni.
26 Fjölmenning er almannaheill
Einar Skúlason framkvæmdastjóri
Alþjóðahúss segir fjölmenningarsamfélag
snúast um einstaklingsfrelsi innan
marka laga og réttar.
29 Straumar
Kjartan Ragnarsson leikstýrir jólaleikriti
Þjóðleikhússins sem er verk eftir Ibsen.
Tíska. Förðun. Hönnun. Heimili.
Matur og vín. Hollusta.
42 Álitamál
Guðrún Guðlaugsdóttir veltir upp
nokkrum hliðum á mannlegum málum.
45 Kona eins og ég
Sólveig Anna Bóasdóttir guðfræði-
doktor.
45 Frá mínum sófa séð og heyrt
Ragnheiður Gröndal söngkona.
46 Pistill
Friðrik Erlings skrifar.
Tímarit Morgunblaðsins Kringlunni 1, 103 Reykjavík,
sími 5691100, netfang: timarit@mbl.is Útgefandi Árvakur hf.
Umsjón Margrét Sigurðardóttir margret@mbl.is,
Valgerður Þ. Jónsdóttir, vjon@mbl.is
Auglýsingar sími 5691111 netfang augl@mbl.is
Bréfsími 5691110 Prentun Prentsmiðja Árvakurs hf.
ISSN 1670-4428
Forsíðumyndina tók Kristinn Ingvarsson af Hirti Magna
Jóhannssyni Fríkirkjupresti í miðbæ Reykjavíkur laugar-
daginn 13. desember 2003.
32
3816
Hver er tilgangurinn með þessu jarðlífi? – sungu Stuðmenn
hér um árið. Nú fer í hönd tími þar sem ráðrúm gefst til að
staldra við eftir annir daganna og velta fyrir sér þessari sí-
gildu og eilífu spurningu. „Sérhver maður skapar sér sinn
eigin raunveruleika og um leið sín eigin örlög.“ Þetta segir barnahjartalæknirinn Magnús Ágústsson
sem megnið af ævi sinni hefur starfað í Bandaríkjunum við lækningar og talar af reynslu enda verið til í
rúmlega 80 ár. Hann er lífskúnstner og ævintýramaður, þríkvæntur, á átta börn og nítján barnabörn.
Hann segist ætíð hafa notið þeirra gæða sem lífið hafi boðið upp á hverju sinni og tekur fulla ábyrgð á
öllu því sem á daga hans hefur drifið á lífsleiðinni. Lífið sjálft hefur haft áhrif á hugmyndavinnu breska
hönnuðarins Michael Young sem sagður er hafa komið með popp og gleði inn í hönnunarheiminn og er
þegar orðinn brautryðjandi. „Við þurfum að upplifa hæðir og lægðir í tilveru okkar til að viðhalda innri
auðlegð“, segir hönnuðurinn sem hræðist leiðann. Hjörtur Magni Jóhannsson prestur Fríkirkjunnar
segir að ef við lítum á okkur sem fólk á vegferð, á stöðugri hreyfingu, fólk sem hefur ekki höndlað sann-
leikann heldur leitast við að vera höndlað af sannleikanum, verði nálgunin önnur, opnari og meira skap-
andi. „Þá er leiðin að sannleikanum fagnaðarerindi í sjálfu sér, frjó, spennandi og skemmtileg.“ Prest-
urinn segir að við séum upptekin af umbúðum og yfirborði og hann veltir fyrir sér hvert sé innihaldið
og hver sé kjarninn. Erfiðar spurningar sem geta þó verið þess virði að glíma við þegar ró og friður fær-
ist yfir eftir hamaganginn sem fylgir undirbúningi jólanna. Hátíð ljóssins nálgast. Megi gleði fylgja ykk-
ur lesendur góðir. Njótið jólanna!
21.12.03
30