Morgunblaðið - 21.12.2003, Side 30
Þó að hvít jól séu yfirleitt ofarlega á óskalistanum
á þessum dimmasta tíma árs er rautt ekki síður
litur jólanna. Kúlur, kerti, ljós og aðrar skreytingar
í hárauðum lit kalla líka fram hátíðlega jólastemn-
ingu. Rauði liturinn þarf þá ekki að vera bundinn við
hús og heimili, heldur er ekki síður vel til fallið að kalla
fram hinn eina sanna jólaanda með rauðum klæðnaði,
skarti, skóm eða varalit.
1 Rauðir steinar í voldugri silfurfestingu.
Óvenjulegur hringur sem skákaðdáendur
kunna efalítið að meta. Dyrberg/Kern,
Rhodium, 4.390 kr.
2 Fyrir konuna eða köttinn? Rautt leð-
urhálsmen setur óneitanlega óvenjulegan
svip á sparifötin. Kenzo hálsmen frá
Hygeu, 4.900 kr.
3 Rauð gloss-slikja á vörum getur frískað
upp á þreytulegasta andlit. Estée Laud-
er Pure Color Lip Vinyl – Plastique
Red frá Clöru, 2.340 kr.
4 Hárautt naglalakk er sígild og
einföld leið að glæsileika án fyrir-
hafnar. Chanel Image Rose nagla-
lakk, Clara, 1.940 kr.
5 Hárauður varalitur í stíl að
hætti háskakvendisins í stíl setur
svo punktinn yfir i-ið. Chanel
Hydrabase varalitur – Image
Rose, Clara, 2.190 kr.
6 Úrkeðja lögð rauðu
krókódílaskinni er góð gjöf
fyrir dekurrófur sem vilja láta
á sér bera. Dolce & Gabbana
úr frá Rhodium, 18.700 kr.
7 Einfaldir eyrnalokkar með
rauðum steinum. Einfalt, klassíkt
og gengur vel við flest. Dyrberg/
Kern eyrnalokkar, Rhodium,
2.290 kr.
8 Hlý en um leið sparileg ullarkápa getur
yljað jafnvel kulnuðustu hjörtum. BZR-
kápa frá Evu, 23.990 kr.
9 Rauð taska kallar alltaf á athygli, en
hentar samt jafnt við fínni sem hvers-
dagslegri tækifæri. Hexagona taska,
Hygea, 7.500 kr.
10 Með rauðum leðurhönskum er
hægt að töfra fram fágun og glæsi-
leika með lítilli fyrirhöfn. Isotoner
hanskar frá Debenhams, 3.990 kr.
11 Glitrandi kristallsarmband getur
keppt jafnvel við best skreytta
jólatré um athygli. Leonard, 7.900
kr.
12 Samkvæmisveski
með krókódíla-
munstri er eins og
punkturinn yfir i-
ið þegar kemur að
samkvæmisklæðn-
aðinum. Furla
taska frá 38 þrep-
um, 13.000 kr.
13 Hárauðir skór
með pinnahælum og
mjórri tá lífga upp
venjulegasta klæðnað
og kalla fram jólaand-
ann um leið. Oasis,
7.990 kr.
14 Silfurhringur
með stórum rauður
rúbín er brýst fram
líkt og úr klaka-
böndum er óneitan-
lega glæsilegur á að líta.
Hringur eftir Kjartan Örn
Kjartansson, Or, 17.300 kr.
15 Konunglegar og jafnframt
jólalegar umbúðir um höfugan
ilm Alexanders McQueen,
Kingdom. Hönnunin minnir
líka nokkuð á ríkisepli. Clara,
4.300 kr.
16 Rauður jólakjóll, í anda
lífstykkisins, sem fellur vel
að línum líkamans kallar
óneitanlega á bæði aðdáun
og athygli. Karen Millen,
19.990 kr.
17 Rauðir skór verða áber-
andi næsta vor og því til-
valið að vera hagsýnn og
kaupa rauða spariskó fyrir
þessi jól. Again & Again
skór, GS skór, 7.900 kr.
annaei@mbl.is
Rauðjól
TÍSKA | ANNA SIGRÍÐUR EINARSDÓTTIR
3
8
10
9
11
2
1
5
13
12
6
14
17
15
7
16
4
L
jó
sm
yn
di
r:
G
ol
li
30 | 21.12.2003