Morgunblaðið - 31.08.2004, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 31.08.2004, Blaðsíða 2
FRÉTTIR 2 ÞRIÐJUDAGUR 31. ÁGÚST 2004 MORGUNBLAÐIÐ ÁLVER HAFA ÁHUGA Alcoa hefur sýnt því áhuga að reisa álver á Norðurlandi, til við- bótar við Fjarðaál á Reyðarfirði. Bæði Landsvirkjun og stjórnvöld hafa verið að kynna virkjunar- og stóriðjukosti á Norðurlandi fyrir stórum álfyrirtækjum, líkt og fram kom í Morgunblaðinu í júlí sl. Valgerður Sverrisdóttir iðn- aðarráðherra vildi í samtali við Morgunblaðið ekki staðfesta hvaða áhugasömu álfyrirtæki þetta væru en heimildir blaðsins herma að auk Alcoa séu þetta BHP-Billiton, Rio Tinto og Russal. Einn fórst og öðrum bjargað Kanadísk skúta fórst á Faxaflóa seinnipartinn í gær. Tveir menn voru um borð og var þeim bjargað um borð í þyrlu Landhelgisgæsl- unnar eftir að hafa verið í sjónum á aðra klukkustund. Var annar þeirra, maður á fimmtugsaldri, þá látinn. Farið var með hinn, ungan pilt á átj- ánda aldursári, á Barnaspítalann og var heilsa hans eftir atvikum góð. Sadr fyrirskipar vopnahlé Sjía-klerkurinn Moqtada Sadr fyrirskipaði í gær stuðningsmönnum sínum í Írak að virða vopnahlé í öllu landinu. Hann tilkynnti að vopnuð hreyfing sín myndi hætta uppreisn- inni gegn bandarískum hersveitum og írösku bráðabirgðastjórninni og taka þess í stað þátt í stjórnmálum landsins. Gíslar biðja um hjálp Arabísk sjónvarpsstöð sýndi í gær myndir af tveimur frönskum frétta- mönnum, sem rænt var í Írak, þar sem þeir skoruðu á frönsku stjórn- ina að verða við kröfu mannræningja um að afnema bann við höf- uðslæðum í ríkisskólum í Frakk- landi. Gíslarnir sögðu að þeir yrðu teknir af lífi ef bannið yrði ekki af- numið. Y f i r l i t Morgunblaðið Kringlunni 1, 103 Reykjavík. Sími 5691100 Innlendar fréttir frett@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Erlendar fréttir Ásgeir Sverrisson, fréttastjóri, asv@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Ólafur Stephensen, aðstoðarritstjóri, olafur@mbl.is Úr verinu Hjörtur Gíslason, fréttastjóri, hjgi@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Menning menning@mbl.is Orri Páll Ormarsson, ritstjórnarfull- trúi, orri@mbl.is Skarphéðinn Guðmundsson, skarpi@mbl.is Umræðan|Bréf til blaðsins Magnús Finnsson, fulltrúi ritstjóra, magnus@mbl.is Hallur Þorsteinsson, hallur@ .is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók|Kirkjustarf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp|Sjónvarp Andrea Guðmundsdóttir, andrea@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl Í dag Sigmund 8 Viðhorf 24 Viðskipti 12 Minningar 26/30 Erlent 14 Dagbók 32/34 Akureyri 17 Listir 35/37 Höfuðborgin 18 Fólk 38/41 Austurland 18 Bíó 38/41 Daglegt líf 19 Ljósvakar 42 Umræðan 20/25 Veður 43 Forystugrein 22 Staksteinar 43 * * * GUNNAR G. Schram, lagaprófessor og fyrr- verandi alþingismaður, er látinn, 73 ára að aldri. Hann fæddist á Akur- eyri 20. febrúar 1931, foreldrar hans voru Gunnar Schram og Jón- ína Jónsdóttir Schram. Gunnar lauk stúdents- prófi frá Menntaskólan- um á Akureyri 1950 og lögfræðiprófi frá Há- skóla Íslands árið 1956. Hann stundaði fram- haldsnám í þjóðarétti við Max Planck-stofnunina í Heidelberg í Þýskalandi og háskól- ann þar 1957–58 og við háskólann í Cambridge í Englandi, Sidney Suss- ex College, 1958–60. Hann lauk dokt- orsprófi í þjóðarétti við skólann árið 1961. Gunnar var blaðamaður á Morgun- blaðinu á háskólaárunum og 1956–57. Hann var ritstjóri Vísis 1961–1966. Gunnar réðst til starfa í utanríkis- ráðuneytinu 1966 þar sem hann var deildarstjóri auk þess að vera ráðu- nautur í þjóðarétti. Gunnar var lektor við lagadeild Há- skóla Íslands 1970, en 1974 var hann skipaður prófessor við skólann. Því starfi gegndi hann til ársins 2001. Hann var ráðunautur stjórnarskrár- nefndar 1975–1983. Gunnar var kjör- inn alþingismaður fyrir Sjálfstæðis- flokkinn í Reykjaneskjördæmi 1983–87 og varaþingmaður 1987–91. Gunnar gegndi fjölmörgum störf- um á sviði stjórnmála og félagsmála. Hann var varaformaður og ritari Sambands ungra sjálfstæðismanna 1953–57, formaður Blaðamannafélags Ís- lands 1962–63, fulltrúi í hafsbotnsnefnd Sam- einuðu þjóðanna 1969– 73, formaður Félags Sameinuðu þjóðanna 1971–73, í sendinefnd Íslands á hafréttarráð- sefnu Sameinuðu þjóð- anna 1973–82, formað- ur Lögfræðingafélags Íslands 1979–81, for- maður Félags háskóla- kennara 1979–81, for- maður Bandalags háskólamanna 1982– 86, í stjórn Aðstoðar Íslands við þró- unarlöndin, síðar Þróunarsamvinnu- stofnunar, 1977–87 og forseti laga- deildar Háskóla Íslands 1978–80 og 1992–94. Gunnar átti frumkvæði að því að koma á fót rannsóknarstofn- unum við Háskólann og var um tíma formaður stjórnar Alþjóðamálastofn- unar HÍ, formaður Mannréttinda- stofnunar HÍ og formaður Hafréttar- stofnunar Íslands. Hann tók þátt í alþjóðlegu starfi í hafréttar- og um- hverfismálum fyrir hönd Íslands og var t.d. í sendinefnd Íslands á úthafs- veiðiráðstefnu SÞ 1993–95. Eftir Gunnar liggja fjölmörg fræði- rit um þjóðarétt, stjórnskipunarrétt, umhverfisrétt, hafréttarmál og fleira. Gunnar kvæntist Elísu Steinunni Jónsdóttur og eignuðust þau fjögur börn, en fyrir átti Gunnar eina dóttur. Gunnar G. Schram starfaði á Morg- unblaðinu um hríð og skrifaði fjölda greina í það um árabil. Sendir blaðið fjölskyldu hans innilegar samúðar- kveðjur. Andlát GUNNAR G. SCHRAM MILDI er að ekki varð stórslys þegar 30 metra hár byggingar- krani féll á fjölbýlishús við Dagg- arvelli 4 í Hafnarfirði síðdegis í gær. Um tuttugu manns voru við vinnu í húsinu þegar slysið varð og flestir á efstu hæð. Einn maður slasaðist en meiðsl hans voru ekki mikil. Hávaðarok af suðaustan var í Vallahverfi síðdegis og samkvæmt veðurstöð í Straumsvík, sem er sú veðurstöð sem er næst hverfinu, var vindstyrkurinn 17 m/s. Að sögn Björns Bjarnasonar, verkstjóra byggingarfyrirtækisins Feðga ehf., sem er að reisa húsið, var ætlunin að fergja þakplötu sem var við það að fjúka upp og átti að nota kranann til að lyfta fargi upp á þakið. Kraninn var ómannaður og var stýrt með fjarstýringu á jörðu niðri. Verið var að snúa kran- anum þegar slysið varð en ekkert farg var komið á krókinn. Sjónarvottar sem Morgunblaðið ræddi við í gær sögðu að kraninn hefði fallið með gríðarlegum brest- um og hávaða. Björn segir að það hafi vissulega farið um sig þegar hann sá kran- ann falla á húsið en í því voru um tuttugu manns við vinnu. Flestir voru á fimmtu og efstu hæð en einn stóð ofan á þakplötunni. Sá slasaðist lítilsháttar þegar hann fékk timbur á sig en ljóst er að margir voru í lífshættu þegar kran- inn féll. Aðspurður segir Bragi að kran- inn hefði átt að standast vindinn og átt að þola meira álag. Þetta sé einn nýlegasti krani landsins, fjög- urra ára gamall, og því hljóti eitt- hvað að hafa verið að honum. Dett- ur honum helst í hug að málmþreyta hafi valdið slysinu. Kraninn, sem er alls 80 tonn að þyngd, er gjörónýtur en hann er metinn á um átta milljónir. Þá varð nokkurt tjón á húsinu, m.a. kom stórt gat í vegg auk þess sem skemmdir urðu á þakplötu. Kraninn féll yfir húsið og bóman steyptist niður við húsgrunn norð- an við það. Búið er í sumum húsum í nágrenninu og hefði vindátt verið önnur hefði kraninn getað fallið á þau. Lögreglan í Hafnarfirði og Vinnueftirlitið rannsaka nú málið. Veggplötur fuku við Reykjavíkurveg Hvöss suðaustanáttin olli vand- ræðum víðar í Hafnarfirði síðdegis í gær og bæði lausir munir og nagl- fastir fuku um bæinn. Að sögn lögreglunnar í Hafn- arfirði fuku veggplötur af byggingu við Reykjavíkurveg, drasl fauk af lagerlóð Húsasmiðjunnar við Helluhraun og á bíl. Skilti verktaka sem vinna að breytingum á Reykjanesbraut milli Lækjargötu og Kaplakrika fuku um koll jafnvel þótt á steyptum undirstöðum væru og loks fuku þakplötur af húsi Samfylkingarinnar við Strandgötu. 30 metra byggingarkrani féll á fjölbýlishús í Vallahverfi Flestir voru við vinnu á efstu hæð hússins EKKI munaði nema hársbreidd að bóman á kran- anum lenti á bíl sem ekið var meðfram húsinu í þann mund sem hann féll. Daníel Sigurðsson, sem vinnur á krana og sinnir uppsetningu og eftirliti með þeim, var við annan mann í bílnum þegar hann heyrði mikinn hávaða fyrir aftan bílinn. Hann leit upp og sá bómuna stefna beint á bílinn. Hann segir þetta hafa gerst hratt og gríð- arlegur hávaði orðið þegar kraninn skall til jarðar. Helst hafi þetta minnt á bandarískar stórslysamyndir. Daníel var uppi í krananum fyrir nokkrum dögum til að kanna ástand hans og segir að það hafi vissu- lega farið um sig þegar hann sá hvernig fór fyrir hon- um. Morgunblaðið/ÞÖK Daníel Sigurðsson var í bíl sem ekið var meðfram húsinu í þann mund sem kraninn féll. Turn kranans er hinum megin við húsið en bóman féll yfir það. Eins og í bandarískri stórslysamynd                                  ! " #             $         %&' ( )***                        

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.