Morgunblaðið - 31.08.2004, Síða 6

Morgunblaðið - 31.08.2004, Síða 6
VAXTASTIG reiknast inn í vísitölu neysluverðs og lækkandi vextir munu hafa áhrif til lækkunar á neysluvísitöluna í framtíðinni en áhrifin verða lítil fyrst í stað. „Þetta kemur mjög tregbreytilega inn í vísitöluna því við notum alltaf 60 mánaða meðaltal vaxtanna, þ.e.a.s. meðaltal síðustu fimm ára. Þannig að áhrifin vegna breytinganna nú verða óveruleg,“ segir Rósmundur Guðnason, deildarstjóri vísitölu- deildar Hagstofunnar, og bætir við að menn viti enn ekki hversu mikið af lánum bankarnir séu búnir að af- greiða. Hann segir að Hagstofan muni væntanlega biðja bankana um tölur yfir lánaafgreiðslur. „Þegar þetta verður eitthvað verulegt þá tökum við það inn í [vísitöluna]. Það renna hins vegar allir blint í sjóinn með þetta, menn átta sig enn ekki al- mennilega á því hver raunverulegu áhrifin verða því þarna er líka aukið lánshlutfall sem hefur hugsanlega áhrif,“ segir Rósmundur. Hann segir langtímaraunvaxta- stig vera hluta af voginni við út- reikning vísitölu neysluverðs en það hafi verið og sé tregbreytilegt nema þegar kerfisbreytingar verði, eins og til að mynda nú í sumar þegar kerfinu hjá Íbúðalánasjóði hafi verið breytt eða eins og þegar vextir á húsnæðislánunum lækkuðu úr 6% í 5,1% fyrir rúmum áratug. Nú í ágúst hafi Hagstofan ákveðið að raunvextirnir, sem notaðir eru við útreikninginn miðist framvegis við meðaltal þeirra undanfarin fimm ár. Í upphafi verði útreikningstímabilið frá mars árið 2000 (54 mánuðir) en þá hafi vísitalan fyrst verið reiknuð miðað við verðlag fasteigna á öllu landinu. Raunvöxtum verði síðan breytt mánaðarlega og bætt við meðaltalið þar til 60 mánuðum er náð, í febrúar árið 2005. Eftir það verður í hvert sinn felldur brott einn mánuður og nýjum mánuði bætt við. Rósmundur segir að þetta eigi að tryggja að skammtímabreytingar á raunvöxtum húsnæðislána valdi ekki skyndilegum breytingum sem gætu haft umtalsverð áhrif á niðurstöður mánaðarmælingar vísitölunnar. Hins vegar er tryggt að breytingar á raunvaxtastigi til langframa endur- speglist í verðmælingunni. Vaxtastig reiknast inn í vísitölu neysluverðs Áhrifin verða lítil til að byrja með Morgunblaðið/ÞÖK FRÉTTIR 6 ÞRIÐJUDAGUR 31. ÁGÚST 2004 MORGUNBLAÐIÐ Bankar farnir að afgreiða íbúðalán KB banki, Íslandsbanki, Lands- banki og SPRON eru allir farnir að afgreiða íbúðalán til viðskiptavina sinn og mikið hefur verið að gera hjá þeim að undanförnu vegna fyrir- spurna frá fólki sem vill kynna sér íbúðalán bankanna og athuga hvort þau séu hentugur kostur fyrir við- komandi. Helena Jónsdóttir, forstöðumaður sölu- og þróunardeildar KB banka, segir bankann hafa byrjað að af- greiða íbúðalán snemma í síðustu viku og þessi starfsemi sé því komin vel af stað hjá bankanum. Mæla með því að fólk taki sér góðan tíma til að skoða málin Heba Björnsdóttir, forstöðumað- ur einstaklingsviðskipta hjá Íslands- banka, segir bankann hafa afgreitt fyrstu íbúðalánin í gær en bankinn hafi auðvitað verið farinn að taka við umsóknum fyrir helgina en nú sé byrjað að afgreiða þær. „Það er heil- mikið að gera í útibúunum hjá okk- ur. Manni fannst að fólk róaðist að- eins fyrir helgina og gerði sér grein fyrir því að þetta eru stór og mikil mál sem ekki á að flana að og fólk þarf að skoða vel. Við mælum með því að fólk geri það. En það er kannski fyrst og fremst þeir sem eru einmitt að standa í íbúðarkaupum núna sem þurfa að ganga hraðar frá sínum málum,“ segir Heba. Ingólfur Guðmundsson, fram- kvæmdastjóri einstaklings og mark- aðssviðs hjá Landsbanka Íslands, segir bankann þegar byrjaðan að af- greiða íbúðalán til viðskiptavina sinna enda hafi hann verið vel und- irbúinn undir slíkt enda t.d. verið með erlend húsnæðislán. „Við höfum afgreitt lán um nánast allt land þessa daga. Það er búið að sam- þykkja alveg gífurlegan fjölda af lánum. Skuldabréfin eru tilbúin en þau þurfa að fara í þinglýsingu o.s.frv.,“ segir Ingólfur. Hann segir mikið að gera í útibú- unum í tengslum við íbúðalánin. Fasteignaþjónusta bankans hafi t.d. verið opin á laugardaginn frá tíu til tvö og þá hafi verið stöðugur straumur fólks. „Fólk er mjög áhugasamt um að skoða hvernig þetta kemur út og vill ræða við þjón- ustufulltrúa sína um málið,“ segir Ingólfur. Guðmundur Hauksson, spari- sjóðsstjóri hjá Sparisjóðs Reykja- víkur og nágrennis, segir SPRON vera byrjaðan að afgreiða nýju íbúðalánin, fyrstu lánin hafi verið af- greidd fyrir helgina. Guðmundur segir mikið hafa verið að gera í útibúum SPRON, aðallega vegna þess að fólk sé mikið að spyrjast fyr- ir um nýju lánin og reyna átta sig á hvað þetta þýðir. „Við ráðleggjum fólki að skoða vel sinn gang áður það hleypur til og tekur ný lán því það er að ýmsu að hyggja í þessum efnum og það þarf að skoða hvert einstakt mál vandlega,“ segir Guðmundur. ÍSLANDSBANKI hefur veitt hús- næðislán sem nema allt að 80% af markaðsvirði húsnæðis um allt land frá síðustu áramótum þegar bankinn tók frumkvæði í því að veita óverð- tryggð húsnæðislán í íslenskum krónum og erlendri mynt. Þetta kemur fram í tilkynningu frá bankanum. Þar kemur ennfremur fram að sérfræðingar úr Greiningu Íslandsbanka ásamt þjónustufulltrú- um verða með ráðgjöf til almennings varðandi ólíka kosti sem bjóðast í húsnæðislánum í Þjónustuveri bank- ans næstu þrjú kvöld frá kl. 18 til 22. Samanburður á húsnæðislánum flókinn „Samanburður á húsnæðislánum er flókinn og útreikningur á greiðslu- byrði vefst fyrir mörgum, jafnframt því sem fjármögnun fasteigna felur yfirleitt í sér stærsta útgjaldalið í rekstri hvers heimilis. Því er mikil- vægt að almenningur ígrundi vel þá kosti sem standa til boða. Þar sem að- stæður hvers lántakanda eru einstak- ar verður boðið upp á þessa persónu- legu ráðgjafaþjónustu sérfræðinga Greiningar Íslandsbanka og þjón- ustufulltrúa,“ segir einnig. 80% lán hjá Íslands- banka ♦♦♦ ÞÓRA Björg er einn þeirra ein- staklinga sem sótt hafa um íbúða- lán með föstum 4,4% verð- tryggðum vöxtum hjá viðskiptabanka sínum, Sparisjóði vélstjóra (SPV), til þess að létta greiðslubyrði sína. Þóra Björg er 34 ára og býr með börnum sínum tveimur í eigin íbúð sem hún keypti fyrir um þremur árum. Hún segist hafa tekið lán hjá Íbúðalánasjóði á sínum tíma en auk þess hafi hvílt á íbúðinni þrjú eldri lán sem ekki séu mjög hagstæð. „En svo hefur þetta þyngst smám saman, ég er ein með tvö börn og ekki í hálaunaðri vinnu og maður fer að taka lán til þess að bjarga yfirdrætti og svo tekur maður ann- að lán o.s.frv. Greiðslubyrðin var því orðin töluvert mikil á mánuði þannig að þetta kom eins og himnasending fyrir mig.“ Greiðslubyrðin hjá Þóru Björgu léttist um 55 þúsund á mánuði við endurfjármögnunina. „Þetta mun- ar alveg svakalega miklu fyrir mig og svona upphæð tekur maður ekki af kaupinu sínu. Ég tek 80% lán til 25 ára hjá SPV og yfirdrátt- urinn minn fer líka inn í þetta og ég losna við hann og þetta gerir mér lífið miklu auðveldara. Ég get ekki annað en hagnast á þessu. Ég á ofsalega góða að og það eru við- skiptafræðingar í fjölskyldunni og ég hef ráðfært mig við þá og Frey- dís, þjónustufulltrúi minn hjá SPV, settist niður og reiknaði þetta fyrir mig. Ég skildi fyrir fjórum árum og fór þá með mín mál í SPV og þau tóku bara við mér þar og eru búin að gera allt fyrir mig. Ég vinn frá níu til fimm en ég var farin að sjá fram á að þurfa að fara að vinna um helgar til þess að ná endum saman þannig að þetta breytir öllu fyrir mig. Ég sé fram á að vera laus við andvökunætur vegna peningaáhyggna, það er númer eitt, tvö og þrjú,“ segir Þóra Björg. „Laus við and- vökunætur vegna peningaáhyggna“ FREYDÍS Ármannsdóttir, þjónustu- fulltrúi Þóru Bjargar, segir hana hafa verið að borga um 127 þúsund mánaðarlega af öllum lánum sínum en miðað við nýja lánið til 25 ára með 4,4% vöxtum eigi greiðslubyrði hennar að verða um 72 þúsund á mánuði. „Þannig að hún er með þessu að lækka greiðslubyrðina um 55 þúsund krónur á mánuði.“ Freydís segir skammtímalán Þóru Bjargar einkum hafa verið óhagstæð auk þess sem hún hafi verið að greiða af nýlegum Íbúða- sjóðslánum sem hún sé ekki búin að greiða lengi af þannig að það borgi sig fyrir hana að losa sig við þau. Húsnæðislánin sem Þóra Björg hafi einkum verið að greiða af hafi verið 5,7% og 6% vöxtum en auk þess hafi hvílt tvö eldri en mun lægri húsnæð- islán með lægri vöxtum á íbúðinni þannig að ekki hafi verið spurning að endurfjármögnun væri hagstæð jafnvel þótt hún væri ekki að lengja í lánunum. Og í stað þess að greiða af fjórum húsnæðislánum með mis- munandi vöxtum greiði hún af einu láni hjá SPV. Þá sé mun þægilegra fyrir hana og sparisjóðinn að hún sé komin með öll lán á sama stað. Freydís segir mikið hringt vegna nýju íbúðalánanna. „Það liggur við að önnur hver afgreiðsla tengist nýju lánunum. Við erum á fullu í þessu,“ segir Freydís. Greiðslubyrðin lækkar um 55 þúsund á mánuði Morgunblaðið/Jim Smart Freydís Ármannsdóttir, þjónustu- fulltrúi hjá SPV, ræðir við við- skiptavin sinn. Miðað við markaðs- virði á virk- um mark- aðssvæðum LANDSBANKINN lánar 80% af markaðsvirði fasteigna á virkum markaðssvæðum. Bankinn hefur þannig lánað 80% til tiltekinna eigna á Reyðarfirði, Selfossi, Eg- ilsstöðum, Ísafirði, Reykjanesbæ, Akureyri og fleiri stöðun utan höf- uðborgarsvæðisins. Þetta kemur meðal annars fram í tilkynningu frá bankanum. Því sé það ekki rétt sem fullyrt hafi verið í fjölmiðlum að Landsbankinn láni 60% af markaðsvirði fasteigna á landsbyggðinni. Hið rétta sé að lánshlutfall Landsbankans sé allt að því 80% af markaðsvirði fast- eignar á virkum markaðssvæðum og við mat á þessu sé hvert tilfelli skoðað og seljanleiki eignarinnar metinn. Landsbankinn

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.