Morgunblaðið - 31.08.2004, Síða 11

Morgunblaðið - 31.08.2004, Síða 11
FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 31. ÁGÚST 2004 11 TVEIR menn voru fluttir á slysa- deildina í Fossvogi um helgina eft- ir að eldamennska þeirra mistókst herfilega. Lögreglan í Reykjavík telur fullt tilefni til að vara fólk við að hita sér mat að næturlagi þegar það er í „misjöfnu“ ástandi. Annar maðurinn sofnaði út frá potti á eldavél aðfaranótt laug- ardags og var hann fluttur á slysadeild til athugunar. Rétt fyrir miðnætti sama dag var tilkynnt um reyk frá íbúð í austurbænum. Í ljós kom að kviknað hafði í steikarpönnu. Íbúinn virtist hafa verið í annarlegu ástandi þegar hann hóf eldamennskuna. Hann var fluttur á slysadeild vegna reykeitrunar. Varasöm eldamennska um miðja nótt TALIÐ er að börn sem voru að fikta með eldspýtur hafi kveikt eld í bílskúr á Patreksfirði á sunnudagskvöld. Aðeins er um einn metri frá bílskúrnum að íbúðarhúsi úr timbri og telur lög- reglan á Patreksfirði það mikla mildi að ekki fór verr. Að sögn lögreglu brást eigandi bílskúrsins hárrétt við með því að halda bílskúrsdyrunum lokuðum og tryggja að súrefni kæmist ekki að eldinum þar til slökkvilið kom á staðinn. Reykskemmdir voru talsverðar en engin slys á fólki. Fiktarar kveiktu eld FIMM bensínknúnum leik- fangabílum, að verðmæti 200–300 þúsund krónur, var stolið úr leik- fangabúð í Árbæjarhverfi aðfara- nótt laugardags. Samkvæmt upplýsingum frá lög- reglunni í Reykjavík er um að ræða einn Manace 21, gráan að lit með bláum eldingum, einn gulan Nitro MT2, tvo Savage sem eru gráir og fjólubláir og einn Nitro RS4. Þá var einnig stolið stýri af gerðinni Isotta. Fimm dýrum leik- fangabílum stolið LILJU Mósesdóttur hefur verið falið að taka þátt í störfum sér- fræðingahóps ESB fyrir Íslands hönd. Sérfræðingahópurinn mun starfa á vegum framkvæmda- stjórnar ESB næstu þrjú árin og gera árlega tvær sam- anburð- arúttektir á at- vinnu-, félags- og jafnrétt- ismálum. Niðurstöður úttektanna mun framkvæmda- stjórnin nota við stefnumótun í vinnumarkaðsmálum. Hópurinn samanstendur af 30 óháðum sér- fræðingum frá aðildarlöndum ESB, Búlgaríu, Íslandi, Liechten- stein, Noregi og Rúmeníu. Ísland með í vinnumarkaðs- úttektum ESB Lilja MósesdóttirM eð því að leggja áherslu á menntun stúlkna í þróunarlöndum þar sem menntun barna er ótrygg er hægt að slá margar flugur í einu höggi, og vinna gegn alnæmi, vatnsskorti, skorti á hreinlæti o.fl. með því að tryggja rétt barna til náms, segir Cream Wright, yfirmaður mennta- mála hjá Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna (UNI- CEF). Hann kom hingað til lands í gær til að halda fyrirlestur í Háskólanum á Akureyri um mikilvægi menntunar stúlkna í þróunarmálum. „UNICEF einsetur sér að hjálpa löndum að ná því takmarki sem þau hafa sett sér í menntunarmál- um barna. Það er ótrúlegt að í heiminum í dag séu fleiri en 120 milljón börn sem ekki hafa neinn að- gang að skólum eða nokkurs konar grunnmenntun. Þetta á sérstaklega við um stúlkur,“ segir Wright. Hann segir þetta ekki bara slæmt vegna þess að stúlkurnar fái ekki þá menntun sem þær ættu að eiga rétt á að fá, heldur vegna þess að reynslan sýni að það hefur áhrif á næstu kynslóðir á eftir. Þegar ung stúlka sem fer aldrei í skóla verður móðir er hún ólíklegri til að senda dóttur sína í skóla heldur en ef hún væri menntuð sjálf. Ómenntaðar konur nýta sér einnig síður heilbrigðisþjónustu, passa verr upp á að börn þeirra fái rétta næringu o.fl. Margar ástæður fyrir mun á drengjum og stúlkum „Þetta er ekki bara spursmál um menntun, held- ur tengist þetta þróunarstarfi,“ segir Wright. „Það eru fjölmargar ástæður fyrir því að stúlkur fara ekki í skóla, eða ef þær fara í skóla þá flosna þær upp úr námi. Það sem við hjá UNICEF höfum verið að gera er að komast að því hvað það er sem er að hindra stelpurnar í að fara í skóla,“ segir Wright. Eitt af því sem fram hefur komið er að stúlkur hjálpa meira til á heimilunum, og því vilja foreldr- arnir síður missa þær í skóla. Í stórum fjölskyldum senda foreldrarnir frekar drengi í skóla. En Wright segir vandamálin líka hjá skólunum. „Þegar langt er í næsta skóla og börnin þurfa að ganga lengi í skólana hafa foreldrarnir áhyggjur af öryggi þeirra, og á það frekar við um stúlkur en drengi.“ Einnig er víða mikið vandamál með vatn og hreinlætisaðstöðu í skólum, ef skólarnir eru ekki með rennandi vatn eða hreinlætisaðstöðu hætta stúlkurnar frekar námi en drengir, sérstaklega þegar þær verða eldri. Næring spilar einnig inn í, svangir nemendur einbeita sér ekki að náminu, og því þurfa skólar að bjóða upp á mat fyrir nemendur. Kennarar geta líka verið vandamálið, sumir mis- muna stúlkum eða jafnvel misnota þær þegar þær verða eldri. Menntun þýðir meiri lífsgæði Wright segir að af þessu megi sjá að vandamálin séu mörg, en um leið og það sé búið að komast að því hver þau eru sé auðveldara að vinna markvisst að því að bæta menntun stúlkna. Með því að vinna að menntun stúlkna er hægt að slá margar flugur með einu höggi. „Þegar við vinnum að því að bæta menntun stúlkna erum við í raun að vinna að þróun- arhjálp í mun víðara samhengi, og þar af leiðandi bættum lífsgæðum. Í mörgum samfélögum þar sem fólk hefur aldrei haft gott aðgengi að vatni og hrein- lætisaðstöðu hefur verið hafist handa við að grafa brunna og þess háttar beinlínis vegna þess að það var byrjað á að bæta þessi atriði í skólunum. Fólkið sér að það er gott vatn og hreinlætisaðstaða í skól- unum og vill hafa það líka heima hjá sér,“ segir Wright. Þannig má hafa áhrif á samfélögin með því að gera breytingar í skólanum. Þetta sést jafnvel enn betur þegar kemur að fræðslu um alnæmi, þar sem Wright segir að þurfi að leggja áherslu á fræðslu hjá börnum. Börnin þurfa að læra um sjálf sig, sam- skipti við annað fólk, hvað sé í lagi og hvað ekki. „Til lengri tíma litið er þetta besta bóluefnið gegn HIV- smiti, að mennta börn þannig að þau alist upp við það að vita af hættunni og hvernig sé hægt að minnka áhættuna á smiti.“ Tvær aðferðir til þróunarhjálpar Lönd heims geta beitt ýmsum aðferðum til að bregðast við vandamálinu og hjálpa til. Wright seg- ir að tvenns konar tegundir verkefna komi þar til greina. Annars vegar sé hægt að vinna að ákveðnu þróunarverkefni á tiltölulega litlu svæði, og þegar reynsla kemst á verkefnið má ef vel gengur yf- irfæra verkefnið á heilu löndin. Hins vegar er ný hugsun í þróunarstarfi að fá alla aðila sem áhuga hafa til að leggja fé í vítt skilgreind verkefni, og leyfa þá UNICEF að ráðstafa fénu eins og best þykir henta í því verkefni. Wright nefnir sem dæmi um hið fyrra hvernig Ís- land hefur lagt fé í að styðja við verkefni fyrir börn á aldrinum 3–6 ára í Guineu-Bissá í Afríku. Þar er markmiðið að undirbúa bæði börn og foreldra undir það að börnin fari í skóla við 6–7 ára aldur, m.a. með því að koma þeim í pössun hluta úr degi utan heim- ilisins. Það segir Wright skipta miklu máli, vegna þess að annars séu meiri líkur á að börnum, og þá sérstaklega stúlkum, séu fengin ákveðin verkefni á heimilinu sem síðar meir geti orðið mikilvægari í huga foreldranna en að senda börnin í skóla. Kemur í veg fyrir sóun á fé Sem dæmi um það þegar fé er lagt í stærra verk- efni segir Wright að megi líta til þess verkefnis sem hann vinnur að, menntun stúlkna. Hann segir að það sé óneitanlega framtíðin að ríki og einkaaðilar sem leggja fé í verkefni hafi minni stjórn á því í hvað nákvæmlega peningarnir fara, sem getur komið í veg fyrir að peningum sé sóað í óþörf verkefni eða verkefni sem lognist út af þegar áhuginn minnkar. Wright segir að þegar upp er staðið sé mikilvægt að halda því til haga að menntun sé réttur hvers barns, öll börn ættu að hafa í það minnsta þann möguleika að gera eitthvað með líf sitt. Það segir hann vera grundvöllinn fyrir svo margt annað sem betur mætti fara í þróunarlöndunum, svo sem al- næmisvá, vatnsskort og skort á hreinlætisaðstöðu. Áætlað að yfir 120 milljónir barna hafi ekki aðgang að skólum eða grunnmenntun Menntun stúlkna getur haft stórkostleg áhrif Morgunblaðið/ÞÖK Cream Wright, yfirmaður menntamála hjá SÞ. „UM leið og við erum að sinna börnum annars staðar í heiminum erum við að sinna okkar eigin börnum,“ segir Vigdís Finnbogadóttir, fyrrver- andi forseti Íslands, en hún er verndari Heimsfor- eldra, söfnunarátaks UNICEF á Íslandi. „Við getum öll orðið heimsforeldrar, þetta er bara foreldraumhyggja fyrir öllum börnum heimsins,“ segir Vigdís. Hún bendir öllum sem lið geta veitt að skrá sig sem Heimsforeldri, og þar með styrkja m.a. menntun stúlkna í heiminum, sem og önnur góð verkefni. „Margt smátt gerir eitt stórt, það þarf ekki að ganga nærri sér í þessu máli, en það er fjarska gott að vita að það sem maður leggur af mörkum ratar á réttan stað,“ segir Vigdís. Nánari upplýsingar og skráning eru á vef UNI- CEF á Íslandi, www.unicef.is. Heimsforeldri mennta stúlkur Menntun stúlkna er víða ábóta- vant í þróunarlöndunum, en menntun er grunnurinn fyrir margs konar breytingar þar. Brjánn Jónasson ræddi við Cream Wright, yfirmann menntamála hjá Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna, um áherslur samtakanna í menntamálum. brjann@mbl.is Reuters Þegar ung stúlka sem fer aldrei í skóla verður móðir er hún ólíklegri til að senda dóttur sína í skóla en ef hún væri menntuð sjálf, segir Wright. Ómennt- aðar konur nýti sér einnig síður heilbrigðisþjónustu. Myndin er af alsírskum stúlkum með spjöld skreytt áletrunum úr Kóraninum. MÓÐIR og sex ára sonur hennar slösuðust lítillega þegar bifreið þeirra fór út af Snæfellsnesvegi og fór tvær veltur utan vegar um sjö- leytið á sunnudagskvöld. Sam- kvæmt upplýsingum frá lögregl- unni í Stykkishólmi missti konan stjórn á bílnum með fyrrgreindum afleiðingum. Bifreiðin er gjörónýt og var flutt burt með kranabíl. Drengurinn fékk vægt höf- uðhögg við veltuna og voru mæðg- inin lögð inn á sjúkrahúsið í Stykk- ishólmi til aðhlynningar. Meiðslin voru þó ekki talin alvarleg og komu bílbelti og barnastóll í veg fyrir al- varlegri slys, að sögn lögreglu. Belti og bílstóll komu í veg fyrir alvarlegri slys

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.