Morgunblaðið - 31.08.2004, Page 13
ÚR VERINU
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 31. ÁGÚST 2004 13
Hefur flú fengi› i›gjaldayfirliti›?
Lífeyrissjóður verzlunarmanna hefur sent sjóðfélögum yfirlit yfir móttekin iðgjöld á
tímabilinu 1. janúar til 30. júní 2004. Ekki er óeðlilegt að greiðslur fyrir mánuðina
maí og júní sl. vanti á yfirlitið.
Mikilvægt a› bera saman yfirlit og launase›la!
Hafir þú ekki fengið yfirlit, en dregið hefur verið af launum þínum í Lífeyrissjóð
verzlunarmanna, eða ef launaseðlum ber ekki saman við yfirlitið, þá vinsamlegast
hafðu samband við viðkomandi fyrirtæki og/eða innheimtudeild sjóðsins hið allra
fyrsta og eigi síðar en 1. október nk.
Gættu réttar flíns!
Mikilvægt er að fullvissa sig um að upplýsingarnar um iðgjöldin til lífeyrissjóðsins
sem tilgreind eru á yfirlitinu séu í samræmi við launaseðla. Verði vanskil á greiðslum
iðgjalda í lífeyrissjóð geta dýrmæt lífeyrisréttindi glatast.
N
O
N
N
I
O
G
M
A
N
N
I
•
N
M
1
3
0
6
7
•
s
ia
.i
s
Skrifstofa sjó›sins er opin frá kl. 8.30–16.30, Húsi verslunarinnar 4. og 5. hæ›, 103 Reykjavík
Til sjó›félaga
www.live.is
Sími: 580 4000 | Myndsendir: 580 4099 | skrifstofa@live.is | www.live.is
ÍSLENSKA hugbúnaðarfyrirtækið
Maritech, dótturfélag TölvuMynda
hf., hefur keypt ráðgjafarfyrirtækið
Surefish sem sérhæfir sig í ráðgjöf
til sjávarútvegsfyrirtækja og fisk-
mati. Höfuðstöðvar Surefish eru í
Seattle í Bandaríkjunum en alls
starfa 16 starfsmenn hjá fyrirtæk-
inu í Washingtonríki, Alaska og
Massachusetts í Bandaríkjunum og
Kóreu og Víetnam. Eftir kaupin er
starfsemi Maritech í fjórum heims-
álfum; Evrópu, Norður- og Suður-
Ameríku og Asíu.
Halldór Lúðvígsson, forstjóri
Maritech, segir kaupin efla starf-
semi Maritech í Norður-Ameríku,
sérstaklega á vesturströndinni, en
Maritech opnaði skrifstofu í Seattle
fyrr á þessu ári. Um leið er Mari-
tech að taka sín fyrstu skref inn á
Asíumarkað.
Maritech hefur verið í fremstu
röð í heiminum við þróun rekjan-
leikakerfa fyrir matvæli og er leið-
andi í þróun staðla um rekjanleika á
vegum Evrópusambandsins. Mari-
tech hefur unnið að þróun Wise-
Fish-upplýsingakerfisins í 15 ár og
innleitt það hjá ríflega 800 við-
skiptavinum í 12 löndum en Wise-
Fish er hannað með þarfir sjávar-
útvegs og fiskeldis í huga. WiseFish
nær til allrar virðiskeðju sjávarút-
vegs og fiskeldis, ýmist með sam-
þættingu viðskiptalausna eða inn-
leiðingu lausna sem ná til tiltekinna
hluta virðiskeðjunnar.
„Með auknum kröfum um rekj-
anleika matvöru og strangari lög-
gjöf á því sviði beggja vegna Atl-
antshafsins er eftirspurn eftir
ráðgjöf af því tagi, sem Surefish
býður, sífellt að aukast. Meðal þess
sem Surefish sérhæfir sig í er rekj-
anleikaráðgjöf, HACCP-áætlanir,
innköllunaráætlanir, upprunamerk-
ingar og úttektir. Með kaupunum á
Surefish getur Maritech boðið nú-
verandi viðskiptavinum slíka ráð-
gjöf, ekki síst hér í Evrópu,“ segir
Halldór Lúðvígsson.
Rekjanleiki er vel þekkt hugtak í
matvælaframleiðslu. Með því er átt
við að rekja megi feril vöru frá veið-
um/hráefnisstigi og alla leið til neyt-
andans. Síðastliðin ár hefur aukin
áhersla verið lögð á rekjanleika
matvæla í Evrópu og Bandaríkjun-
um og lög tekið gildi þar um.
Ástæðu þess má rekja til áfalla inn-
an matvælaiðnaðarins, aukinnar vit-
undar um umhverfismál en ekki síst
til ótta við hryðjuverk með eitur-
efnum.
Fyrirtæki hafa í auknum mæli
tekið hugbúnað í notkun til að upp-
fylla lagaskilyrði um rekjanleika
vöru og ryðja þannig úr vegi hindr-
unum fyrir sölu afurða milli landa.
En þau sjá ekki síður að rekjanleiki
vöru felur í sér tækifæri. Innköllun
afurða vegna áfalla verður auðveld-
ari og markvissari og fjárhagslegu
tjóni er haldið í lágmarki. Kröfur
smásölufyrirtækja um rekjanleika
þýða að þau greiða hærra verð fyrir
rekjanlega vöru. Kröfuharðir neyt-
endur eru reiðubúnir að greiða
hærra verð ef þeir vita hvaðan var-
an er upprunnin. Loks getur rekj-
anleiki komið í veg fyrir lögsókn og
skaðabótakröfur vegna áfalla.
Maritech er með starfsemi í átta
löndum: Á Íslandi, í Noregi, Kan-
ada, Bandaríkjunum, Bretlandi,
Chile, Kóreu og Víetnam. Mörg af
stærstu fyrirtækjum á Íslandi hag-
nýta sér vörur og þjónustu Mari-
tech, sérstaklega MBS Navision og
tengdar lausnir. Skrifstofur félags-
ins eru í Kópavogi og á Akureyri.
Starfsmenn Maritech Group eru
samtals um 200 en þar af starfa 55 á
Íslandi.
Maritech kaupir Surefish
Styrkir stöðu félagsins á sviði
rekjanleika matvæla
Stjórnandinn Halldór Lúðvígsson,
forstjóri Maritech International.
VERÐMÆTI landaðs afla brezkra
fiskiskipa á síðasta ári var um 521
milljón punda, 67,7 milljarðar ís-
lenzkra króna. Alls varð afli þeirra
631.000 tonn.
Botnfiskafli var um 32% heildar-
innar í magni talið og 43% mælt í
verðmætum. Uppsjávarfiskur var
46% heildarinnar, en 22% mælt í
verðmætum og skelfiskur var 22% í
magni og 36% í verðmætum.
Skelfiskaflinn, krabbar, humar
og annar skelfiskur, hefur aukizt á
undanförnum árum til að mæta
aukinni eftirspurn. Árið 185 lönd-
uðu brezkir fiskimenn 75.000 tonn-
um af skelfiski að verðmæti 8,5
milljarðar króna, en á síðasta ári
var skelfiskaflinn 129.000 tonn að
verðmæti 22,2 milljarðar króna.
Útflutningur hefur líka aukizt
eða um 23% að magni til og varð
479.000 tonn í fyrra. Mælt í verð-
mætum var aukingin 17% og verð-
mætin alls 116 milljarðar króna.
Á síðasta ári var áætlaður fjöldi
sjómanna á Bretlandi um 11.774 og
starfsfólk í fiskiðnaði ríflega
18.000. Innan smásölugeirans eru
um það bil 1.400 hefðbundnar fisk-
búðir. Skráð fiskiskip á Bretlands-
eyjum voru 1.283.
Bretar fisk-
uðu fyrir 68
milljarða