Morgunblaðið - 31.08.2004, Síða 20

Morgunblaðið - 31.08.2004, Síða 20
UMRÆÐAN 20 ÞRIÐJUDAGUR 31. ÁGÚST 2004 MORGUNBLAÐIÐ UNDANFARNA daga hafa bank- arnir keppst við að lækka vexti á lán- um til kaupa á íbúðarhúsnæði. Má segja að nú sé loksins orðin til samkeppni á þessum markaði til hagsbóta fyrir neyt- endur, allavega þá sem búa á höfuðborg- arsvæðinu og á Ak- ureyri. Undanfarin misseri, eða allt síðan Fram- sóknarflokkurinn til- kynnti áform um um- bætur í húsnæðiskerfinu, hafa bankarnir keppst við að koma með yfirlýs- ingar um að þeir geti tekið við hlutverki Íbúðalánasjóðs og aug- ljóst er að síðustu til- boð bankanna eru til þess gerð að hafa áhrif á umræðuna í þjóð- félaginu. Í upphafi létu bank- arnir sér nægja að gefa yfirlýsingar um eigið ágæti á húsnæðismarkaði. Næstu skref voru að bjóða geng- istryggð lán til að villa um fyrir neyt- endum. Nú loks eftir að ESA hefur skilað jákvæðu áliti um hækkun á lánum Íbúðalánasjóðs í 90% af verð- mæti íbúðar, sjást einhverjar raun- hæfar aðgerðir af hálfu bankanna. Íbúðalánasjóður hefur ekki lánað hærra hlutfall en 65% af verðmæti íbúðar eða 70% af verðmæti fyrstu íbúðar og bankarnir hafa tekið virk- an þátt í fjármögnun þess hluta sem upp á vantar. Hingað til hafa bank- arnir ekki séð sér fært að bjóða sam- bærileg kjör á þeim hluta og þeir bjóða nú. Ég tel að rekja megi við- brögð þeirra nú fyrst og fremst til þess að þeir munu missa hluta af sín- um markaði þegar lánshlutfallið hækkar í 90%. Með skráningu íbúðabréfa í „clear- ing house“ sem auðveldar erlendum fjárfestum að fjárfesta í þeim hefur tekist að lækka vexti Íbúðalánasjóðs umtals- vert og það hefur haft áhrif á almennt vaxta- stig í landinu eins og við var búist. Hugmyndir fram- sóknarmanna um breyt- ingar á húsnæðiskerfinu hafa mætt andstöðu víða að úr þjóðfélaginu og hafa m.a. samtök banka og verðbréfafyr- irtækja barist gegn þeim og liggur m.a. fyr- ir kæra frá samtök- unum til ESA. Þrátt fyrir efasemdir og and- stöðu annarra stjórn- málaflokka hefur Fram- sóknarflokknum tekist að ná fram umbótum á íslenskum fjármagns- markaði sem mun bæta hag heimilanna í land- inu og sérstaklega ungs fólks. Tilboð bankanna á húsnæðismark- aði sýna þó svo ekki verður um villst að þörfin fyrir Íbúðalánasjóð er brýn, enda eru bankarnir ekki til- búnir til þess að láta alla landsmenn sitja við sama borð. Fróðlegt verður að fylgjast með úthaldi bankanna í framhaldinu. Verður þetta tíma- bundin bóla sett fram til að bæta áróðursstöðuna áður en félagsmála- ráðherra leggur fram frumvarp um hækkað lánshlutfall eða eru bank- arnir tilbúnir til þess að lækka vaxta- stigið í landinu, til frambúðar, í átt til þess sem aðrar þjóðir búa við? Varanlegar kjarabætur G. Valdimar Valdemarsson skrifar um húsnæðislán G. Valdimar Valdemarsson ’Verður þettatímabundin bóla sett fram til að bæta áróð- ursstöðuna…?‘ Höfundur er formaður málefna- nefndar Framsóknarflokksins. FÉLAGSMÁLARÁÐHERRA, Árni Magnússon, er á hraðri leið með að verða maður með mönnum í póli- tíkinni. Hann hefur nú skipað sér í þann ört vaxandi flokk stjórnarherranna sem skeytir hvorki um skömm né heiður þeg- ar kemur að veitingu embætta á vegum ráðuneyta þeirra. Hann hefur við skipun ráðuneytisstjóra í ráðuneyti sínu gengið framhjá langhæfasta umsækjandanum, Helgu Jónsdóttur borgarritara, og gefur þá skýringu í fjöl- miðlum að hann hafi tekið ákvörðun sína að vandlega yfirveguðu ráði, eftir að hafa notið ráðgjafar sérfræðinga á sviði starfsmanna- mála. Ástæða er til að hvetja þá sem sem vilja kynna sér sannleiks- gildi þeirrar staðhæf- ingar að kynna sér málið aðeins bet- ur. Starfsmenn ráðgjafarfyrirtækis sem veitti „sérfræðiráðgjöfina“ fóru yfir umsóknir og ræddu við umsækj- endur og ýmsa sem veitt gátu upplýs- ingar um starfsferil þeirra og færni til að gegna starfinu. „Ráðgjafarnir voru enn að ræða við slíka aðila þegar ráðherrann kynnti ákvörðun sína. Þessi meðferð ráðherrans á valdi sínu til að skipa í stöðuna minnir auðvitað á fíflalega meðferð dómsmálaráðherra á valdi sínu til skipunar hæstaréttardómara á síðasta ári. Embætti Umboðsmanns Alþingis hefur eins og kunnugt er komist að þeirri nið- urstöðu að ráðherrann hafi þá brotið gegn dóm- stólalögum – sjálfur dómsmálaráðherrann. Öllum sem til þekkja er ljóst að hann kærir sig kollóttan um það, og ýmsir búast við að það muni aftur koma skýrt í ljós á næstu vikum. En nú er Árni Magnússon á góðri leið með að verða maður með mönnum – hann má nefnilega líka búast við að fá tiltal frá Umboðsmanni Alþingis fyrir að brjóta laga- reglur við skipun í embætti. Ætli það sé leiðin til að tryggja sig í sessi í stjórnarsamstarfinu? Maður með mönnum Ragnar Halldór Hall skrifar um embættisveitingar Ragnar Halldór Hall ’Ætli það séleiðin til að tryggja sig í sessi í stjórnar- samstarfinu?‘ Höfundur er hæstaréttarlögmaður. ATVINNULEYSI og atvinnu- leysisbætur hafa borið á góma ný- verið – m.a. sú furðulega staðreynd að atvinnuleysisbætur og lágmarks- laun skuli vera lægri en sem nægir til lágmarksfram- færslu samkvæmt út- reikningi opinberra stofnana. Forveri nú- verandi félagsmálaráð- herra lýsti þeirri skoð- un sinni á sínum tíma að atvinnuleysisbætur ættu að vera lægri en lágmarkslaun vegna þess „að einhver hvati yrði að vera til þess að fólk leitaði eftir at- vinnu“, eins og hann orðaði það. Þau um- mæli bera vitni ein- kennilegri nesjamennsku og áhyggjuefni að slíkir fordómar skuli vera við lýði, ekki bara á meðal stjórnmálamanna heldur verður ekki betur séð en að ýmsir hagfræð- ingar séu á sama róli og hafi ekki fylgst með því sem hefur verið að gerast í löndunum í kringum okkur. Nútímasamfélagi fylgir atvinnuleysi í mismiklum mæli. Enginn hagfræð- ingur, sem fylgst hefur með í fræð- unum, myndi telja það raunhæft markmið að útrýma atvinnuleysi eins og forkólfar ASÍ hafa lýst yfir oftar en einu sinni. Hins vegar er það liður í hagstjórn að halda at- vinnuleysi innan ákveðinna marka. Í öðrum hagkerfum, t.d. því sænska, er litið á atvinnu sem forréttindi – það er ekki sjálfsagt mál að allir hafi launaða vinnu – því eins og með aðra hluti skapar markaðurinn ákveðið ástand með framboði og eftirspurn og gildir það einnig um vinnuafl og laus störf. Af því leiðir að atvinnu- leysisbætur er eðlileg greiðsla sam- félagsins til einstaklinga sem ekki njóta þeirra forréttinda að gegna launuðu starfi og því eðlilegt að miða upphæð þeirra við framfærslukostnað í stað þess að þær séu svar hins opinbera við betli. Einnig ber á það að líta að það er bæði at- vinnulífinu og ríkinu í hag að einstaklingar, sem standa sig lakar í vinnu, séu fremur á at- vinnuleysisbótum en að þeir taki upp störf fyrir fólki sem getur sinnt þeim betur. Í þróðuðum iðnríkjum Vestur-Evrópu er stór hópur fólks sem aldrei hefur haft fasta vinnu – jafnvel 2. og 3. kynslóð sem þekkir ekki aðrar fast- ar tekjur en atvinnuleysisbætur. Þar dytti engum í hug að gera það fólk að bónbjargarlýð með stjórnvalds- ákvörðunum, eins og hér tíðkast með of lágum atvinnuleysisbótum. Vegna þessa úrelta hugarfars ís- lenskra ráðamanna fjölgar öryrkjum hérlendis með hverju árinu – fólk hefur neyðst til að gera sér upp ör- orku með aðstoð lækna sem skilja að það er oft eina úrræði atvinnuleys- ingja til að skrimta fjárhagslega án þeirrar lítilækkunar sem fólk þarf annars að ganga í gegn um með skráningu/stimplun á 15 daga fresti hjá opinberri atvinnumiðlun. Fyrsta skrefið í átt til raunhæfra endurbóta á þessu ,„fátæktarkerfi“ er að við- urkenna að atvinnuleysi verður ekki útrýmt né sé æskilegt að útrýma því frekar en hæfilegu offramboði á hús- næði. Næsta skref væri að við- urkenna þá staðreynd að félagslega fjárhagsaðstoð ber ekki að líta á sem góðgerðastarfsemi né svar við betli og í framhaldi þyrftu sumir stjórn- málamenn að átta sig á því að þótt einhverjir einstaklingar misnoti fé- lagslega þjónustu réttlætir það ekki takmörkun hennar frekar en að mis- notkun fáeinna einstaklinga á heil- brigðiskerfinu réttlætti takmörkun almennrar læknisþjónustu við 75% lækningu meina! Og þótt það sé útúrdúr en samt tengt þessu efni skal það nefnt að á vefsíðu Hagstofu Íslands er leit- arvél. Sé eitt eftirfarandi þriggja orða slegið inn; atvinnuleysisbætur, lágmarkslaun eða skattleysismörk – fæst ekkert svar. Það tel ég nokkuð dæmigert fyrir raunverulegt gildi upplýsingamiðlunar sumra op- inberra stofnana. „Eðlilegt atvinnuleysi“ fylgir nútímasamfélagi Leó M. Jónsson skrifar um atvinnuleysi ’ Vegna þessa úreltahugarfars íslenskra ráðamanna fjölgar ör- yrkjum hérlendis með hverju árinu…‘ Leó M. Jónsson Höfundur starfar sem iðnaðar- og vélatæknifræðingur. BOLLALEGGINGAR um gróð- urhúsáhrif af mannavöldum tröllríða nú allri umræðu um hvers kyns sveiflur í veðurfari. Flest veð- urfrávik eru í fjölmiðlum og daglegu spjalli fólks umhugsunarlaust talin beinar afleiðingar af gróðurhús- áhrifum. Það er auðvitað staðreynd að frá byrjun 19. aldar hefur hlýnað að meðaltali um 0,4- 0,8°C á allri jörðinni og eitthvað svipað hér á landi. Talið er ólíklegt að hlýnunin stafi ein- göngu af náttúrulegum ástæðum heldur eigi losun svokallaðra gróð- urhúslofttegunda af völdum manna þar einnig hlut að máli. Erfitt er þó að greina áhrif manna á veðurfar frá náttúrulegum sveiflum, ekki síst á Ís- landi þar sem sveiflur milli ára eru mjög miklar og nokkurra ára og áratuga sveiflur eru einnig algengar. Minna má á köldu árin frameftir 20. öld, frábært hlýindaskeið frá því á þriðja áratugnum og fram yfir 1960, haf- ísárin illræmdu 1965-1971 og svo andstyggilegt kuldaskeið sem kom í kjölfar þeirra, síst skárra en haf- ísárin en þó með minni hafís og fór það ekki að réna almennilega fyrr en eftir miðjan 9. áratuginn. Síðustu fjögur árin hefur loks hlýnað veru- lega og síðasta ár og það sem af er þessu hefðu sómt sér vel með hlýj- ustu árum tuttugustu aldar. Hvert þessara tímaskeiða sýnir hið eðli- lega íslenska veðurfar? Við hvað á eiginlega að miða þegar við metum breytingar á hitafari og öðrum veð- urþáttum? Umræðan um gróðurhúsáhrifin ristir iðulega grunnt og ýmiss konar ruglandi kemur fram í henni. Eins og ég vék að í upphafi er það nánast orðin lenska að skrifa öll tilbrigði í veðurfari á reikning gróðurhúsáhrif- anna þótt augljóst sé að oft sé aðeins um náttúrulegar sveiflur að ræða. Dæmi um þetta gægist fram í ann- ars ágætri grein Katrínar Jak- obsdóttur, varaformanns Vinstri grænna, í Morgunblaðinu 21. ágúst, um óþolandi mengun af völdum bíla- umferðar í Reykjavík sem kom vel fram í hitabylgjunni. Katrín skrifar: „Ég hitti marga í téðri hitabylgju sem sögðu að það væri nú aldeilis fínt að hafa svona heitt og hvort þetta væri ekki bless- uðum gróðurhúsáhrif- unum að þakka. Það er alltaf gott að geta hent gaman að hlutum en þetta getur minnt á deyjandi mann að grín- ast með krabbameinið sitt.“ Ekki er annað að sjá en Katrín taki hér undir með viðmæl- endum sínum um það að téð hitabylgja hafi beinlínis stafað af gróð- urhúsáhrifunum og virðist líkja hitabylgj- unni við alvarlegt sjúk- dómseinkenni og sjúkdómurinn er þá væntanlega gróðurhúsáhrifin. En hitabylgjan stafaði ekki af gróðurhúsáhrifunum nema þá óbeint sem vægur meðvirkandi þátt- ur og er því ekki einkenni um neinn sérstakan umhverfiskrankleika. Í aðalatriðum var þetta bara heið- arleg hitabylgja af því tagi sem góðu heilli má vænta svona tvisvar eða jafnvel þrisvar á hverri öld. Önnur svipuð bylgja fór einmitt um í júní 1939 þegar mældist mesti hiti sem mælst hefur hér á landi enda var árstíminn hitavænni ef svo má segja. Nokkrar aðrar ágætar bylgj- ur hafa einnig komið síðustu hundr- að árin. Ein var í júlí 1911 þegar miklu meiri hiti mældist á Akureyri og Seyðisfirði en í nýjustu bylgju. Margir muna eftir risabylgjunni 1991 þegar allt varð vitlaust á land- inu og nokkrum öðrum minni bylgj- um árin 1976, 1980 og 1997. Færri muna hina stórbrotnu hitabylgju á Suður- og Vesturlandi í júlí 1944 en bylgjan í sumar sló hana sem betur fer út á þeim slóðum. Þó fyrr hefði verið! Eftir uppruna og karakter hverrar hitabylgju njóta þær sín misvel eftir landsvæðum en sumar þær stærstu flakka um landið eftir duttlungum sínum og hvernig þeim lyndir við hafgolufjandann. Þetta gerði bylgjan 1939 og líka okkar glæsilega bylgja sem við ættum að vera stolt af á ólympíuári. Heppileg tilviljun olli því að heitt loft langt sunnan að náði hér frábærum ár- angri. Í stað þess að læðupokast í gennd við landið í einn eða tvo daga eins og svona loft hefur hingað til látið sér nægja gerði þessi ólympíu- loftmassi sig heimakominn og breiddi úr sér beint yfir landinu í marga daga eins og sá sem vald hef- ur. Og þvílíkt vald! Þessi reynsla mun verða hverjum Íslendingi ógleymanleg. Ef kvarta má yfir ein- hverju er það þau leiðu mistök hita- bylgjunnar að hafa ekki komið síð- ustu vikuna í júní því þá hefði 30 stiga hitamúrinn á landinu hrunið með ógnarlátum. Svo hefðu vindar í Reykjavík líka mátt blása byrlega af landi í stað lognmollunnar. Þá hefði hitinn í höfuðborginni kannski rokið upp í 28 stig og allur þreykur og bílastybba þyrlast út í Faxaflóa en moldrok komið í staðinn því landið er vissulega að fjúka út í hafsauga þó fáir hafi áhyggjur af því. Við eigum að vera þakklát og glöð fyrir þessa miklu hitabylgju sem var heilbrigð og heiðarleg í alla staði. Hún efldi þjóðina sannarlega til bjartsýni og afreka. Halda menn t.d. virkilega að við hefðum burstað Ítal- ina ef hér hefði verið rosi og rign- ingar í allt heila sumar? Bara heiðarleg hitabylgja Sigurður Þór Guðjónsson skrifar um veður ’Við eigum að veraþakklát og glöð fyrir þessa miklu hita- bylgju…‘ Sigurður Þór Guðjónsson Höfundur er áhugamaður um veðurfar. Fyrir flottar konur Bankastræti 11 • sími 551 3930

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.