Morgunblaðið - 31.08.2004, Síða 24

Morgunblaðið - 31.08.2004, Síða 24
UMRÆÐAN 24 ÞRIÐJUDAGUR 31. ÁGÚST 2004 MORGUNBLAÐIÐ N átthrafninum mér finnst fátt óvið- kunnanlegra en að vakna snemma á morgnana. Ég vaki oft langt fram á nótt yfir ein- hverjum þeim hugðarefnum sem sækja á mig og þá er mér ljúft að fá að lúra stundum aðeins lengur á morgnana. Áður fyrr gat ég platað dóttur mína, sem þá var á leikskólaaldri, til þess að lúra sjálf örlítið lengur og ól upp í henni ósiðinn, en dagar slíks munaðar eru liðnir. Nú er hún komin í grunnskóla og engin miskunn fyrir pabba gamla. Sveigjanleiki leikskólaáranna er liðinn hjá og kemur aldrei til baka. Pabbi skal á fætur eins og aðrir og fylgja dömunni í skólann, enda er grunnskól- inn í beinni línu frá heimili mínu að vinnunni. Það þýðir að nú er ykkar einlægur farinn að vakna fyrir allar aldir og rölta með dótt- urina í skólann og síðan beint í vinnuna á óguðlegum tímum, átta á morgnana. Og það sem verst er, ég kann eiginlega orðið ágætlega að meta þessa nýbreytni. Ég hef sosum aldrei þurft mik- inn svefn, verandi sonur föður míns, sem var kaffiþambari hinn mesti. Svo þykir mér bara mjög frískandi að rölta þetta með dótt- ur minni, fjögurra mínútna göngutúr og síðan í vinnuna, sex mínútur í viðbót. Maður er eitt- hvað svo ferskur þegar maður töltir inn um dyrnar. Maður fær líka gott tækifæri til að líta í kringum sig og horfa á heiminn. Taka hann inn án hindr- unar bílrúðugleraugnanna. Ég hef að vísu gengið í vinnuna síðan ég hóf störf, enda finnst mér næstum syndsamlegt að ræsa bíl til að komast á áfangastað sem er í tíu mínútna göngufjarlægð frá heimili mínu. En þetta er í fyrsta skipti sem ég nota gönguna til að vakna almennilega, ná meðvitund. Það er nefnilega á þessum vökn- unartíma sem maður er móttæki- legri fyrir ýmsum hlutum, hljóð- um, lykt, stemningum, en um leið er maður ennþá í einhvers konar svefnrofum. Þegar ég geng Hamrahlíðina horfi ég á ökumennina í bílunum sínum, en þeir eru næstum allir einir. 120 hestafla vélin spýr út kolsýringi og sóti í kílóavís til þess að hunska einum letingja milli staða, vegalengd sem lítið mál er að hjóla eða labba. Þessir menn sitja í bílunum í klukkutíma á dag, fastir í teppum, bíðandi, bíðandi og pirrandi sig á ástandi sem er því einu um að kenna að menn fara ekkert án bílanna sinna. Um- ferðin er kennslubókardæmi um sjálfskaparvíti. Og ég labba bara eins og einfeldningur fram hjá röðinni og horfi á einn snillinginn „nýta sér tækifærið,“ þegar strætó keyrir út í kant og bruna framhjá á stóra jeppanum sínum, komast einu stæði í röðinni fram fyrir strætisvagninn. Þvílíkur sig- ur. Ég geng fram hjá MH, þar sem ungmennin hafa nú hafið námið. „Hver er maðurinn? Hver er maðurinn?“ spyr ungur maður vini sína hress í bragði. „Ég er maðurinn!“ svarar ungi maðurinn þessari retórísku spurningu. Ég fyllist gleði og minningum um mín eigin MH-ár og skyndilega átta ég mig á því að það eru liðin átta ár síðan ég skildi við þann skóla. Ég er orðinn svona fullorðinn gaur sem labbar fram hjá gamla menntaskólanum sínum og fyllist fortíðarþrá. Þessu hlæ ég líka að, því allt er í heiminum hverfult og ungir menn verða gamlir, verða eldri og deyja síðan drottni sínum og enginn getur gert neitt í því, enda væri slíkt fásinna. Það er örugglega fátt leiðinlegra en að lifa lengur en maður þarf. Á leiðinni að Kringlumýr- arbrautinni verður mér hugsað til átaksins „Kaupum íslenskt – og allir vinna,“ og velti fyrir mér gildi þess að kaupa innlenda fram- leiðslu. Það vita það nefnilega ekki allir, en það er ekki bara gott fyrir efnahagskerfið að kaupa inn- lent, heldur einnig fyrir umhverf- ið. Það þarf nefnilega mun minna af olíu til að ferja tómat frá Hveragerði eða Reykhólum inn í kjörbúð heldur en frá Hollandi. Vörur sem framleiddar eru nær neyslustað eru mjög jákvæður hlutur. Þess vegna eru líka grenndarkjörbúðir frábærar, því þær spara fólki bíltúra eftir mat- vöru og gefa því líka tilefni til að fá sér heilbrigða hreyfingu. Því nær sem dreifingarmiðstöð vöru er neytandanum, því umhverf- isvænna og því nær sem fram- leiðslan er neytandanum, þeim mun umhverfisvænna. Hugsið um þetta næst þegar valið stendur á milli epla frá Kína og epla frá Hol- landi. Ég er ekki að leggja til nein höft, heldur bara að fólk vegi og meti þessa hluti fyrir sig. Ég versla gjarnan við kaup- manninn á horninu og geng iðu- lega til hans kátur í bragði, enda veit ég að hann tekur á móti mér með hressu viðmóti og persónu- legheitum, sem er meira en hægt er að segja um færibönd stór- markaðanna. Já, ég er óttalegur fortíðarfíkill og rómantískur kjáni, en mér finnst gott að labba og gott að eiga í persónulegum samskiptum við fólk sem ég versla við. Lái mér hver sem vill. Í þarfapíramída sem sálfræð- ingurinn Abraham Maslow setti fram og er enn mikils metinn, eru neðstu þrepin efnisleg gæði, mat- ur, húsaskjól og öryggi. Öll þrepin upp frá því hafa að gera með and- legar og félagslegar þarfir. Þegar maðurinn hefur náð nægilegu magni efnislegra gæða til að lifa af og líða ágætlega er algjör óþarfi að bæta við og slíkt er ekki nema til óþurftar. Ef óþarfa er bætt við verður maðurinn bara feitur og gráðugur. Þegar frumþarfirnar eru uppfylltar er kominn tími til að huga að sjálfsrækt og sam- félagi við aðra menn. Ég vildi óska að Íslendingar færu að taka upp vistvænni hætti, að við færum virkilega að hugsa um leiðir til að minnka áhrif okkar á umhverfið. Eins og ástandið er í dag erum við nefnilega að lifa fyr- ir fimm manns hvert. Dásamleg tilbreyting Þegar maðurinn hefur náð nægilegu magni efnislegra gæða til að lifa af og líða ágætlega er algjör óþarfi að bæta við og slíkt er ekki nema til óþurftar. Ef óþarfa er bætt við verður maðurinn bara feitur og gráðugur. VIÐHORF Eftir Svavar Knút Kristinsson svavar@mbl.is JÓN Steindór Valdimarsson, að- stoðarframkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins, gagnrýndi Lýð- heilsustöð harðlega á heimasíðu samtakanna hinn 14. júlí sl. fyrir hugmyndir um að leggja sérstakan skatt á sykur, sykraðar vörur og gosdrykki. Fjármagna yrði rekst- ur stofnunarinnar með öðrum og almennari hætti vegna þess að skattheimta af þessu tagi leiddi til hækk- unar á matvælaverði og mismununar á skattlagningu mat- væla (og væntanlega drykkjarvara líka). Að síðustu væri með öllu órökstutt að skattur af þessu tagi myndi leiða til bættrar lýðheilsu. Í Mbl. 15. júlí sl. kom fram að Hagfræðistofnun Háskóla Íslands skoði nú nokkrar leiðir til fjár- mögnunar verkefna Lýðheilsu- stöðvar. Einnig kom fram að Anna Elísabet Ólafsdóttir, forstjóri stofn- unarinnar, segðist vera mjög undr- andi á kröftugum viðbrögðum Sam- taka iðnaðarins. Þetta væru ekki einu leiðirnar sem Lýðheilsustöð væri að skoða. Stofnunin þyrfti fjármuni og gæti ekki brugðist við ofþyngdarvandamálinu án þeirra. Spurningin væri hvort þeir fjár- munir ættu að koma frá ríkinu eða í gegnum eyrnamerktan skatt (eða skatta). Ekki verður í móti mælt að ofþyngð og of- fita eru vaxandi vanda- mál hjá þjóðinni. Þannig er tæpur fimmtungur níu og fimmtán ára barna á Íslandi of feitur eða of þungur ef marka má frumniðurstöður rann- sóknarinnar Lífsstíls 2003 (Mbl. 30. júní sl.). Og ekki er ástandið betra í eldri aldurs- hópunum. Könnun Manneldisráðs Íslands árið 2002 sýndi að meira en helmingur allra karla 15–80 ára var of þungur eða of feitur og fjórar af hverjum tíu konum. Hæst var hlut- fallið hjá körlum 40–80 ára eða sjö af hverjum tíu. En hverjar eru í mestu áhættu- hópunum og hverjar eru ástæður aukinnar líkamsþyngdar þeirra? Er ekki nauðsynlegt að fá svör við þessum spurningum áður en farið er út í að skoða hinar ýmsu teg- undir fjármögnunar fyrir Lýð- heilsustöð? Flestir fræðimenn sem um málið hafa fjallað eru nefnilega þeirrar skoðunar að enginn einn þáttur stuðli öðrum fremur að auk- inni þyngd fólks heldur sé um sam- spil margra ólíkra þátta að ræða. Gæti því ekki allt eins komið í ljós að niðurgreiðslur á t.d. grófu korn- meti, ávöxtum, grænmeti, sundi og líkamsrækt eða markvissar for- varnir gætu skilað meiri árangri í baráttunni við offituvandamálið en álagning sykurskatts þó fjármögn- unarvandi Lýðheilsustöðvar væri enn óleystur? Gagnrýnin á Lýðheilsustöð í syk- urskattsmálinu hefði í ljósi þess sem sagt var hér að ofan því kannski fyrst og fremst átt að bein- Sykurskattur, offita og Lýðheilsustöð Friðrik Eysteinsson fjallar um sykurneyslu ’Það er m.a. hlutverkLýðheilsustöðvar að vera stjórnvöldum til ráð- gjafar um stefnumótun á sviði lýðheilsu. ‘ Friðrik Eysteinsson MORGUNBLAÐIÐ fjallaði um áliðnað á Íslandi í tveimur for- ystugreinum hvorn daginn eftir annan, hinn 25. og 26. júlí sl. Í hinni fyrri eru reifaðar upplýsingar frá iðnaðarráðherra í blaðinu daginn áður um hugsanlega frek- ari uppbyggingu ál- iðnaðar. Í lok hennar segir: „Með þeirri uppbyggingu álvera sem nú eru fram- undan og hafnar eru umræður um, er ljóst að áliðnaður er að verða ein af helstu at- vinnugreinum okkar Íslendinga. Við höfum alltaf litið svo á að þessi þjóð ætti tvær auðlindir. Fiskinn í hafinu og óbeislaða orku fallvatnanna. Nú er ljóst að það stefnir í meiri nýtingu á orku fallvatnanna en áður.“ Hér hefði leiðarahöfundur getað bætt jarðhitanum við. Daginn eftir birtir blaðið for- ystugrein sem nefnist „Um álver og andstæðinga“. Þar segir m.a.: „Við Íslendingar höfum nú tölu- verða reynslu af því sundurlyndi sem getur gripið um sig meðal þjóðarinnar vegna framkvæmda af þessu tagi. Spurning er hvort það er ekki tilraunarinnar virði að leiða saman stuðningsmenn og andstæð- inga framkvæmda sem þessara með löngum fyrirvara og áður en komið er að framkvæmdum og kanna hvort hægt er að brúa það bil sem er á milli þessara hópa.“ Þetta eru orð í tíma töluð. En til þess að slík samleiðsla fólks með mismunandi sjónarmið beri árang- ur þarf samráðsvettvang. Ég hef í fórum mínum sýnishorn af blaða- skrifum frá undanförnum tíu árum eða svo sem bera vott um fárán- legar hugmyndir manna um áhrif virkjana á umhverfið, sérstaklega á Miðhálendinu. Dæmi: „Það er miðhálendi Íslands sem stendur undir hinni sívaxandi ferða- mennsku. Það er einsýnt að það gerði það ekki ef menn þurfa að stikla á hæðardrögum á milli jök- ullóna Landsvirkjunar.“ Annað dæmi: „En það sem líklega er erf- iðast er það sem hér fer á eftir. Það er að sumir af þessum mönn- um eru svo grunnhyggnir að þeir halda að þjóðin græði á að gera landið að einu allsherjar vatna- og virkjunarsvæði þar sem síðustu uppúrstandandi há- lendis- og öræfaperl- urnar verða þaktar rafmagnsflytjandi stauravíravirki.“ Enn eitt dæmi: „Þessu landi má ekki breyta í eitt stórt uppistöðu- lón.“ Jafnvel þótt fallist sé á að hér sé um öfg- ar að ræða sem aðeins fáir beiti þá eiga þær öfgar sér rætur í býsna útbreiddum misskilningi. Þeim, að nýting íslensku orkulindanna leggi hald á verulegan hluta Miðhálend- isins og skerði stórlega möguleika fólks á að njóta þar útivistar. Þetta er fjarri öllum sanni. Nýting orku- lindanna leggur aðeins hald á lítinn hluta þess og reynslan sýnir að virkjunarframkvæmdir auðvelda fólki aðgang að hálendinu og hjálpa því þannig að njóta þar útivistar fremur en að torvelda það. Við munum nýta hálendið með margvíslegum hætti í framtíðinni. Við munum hafa þar vatnsafls- virkjanir með miðlunarlónum, jarð- gufuvirkjanir, ósnertur (wilder- nesses), þ.e. svæði þar sem eingöngu eru gönguleiðir með frumstæðum fjallaskálum, áhuga- verð útivistarsvæði með greiðum aðgangi á venjulegum bílum að sumarlagi, fjallahótel eins og í öðr- um ferðamannalöndum og svo framvegis. Menn ferðast með mis- munandi hætti og ekki hentar öll- um sami ferðamáti. Bakpokafólk og aðrir göngugarpar munu ferðast fótgangandi um ósnerturnar, en fólk sem ekki á eins létt með gang ferðast á bílum um önnur skoð- unarverð svæði. Við verðum að muna að hálendið er sameign þjóð- arinnar og allir, ekki bara fáir út- valdir, heilsuhraustir og á besta aldri, þurfa að eiga þess kost að ferðast um það. Við þurfum því að leggja alvöruvegi um hálendið. Ekki skipulagslaust eins og slóð- irnar hingað til heldur eftir vand- lega unnu skipulagi með hliðsjón af því hvernig við viljum nýta hálend- ið. Með alvöruvegum á ég við upp- byggða malbikaða vegi. Innan skamms mun annað ekki vera talið til vega. Það er ekki vandalaust verk að samhæfa þessi mismunandi not þannig að ekki verði árekstrar. Það er leysanlegt, en útheimtir vandað skipulag. Slíkt skipulag er einnig nauðsynlegt til að koma í veg fyrir landsskemmdir af of miklum átroðningi á vissa staði eins og þegar er farið að bera á. Ísland er mjög fjölbreytilegt land og þar eiga allir að geta fundið eitthvað við sitt hæfi. En til þess er nauð- synlegt að greiður aðgangur sé að fjölbreytilegum stöðum. Það út- heimtir aftur greiðar, en vel skipu- lagðar, samgönguleiðir um hálend- ið. Nauðsynlegt er að endurskoða hið fyrsta skipulag af Miðhálend- inu til 2015 sem samþykkt voru frumdrög að 1999. Sú endurskoðun er mikið hagsmunamál virkj- unarfyrirtækja, áliðnaðarins, ferðaþjónustunnar og alls almenn- ings. Einmitt slík endurskoðun er heppilegur vettvangur til að leiða saman þá hópa sem leiðarahöf- undur Morgunblaðsins minnist á. Það er vissulega rétt hjá honum að þessi mál þarf að ræða. En sú um- ræða þarf að vera skilvirk og hnit- miðuð. Samskipti mannsins við náttúruna, fremur en hún sjálf, þurfa að vera í brennidepli hennar. Maðurinn þarf á náttúrunni að halda en hún ekki á honum. Öll náttúruvernd er einvörðungu í þágu mannsins. Náttúran sjálf þarf ekkert á vernd hans að halda. Mis- munandi not mannsins af nátt- úrunni, sem oft rekast á innbyrðis, þurfa að vera það sem umræðan snýst um. Áliðnaður á Íslandi og skipulag hálendisins Jakob Björnsson skrifar um stóriðju og umhverfismál ’Við munum nýta há-lendið með margvísleg- um hætti í framtíðinni. ‘ Jakob Björnsson Höfundur er fv. orkumálastjóri.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.