Morgunblaðið - 31.08.2004, Page 30

Morgunblaðið - 31.08.2004, Page 30
MINNINGAR 30 ÞRIÐJUDAGUR 31. ÁGÚST 2004 MORGUNBLAÐIÐ Ég var svo lánsöm að hitta Fjólu daginn áður en hún kvaddi. Hún tók svo vel á móti mér og sagði: „Ég trúi ekki að þú sért kom- in.“ Við áttum sérstaka stund. Fjóla var að rifja upp gömlu dagana. Hún lærði dans hjá Rigmor Hansen og FJÓLA VALDÍS BJARNADÓTTIR ✝ Fjóla ValdísBjarnadóttir fæddist í Reykjavík 23. desember 1922. Hún lést á Hjúkrun- arheimilinu Sunnu- hlíð í Kópavogi sunnudaginn 22. ágúst síðastliðinn og fór útför hennar fram frá Digranes- kirkju 30. ágúst. sýndi dans á Hótel Borg. Enda hafði hún unun af að dansa. Fjóla var með fyrstu nemend- um í Húsmæðraskólan- um við Sólvallagötu. Alla tíð var hún mjög góð í heimilishaldi, hvort sem hún vann við blómin í garðinum eða innandyra. Hún sagði mér frá þegar hún og Erna vinkona hennar voru á Siglufirði á síld- arárunum og þeim var boðið í útreiðartúr. Faðir Ernu var Óskar Halldórsson síldarkóngur. „Stelpur, þið verðið að vera komnar um borð á réttum tíma, því skipið fer til Reykja- víkur kl. 15.30,“ sagði hann. Ekkert bólaði á stelpunum og skipið flautaði og flautaði. Allt í einu birtust þær heldur skömmustulegar. Óskar var heldur brúnaþungur. Fjóla og Sigurður, maður hennar, bjuggu á Hóli í Ólafsfirði, með stærð- ar búskap, þar sem Sigurður átti sitt æskuheimili. Það var um vetur í snjó og vitlausu veðri. Fjóla var að ljúka við að lesa spennandi bók og vantaði framhaldið. Hún skellti sér á drátt- arvélina og keyrði niður í kaupstað- inn og fékk bókina og keyrði aftur heim í brjálaðri vetrarúrkomu, áræð- in kona. Við erum nokkrar vinkonur, allar ekkjur, sem héldum hópinn ásamt Fjólu. Borðuðum saman, spiluðum, fórum saman í sumarbústað og ferð- uðumst, gerðum grín og gleði. Nú er Fjóla mín horfin, en minningin lifir. Fjóla var höfðingi heim að sækja, enda fannst fólki gott að heimsækja hana og njóta útgeislunar hennar. Það var sérstakt hvað hún var alltaf jákvæð. Mér er minnisstætt þegar hún var rúmliggjandi og sagði: „Mik- ið er ég heppin að geta lesið.“ Svo var það seinna að hún leit út um gluggann og sagði: „Mikið er gott að sjá garð- inn, hann er svo fallegur og mikið er gott að vera hérna í Sunnuhlíð, það er hugsað svo vel um mig.“ Aldrei kvart- aði hún. Elsku systir mín, þú varst hetja og kvaddir með reisn. Ég votta fjöl- skyldu hennar samúðar. Guð blessi þig. Hólmfríður (Fríða systir). Elsku amma. Það er hálfskrítið að hugsa til þess að þú sért ekki lengur til staðar á Dalbrautinni ... að geta ekki lengur heimsótt þig þegar ég skýst til Reykjavíkur- .Það er eitthvert tómarúm þegar ég hugsa til þess. En ég trúi því að sálin haldi áfram, það að deyja sé ekki end- irinn. Þú og ég áttum margar góðar stundir saman og hef ég oft yljað mér við þær minningar og mun gera áfram. Manstu þegar við spjölluðum svo oft saman við eldhúsborðið í Stóra- gerði. Stundum veltum við því fyrir okkur hvað þú yrðir nú gömul og þú náðir að verða 90 ára núna um áramótin. Amma þú varst yndisleg og fal- VERA INGIBERGS- DÓTTIR HRAUNDAL ✝ Vera Ingibergs-dóttir fæddist í Reykjavík 31. des- ember 1913. Hún lést 20. júlí síðastliðinn og var útför hennar gerð frá Grensás- kirkju 30. júlí. leg manneskja. Ég er svo ánægð að þú skul- ir hafa verið amma mín. Ég á eftir að sakna þín mikið, en ég vona að þér líði vel og svo hittumst við aftur seinna. Saknaðarkveðja, þín Guðrún Ósk. Elsku litla fallega kona, svo æðrulaus og góð. Þú sigldir bát þín- um í gegnum storm og stórsjó sem blíða væri og rerir svo öruggt í land. Ég hef ekki sagt það eða sýnt það í verki, en elska þig sem orð geta ekki lýst og sakna þín nú þeg- ar. Ég fylgdist þó með þér og vissi að þú varst í góðum höndum. Minning þín lifir áfram í mínu hjarta og ég þakka þér fyrir þá ein- stöku upplifun að hafa fengið að kynnast þér. Vertu blessuð, hvert sem að þú ferð. Ástar- og saknaðarkveðja Þórey Hrólfsdóttir, Svíþjóð. Morgunblaðið birtir minningargreinar alla útgáfudagana. Formáli Minningargreinum fylgir formáli, sem nánustu aðstandendur senda inn. Þar koma fram upplýsingar um hvar og hvenær sá, sem fjallað er um, fæddist, hvar og hvenær hann lést, um foreldra hans, systkini, maka og börn og loks hvaðan útförin fer fram og klukkan hvað athöfnin hefst. Ætlast er til að þetta komi aðeins fram í formálanum, sem er feitletraður, en ekki í minn- ingargreinunum. Minningargreinar Kennari óskast Waldorfskólinn í Lækjarbotnum auglýsir eftir kennara. Upplýsingar í síma 587 4499. NAUÐUNGARSALA Uppboð Uppboð munu byrja á skrifstofu embættisins í Hafnarstræti 107, Akureyri, sem hér segir á eftirfarandi eignum: Bakkasíða 9, Akureyri (214-5051), þingl. eig. Jóhann Grímur Hauks- son, gerðarbeiðandi sýslumaðurinn á Akureyri, föstudaginn 3. sept- ember 2004 kl. 10:00. Eyrarvegur 31, íb. 01-0101, Akureyri (214-6070), þingl. eig. Lilja Jak- obsdóttir, gerðarbeiðandi Akureyrarkaupstaður, föstudaginn 3. september 2004 kl. 10:00. Hafnarstræti 20, íb. 01-0202, Akureyri (214-6871), þingl. eig. Inga Mirra Arnardóttir, gerðarbeiðendur Akureyrarkaupstaður, Íbúðalána- sjóður og Og fjarskipti hf., föstudaginn 3. september 2004 kl. 10:00. Hafnarstræti 77, íb. 01-0301, Akureyri (214-6926), þingl. eig. Rolf Jonny Ingvar Svard, gerðarbeiðendur Akureyrarkaupstaður og Íbúða- lánasjóður, föstudaginn 3. september 2004 kl. 10:00. Hjallalundur 7c, íb. 01-0202, Akureyri (214-7441), þingl. eig. Ólöf Vala Valgarðsdóttir, gerðarbeiðendur Íbúðalánasjóður, Sýslumaður- inn á Akureyri og Tölvufræðslan Akureyri ehf., föstudaginn 3. sept- ember 2004 kl. 10:00. Hús aldraðra við Hólabraut, Hrísey (215-6286), þingl. eig. Hríseyjar- hreppur, gerðarbeiðandi Íbúðalánasjóður, föstudaginn 3. september 2004 kl. 10:00. Norðurgata 51, íb. 01-0101, Akureyri (214-9546), þingl. eig. Sigurlín Guðrún Stefánsdóttir, gerðarbeiðendur Íbúðalánasjóður og Lands- sími Íslands hf., innheimta, föstudaginn 3. september 2004 kl. 10:00. Norðurvegur 1, Júlíusarhús, Hrísey (215-6309), þingl. eig. Aðalsteinn H. Bergdal og Hafdís Pálsdóttir, gerðarbeiðandi Íbúðalánasjóður, föstudaginn 3. september 2004 kl. 10:00. Rauðamýri 20, Akureyri (214-9922), þingl. eig. Stefán Jón Knútsson Jeppesen og Bára Magnúsdóttir, gerðarbeiðandi Íbúðalánasjóður, föstudaginn 3. september 2004 kl. 10:00. Skarðshlíð 26d, 03-0301, Akureyri (215-0329), þingl. eig. Jörundur H. Þorgeirsson og Edda Björk Þórarinsdóttir, gerðarbeiðendur Búnað- arbanki Íslands hf., Akureyri og Íbúðalánasjóður, föstudaginn 3. september 2004 kl. 10:00. Þingvallastræti 31, Akureyri (215-1879), þingl. eig. Gerður Árnadóttir, gerðarbeiðandi Íslandsbanki hf., föstudaginn 3. september 2004 kl. 10:00. Sýslumaðurinn á Akureyri, 30. ágúst 2004. Friðrika Harpa Ævarsdóttir, ftr. Nauðungarsala Uppboð mun byrja á skrifstofu embættisins í Suðurgötu 1, Sauðárkróki, fimmtudaginn 2. september 2004 kl. 14.00 á neðangreindri eign: Þormóðsholt, land, Akrahreppi, þingl. eign Svans Þrastar Tómasson- ar. Gerðarbeiðandi er Íbúðalánasjóður. Sýslumaðurinn á Sauðárkróki, 26. ágúst 2004. R A Ð A U G L Ý S I N G A R

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.