Morgunblaðið - 31.08.2004, Blaðsíða 38
38 ÞRIÐJUDAGUR 31. ÁGÚST 2004 MORGUNBLAÐIÐ
Miðasala opnar kl. 15.30
Sýnd kl. 8 og 10.40. B.i. 14 ára.
Mjáumst
í bíó!
Uppáhalds köttur allrar
fjölskyldunnar er kominn í bíó!
Sjáið frábæra
gamanmynd
um frægasta, latasta
og feitasta kött í heimi!
Sýnd kl. 6. ísl tal.
Sýnd kl. 8.Sýnd kl. 5.50, 8 og 10.15.
Sýnd kl. 10.
Myrkraöflin eru með okkur!
Mögnuð ævintýra-spennumynd!
Sýnd kl. 5.20, 8 og 10.40.
EINI THX LÚXUSSALUR LANDSINS
kl. 5.20, 8 og 10.40.
Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10.
Þetta var ekki hennar heimur..
en dansinn sameinaði þau!
Sjóðheit og seiðandi skemmtun!
Sýnd kl. 4 og 6. ísl tal. / Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10. Enskt tal.
Yfir 22.000 gestir! Mjáumst
í bíó!
Ein besta ástarsaga allra tíma.
EFTIR METSÖLUBÓK
NICHOLAS SPARKS
Ein besta ástarsaga allra tíma.
EFTIR METSÖLUBÓK
NICHOLAS SPARKS
Sími 594 6000
Bæjarflöt 4, 112 R.vík
Fjöldi lita og gerða
Marley þakrennur
Sjáum einnig um uppsetningu
MÉR leið líkt og ég væri staddur í
atriði úr Mary Poppins þegar ég
skyggndist upp á sviðið í hinu litla
en mjög svo notalega Bæjarbíói,
fullkomnum stað fyrir tónleikana
sem framundan voru. Það var vikt-
oríanskur bragur yfir því. Koffort,
gamlir grammófónspilarar og for-
láta lampar prýddu það jafnframt
sem glitti í síðhærðar skuggaverur í
blúndukjólum, skáskjótandi sér á
milli þess aragrúa hljóðfæra sem
þar stóð; fiðlur, lúðrar, orgel,
trommur og bjöllur. Eins og með
áðurnefnda kvikmynd átti kvöld-
stundin eftir að verða töfrum slegin.
Dúettinn Slowblow var fyrstur á
svið. Orri Jónsson og Dagur Kári
Pétursson sem dúettinn skipa nutu
aðstoðar múmliðanna Örvars Þór-
eyjarsonar Smárasonar og Krist-
ínar Valtýsdóttur, svo og þeirra
Ólafar Arnalds og Ólafs Björns
Ólafssonar.
Orri og Kristín fluttu í upphafi
hið lágstemmda „Cardboard Box“ af
nýjustu plötu sveitarinnar sem út
kom í sumar. Þegar Orri hvíslaði
hina dularfullu og fallegu línu
„You’re not even a ghost …“ um
mitt lag setti hann tóninn fyrir það
sem átti eftir að koma. Því eins og
með plötuna nýju, sem er örugglega
ein af plötum ársins, var stemningin
í dimmu bíóinu stundum svo kyrrlát
og brothætt að þér leið eins og þú
værir að gægjast í óleyfi inn í svefn-
herbergi þar sem þeir Orri og Dag-
ur sátu einbeittir að tónlist-
arsköpun. Hljómur í Bæjarbíói var
ennfremur mjög góður og þegar við
bættist stofuleg stemningin fannst
mér eins og ég sæti uppi á sviðinu
frekar en í öftustu röð.
Það vantaði kannski lítillega upp
á þéttleika í flutningi, stundum var
eins og samhæfingin væri ekki
nægileg og einnig var nokkuð um
brambolt á yfirtroðnu sviðinu. En í
heild var þetta frábært, lög Orra og
Dags eru einkar melódísk og búa yf-
ir einhvers konar áreynslulausri
fegurð. Bara lag eins og hið guð-
dómlega „Very Slow Bossanova“
var nóg til að gera mann sáttan við
framlag Slowblow þetta kvöldið.
Eftir hlé kom múm á svið og hafði
á að skipa sex manns í þetta skiptið.
Auk Örvars og Kristínar voru þau
Ólöf, Ólafur, Eiríkur Orri Ólafsson
og Samuli Kosminen á sviðinu.
Inngangsstefið að nýjustu plötu
múm (og þeirra bestu), Summer
Make Good, læddist upp af sviðinu, í
senn hlýtt og draugalegt. Þessi seið-
ur var tilkomumikill og maður færði
sig fram á stólbríkina. Allt í einu var
maður staddur inni í yfirgefnu sjó-
ræningjaskipi sem rekur stjórnlaust
úti á hafi – hersetið af ungum og
hugmyndaríkum tónlistarmönnum!
Á tímabili fannst mér reyndar eins
og tónlistin kæmi af sjálfu sér úr há-
tölurunum á meðan múmliðar gengu
á milli hina ólíkustu hljóðfæra sem
léku í höndum þeirra. Það var í raun
stórmerkilegt að flæði og melódía
héldist yfirleitt í gegnum allt þetta
stórfenglega kraðak.
Alveg ótrúlegt, verður að segjast,
og einatt náðust ævintýralegar hæð-
ir og þá var líkt og komið væri inn í
aðra vídd. Þetta er að sönnu einstök
hljómsveit, full af metnaði og fer
síst auðveldu leiðirnar að takmarki
sínu. Ég tek ofan.
Þetta kvöld urðu gestir Bæj-
arbíós vitni að tveimur af allra bestu
hljómsveitum Íslands í dag. Einfald-
lega frábærir tónleikar og maður
hreifst mótþróalaust með í dásam-
lega þægilegum höfga. Magnað.
Innlit í undraheim
TÓNLEIKAR
Bæjarbíó, Hafnarfirði
Tónleikar Slowblow og múm í Bæjarbíói,
Hafnarfirði, sunnudaginn 29. ágúst
2004.
SLOWBLOW/MÚM Morgunblaðið/Jim SmartKristín Valtýsdóttir, múm.
Arnar Eggert Thoroddsen
Dagur Kári Pétursson, Slowblow.
KVIKMYNDIN Hetja fékk lang-
mesta aðsókn í norður-amerískum
kvikmyndahúsum um helgina. Um er
að ræða kínverska bardagamynd
með Jet Li í aðalhlutverki og námu
tekjur af sýningu myndarinnar 17,8
milljónum dala eða jafnvirði nærri 1,3
milljarða króna.
Önnur ný hasarmynd, Anacondas:
The Hunt for the Blood Orchid, fór
beint í 2. sætið á listanum en hún er
framhald Anaconda frá 1997.
og spennumyndin Suspect Zero
með Aaron Eckhart, Ben Kingsley og
Carrie-Anne Moss fór í 10. sæti.
Það merkilega við Hetju, sem heit-
ir á frummálinu Ying Xiong, er að
myndin er orðin tveggja ára gömul og
var tilnefnd til Óskarsverðlauna sem
besta erlenda myndin í fyrra. Myndin
var þannig opnunarmynd 101 kvik-
myndahátíðar síðla síðasta árs og
gekk þá býsna vel. Miramax hefur nú
loksins hafið sýningar á henni í N-
Ameríku, kallar hana þar „Ocean’s
Eleven kínverskrar kvikmyndagerð-
ar“ og sýnir hana í yfir 2 þúsund kvik-
myndahúsum, sem er óvenju viða-
mikil dreifing á kvikmynd á öðru
tungumáli en ensku. Þetta virðist
hafa svínvirkað því myndin hefur
slegið í gegn, flestum að óvörum enda
hafa „erlendar myndir“ jafnan átt
erfitt uppdráttar vestra. Virðist þó
vera sem Crouching Tiger, Hidden
Dragon, hafi breytt þar miklu um til
frambúðar en hún sló í gegn árið 2000
og svo má ekki gleyma Píslarsögu
Krists, sem einnig var sýnd með
texta.
Það hefur og hjálpað Hetju hversu
góða dóma hún hefur fengið en hún
hefur einmitt verið borin saman við
Crouching Tiger, Hidden Dragon og
jafnvel sögn taka henni fram. Leik-
stjóri Hetju, Zhang Yimou (Rauði
lampinn), frumsýndi fyrr á þessu ári
aðra mynd bardagamynd í sama dúr
sem heitir Hús hinna fljúgandi rýt-
inga (Shi mian mai fu). Hefur hún
fengið lítið síðri dóma enda hefur
Yimou látið hafa eftir sér að Hetja
hafi bara verið létt æfing fyrir þá
mynd.
Bíóaðsókn | Tveggja ára mynd vinsæl-
ust vestra
Síðbúin kínversk
hetjudáð
!
!
!
!
!
!
!
!
!
!
!
!
!
!
!
!
!
!
!
!
!
"
#
$"% &
$" '
()*+
(,*
+*)
+*(
-*)
-*,
.*/
0*+
0*-
,*0
()*+
(,*
)*1
).*/
,/*+
+/*/
,*.
)*(
(.+*/
,*0
Jet Li leikur aðalhlutverkið í topp-
myndinni Hetju.
SÖNGKONAN Victoria Beckham
og knattspyrnukappinn David
Beckham eiga von á sínu þriðja
barni í mars á næsta ári. Hjónin
eiga fyrir tvo syni, Brooklyn,
fimm ára, og Romeo sem er
tveggja ára. David og Victoria
hafa ítrekað lýst yfir vilja að
eignast stóra fjölskyldu.
„Þetta eru dásamlegar fréttir.
Við erum bæði ákaflega ánægð,“
segir í tilkynningu sem barst frá
hjónunum til breskra fjölmiðla í
vikunni. Þar kemur einnig fram
að barnið fæðist líklega á Spáni.
David og Victoria kynntust árið
1997 og giftust á Írlandi árið
1999.
Fólk | Fjölgun í Beckham-fjölskyldunni
Þriðja barnið á leiðinni
Reuters
Herra og frú Beckham eiga nú von
á sínu þriðja barni.