Morgunblaðið - 09.10.2004, Síða 8
8 LAUGARDAGUR 9. OKTÓBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Svona, núna megið þið fara og láta freta á ykkur.
Loftslagsbreytingaraf mannavöldumeru eitt stærsta
viðfangsefni samtímans.
Ísland er aðili að ramma-
samningi Sameinuðu þjóð-
anna um loftslagsbreyting-
ar og hefur staðfest
Kyotobókunina og hafa
landsmenn því skyldum að
gegna varðandi það að
leggja sitt af mörkum til
lausnar þeim vanda sem
við blasir. Stjórnvöld sam-
þykktu stefnumörkun í
loftslagsmálum árið 2002
og verður hún endurskoð-
uð á næsta ári, 2005. Land-
vernd, landgræðslu- og
umhverfisverndarsamtök
Íslands efndu í gær til mál-
stofu þar sem kynnt voru verkefni
nokkurra ungra námsmanna sem
fjölluðu um með hvaða hætti hægt
sé að draga úr losun gróðurhúsa-
lofttegunda á Íslandi og auka bind-
ingu kolefnis í gróðri og jarðvegi.
Verkefnin voru unnin að tilstuðlan
Landverndar með stuðningi ým-
issa aðila en þess er vænst að þau
muni nýtast við endurskoðun
stefnu ríkisstjórnarinnar í þessum
málum.
Tryggvi Felixson framkvæmda-
stjóri Landverndar sagði að sam-
kvæmt Kyotobókuninni væru í
gildi ákveðin losunarmörk fyrir
tímabilið 2008 til 2012, en góðar lík-
ur væru á að þau muni nást eftir að
Rússar hafa staðfest bókunina.
Hann sagði það stóran galla að
Bandaríkin hefðu ekki ritað undir
bókunina, en þar í landi eru losuð
um 20–25% gróðurhúsaloftteg-
unda í heiminum. Teikn væru hins
vegar á lofti um að breyting gæti
orðið þar á.
„Það er ljóst að það verður Ís-
lendingum ekki erfitt að vera undir
þessum viðmiðunarmörkum,“
sagði Tryggvi. „Það væri hins veg-
ar mikil blekking fyrir okkur að
trúa því að þar með værum við í
góðum málum.“ Tryggvi sagði að á
árinu 2007 þyrfti að hefja samn-
ingaviðræður um næsta tímabil,
þ.e. eftir 2012. „Ef menn ætla að ná
marktækum árangri þarf að
minnka losun um 50–60%. Það
þýðir að viðfangsefnið er erfitt og
flókið. Við viljum horfa til lengri
tíma, allt til ársins 2030 til 50. Í
þessum efnum dugar ekki að
hugsa í árum eða kjörtímabilum.“
Menn hefðu í sjálfu sér ekki
áhyggjur af núinu eins og hann
orðaði það, en nauðsynlegt væri að
horfa nokkra áratugi fram í tím-
ann. Hann benti t.d. á að
bílafloti landsmanna entist í 10
til 15 ár, fiskiskipaflotinn enn leng-
ur. „Það þarf að grípa til aðgerða
nú sem hafa áhrif á losunina á
næstu 30 til 40 árum,“ sagði
Tryggvi.
Fram hefur komið að hitastig í
heiminum mun hækka verulega á
næstu árum en það hefur í för með
sér miklar breytingar á vistkerfinu
og þar með lífsafkomu manna.
„Það virðist vera tekið sem gefið að
þetta eigi yfir okkur að ganga. Það
er hins vegar ljóst samkvæmt
skýrslu Vísindanefndar SÞ að það
skiptir verulegu máli hvort magn
gróðurhúsalofttegunda í andrúms-
loftinu tvöfaldast eða þrefaldast.
Við getum ekki komið í veg fyrir að
það verði talsvert meiri uppsöfnun
á gróðurhúsalofttegundum heldur
en er af náttúrulegum orsökum.
Mál hafa þróast með þeim hætti
allt frá iðnbyltingu,“ sagði Tryggvi
og benti á að nú þegar væri um 30–
40% meira af koltvísýringi úti í
andrúmsloftinu en þar ætti að vera
af náttúrulegum ástæðum. „En við
getum hugsanlega komið í veg fyrir
að þetta magn meira en tvöfaldist ef
við grípum til aðgerða.“ Með mark-
vissum aðgerðum sem draga úr los-
un gróðurhúsalofttegunda yrði að
mati Tryggva hægt að koma í veg
fyrir allra alvarlegustu afleiðingar
hækkaðs hitastigs í heiminum.
Þannig yrðu menn að líta á hvað
þeir gætu gert sem einstaklingar,
sem hluti af fjölskyldu, sveitarfé-
lagi, ríki og eins sem hluti af al-
þjóðasamfélagi. „Þetta er alþjóðlegt
viðfangsefni sem ekki verður leyst
nema með mjög víðtæku samstarfi.
Þetta verður ekki leyst með því að
Íslandi geri eitthvað, en það er aftur
á móti mikilvægt að við sem verðum
fyrir miklum áhrifum vegna þessa
verðum að koma okkar málum í
gott lag.“
Tryggvi sagði ótrúlega margt
hægt að gera, margvíslegar tækni-
breytingar lægju í loftinu sem
hefðu í för með sér möguleika til já-
kvæðra breytinga. Það þyrfti á
hinn bóginn styrka leiðsögn, því oft
væri mikil tregða til breytinga,
enda hefðu þær iðulega í för með
sér að hagsmunum væri ógnað,
tækni þyrfti að víkja.
Tryggvi tók eitt dæmi, nýlega
voru vörugjöld af stórum pallbílum
lækkuð með þeim afleiðingum að
fjöldi þeirra í umferð hefur aukist
til muna. Ekki hafi fengist svör frá
fjármálaráðuneyti um hverju þetta
sætti. „Þessi bílar nota tvisvar
sinnum meiri orku en nauðsynlegt
er, þetta er dæmi um ákveðið
hugsunarleysi í þessum efnum,“
sagði Tryggvi. Þá nefndi hann sem
dæmi um jákvæða þróun að verið
væri að gera tilraunir varðandi
orkusparnað um borð í fiskiskip-
um. „Möguleikarnir eru margir,
það er enginn skortur hvað þá
varðar, en spurningin er hvernig
við náum að nýta þá.“
Fréttaskýring | Mikilvægt að draga úr
losun gróðurhúsalofttegunda
Dugar ekki að
hugsa í árum
Draga þarf úr losun um 50–60% til að
ná marktækum árangri
26% af gróðurhúsalofttegundum sem los-
aðar eru á Íslandi koma frá samgöngum.
Mest losun í iðnaði
og samgöngum
Aðaluppspretta losunar gróð-
urhúsalofttegunda á Íslandi er
iðnaður, um 36%, því næst koma
samgöngur með 26% og þá losun
frá fiskiskipaflotanum sem nem-
ur um 20% af heildinni. Staða
mála hvað varðar losun þessara
tegunda nú er undir viðmið-
unarmörkum, en ríkisstjórnin
mun endurskoða stefnu sína í
loftslagsmálum á næsta ári.
maggath@mbl.is
BERGÞÓR Ólason, aðstoðarmaður samgönguráðherra,
og Atli Ásmundsson, aðalræðismaður Íslands í Winni-
peg í Kanada, áttu á miðvikudag fund í Winnipeg um
ferðamál með Hubert J. Mesman, aðstoðarmanni að-
stoðarferðamálaráðherra Manitoba, og var meðal ann-
ars rætt um hugsanlegt samstarf í flugi milli Icelandair
og kanadískra flugfélaga.
Bergþór segir að fundurinn hafi verið góður. Þeir
hafi rætt þróun ferðamála á Íslandi og í Manitoba og
með hvaða hætti samstarfsverkefni milli ríkis og einka-
aðila eins og til dæmis Iceland Naturally gengu fyrir
sig. Meginumræðan hafi verið um hvernig flug-
samgöngum væri háttað inn á svæðin og helstu breyt-
ingar í flugfrelsi milli Bandaríkjanna og Kanada.
Á fundinum var rætt um hugsanlegt samstarf Ice-
landair og kanadískra flugfélaga í kjölfar tilkynningar
Icelandair um að hefja flug til San Francisco í Banda-
ríkjunum á næsta ári. Bergþór segir að takmarkanir
Kanadamanna á flugi erlendra flugfélaga til Kanada
hafi meðal annars bitnað á Icelandair en vonir standi til
að frelsið aukist með aukinni umræðu um flugfrelsi
milli Bandaríkjanna og Kanada.
Rætt um samstarf
við kanadísk flugfélög
Winnipeg. Morgunblaðið.
Bergþór Ólason, t.v., og Hubert J. Mesman í ráðuneyti
ferðamála í Manitoba.
MORGUNBLAÐINU hefur borizt
til birtingar eftirfarandi yfirlýsing
frá formanni stjórnar LÍÚ:
„Síðustu daga hefur mikið verið
fjallað um Sólbaksdeiluna svo-
nefndu. Forysta LÍÚ hefur fram að
þessu ekki tjáð sig um málið – enda
málið samtökunum alls óskylt. Und-
anfarið hefur borið á villandi um-
mælum þess efnis að aðgerðir eða
aðgerðaleysi samtakanna geri þau
aðila að Sólbaksmálinu og hefur
Vélstjórafélag Íslands nú gengið svo
langt að draga LÍÚ ásamt SA fyrir
dómstóla vegna þessa máls. Sú
ákvörðun er hörmuð, og í ljósi und-
angenginnar umræðu, vill formaður
LÍÚ, Björgólfur Jóhannsson, taka
fram eftirfarandi:
LÍÚ er á engan hátt aðili að né
tengist á nokkurn hátt Sólbaks-
samningnum, þó svo að forstjóri
Brims sitji sem varamaður í stjórn
samtakanna og hafi setið stjórnar-
fundi frá því fyrrverandi forstjóri
Brims lét af því starfi.
Innan LÍÚ starfar samninga-
nefnd sem hefur yfirumsjón með
samningamálum og er sú vinna unn-
in af heilindum af hálfu samtakanna.
Kjarasamningaviðræður LÍÚ og
sjómannaforustunnar hafa reglu-
lega verið teknar til umfjöllunar á
stjórnarfundum samtakanna frá því
að samningaviðræður hófust. Ein-
hugur hefur verið í stjórn og samn-
inganefnd um að samningaviðræður
hafi eðlilegan framgang og unnið
verði að því að ná samningum við
sjómannaforustuna hið fyrsta.
LÍÚ eru heildarsamtök útvegs-
manna og hafa með hagsmuni þeirra
allra að gera. Stjórn LÍÚ hefur lagt
ríka áherslu á að mál séu leyst með
lýðræðislegum hætti innan samtak-
anna en ekki í fjölmiðlum. LÍÚ hef-
ur gert kjarasamninga við hags-
munasamtök sjómanna á
undanförnum árum – síðast við Vél-
stjórafélag Íslands árið 2001. Sá
samningur gildir til ársloka 2005.
Þannig hefur náðst árangur í samn-
ingagerð við forsvarsmenn sjó-
manna á síðustu árum. Þeir aðilar
sem eru að vinna að því að ná samn-
ingum við samtök sjómanna hafa
fullt og óskorað umboð til þeirra
starfa frá stjórn LÍÚ. Fullyrðingar
um annað eru rangar og er hér með
vísað á bug.
Það er von mín að deiluaðilar
leysi Sólbaksmálið á farsælan hátt
en í framhaldi verði hætt frekari til-
raunum til þess að draga LÍÚ inn í
mál sem samtökin bera enga ábyrgð
á.“
LÍÚ ber enga ábyrgð
á Sólbaksdeilunni