Morgunblaðið - 09.10.2004, Qupperneq 17
Akureyri | Suðurnes | Árborg
Minnstaður
Höfuðborgarsvæðið Brjánn Jónasson, brjann@mbl.is, sími 569-1100. Suðurnes Helgi
Bjarnason, helgi@mbl.is, sími 569-1310 og 669-1310. Akureyri Skapti Hallgrímsson, skap-
ti@mbl.is, Margrét Þóra Þórsdóttir, maggath@mbl.is og Kristján Kristjánson,
krkr@mbl.is, sími 461-1600. Vesturland Ásdís Haraldsdóttir, asdish@mbl.is, sími 898-
5258. Austurland Steinunn Ásmundsdóttir, austurland@mbl.is, sími 669-1115. Árborg-
arsvæðið og Landið Guðrún Aðalsteinsdóttir, frett@mbl.is, sími 569-1290.
Mínstund frett@mbl.is
Kaupfélag Héraðsbúa hefur nú ákveðið að
opna verslun á Djúpavogi undir heitinu
Samkaup-Strax. Á boðstólum verða al-
mennar matvörur og hreinlætisvörur auk
þess sem seldar verða þjónustuvörur fyrir
bifreiðar. Þá hefur ÁTVR jafnframt af-
greiðslu í sama húsnæði. Sveitarstjórn
Djúpavogshrepps hefur af þessu tilefni sent
frá sér áskorun á heimasíðu sinni þar sem
heimamenn eru eindregið hvattir til að
versla sem mest í heimabyggð og styðja
þannig almennt við bakið á þeim sem halda
uppi verslunum á staðnum.
Ferðamálanefnd Djúpavogshrepps stóð
fyrir könnun hjá ferðamönnum sem heim-
sóttu staðinn á liðnu sumri. Tilgangurinn
var að kanna hug ferðamanna til Djúpa-
vogshrepps, hvað fólki þætti áhugavert,
hvað væri vel gert og hvað mætti betur
fara. Niðurstaðan var jákvæð og voru
ferðamenn ánægðir með þá þjónustu og að-
stöðu sem í boði er á Djúpavogi í dag.
Hreindýravertíðinni lauk um miðjan
september og er ekki annað að heyra á
hreindýraskyttum hreppsins en að vel hafi
gengið að ná þeim dýrum sem úthlutað var
á svæðunum hér um kring. Gæsaskyttur
eru hins vegar ekki jafnglaðar ennþá því fá-
ar gæsir hafa sést á ferli nálægt Djúpavogi
undanfarnar vikur. Veiðimennirnir ættu þó
að geta glaðst yfir styttingu rjúpna-
veiðibannsins fyrir jólin 2005.
Á vef Djúpavogshrepps, www.djupivog-
ur.is, má þar finna atburðadagatal Djúpa-
vogshrepps fyrir árið 2004. Þrátt fyrir
smæð staðarins fannst fólki ástæða til að
koma upp slíku dagatali enda er oft mikið
um að vera. Þarna er að finna upplýsingar
um ýmsar viðburði, fundi og fleira og er
fólk hvatt til að hafa samband við skrifstofu
hreppsins ef það vill koma upplýsingum á
framfæri.
Í október ætti engum að leiðast því fram
kemur að Tónskóli Djúpavogs verður með
tvenna tónleika, spilavist verður alla föstu-
daga í Löngubúð, kvenfélagið Vaka heldur
fund og svo mætti lengi telja. Í byrjun nóv-
ember verður svo haldin hin árlega
hrekkjavaka á Hótel Framtíð og ætti eng-
inn að láta hana fram hjá sér fara.
Úr
bæjarlífinu
DJÚPIVOGUR
EFTIR SÓLNÝJU PÁLSDÓTTUR FRÉTTARITARA
Engan bilbug er aðfinna á forsvars-mönnum Ís-
lenska kalkþörunga-
félagsins hf., Icelandic
Sea Minerals, sem
hyggjast koma upp kalk-
þörungavinnslu á Bíldu-
dal. Kemur það fram í
bókun sem gerð var í
bæjarráði Vest-
urbyggðar eftir fund
bæjarstjóra með for-
svarsmönnum fyrirtæk-
isins fyrir skömmu
Fram kemur í bók-
uninni að unnið er að
endanlegri hönnun verk-
smiðjuhúss og búið að
ráða arkitektastofu í
Reykjavík til verksins.
Forsvarsmenn fyrirtæk-
isins áttu nýlega við-
ræður við orkusöluaðila
og hittu að máli starfs-
hóp þriggja ráðuneyta
sem skoðar mögulega að-
komu ríkisvaldsins að
framkvæmdaþætti sveit-
arfélagsins.
Kalkþörungar
Héraðsnefnd Snæ-fellinga héltásamt Ísafjarð-
arbæ og fulltrúum frá
bæjarfélögum í Svíþjóð,
Finnlandi og Skotlandi.
Sveitarfélögin eru öll að-
ilar að USEVENUE-
verkefninu sem stutt er af
Norðurslóðaáætlun Evr-
ópusambandsins. Verk-
efninu er ætlað að hjálpa
sveitarfélögum til miðla
reynslu sinni er varðar
hvers kyns uppákomur og
viðburði.
Fram kom að eitt af því
sem gert er í Storuman í
Svíþjóð er að kjósa villi-
mann ársins. Fyrir nokkr-
um árum fékk Carl-Axel
Nordenberg þann titil. Að
loknum fyrirlestri sínum
afhenti Carl-Axel Sigríði
Finsen, formanni Héraðs-
nefndar Snæfellinga,
tálgaðan villimann að
gjöf.
Morgunblaðið/Guðrún G. Bergmann
Villimaður á ferð
VerkfræðistofanLínuhönnun héltupp á tuttugu og
fimm ára afmæli sitt í
gær og sendi af því tilefni
út kort með vísum, sem
verður að teljast lofsvert
af hálfu fyrirtækja:
Et og drekk á efri hæðum
undir ljúfum tónaklið.
Þreytum ei með þungum ræðum
þegar gleðjast skulum við.
Karl á Laugaveginum las
í Staksteinum í Morg-
unblaðinu að Lúðvík
Bergvinssyni þingmanni
Samfylkingarinnar var
líkt við Ragnar Reykás og
orti af því tilefni:
Skoðun sinni fellur frá
og fram með aðra rýkur.
Stoltur Ragnar Reykás þá
rauða lubbann strýkur.
Flóamanninum Gísla í
Króki fannst krossgátur
DV stundum hroðvirkn-
islegar og sendi ritstjór-
anum umkvörtun með
þessum orðum:
Í krossgátunum verða vill
villufans til baga.
Þennan fjanda áttu Ill-
ugi strax að laga.
Ragnar Reykás
pebl@mbl.is
Mýrdalur | Fjöldi Mýrdælinga hefur fengið hlut-
verk í myndinni Bjólfskviðu sem verið er að taka
upp um þessar mundir inni á Höfðabrekkuheiðum
í Mýrdal. Meðal leikara eru börn úr Grunnskól-
anum í Vík enda ekkert þarfara að gera á meðan
verkfall grunnskólakennara stendur yfir. Fjölnir
Grétarsson er einn ungu leikaranna. Þegar hann
mætti í töku þótti hann hins vegar of hreinn og
fínn fyrir myndina og varð að mála á hann óhrein-
indi.
Morgunblaðið/Jónas Erlendsson
Leikið í kennaraverkfalli
Bíó
Garður | Bæjarstjórnin í Garði hefur sam-
þykkt nýtt deiliskipulag fyrir lóð við
Sunnubraut þar sem Sparisjóðurinn í
Keflavík og Samkaup hafa hug á að reisa
nýtt verslunar- og þjónustuhús. Hús Spari-
sjóðsins sem þar er nú verður þá rifið.
Lóðin er á horni Gerðavegar og Garð-
vegar. Nágrannar gerðu athugasemdir við
deiliskipulagið þegar það var auglýst og
fulltrúar I-listans, sem er í minnihluta í
bæjarstjórn, lögðu til að Sparisjóðnum og
Samkaupum yrði boðið að byggja upp á
öðrum stað, nær svokölluðum miðbæjar-
kjarna. Tillagan var felld á fundi bæjar-
stjórnar í fyrradag með atkvæðum þriggja
af fjórum fulltrúum H-listans, sem er í
meirihluta, gegn tveimur atkvæðum I-
listans. Féll tillagan þótt ekki væri sam-
staða um afgreiðslu hennar innan meiri-
hlutans vegna þess að fjórði fulltrúi listans
og fulltrúi H-listans sátu hjá við afgreiðsl-
una. Skipulagið var að því búnu samþykkt
með sex atkvæðum gegn einu.
Með deiliskipulaginu er gert ráð fyrir að
styrkja miðbæ bæjarfélagsins með upp-
byggingu verslunar og þjónustu. Heildar-
stærð svæðisins er um 4.000 fermetrar, en
gert er ráð fyrir nýju húsi á 1–2 hæðum, og
hafa bæði Sparisjóðurinn og Samkaup sýnt
áhuga á að byggja á lóðinni. Núverandi
verslunarhús Samkaupa er í nágrenninu.
Skipulag fyrir
nýtt þjónustu-
hús afgreitt
Sparisjóðurinn og Samkaup
vilja byggja saman
Ólafsfjörður | Fyrirtækið Ortho-skór
hætti starfsemi í Ólafsfirði nú um mánaða-
mótin. Alls störfuðu 5 til 6 manns hjá fyr-
irtækinu undir það síðasta.
Fyrirtækið hafði starfað í Ólafsfirði um
nokkurra ára skeið, en hjá því voru fram-
leiddir bæklunarskór. Áætlanir gerðu ráð
fyrir að allt að 20 manns myndu starfa við
fyrirtækið en þær gengu ekki eftir. Tæki
sem keypt voru á sínum tíma frá Hollandi
hafa verið seld úr landi. Afkastageta þeirra
var um 1500 pör af bæklunarskóm á dag.
Ólafsfjarðarbær átti hlutafé í félaginu, um
það bil 3 milljónir króna og á að reyna að
selja það. Ortho-skór voru með starfsemi í
svonefndu ytra frystihúsi en þar er nú búið
að setja upp verkstæði MT-bíla í Ólafsfirði.
Skóframleiðslu
hætt á Ólafsfirði
♦♦♦