Morgunblaðið - 09.10.2004, Síða 43
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. OKTÓBER 2004 43
SPRÆKIR Hellismenn taka nú
um stundir þátt í Evrópukeppni
taflfélaga sem fram fer í Cesmir í
Tyrklandi. Þegar þessar línur eru
ritaðar hefur liðið unnið sveit frá
Osló í Noregi og finnska sveit en
lotið í gras fyrir tveim öflugum
sveitum sem hafa á að skipa ofur-
stórmeisturum
nánast á hverju
borði. Í fyrstu
umferð mætti
sveitin liði fyrr-
um Evrópu-
meistara Saraj-
evo. Allir töpuðu
sínum viðureign-
um nema Andri
Áss Grétarsson
sem gerði jafn-
tefli við alþjóð-
lega meistarann
Borki Predoj-
evic. Á efstu
tveim borðunum
töpuðu Hellis-
menn fyrir fyrr-
um áskorendum
um heimsmeist-
aratitilinn, ann-
ars vegar Stefán
Kristjánsson
fyrir Alexei
Shirov og hins vegar Björn Þor-
finnsson fyrir Nigel Short. Í ann-
arri umferð voru Norðmenn lagðir
að velli með þremur og hálfum vinn-
ingi gegn tveimur og hálfum. Björn,
Ingvar Jóhannesson og Sigurður
Daði Sigfússon unnu sínar skákir
og Andri gerði jafntefli en Stefán og
Sigurbjörn töpuðu. Í þriðju umferð
var svo röðin komin að rússnesku
sveitinni Ladyu Kazan sem Garry
Kasparov tefldi fyrir á síðasta ári.
Sergei Rublevsky leiddi nú sveitina
en hann hafði unnið sjálfan Garry
Kasparov, fyrrum félaga sinn, í um-
ferðinni á undan! Stefán Kristjáns-
son tapaði fyrir honum og sinni
þriðju skák í röð en hann hefur í öll
skiptin att kappi við öfluga stór-
meistara. Björn, Ingvar og Sigurð-
ur Daði gerðu jafntefli en Sigur-
björn og Andri lutu í gras. Í fjórðu
umferð vannst góður sigur á sterkri
finnskri sveit en Björn Þorfinnsson
tók þar stórt skref í áttina að áfanga
að alþjóðlegum meistaratitli með
því að leggja stórmeistarann
Heikki Westerinen að velli. Sigur-
björn, Sigurður Daði og Andri unnu
einnig góða sigra og Stefán gerði
jafntefli við finnska stórmeistarann
Jouri Yrjola en Ingvar tapaði. Sem
sagt góður sigur og sveitin er á
góðu róli. Á heimasíðu Hellis á
www.hellir.com er að finna
skemmtilegar frásagnir keppenda
af mótsstað úr hverri umferð og er
þar skákum liðsmanna lýst af mik-
illi innlifun.
Um efstu sveitir mótsins er það
að segja að Evrópumeistarar síð-
asta árs, NAO frá Frakklandi, hafa
tekið forystu og virðast líklegir til
að verja titil sinn. Saga þessa
franska klúbbs er sérstök þar sem
það er áhugakona um skák og ekkja
sýrlensks auðjöfurs sem styður við
bakið á honum. Hún tók einnig þátt
í starfi samtaka sem stóðu fyrir ein-
vígi þeirra Kasparovs og Kramniks
árið 2000 en dró sig svo úr þeim
þegar óvissan í kringum heims-
meistaramálin jókst fremur en hitt
árið 2002. Í liði NAO eru Michael
Adams, Alexander Grischuk, Et-
ienne Bacrot og aðrir ofurstór-
meistarar. Fyrir lið Ekateríuborg-
ar teflir Garry Kasparov á fyrsta
borði en gengi hans og liðsins hefur
verið brokkgengt. Eftir að hafa tap-
að í annarri umferð fyrir Rublevsky
sýndi skrímslið með þúsund augun
að það er ekki alveg dautt úr öllum
æðum.
Hvítt: Garry Kasparov
Svart: Alexei Shirov
Opna afbrigðið í spænska leikn-
um
1. e4 e5 2. Rf3 Rc6 3. Bb5 a6 4.
Ba4 Rf6 5. 0–0 Rxe4 6. d4 b5 7. Bb3
d5 8. dxe5 Be6
Hinn síungi Viktor Kortsnoj hef-
ur teflt opna afbrigðið í spænska
leiknum í marga áratugi en einnig
hafa stjörnur nútímans eins og
Viswanathan Anand brugðið byrj-
uninni fyrir sér. Í heimsmeistara-
einvígi Kasparovs og Anands árið
1995 tefldi sá fyrrnefndi magnaða
skák í afbrigðinu en þá lék hann 9.
c3. Þess má geta að heimsmeistar-
inn í skák frá 1921–1927, Jose Raoul
Capablanca, hafði ekki mikið álit á
þessu afbrigði þar sem það veikti of
mikið svörtu reitina í svörtu stöð-
unni. Þetta má til sanns vegar færa
en takist svörtum undir heppilegum
kringumstæðum að leika c7-c5
sjálfur hefur hann að jafnaði tekið
frumkvæðið. Framhald skákarinn-
ar ber einnig með sér að baráttan
snúist um hvort svörtum takist að
ná að ,,lofta’’ c-peðinu út.
9. Be3 Be7 10. c3 Dd7 11. Rbd2
Hd8 12. He1 0–0 13. Bc2 f5 14. exf6
Rxf6 15. a4!?
Á alþjóðlegu móti í Kaupmanna-
höfn lék stórmeistarinn frá Ka-
sakstan Darmen Sadvakasov 15.
Rg5 gegn Peter Heine Nielsen og
bar sigur úr býtum eftir 15. … Bf5
16. Bxf5 Dxf5 17. Db1.
15. … Rg4?!
Álitlegra virðist vera að leika
15. … Bd6 eins og í Viktor Mikhal-
evski gerði í skák sinni gegn
Georgy Timoshenko árið 1995 eða
15. … Bf5 eins og Ernst Sipke gerði
2001 gegn Mikhail Brodsky. Vanda-
mál textaleiksins er að riddarinn á
g4 virðist ekki eiga þar varanlega
framtíð.
16. axb5 axb5 17. Bd4! Rxd4? 18.
Rxd4 Dd6
Upp er komið það vandamál hjá
svörtum að biskupar hans eru
komnir í skotlínu þungu manna
hvíts á e-línunni. Þannig hefði
18. … Rxf2 ekki gengið upp vegna
19. De2 og hvítur ynni mann. Nú
hótar svartur máti en hvítur varnar
því auðveldlega.
19. R2f3 Bd7 20. h3
Þegar góð ráð eru dýr hefur
margur gripið til örþrifaráða eins
og næsti leikur ber með sér.
20. … Rxf2?!
Einnig hefði verið slæmt að leika
20. … Rf6 vegna 21. Re5! c5
(21. … Re4 gengur ekki upp vegna
22. Bxe4 dxe4 23. Db3+) 22. Rxd7
Hxd7 23. Rxb5 og hvítur er sælu
peði yfir. Hugsanlega hefði þetta
framhald veitt þó meiri mótspyrnu
en í skákinni.
21. Kxf2 Bh4+ 22. Kg1 Bxe1 23.
Dxe1 c5 24. Rb3 Bxh3 25. Rg5! Bf5
26. Bxf5 Hxf5 27. De6+ Dxe6 28.
Rxe6 He8 29. Rbxc5 He5
Hvítur hefur nú vinningsstöðu og
innbyrðir hann sigurinn af miklu
öryggi.
30. Ha6! He2 31. b4 Hc2 32. Ha7
Hxc3 33. Hxg7+ Kh8 34. Hd7 Hc4
35. Rg5 Hxb4 36. Rce6 Hh4
Hvítur hótaði að máta eftir 37.
Hxh7+ Kg8 38. Hg7+ Kh8 39.
Rf7#.
37. g3 Hh5 38. Kg2 b4 39. Rf7+
Kg8 40. Rf4 og svartur gafst upp.
Heimsmeistaraeinvígið
í Brissago
Þegar 14 skáka einvígi á milli
Vladimir Kramniks og Peter Leko
er hálfnað standa keppendur jafnt
að vígi. Í fimmtu skák einvígisins
tókst Leko að svíða Kramnik í end-
tafli þar sem hann hafði fjögur peð á
kóngsvæng gegn þremur „heims-
meistarans“. Kramnik hafði bisk-
upaparið í bætur fyrir peðið en gaf
það of fljótt eftir til að spilla peða-
stöðu áskorandans. Að lokum tókst
Ungverjanum að knésetja heims-
meistarann og jafna þar með leika í
einvíginu. Í kjölfarið fylgdu tvær
tuttugu leikja jafnteflisskákir og
verður lokaspretturinn sjálfsagt
meira spennandi en fyrri hluti ein-
vígisins. Eins og áður hefur komið
fram þá er teflt í Brissago í Sviss í
e.k. sýningarhöll. Af heimasíðu ein-
vígisins að dæma er staðurinn hluti
af keðju sýningarhalla sem brasil-
íski vindlaframleiðandinn Dannem-
ann stendur fyrir. Hér áður fyrr
keðjureykti Kramnik marga sígar-
ettupakka og kláraði vodkaflösku á
einum og sama deginum. Nú í mörg
ár hefur hann vanið sig af þessum
ósóma og lítur út fyrir að halda sér í
góðri æfingu. Leko hefur hins veg-
ar alla tíð verið mikið fyrir heilbrigt
líferni og byggir lífsspeki sína á því.
Honum var þannig tamt að sofa úti í
guðsgrænni náttúrunni til að öðlast
meiri kyrrð og ró. Á yngri árum var
hann einnig efnilegur knattspyrnu-
maður en gaf það snemma upp á
bátinn.
Haustmót Taflfélags
Reykjavíkur
Eins og endranær í mótum á veg-
um Taflfélags Reykjavíkur hefur
alþjóðlegi meistarinn Jón Viktor
Gunnarsson tekið forystu og virðist
líklegur til að bera sigur úr býtum í
A-flokki mótsins. Sagnfræðingur-
inn góðkunni, Snorri G. Bergsson,
byrjaði mótið einnig vel en tapaði
fyrir Jóni í fjórðu umferð. Vegna
fjölda frestaðra skáka er staða
mótsins ekki að öllu ljós en ótvírætt
er að Jón leiðir A-flokkinn einn með
þrjá og hálfan vinning af fjórum
mögulegum. Kristján Eðvarðsson
kemur næstur með þrjá vinninga.
B-flokkur mótsins hefur á að skipa
mörgum kunnuglegum andlitum en
baráttan um fyrsta sætið virðist
ætla vera aðallega á milli Þorvarðar
Fannars Ólafssonar og Jóhanns H.
Ragnarssonar. Báðir tefla mikið og
ættu að vera í betri æfingu en aðrir
keppendur. Margir af yngri kyn-
slóðinni skipa C-flokkinn en það er
hinn eitilharði skákáhugamaður
Kristján Örn Elísson sem hefur
tekið forystu í flokknum. Sókn-
dirfska hans er vel kunn og enginn
vafi leikur á því að andstæðingum
hans gæti reynst erfitt að svara
henni. Einnig er ánægjulegt að sjá
Geirlaug Magnússon sitja aftur að
tafli eftir margra ára fjarveru. Opni
flokkurinn verður án efa jafn og
spennandi en fjórir keppendur eru
þar jafnir og efstir eftir fjórar um-
ferðir.
Opna Sparisjóðsmótið
í Vestmannaeyjum
Taflfélag Vestmannaeyja virðist
ætla sér stóra hluti um þessar
mundir eins og önnur íþróttafélög í
því ágæta sveitarfélagi. Það liggur
ljóst fyrir að sveit liðsins í Íslands-
móti skákfélaga verður í baráttunni
um Íslandsmeistaratitilinn og vel
gæti farið svo að bikarinn sem
Hrókurinn hefur verið áskrifandi
að síðustu ár lendi í greipum Vest-
mannaeyinga næsta vor. Fyrir
skömmu var haldið öflugt hrað-
skákmót í Eyjum til að fagna því að
taflfélagið hefur nýlega fest kaup á
húsnæði fyrir starfsemi sína á
Heiðarvegi 9. Hinn brottflutti Eyja-
maður og stórmeistari í skák, Helgi
Ólafsson, varð hlutskarpastur í
mótinu með átta vinninga af níu
mögulegum en Páll Agnar Þórar-
insson varð annar með sjö vinninga.
Alls tóku 32 keppendur þátt og var
umhugsunartími sjö mínútur á
skák.
Daði Örn Jónsson
Helgi Áss Grétarsson
Mikið um að vera í skákinni – Taflfélagið Hellir á Evrópumóti og haustmót TR hafið
Hellismenn í
Evrópukeppni og allt
í járnum í Sviss
SKÁK
Cesme, Brissago og Ísland
BESTU SKÁKMENN HEIMS Á EM
Október 2004
Jón Viktor
Gunnarsson
Andri Áss
Grétarsson
Toyota Landcruiser VX100 dísel
árg. 2003. Ekinn 49 þ. km. 7
manna. Verð 6.390.000.
Uppl. í s. 898 3738.
Subaru Forester árg. '03, ek. 18
þús. km. Sjálfskiptur, kastarar,
litaðar rúður, loftkæling, cruise
control, spoiler, dökkgrænn og
grár að neðan. Mjög fallegur bíll.
Uppl. í s. 862 1035 og 691 5894.
Mercedes Benz E-420 árg. '95,
ek. 154 þús. til sölu vegna íbúða-
kaupa. Bíll með öllu nema leðri.
http://www.e420.tk. S. 864 2868.
Ökukennsla Reykjavíkur ehf.
Ökukennsla akstursmat.
Vagn Gunnarsson
Mersedes Benz,
894 5200/565 2877.
Ævar Friðriksson
Toyota Avensis '02,
863 7493/557 2493.
Gylfi Guðjónsson
Subaru Impreza,
696 0042/566 6442.
Gylfi K. Sigurðsson
Nissan Almera,
892 0002/568 9898.
Snorri Bjarnason
Toyota Avensis, bifhjólak.
892 1451/557 4975.
Sverrir Björnsson
Volkswagen Passat,
892 4449/557 2940.
Glæsileg ný kennslubifreið,
Subaru Impreza 2004, 4 wd.
Akstursmat og endurtökupróf.
Gylfi Guðjónsson,
símar 696 0042 og 566 6442.
Ökuljós, hagstæð verð. Vitara,
Bolero, Swift,Sunny, Micra, Al-
mera, Primera, Patrol, Golf, Polo,
Bora, Vento, T4, Felicia, Octavia,
Uno, Punto, Brava, Peugeot 306,
406, 206, Berlingo, Astra, Vectra,
Corsa, Zafira, Iveco, Twingo,
Kangoo, R19, Clio, Megane, Lanc-
er, Colt, Carisma, Avensis, Cor-
olla, Yaris, Carina, Accent, Civic,
Escort, Focus, S40.
Sérpöntum útispegla.
G.S.Varahlutir
Bíldshöfða 14.S.5676744
Jeppapartasala Þórðar
Tangarhöfða 2, s. 587 5058
Nýlega rifnir Grand Vitara '00, Kia
Sportage '02, Terrano II '99,
Cherokee '93, Nissan P/up '93,
Vitara '89-'97, Patrol '95, Impreza
'97, Legacy '90-'94 o.fl.
Honda Civic 1500 Vtec '98. Ssk.
'05, lítur mjög vel út, sumar- og
vetrardekk, CD, bsk. Verð 750 þ.
Rafn s. 899 9383.
Jeep Grand Cherokee, árg. ´99
Mjög gott eintak, V8 4.7, ekinn
aðeins 83.000 km, silfurgrár, leð-
ursæti, Infiniti gold hljómkerfi,
orginal dráttarbeisli, nýleg dekk
o.fl. Allur yfirfarinn.
Upplýsingar í síma 669 9621.
Chervolet Silverado 2500 6,5
turbo dísel, árg. '98, sjálfskiptur,
ekinn 70 þús. km. Bíll í topp-
standi. Uppl. í síma 898 8582.
Toyota Previa 05/03. Ekinn 47
þús. km, sjálfskiptur, álfelgur,
dráttarkrókur. Upplýsingar í síma
869 1668.