Morgunblaðið - 09.10.2004, Síða 47
Miðasala og borðapantanir hjá Úrvali-Útsýn, Lágmúla 4, sími 585 4000.
Haustfagnaður
Úrvalsfólks
Hljómsveit Hjördísar Geirs leikur fyrir dansi
Fös. 22. okt. í Súlnasal Hótel Sögu. Húsið opnað kl. 19.
• Þriggja rétta máltíð • Skemmtiatriði
• Happdrætti • Miðaverð 3.700 kr.
Móðir og sonur takast á. Ragnheiður Steindórsdóttir og Jón Páll Eyjólfsson.
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. OKTÓBER 2004 47
MENNING
Höfundar handrits: María Ell-
ingsen, Gréta María Bergsdóttir,
Andri Snær Magnason og Snorri
Freyr Hilmarsson ásamt leik-
hópnum.
Leikarar: Álfrún Helga Örnólfs-
dóttir, Ásta S. Ólafsdóttir, Esther
Talía Casey, Guðjón Þorsteinn
Pálmarsson, Jón Ingi Há-
konarson, Jón Páll Eyjólfsson,
Kristján Franklín Magnús, Lára
Stefánsdóttir, Ragnheiður Stein-
dórsdóttir og Sigurður Eyberg.
Leikstjóri: María Ellingsen
Dans/hreyfingar: Reijo Kela
Tónlist: Eivør Pálsdóttir
Búningar: Helga I. Stefánsdóttir
og Bergþóra Magnúsdóttir
Leikmynd: Snorri Freyr
Hilmarsson
Lýsing: Björn G. Bergsteinsson
Myndbandstækni: Gideon Kiers
ÚlfhamssagaÞetta er búinn að vera tals-verður leiðangur,“ segirMaría Ellingsen leikstjóri,framleiðandi og einn höf-
unda leiksýningarinnar Úlfhams-
sögu sem Annað svið frumsýnir ann-
að kvöld í nýja
Hafnarfjarðarleikhúsinu. Sýningin
er byggð á íslensku fornaldarsög-
unni Úlfhamssögu sem til er í rím-
um frá 16. öld en þykir víst að hún
hafi geymst í munnmælum frá 14.
öld. Það var í gegnum rannsóknir
Aðalheiðar Guðmundsdóttur og
doktorsverkefni hennar um Úlf-
hamssögu sem María komst í kynni
við söguna og hún kveðst hafa lesið
viðtal við Aðalheiði í Morgunblaðinu
fyrir þremur árum og heilllast svo af
efninu að ekki varð aftur snúið.
„Úlfhamssaga er spennandi og
ótrúlegt ævintýri með magnaðan og
djúpan undirtón. Verkið fjallar um
mannlega náttúru af miklu innsæi
og um grimma valdabaráttu og blóð-
ug átök milli kynslóða. Þarna er
eldri kynslóð sem vill stjórna heim-
inum á sinn hefðbundna hátt og
unga kynslóðin sem trúir ekki á
stríð, endalausa valdabaráttu og
eyðileggingu. Þarna er barátta milli
karla og kvenna en um leið sjáum
við fólk frá ýmsum heimum taka
höndum saman um að skapa nýjan
heim. Sagan fjallar einnig um ástina
í sinni fegurstu mynd þar sem elsk-
endurnir eru tákn andstæðna sem
með sameiningu mynda eina heild.
Úlfhamssaga segir sögu sem
skemmtir áhorfendum nú eins og
hún hefur gert í gegnum aldir,“ seg-
ir María.
Sameiginleg sköpun
Aðferðin sem María lagði fyrir
samstarfsmenn sína við sýninguna
er sjaldan farin í íslensku leikhúsi þó
hún sé vel þekkt. „Þetta kallast á
ensku „devised theatre“ og byggist
á því að leikhópurinn vinnur sýn-
inguna út frá tilteknu efni. Í okkar
tilfelli unnum við frumvinnuna í vor
með leikhópnum og við Gréta Bergs
dramatúrg og Snorri Freyr leik-
myndahönnuður gerðum eins konar
grind að verkinu og síðan bættist
Andri Snær í hópinn sem höfundur
leiktextans. Í meðförum hans jókst
þáttur hins talaða texta mjög frá því
sem við sáum fyrir okkur í upphafi
og sýndi að það munar um að hafa
skáld með í för. “
Aðdragandi verksins er þrjú ár
sem þegar á allt er litið er kannski
eðlilegur meðgöngutími svo viða-
mikils verkefnis sem unnið er al-
gjörlega utan stofnana. „Mikill hluti
þessa tíma hefur farið í fjármögnun
verkefnisins og í að afla samstarfs-
aðila bæði hér heima og erlendis en
það eru t.d. þrjú ár síðan ég talaði
við Eivöru Pálsdóttur um að taka
þátt í þessu.“
María er sjálf af færeyskum upp-
runa og þekkti til Eivarar löngu áð-
ur en hún varð fræg á Íslandi og víð-
ar. „Þegar ég talaði við Eivöru var
hún átján ára og söng rímur berfætt
með afa sínum. Fyrir hana var þetta
því ekki mjög framandi að taka þátt
í leiksýningu sem byggist á fornsögu
og hlutur hennar í sýningunni er
frábær en hún bæði semur og flytur
tónlistina í henni. Þetta varð svo til
þess að hún ákvað að setjast að hér
á Íslandi frekar en í Danmörku sem
hún var að hugsa um á þessum tíma.
Hún hefur ýtt fjölmörgum tilboðum
út af borðinu til að geta verið með í
þessu.“
María fékk einnig finnska dans-
arann Reijo Kela til að semja dansa
og hreyfingar fyrir sýninguna en
Kela hefur aldrei áður samið dansa
fyrir aðra. „Ég var svo heppin að
detta niður á Reijo. Hann er mennt-
aður hjá Merce Cunningham en hef-
ur þróað alveg sitt eigið danstungu-
mál. Hann er þekktur fyrir að dansa
einn og vinna einn og semur yfirleitt
ekki fyrir aðra en þarna hitti ég á
hann þegar hann var þar staddur í
lífi sínu að hann langaði að vinna
með öðru fólki.“
Samstarfið við Eivöru og Reijo
hefur einnig gert verkefnið spenn-
andi kost gagnvart samnorrænum
sjóðum á listasviðinu og Norræni
menningarsjóðurinn styrkir verk-
efnið.
Fyrsta leikstjórnarverkefnið
Úlfhams saga er sjötta leiksýn-
ingin sem Annað svið setur upp og
fyrsta verkið sem sýnt verður í nýrri
byggingu Hafnarfjarðarleikhússins.
Aðrar sýningar í uppfærslu Annars
sviðs eru m.a. Svanurinn í Borg-
arleikhúsinu (1996) og Salka, ást-
arsaga í Hafnarfjarðarleikhúsinu
(1999).
„Ég hef alltaf verið framleiðandi
sýninga Annars sviðs og leikið í sýn-
ingunum en ráðið leikstjóra að verk-
efninu. Ég ætlaði upphaflega að
gera það líka með Úlfhamssögu og
leitaði til Benedikts Erlingssonar
um leikstjórn. Þegar ég var búin að
útlista verkefnið fyrir honum sagði
hann að ég ætti bara að leikstýra
þessu sjálf. „Þú sérð allar mynd-
irnar fyrir þér og veist alveg hvern-
ig þetta á að vera,“ sagði hann. Und-
ir þetta tók Charlotte konan hans og
einnig Hilmar Jónsson hjá Hafn-
arfjarðarleikhúsinu sem ég leitaði til
um samstarf við uppsetninguna. Það
sem mér þótti mest um vert var að
þau höfðu fulla trú á mér sem leik-
stjóra að þessu og hvöttu mig til
þess að gera þetta.
Ég var dálítinn tíma að melta
þetta en niðurstaðan varð sú að ég
ákvað að stýra þessu verkefni þó ég
líti frekar á mig sem leiðang-
ursstjóra í þessari vinnu en leik-
stjóra í hinum hefðbundna skilningi.
Ég trúi á samstarf og samvinnu og
að allir hafi eitthvað til málanna að
leggja. Sérstaklega þegar lagt er
upp með þá forsendu að hópurinn
muni semja og skapa sýninguna í
sameiningu.“
Þegar María er spurð að því
hvaða kraftur það sé sem valdi því
að henni takist að fá fólk með sér í
verkefni sem varla sé vitað í upphafi
hvað er; fólk frá þremur löndum
sem jafnvel breytir áætlunum sínum
til margra ára til að geta tekið þátt,
þá færist órætt bros yfir andlitið.
„Ég veit það ekki. Allt frá því ég
stofnaði þetta leikhús, Annað svið,
þá fer ég ekki af stað með verkefni,
nema ég sé mjög djúpt snortin af
efniviðnum og sé algjörlega sann-
færð um að það sé þess virði. Það er
ótrúlega mikil vinna að koma svona
verkefni alla leið og þá er eins gott
að vera sannfærður um ágæti þess.
Það verður að vera eldur sem logar í
manni svo einhver von sé til að
kveikja í öðrum.“
Með eldinn logandi í brjóstinu
Annað svið frumsýnir annað kvöld nýtt leik-
verk, Úlfhamssögu, í leikstjórn Maríu Ell-
ingsen. Þetta er jafnframt opnunarsýning nýs
leikhúss í Hafnarfirði og samstarfsverkefni við
Hafnarfjarðarleikhúsið.
Morgunblaðið/Kristinn
María Ellingsen, leikstjóri Úlfhamssögu.
havar@mbl.is
Piano solo: James Peace
Tónlist eftir:
Astor Piazzolla - Isaac Albéniz - James Peace
Laugardag 9. október
kl. 17.00
og
Sunnudag 10. október
kl. 17.00
Norræna Húsid
Sturlugata 5
IS - 101 Reykjavík - Island
www.nordice.is