Morgunblaðið - 09.10.2004, Page 51
Hverfisgötu ☎ 551 9000
www.regnboginn.is
Nýr og betri
www.laugarasbio.is
Sýnd kl. 2 og 4. Ísl. tal
NOTEBOOK
NOTEBOOK
VINCE VAUGHN BEN STILLER
D Ö N S K
KVIKMYNDAHÁTÍÐ 1-10. OKT.
TERKEL I KNIBE/TERKEL IN TROUBLE SÝND KL. 2.
LAD DE SMA BÖRN../AFTERMATHG SÝND KL. 2
ARVEN/ARFURINN SÝND KL. 4 OG 6.
ITS ALL ABOUT LOVE SÝND KL. 4.
TOM CRUSE JAMIE FOXX
Hörkuspennumynd frá
Michel Mann leiksjóra Heat
COLLATERAL
Mbl.
VINCE VAUGHN BEN STILLER
VINCE VAUGHN BEN STILLER
DodgeBall
punginn á þér!
Sýnd kl. 2, 4, 6, 8 og 10.
Sýnd kl. 6, 8 og 10.
Þú
missir
þig af
hlátri...
Óvæntasti
grínsmellur ársins
VINCE VAUGHN
Klárlega
fyndnasta
mynd ársins!
DodgeBall
BEN STILLER
Ó.Ö.H. DV
Kr. 500 Kr. 450
GEGGJUÐ GRÍNMYND
Á einfaldari tímum þurfti einfaldari
mann til að færa okkur fréttirnar
Sýnd kl. 4 og 6.
S.V. Mbl.
S.V. Mbl.
Sýnd kl. 6 og 8.
Sýnd kl. 10.
Sýnd kl. 2. Ísl. tal.
Óvenjulega
venjuleg stelpa
Ó.Ö.H. DV
Sýnd kl. 2. Ísl tal.
Sýnd kl. 8 og 10.15. B.i. 16 ára.
Fór beint
á toppinn
í USA
punginn á þér!
Sýnd kl. 6, 8 og 10.
Sýnd kl. 8 og 10. B.i. 16 ára.
Sýnd kl. 6, 8 og 10. B.i. 16 ára.
Kvikmyndir.com
„Ég anda, ég sef,
ég míg ... Tónlist“
Bubbi Morthens
Til heljar og til
baka með
atómbombunni
Bubba Morthens
Hörku spennutryllir lliHörku spennutryllir lli
SHARK TALE FORSÝND KL. 4. ÍSL. TAL.
Kr. 450
Sýnd kl. 3.20.
Frumsýnd
14.október
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. OKTÓBER 2004 51
HEIMILDARMYND um Bubba.
Vita ekki allir sem vilja allt um
Bubba? Sjálfsagt eru þeir ófáir sem
álíta svo því þessi mennski fellibylur
er ákaflega sýnilegur, aukinheldur
sker hann sig úr hjörðinni á tímum
sýndarmennskunnar því Bubbi er og
hefur aldrei verið banginn við að
koma til dyranna eins og hann er
klæddur. Óhætt er að fullyrða að
Bubbi er engum líkur, stundum fer
hann í taugarnar á manni en fyrr en
varir er þessi magnaði listamaður bú-
inn að syngja sig inn í hjartað aftur.
Þegar upp er staðið er augljóst að
tímabært er að gera mynd um Bubba
og Blindsker er vel unninn heimild,
bæði kvikmyndalegar lausnir, upp-
bygging og efnistök. Kvikmynda-
gerðarmennirnir fella laglega saman
tónlistina við urmul blaðagreina og
ekki síst óhemju af sjónvarpsefni og
tónlistarmyndböndum, af nógu er að
taka. Úrvinnslan, gerð af einlægni og
fagmennsku með virðingu fyrir við-
fangsefninu, hefði þó mátt vera dálít-
ið þéttari þegar síga tekur á seinni
helminginn. Við kynnumst fullt af
nýjum hliðum á Bubba, ekki síst erf-
iðum bernskuárum þar sem tónlistin
verður fljótlega hans lífselixír. Frá
því hann debúteraði með Ísbjarn-
arblús, hefur hann verið, ásamt Meg-
asi, kóngurinn í íslenskri dæg-
urtónlist. Hann segir í myndinni
eitthvað á þá leið að einkunnarorð sín
séu allt eða ekkert, það hefur sann-
arlega gengið eftir. Hvílík ævi.
Eins og lög gera ráð fyrir fer lungi
Blindskers í að fylgjast með tónlistar-
manninum, hvernig hann yfirgnæfir
kollega sína og kemur eins og þruma
úr heiðskíru lofti „skallapoppsins“
um ’80, í gegnum Utangarðsmenn,
Egó, Das Kapital uns sólóferillinn
verður atkvæðamestur. Með fram er
skyggnst inn í einkalífið, sem öfugt
við snillina og kraftinn á sviðinu og í
laga- og textasmíðum, er enginn dans
á rósum. Maðurinn er við það að tor-
tíma sér á eiturlyfjaneyslu en á rétt-
um tímapunkti er hann það gæfusam-
ur að eygja vonarskímu, sjá að við svo
búið verður ekki unað lengur. Hann
vill stjórna sínu eigin lífi og fá að
njóta alls þess góða sem það býður og
honum hefur verið gefið.
Vonandi heldur Bubbi áfram sem
frjór og skapandi listamaður sem
stormar af og kemur á óvart og um
verður rifist, en um ágæti Blindskers
verður ekki deilt. Hún er vel unnið
og, til tilbreytingar, ófalsað portrett
af einni margflóknustu persónu sam-
tímans. Laga- og textasmið og sagna-
manni sem höfðar til þorra þjóð-
arinnar, andlegu og líkamlegu
heljarmenni með ótrúlega breiða lífs-
reynslu að baki sem hann kann að
hagnýta sér og koma frá sér. Ófeim-
inn við að tíunda feilsporin öðrum til
varnaðar og sæll og ánægður situr
hann nú eins og kóngur í ríki sínu.
Maður er þakklátur fyrir að hafa
fengið að vera samferða listamann-
inum og skemmtikraftinum Bubba
síðasta aldarfjórðunginn og hlakkar
til að fá að njóta tónlistar hans um
ókomin ár.
Blindsker er heiðarleg mynd um
heiðarlegan listamann sem kann ekki
að þykjast; fræðandi og merkileg
heimild um verðandi þjóðsagna-
persónu og hefur aukið álitið á mann-
inum Bubba Morthens og var það þó
býsna drjúgt fyrir.
Listamaðurinn og götustrákurinn
KVIKMYNDIR
Smárabíó, Regnboginn,
Borgarbíó Akureyri
Íslensk heimildarmynd. Leikstjóri: Ólafur
Jóhannesson. Handrit: Ólafur Páll Gunn-
arsson. Kvikmyndataka: Ragnar Santos,
Friðþjófur Helgason. Hljóðupptaka: Jan
Murtomaa. 90 mínútur. Poppoli kvik-
myndafélag í samstarfi við Friðrik Þór
Friðriksson. Ísland. 2004
Blindsker – Saga Bubba Morthens
Sæbjörn Valdimarsson
„Blindsker er heiðarleg mynd um heiðarlegan listamann sem kann ekki að
þykjast,“ segir í umsögn. Eitt af atriðum í myndinni; Bubbi í sjónvarps-
þættinum Á líðandi stundu að ræða við Sigmund Erni Rúnarsson.
Vertu í góðu sambandi
við þitt fólk í útlöndum
Nú er
ódýrara
að hringja
til útlanda