Morgunblaðið - 16.10.2004, Blaðsíða 18
Akureyri | Suðurnes | Árborg | Landið
Minnstaður
Höfuðborgarsvæðið Brjánn Jónasson, brjann@mbl.is, sími 569-1100. Suðurnes Helgi
Bjarnason, helgi@mbl.is, sími 569-1310 og 669-1310. Akureyri Skapti Hallgrímsson,
skapti@mbl.is, Margrét Þóra Þórsdóttir, maggath@mbl.is og Kristján Kristjánson,
krkr@mbl.is, sími 461-1600. Vesturland Ásdís Haraldsdóttir, asdish@mbl.is, sími 898-
5258. Austurland Steinunn Ásmundsdóttir, austurland@mbl.is, sími 669-1115. Árborg-
arsvæðið og Landið Guðrún Aðalsteinsdóttir, frett@mbl.is, sími 569-1290.
Mínstund frett@mbl.is
Kennaraverkfallið hefur haft mjög mis-
munandi áhrif á grunnskólabörn og for-
eldra þeirra í sveitinni. Sumum barnanna
leiðist mikið að komast ekki í skólann til að
hitta félagana, aðallega þeim sem eiga fá
eða engin systkini, enda ekki hægt að
hlaupa út í næsta hús til að spyrja eftir ein-
hverjum. Það er helst að þau geti fengið
foreldrana til að aka sér í Borgarnes til að
mæta á íþróttaæfingar eða í tónlistarskól-
ann. Á öðrum bæjum, sérstaklega þar sem
rekinn er fjárbúskapur, er nóg að gera hjá
börnunum. Þau taka þátt í haustverkunum
með foreldrunum svo sem eins og að smala
heimalöndin og fleira. Mörg þessara barna
hafa mikinn áhuga á sauðfjárrækt og sakna
þess oft að geta ekki tekið þátt í þessum
störfum. Þetta eru sömu sveitabörnin og
þjást á vorin þegar sauðburður er hafinn og
þau eru lokuð inni í skólanum fram í júní.
Samgöngumál til sveita eru kafli út af
fyrir sig. Vegir hafa vissulega batnað en
víða er enn langt í land. Ástandið skánar þó
örugglega eftir því sem þéttbýlisbúar
sækja meira í sveitina. Þannig hefur það að
minnsta kosti verið með netvæðinguna til
sveita. Þegar kom í ljós að sumarbústaða-
eigendur í Borgarfirði vildu geta haft að-
gang að Netinu í bústöðum sínum fór allt í
gang. Og sveitabæirnir fengu að fljóta með.
Fram að þeim tíma hafði gamla góða sveita-
símalínan þótt fullgóð. Eitthvað hafði verið
gert í að koma upp ISDN-stöðvum en sú
þjónusta þótti mjög dýr og varð ekki eins
útbreidd og vonir Símans höfðu staðið til.
En sem sagt um leið og skriðan fór af stað
varð ekki aftur snúið. Hér í Borgarfirðinum
hefur mikið átak verið gert í að koma upp
þráðlausu breiðbandskerfi. Nú hafa borg-
firsku sveitarfélögin norðan Skarðsheiðar,
Borgarbyggð, Hvítársíðuhreppur, Borg-
arfjarðarsveit og Skorradalshreppur, gert
samstarfssamning við eMax ehf. um upp-
byggingu þráðlauss breiðbandskerfis. Í
honum felst að áður en ár er liðið eiga 95%
heimila á svæðinu kost á þjónustunni.
Sveitarfélögin leggja fram fé en gera um
leið kröfu um aukna útbreiðslu kerfisins.
Með þessari uppbyggingu er verið að gera
Borgarfjörðinn enn fýsilegra svæði til að
búa á. Sannarlega gott framtak.
Úr
sveitinni
ÁLFTANES Á MÝRUM
EFTIR ÁSDÍSI HARALDSDÓTTUR BLAÐAMANN
Messað verður íKrýsuvíkur-kirkju næst-
komandi sunnudag, kl.
14. Prestur er Gunnþór
Ingason. Undirleik ann-
ast Sigrún M. Þórsteins-
dóttir. Messukaffi verður
í Sveinshúsi þar sem
stendur yfir sýningin
Fuglar í myndlist Sveins
Björnssonar.
Guðsþjónustur hafa
verið í Krýsuvíkurkirkju
tvisvar á ári síðan Sveinn
Björnsson listmálari var
jarðsettur þar 9. maí
1997. Messað er í maí
þegar altaristafla kirkj-
unnar er hengd upp og í
október þegar hún er tek-
in niður. Altaristaflan er
myndverk sem Sveinn
málaði eftir að hafa mál-
að í nokkur ár myndir við
Passíusálma Hallgríms
Péturssonar. Hann nefndi
myndverkið Upprisuna.
Rútuferð í Krýsuvík
verður frá Hafnarfjarð-
arkirkju kl. 13.
Krýsuvík
Hornfirskaskemmtifélagiðer á diskóboms-
unum þessa dagana.
Skemmtidagskráin Diskó
var frumsýnd á Hótel
Höfn í byrjun mánaðarins
og hefur verið sýnd fyrir
fullu húsi síðan.
Í sýningunni flytja sjö
söngvarar og fimm manna
hljómsveit alla heitustu
diskósmellina sem hljóm-
uðu í Hollywood við Ár-
múla og á fleiri stöðum á
diskótímanum. Þetta eru
lög sem flestir þekkja í
flutningi diskódrottning-
anna Donnu Summer,
Tinu Charles og Gloriu
Gaynor. Leikstjóri er
Kristín G. Gestsdóttir og
Heiðar Sigurðsson er tón-
listarstjóri.
Um helgina verða síð-
ustu sýningarnar á Hótel
Höfn og föstudaginn 22.
október verður Diskóið á
Broadway í Reykjavík.
Hljómsveitin KUSK
leikur fyrir dansi að sýn-
ingum loknum.
Morgunblaðið/Sigurður Mar Halldórsson
Á diskóbomsunum
Són, tímarit um óð-fræði, hefur aðgeyma forvitnilegt
efni fyrir vísna-
áhugamenn. Kristján
Eiríksson fjallar um
lausavísur Dýrólínu Jóns-
dóttur á Fagranesi á
Reykjaströnd (f. 1877).
Hún var nokkuð kunn
fyrir skáldskap sinn í
Skagafirði. Eitt sinn orti
Dýrólína er hún heyrði
hjón skattyrðast:
Vonir mást en vélar fást,
vitið sást í fjötrum;
skyldan brást þar klækir
kljást
klæddir ástartötrum.
Hún orti einnig um
„laglega en lausláta
stúlku“:
Yndi brjálar ástasjúk,
allt í málar glettum
fátæk sál í fögrum búk
full af táli og prettum.
Jón Guðmundsson fað-
ir Dýrólínu orti um hana
þegar hún var fullorðin:
Afbragð kvenna Ísafróns,
eikin byrðar Grana.
Dýrólína dóttir Jóns,
drengjum líst á hana.
Tál og prettir
pebl@mbl.is
Skagaströnd | „Ég þori alveg að
koma við stinguna á honum,
hann er nefnilega ekki lifandi
lengur,“ sagði litla stúlkan hróð-
ug. Það varð uppi fótur og fit á
leikskólanum Barnabóli á
Skagaströnd þegar einn pabb-
inn kom færandi hendi með
risastóran krabba til að leyfa
krökkunum að skoða.
Ekki var frítt við að sumir
væru smeykir við gripinn og
þyrftu nokkurn tíma til að átta
sig á að krabbinn væri dauður
og gæti þess vegna ekki klipið
með stóru klónum sínum.
Krakkarnir höfðu samt mjög
gaman af að skoða krabbann og
ekki síður að sýna gripinn.
Krabbinn er ættaður úr Bar-
entshafinu norðan við Rússland
en þaðan kom Arnar HU 1 ný-
lega eftir langan túr. Þar veidd-
ust krabbar í tonnavís en flestir
fóru þeir í sjóinn aftur því ekki
er leyfilegt að hirða þá á þessum
slóðum.
Morgunblaðið/Ólafur Bernódusson
Risakrabbi á leikskólanum
Náttúrufræði
Húsavík | Þessa dagana sýnir Ingunn
Jensdóttir, myndlistarkona, leikstjóri og
leikkona, silki- og vatnslitamyndir í Safna-
húsinu á Húsa-
vík, sýningin
stendur til nk.
sunnudags.
Ingunn málar
aðallega með
vatns- og silki-
litum á pappír
og hvítt silki og
hefur haldið margar sýningar undanfarin
ár.
Myndefnið sækir Ingunn mikið í náttúru
Íslands ásamt ýmsu öðru sem á vegi henn-
ar verður.
Eins og áður segir hefur Ingunn, sem er
áhugamálari, aðallega fengist við vatns- og
silkiliti. En hún er einnig postulínsmálari.
Sýnir silki-
og vatnslita-
myndir
Leikhúslíf Ingunn Jensdóttir
við mynd sína.
Egilsstaðir | „Við höfum barist fyrir upp-
byggingu Skriðdals og lítum svo á að það
sé ekki síður mikilvægt en Fáskrúðsfjarð-
argöng, sem eru geysilega mikilvægt hags-
munamál fyrir Austurland,“ segir Soffía
Lárusdóttir, oddviti bæjarstjórnar Austur-
Héraðs, formaður Sambands sveitarfélaga
á Austurlandi og efsti maður D-lista við
kosningar í sameinuðu sveitarfélagi Aust-
ur-Héraðs, Norður-Héraðs og Fella-
hrepps.
„Mér skilst að samgönguráðherra sé að
skoða málið. Við funduðum með honum í
vikunni og lýstum mikilli andstöðu við til-
færslu þjóðvegar 1. Ég mun í framhaldinu
taka þetta upp með þingmönnum kjör-
dæmisins. Afstaða okkar er skýr og við
munum fylgja þessu fast eftir. Við teljum
að þannig séum við að gæta hagsmuna
Austurlands ekki síður en Héraðsins. Ég
hugsa þar um Breiðdalinn, Djúpavog og
innbyrðis tengingu fólks á Austurlandi. Nú
eru orðnar mjög greiðar samgöngur á
fjörðunum og upp á Hérað og við þurfum
að tengja jaðarbyggðirnar eins og Breiðdal
og Djúpavog inn á sterkt þjónustusvæði.
Öxi skiptir hér einnig máli.“
Andstaða við
tilfærslu
hringvegar
♦♦♦
Að eldast - að njóta sín
Námsstefna
Safnaðarheimili Seljakirkju miðvikudaginn
20. október 2004 kl. 9.00-15.00
Námsstefnan er haldin í samvinnu Fagdeildar öldrunarhjúkrunarfræðinga, Fagdeildar
sjúkraliða með sérnám í hjúkrun aldraðra og Félags eldri borgara.
Aðgangseyrir er 1.000 kr. með hádegisverði og kaffi, greiðist við innganginn.
DAGSKRÁ
Kl. 9.00 Setning námsstefnunnar
Margrét Á. Ósvaldsdóttir formaður
fagdeildar öldrunarhjúkrunarfræðinga.
Kl. 9.05 Framtíðarsýn eldri borgara
Margrét Margeirsdóttir fulltrúi frá Félagi eldri borgara.
Kl. 9.50 Kaffi í boði Kaffitárs
Kl. 10.05 Þvagvandamál aldraðra
Anný Lára Emilsdóttir hjúkrunarfræðingur.
Kl. 10.50 Kynning á sérnámi sjúkraliða í hjúkrun aldraðra
Inga Lóa Guðmundsdóttir og
Edda Sjöfn Smáradóttir sjúkraliðar.
Kl. 11.00 Kynning á tilraunaverkefni á Landakoti
Ingibjörg Hjaltadóttir sviðsstjóri hjúkrunar öldrunarsviði LSH.
Kl. 11.45 Hádegisverður
Kl. 12.45 Kvíði hjá öldruðum
Dr. Erla Grétarsdóttir öldrunarsálfræðingur.
Kl. 13.30 Líkamsrækt aldraðra
Lovísa Einarsdóttir sjúkraliði og íþróttafræðingur.
Kl. 14.15 Iðjuþjálfun í heilsuvernd aldraðra
Guðrún Hafsteinsdóttir iðjuþjálfi.
Kl. 15.00 Námsstefnuslit
Bára Emilsdóttir formaður fagdeildar sjúkraliða
með sérnám í hjúkrun aldraðra.
Námsstefnustjórar:
Elsa B. Friðfinnsdóttir formaður Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga og
Kristín Á. Guðmundsdóttir formaður Sjúkraliðafélags Íslands
Kynningar verða á hjúkrunarvörum frá Austurbakka, Bedco-Mathiesen, Eirbergi,
Securitas og Rekstrarvörum.
Námsstefnan er öllum opin