Morgunblaðið - 16.10.2004, Blaðsíða 55
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. OKTÓBER 2004 55
Hverfisgötu ☎ 551 9000
www.regnboginn.is
Nýr og betri
NOTEBOOK
VINCE VAUGHN BEN STILLER
Sýnd kl. 5.40.
VINCE VAUGHN BEN STILLER
VINCE VAUGHN BEN STILLER
DodgeBall
Óvæntasti
grínsmellur ársins
Fór beint á
toppinn í USA
Þú
missir
þig af
hlátri...
punginn á þér!
Ó.Ö.H. DV
Klárlega
fyndnasta
mynd ársins!
S.V. Mbl.
Sýnd kl. 2, 4, 6 og 8.
„Ég anda, ég sef, ég
míg ... Tónlist“ Bubbi
Morthens
Til heljar og til baka
með atómbombunni
Bubba Morthens
DENZEL WASHINGTON
KVIKMYNDIR.COM H.L. MBL
Sýnd kl. 10. B.i. 16 ára.
Sýnd kl. 1.50, 3.50, 8 og 10.
Sýnd kl. 5.40, 8 og 10.20. B.i. 16 ára.
Sýnd kl. 10. B.i. 16 ára.
Sýnd kl. 2, 4, 6 og 8..
ÞÆR ERU MÆTTAR AFTUR...
ENN BLÓÐÞYRSTARI!
KYNGIMAGNAÐUR
SPENNUTRYLLIR SEM FÆR HÁRIN
TIL AÐ RÍSA.
V.G. DVS.V. Mbl.
óvenjulega venjuleg stelpa
Sýnd kl. 3.20.
Sýnd kl. 2. Ísl. tal.
Kr. 450
www.laugarasbio.is
Sýnd kl. 2 og 4. Ísl. tal.
Kr. 500
Hörku spennutryllir
Hörku spennutryllir lli
COLLATERAL
TOM CRUSE JAMIE FOXX
Hörkuspennumynd frá
Michel Mann leiksjóra Heat
Fór beint á toppinn í USA!
Mbl.
Sýnd kl. 2, 4 og 6. Íslenskt tal.
Sýnd kl. 8 og 10.15. B.i. 16 ára.
Nýjasti stórsmellurinn frá framleiðendum
Shrek. Toppmyndin í USA í dag. Sýnd
með íslensku og ensku tali.
j i r ll ri fr fr l i
r . i í í .
í l li.
Sýnd kl. 2, 4, 6, 8 og 10. Enskt tal.
Sýnd kl. 6, 8 og 10. B.i. 16 ára.
Kvikmyndir.is
DV
Kvikmyndir.is
DV
EITT af þeim bresku
böndum sem fengið hafa
hvað mesta umfjöllun í
músíkpressunni í ár er
Hot Chip. Sveitin sú þykir
nefnilega hafa eitthvað al-
veg nýtt fram að færa,
eitthvað illskilgrein-
anlegtfönkað þjóðlaga-
skotið nýrómantískt og
dansvænt britpop. Nema
bara að þetta er ekkert
britpop, jafnvel þótt hér
séu á ferð fimm ungir
Bretar, aldrei þessu vant.
Þeir koma nefnilega úr allt
annarri kreðsu, vinirnir
Joe Goddard (Ulysses) og
Alexis Taylor (Sophocles) sem stofn-
uðu bandið.
Hlustuðu sig heyrnadaufa á elstu
Prince-plötuna, Svarta albúmið
hans, Public Enemy og Beach Boys
á meðan allir fé-
lagarnir veltu sér
upp úr Oasis,
Blur og Bítlum.
Þeir Joe og Alex-
is fundu sálu-
félaga í Owen
Clarke, Felix Martin (Mankf) og Al
Doyle og hófu að spila, uppáklæddir
og smart í tauinu, í svörtum skyrtum
með skóreimamjó skjannahvít háls-
bindi. Útkoman, tónlistinvirkar á
mann eins og einhver lygileg blanda
af áðurnefndum Prince og bresku
þjóðlagagoðsögnunum Nick Drake
og John Martyn.
Fyrsta platan Coming On Strong,
sem kom út fyrr á árinu, hefur líka
fengið þessa fínu dóma í bresku
pressunni: „Ljómandi frumraun,
sérstaklega vegna þess að hún
hljómar ólíkt öllu öðru sem gert hef-
ur verið,“ segir í umsögn NME-
tónlistarritsins sem gefur plötunni 8
af 10.
„Við erum undir mjög sterkum
áhrifum frá þeirri tónlist sem við ól-
umst upp við,“ segir Joe, sem semur
alla tónlistina með Alexis. „Það er
rétt, við lágum yfir Prince þegar við
vorum yngri og eigum honum mikið
að þakka.“ Í laginu frábæra „Down
With Prince“, sem prýddi fyrstu
smáplötu sveitarinnar, halda þeir
líka uppi vörnum fyrir hans kon-
unglegu ótukt, sem hefur átt undir
högg að sækja
Spilað og skoðað
„Við hlökkum gríðarlega til að
koma. Það verður fullt að gera hjá
okkur, stoppum í þrjá daga. Við
þekkjum allmarga sem hafa verið á
Íslandi og þeir halda ekki vatni yfir
landi og þjóð. Hljóðmaður vinar okk-
ar Adem er alltaf að lofa Ísland en
hann er líka hljóðmaður Sigur Rósar
og hefur því verið þarna og þekkir
landið ágætlega og segir það magn-
að. Stefnan er að taka allan pakk-
ann, skoða það sem við getum og sjá
líka önnur bönd sem verða þarna.
Hot Chip spilar á tónleikum og við
Alexis verðum líka plötusnúðar á
Domino-kvöldinu.“
Joe segir Airwaves-hátíðina vera
afar fýsilegan kost fyrir þá sem eru í
svipaðri stöðu og Hot
Chip, unga og upprenn-
andi listamenn á höttunum
eftir athygli réttra blaða-
manna og útgefenda
beggja vegna Atlantshafs.
„Mér líst rosa vel á það
sem verður í boði á hátíð-
inni og fjölbreytnin er
greinilega allsráðandi.
Fullt af góðum böndum og
sum hver orðin býsna
fræg, eins og Keane.“
Joe segir Hot Chip vera
gott dæmi um það sem sé
að gerast í breskri tónlist
um þessar mundir, fjöl-
breytnin sé nefnilega að
aukast til muna og ný bönd farin að
prófa eitthvað annað en gítardrifið
og fyrirsjáanlegt britpoppið. „Við
vorum orðnir hundleiðir á þessu
britpoppi. Kunnum alveg að meta
það til að byrja með en það lamaðist
mjög fljótt. Tónlist Hot Chip er því
alveg tvímælalaust beint mótvægi
gegn þessu fúla britpoppi. Við höf-
um miklu meiri áhuga á tónlist sem
hefur alþjóðlega skírskotun; hlust-
um mikið á franska tónlist og okkur
finnst Björk alveg ótrúleg. Adem er
mikill aðdáandi hennar.“
Joe viðurkennir að heimamenn
hafi verið býsna seinir að taka við
sér, átt erfitt með að gútera tónlist
Hot Chip. „Þetta er ekki það sem
flestir vilja heyra þegar þeir mæta á
tónleika í Englandi og til að byrja
með voru margir mjög tortryggnir.
En núna síðustu mánuði virðist sem
menn séu loksins farnir að átta sig á
því sem við erum að gera.“
Tónlist | Hot Chip er eitt „heitasta“ tónleikaband Breta
Verndarar Prinsins
Hot Chip mun leika lög af hinni frábæru Coming on Strong.
Hot Chip leikur á NASA laugard.
23. okt. með Kid Koala, Hjálmum,
Jagúar, Forgotten Lorez, Skytt-
unum, Dáðadrengjum og Gram.
skarpi@mbl.is
DANSKA útgáfufyrirtækið
Crunchy Frog hefur á tíu ára líf-
tíma vaxið og eflst og er nú ein um-
svifamesta neðanjarðarútgáfa
Dana. Útgáfan er með Ravenottes
og Junior Senior á sínum snærum
og gefur út forvitnilegar – á stund-
um skringilegar – rokksveitir sem
heita nöfnum á borð við The
Tremolo Beer Gut og Learning
from Las Vegas. Tvær sveitir frá
Crunchy Frog, hin undarlega
nefnda Powersolo og Epo-555
munu troða upp á Grand rokk í
kvöld. Sú fyrrnefnda leikur frum-
legt og afkáralegt blúspönk (Jon
Spencer á sýru) en sú síðarnefnda
draumkennda nýbylgju í anda My
Bloody Valentine.
Crunchy Frog var upphaflega
stofnað af meðlimum hljómsveit-
arinnar Thau til að koma eigin plöt-
um út en er nú rekið af parinu
Jesper Reginal (trymbill Thau) og
Jessicu Tolf Vulpius. Þau lýsa því
að síðustu þrjú ár eða svo hafi fyr-
irtækið verið ofan við núllið hvað
rekstur varðar en fram að því hafi
þau keyrt bankareikninginn í yf-
irdrátt þegar kom að núlli til að
fjármagna fleiri útgáfur. Crunchy
Frog er nú sex manna fyrirtæki
með skrifstofur í miðbæ Kaup-
mannahafnar. Þrátt fyrir batnandi
hag er grasrótarglampi djúpt í aug-
um Jespers og maður trúir honum
er hann segir að starfsemin snúist
um tónlist fyrst og síðast. Hann eys
linnulaust lofi yfir hljómsveitirnar
sínar og talar af mikilli ástríðu um
tónlistarsenuna í Danmörku.
„Okkur langaði til að kynna Ís-
lendinga fyrir þessari tónlist þar
sem þær falla ekki undir hefð-
bundnar hugmyndir sem fólk hefur
um danska tónlist,“ segir Jesper.
Þegar fólk hugsar um danska
tónlist. koma iðulega upp nöfn eins
og Aqua eða Kim Larsen og það
verður að segjast eins og er að
Danmörk hefur ekki orð á sér fyrir
að búa yfir spennandi tónlist, ólíkt
segjum … Íslandi! Jesper sam-
þykkir þetta fúslega en segir að
þetta sé sem betur fer að batna.
Markmið Crunchy Frog er það eitt
að gefa út spennandi og góða tón-
list og er mikil vinna lögð í að
reyna að kynna hana vel og ræki-
lega, bæði í Danmörku og annars
staðar.
Crunchy Frog hefur enda verið
að ná ágætum árangri í kynningu á
sínum sveitum en Powersolo hafa
t.a.m. bæði spilað á South by
SouthWest í Austin, Texas og á
CMJ í New York, sem eru stórar
og virtar tónlistarhátíðir, aðallega
ætlaðar til kynningar á nýjum og
heitum sveitum líkt og Iceland
Airwaves.
Tónleikar | Danskt útgáfufyrirtæki með
tónleika á Grand rokk
Dönsk útrás
Powersolo, önnur tveggja sveita
frá Danmörku sem munu koma
fram á Grand rokk í kvöld.
Tónleikarnir hefjast klukkan
22.00.
www.crunchy.dk
arnart@mbl.is