Morgunblaðið - 16.10.2004, Blaðsíða 54

Morgunblaðið - 16.10.2004, Blaðsíða 54
ÞEGAR öllu er á botninn hvolft er ekki til sú íslenska hljómsveit sem auðveldar á með að kokka upp gríp- andi lagstúfa en Quarashi. Sölvi Blöndal er einfaldlega búinn að leysa gátuna, veit upp á hár hvernig mata á lýðinn með dæg- urflugum sem slá rétta taktinn. En það er ekki eins og Sölvi síend- urtaki einhverja formúlu heldur hafa þeir félagar ætíð verið óhræddir við að prófa eitt- hvað nýtt. Þar liggur líka kjarni málsins. Sama hvaða músíkstefnu þeir velja sér; hávaða þungarokk eða meinlausa poppblöðru, pumpandi hipphopp eða satínsleipt diskó, alltaf eru þessir mergjuðu lagakrókar fyrir hendi, þetta sama skothelda grúv. Quarashi eru hinur vammlausu. Að því sögðu gefur augaleið að Guerilla Disco er algjörlega að dansa rétta dansinn. Stígur bara nokkur vandræðaleg feilspor, sem hendir líka bestu dansarar í hita leiksins. Gleðilegast er þó að þeir eru enn – eftir áratug í harkinu – að prófa ný spor. Þessi tólf laga plata tekur upp þráðinn þar sem frá var horfið á hinni frábæru Jinx. Lagið er „Payback“, enn einn rakinn bíómynda- og aug- lýsingasmellurinn. Harkalegur text- inn, grasserandi í blóðugum hefnd- arþorsta; rokkið feitt, í anda „Stick’em Up“. Hér er loksins gengið alla leið í átt að fyrirmyndinni Ham, sveitinni sem Quarashi-liðar hafa svo óragir tekið sér til fyrirmyndar. Mætti líka með sanni líta á Quarashi sem réttmæta og verðuga arftaka, kyndilbera Ham-sins. Þá tekur við hið „Mess it Up“-lega „Dead Man Walking“, þar sem Tiny fær gott tækifæri til að sýna færni sína. Verst með þennan sérdeilis hvimleiða síendurtekna viðlagsstúf, sem fer nálægt því að skemma þetta annars flotta lag sem endar með glúrinni vísun í gamla Cure-lagið „10:15 Saturday Night“. „Stars“ er margfalt betra og finnur plötunni rétta taktinn aftur, rétta sporið; fer- lega grípandi og gott lag, með skemmtilega akústísku undirspili og Tiny rappar sláandi líkt og Eminem sjálfur á milli viðlaga þar sem Pétur Örn Guðmundsson syngur með sinni sálarmiklu falsettu. Millistef á við suðræna gítargutlið „Audio Amigos“ verða seint leikin á X-inu en gera plötunni samt hreint engan skaða, sýna þvert á móti þá óramiklu músík- vídd sem Sölvi hefur yfir að búa. Snjallasti smellurinn á plötunni fylgir þar á eftir, einhver hugvitssamasta hljómasmölun – skífuskark – sem undirritaður hefur heyrt lengi, brillj- ant endurlífgun á hinum sífönkaða „Hveiti-birni“ Tívolístjórans Jakobs Frímanns. Þarna kemur Ómar sterk- ur inn; er kröftugur og agressívur rappari, orðinn einhvern veginn miklu voldugri en á Jinx, þar sem hann var enn í syndsamlega litlu hlutverki. Þeir ná annars alveg snilldarlega vel saman Ómar og Tiny og verður að bæta þar enn einni rós í hnappagat Sölva fyrir að hafa haft sans fyrir því að leiða þá saman. „Murder Frenzy“ er e.t.v. hreinrækt- aðasta hipphopp-lagið. Snaggaralegt og vel tvinnað saman af Ómari og Tiny. Smekkvísir kvikmyndalegir strengir leika þar stóra rullu líkt og í hinu alltof kunnuglega „Brass Knuckles“. Eitthvað við „Straight Jacket“ læt- ur hugann reika til vesturstrandar N-Ameríku, eitthvað afslappað og fordekrað; eitthvað Dr. Dre-legt. En þar rennur líka upp fyrir manni mun- urinn á Sölva og Doktornum, sá ís- lenski er útsjónarsamari þegar kem- ur að því búa til hipphopp með „alvöru“ hljóðfærum, nokkuð sem á endanum skilur eftir sig eitthvað miklu tannhvassara og hættulegra. Diskóið verður skyndilega við völd í „Pro“, frábærlega dansvænu lagi sem nýtur góðs af hreinræktuðum Chic-legum diskóstrengjum, útfærð- um af þeim besta á því sviðinu, Þóri Baldurssyni. Niðurlagið fantafínnar plötu er heimhornarappið „Steua“ þar sem Kid nokkur Romania rappar með sínu nefi, fremur tilþrifalítill rokk- hundur „Make a Move“ þar sem Óm- ar ræður ríkjum og svo hið formlega lokalag „This Song“, ballaða þar sem Villi Naglbítur ljær Quarashi tilfinn- ingasterka rödd sína. Svolítill Beck, svolítill Bowie – ágætt lag sem slíkt, hreint ekki dæmigert fyrir Quarashi en hugsanlega vísir um eitthvað sem koma skal. Guerilla Disco er dúndur diskó, réttnefnt skæruliðadiskó. Festir Quarashi í sessi sem yfirburðasveit á sínu sviði og undirstrikar að Sölvi og meðdansarar eru enn, sem áður, að finna upp á nýjum og ferskum spor- um sem allir vilja ólmir læra. Maður verður náttúrlega að kunna réttu sporin. Réttu sporin TÓNLIST Íslenskar plötur Quarashi eru Sölvi B: Forritun, smölun, trommur, ásláttur, hljómborð, plötuspil- arar og gler; Tiny: söngur og ásláttur; Ómar Swarez: söngur og ásláttur. Upp- tökustjórn, útsetning og hljóðblöndun: Sövli B. Tekið upp í Gróðurhúsinu, Jinx og Grjótnámu. Útgefandi Skífan. Quarashi – Guerilla Disco  Skarphéðinn Guðmundsson Ljósmynd/Ari Magg Ómar Örn og Tiny eru ólíkir en ná glettilega vel saman – þökk sé út- sjónarsemi Sölva Blöndal. CHRISTIAN Bale, sem leikur aðal- hlutverkið í væntanlegri kvikmynd um Leðurblökumanninn, fannst ís- kalt á Íslandi. Þetta kemur fram í viðtölum við bandaríska fjölmiðla að hann hafi fengið hálfgert áfall þegar hann kom til Íslands sl. vor frá Barcelona á Spáni þar sem hann var við tökur á myndinni The Machinist. „Það er svo fjandi kalt á Íslandi. Og þeir éta hvali, þeir éta allt, lunda,“ sagði Bale og brosir við en sjálfur leggur hann sér ekki kjöt til munns. Erfitt á jöklinum Bale segir þó að það erfiðasta við kvikmyndatökurnar á Íslandi hafi verið umhverfið en hluti mynd- arinnar Batman Begins var tekinn í nágrenni Skaftafells. Hann rifjar í viðtölunum upp fyrsta atriðið sem tekið var á jökli. „Við vorum uppi á jöklinum og hann var að springa – það mynd- uðust stórar sprungur á honum og við þurftum öll að standa kyrr og gæta þess að brjóta hann ekki,“ seg- ir hann. Batman Begins, sem tekin var að hluta á Íslandi, er dýrasta myndin sem Bale hefur leikið í en kostnaður- inn er áætlaður 135 milljónir dala, jafnvirði 9,6 milljarða króna. Í myndinni leikur Bale hlutverk Bruce Wayne, sem berst gegn glæpamönnum í borginni Gotham. Meðal annarra leikara í myndinni eru Michael Caine, Katie Holmes, Morgan Freeman, Gary Oldman og Liam Neeson. Gert er ráð fyrir að myndin verði frumsýnd á þjóðhátíð- ardag Íslendinga, 17. júní, á næsta ári. Skilur loksins Batman Nokkrar kvikmyndir hafa verið gerðar um Leðurblökumanninn, síð- ast Batman og Robin með George Clooney í aðalhlutverkinu. Bale seg- ist ekki hafa skilið eðli persónunnar fyrr en nýlega. „Mér fannst það alltaf hálf- hlægilegt,“ segir hann. „Þessi náungi heldur að hann veki ótta með því að klæða sig í leðurblökubúning. Ég myndi hlæja að honum og segja: Hvers konar rugludallur ert þú? Komdu þér burt.“ En Bale segir að augu hans hafi opnast þegar hann klæddi sig sjálfur í búninginn. „Það hjálpar honum að viðhalda ákafanum og einbeiting- unni í hinni erfiðu baráttu gegn glæpum að klæðast þessu dul- argervi.“ Bale er þrítugur að aldri en hann fæddist í Wales árið 1974. Ellefu ára gamall lék hann í mynd Stevens Spielbergs, Empire of the Sun, en þekktastur er hann fyrir leik sinn í myndinni American Psycho. Ljósmynd/David James Bale skildi ekki alveg þetta með búninginn. Batman var kalt á Íslandi 54 LAUGARDAGUR 16. OKTÓBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ Miðasala opnar kl. 15.30 EINI THX LÚXUSSALUR LANDSINS NOTEBOOK VINCE VAUGHN BEN STILLER DodgeBall Óvæntasti grínsmellur ársins Fór beint á toppinn í USA Þú missir þig af hlátri... punginn á þér!  Ó.Ö.H. DV Klárlega fyndnasta mynd ársins! Mjáumst í bíó! Mjáumst í bíó! Kr. 450  S.V. Mbl. Sýnd kl. 2 og 4. Ísl. tal. „Ég anda, ég sef, ég míg ... Tónlist“ Bubbi Morthens Til heljar og til baka með atómbombunni Bubba Morthens VINCE VAUGHN BEN STILLER DodgeBall Óvæntasti grínsmellur ársins Fór beint á toppinn í USA Þú missir þig af hlátri... punginn á þér!  Ó.Ö.H. DV Klárlega fyndnasta mynd ársins!  S.V. Mbl. VINCE VAUGHN BEN STILLER Sýnd kl. 6, 8 og 10. Sýnd kl. 5.40, 8 og 10.20. B.i. 16 ára. Sýnd kl. 3, 5.30, 8 og 10.15. kl. 5.40, 8 og 10.20. B.i. 16 ára. Snargeggjuð gamanmynd frá hinum steikta Scary Movie hóp Sýnd kl. 3, 5.30, 8 og 10.15 V.G. DVS.V. Mbl. Sýnd kl. 1.40, 3 og 4.20. Ísl. tal. „Ég anda, ég sef, ég míg ... Tónlist“ Bubbi Morthens Til heljar og til baka með atómbombunni Bubba Morthens V.G. DV S.V. Mbl. Sýnd kl. 8 og 10. B.i. 16 ára. Sýnd kl. 8. ÞÆR ERU MÆTTAR AFTUR... ENN BLÓÐÞYRSTARI! KYNGIMAGNAÐUR SPENNUTRYLLIR SEM FÆR HÁRIN TIL AÐ RÍSA. ÞÆR ERU MÆTTAR AFTUR... ENN BLÓÐÞYRSTARI! KYNGIMAGNAÐUR SPENNUTRYLLIR SEM FÆR HÁRIN TIL AÐ RÍSA. Sýnd kl. 6. Snargeggjuð gamanmynd frá hinum steikta Scary Movie hóp Sýnd kl. 6 og 10. Sýnd kl. 4.30. Ísl. tal. Sýnd kl. 2, 4. Ísl. tal.kl. 2 og 3.15. Ísl. tal.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.