Morgunblaðið - 16.10.2004, Blaðsíða 9
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. OKTÓBER 2004 9
FRÉTTIR
SKOSKA dagblaðið The Press and
Journal, sem gefið er út í Aber-
deen, greindi nýlega frá fundi á
flaki togarans Banffshire frá Skot-
landi, sem strandaði í Kvískerja-
fjöru á Breiðamerkursandi þann
16. janúar árið 1905. Ellefu skip-
verjum var bjargað giftusamlega af
Birni Pálssyni á Kvískerjum, en
eftirlifandi synir hans, Sigurður,
Helgi og Hálfdán, fóru að skoða
flakið í sandinum eins og greint var
frá í máli og myndum í Morgun-
blaðinu 30. september sl.
Kom flakið upp úr sandinum um
80 árum frá því að það hvarf sjón-
um manna. Leiðangur með skosku
áhöfnina frá Kvískerjum til
Reykjavíkur í aftakaveðri var æv-
intýralegur og á heimleiðinni
drukknaði ungur maður í Kúða-
fljóti.
Skoska blaðið greinir ítarlega frá
strandinu og vitnar í þarlendar
heimildir og frásagnir, sem koma
vel heim og saman við íslenskar
heimildir, sem vitnað var til í frá-
sögn Morgunblaðsins. Meðal þess
sem The Press and Journal nefnir
til viðbótar er að eftir strandið hafi
Björn á Kvískerjum rýmt hlöðu
sína og skosku sjómennirnir orðið
að liggja á heyi í rúma viku, þar til
farið var með þá til Reykjavíkur.
Þar beið þeirra gufuskipið Laura,
sem sigldi með þá til Skotlands.
Komu þeir til bæjarins Leith 34
dögum frá því að lagt var upp í
þessa örlagaríku sjóferð frá Aber-
deen 12. janúar árið 1905. Óskaði
blaðið eftir ábendingum frá les-
endum, einkum afkomendum
áhafnarinnar, og gáfu upp síma-
númer sem þeir gátu hringt í.
Blaðið segir mikinn fjölda
skoskra sjómanna hafa siglt á Ís-
landsmið á fyrstu áratugum 20.
aldar. Haft er eftir John Edwards,
sagnfræðingi í ráðhúsi Aberdeen,
að með tilkomu gufutogaranna hafi
skoskar útgerðir stækkað veiði-
svæðið allt til Íslands og Græn-
lands.
Skoskt dag-
blað greinir
frá fundinum
á Banffshire
Úrklippa úr skoska dagblaðinu, þar sem mynd Ragnars Axelssonar, ljós-
myndara Morgunblaðsins, af Kvískerjabræðrum við flakið prýðir frásögn-
ina, auk myndar af Birni Pálssyni, bjargvætti skosku skipverjanna.
ÍSLENSKU menntasamtökin hafa
verið tekin til gjaldþrotaskipta og
er í nýjasta hefti Lögbirtingablaðs-
ins auglýst eftir kröfum í búið.
Samkvæmt upplýsingum frá
skiptastjóranum, Friðjóni Erni
Friðjónssyni hrl., á engin starfsemi
lengur að vera hér á landi á vegum
samtakanna.
Íslensku
menntasamtökin
gjaldþrota
♦♦♦
Opið virka daga frá kl. 10-18 laugardaga frá kl. 10-16
• Engjateigi 5
• Sími 581 2141
15% afsláttur
af buxum, peysum og bolum
Síðasti tilboðsdagur
Glæsilegur samkvæmisfatnaður
fyrir allan aldur
Eddufelli 2 Bæjarlind 6
s. 557 1730 s. 554 7030
Opið mán.—fös. frá kl. 10—18
lau. kl. 10—16
Álfhólsvegi 67, 200 Kópavogi, sími 554 5820.
Opið kl. 16-18 þri., mið., fim. •
www.silfurhudun.is
Silfurhúðum
gamla muni
Málstofa
um olíurétt og nýtingu olíuauðlinda
í Norðaustur-Atlantshafi
Háskóla Íslands, Lögbergi, stofu 101,
mánudaginn 18. október 2004 kl. 11.00-14.00
Dagskrá:
11.00 Setning: Sverrir Haukur Gunnlaugsson sendiherra,
stjórnarformaður Hafréttarstofnunar Íslands.
11.05 Ernst Nordtveit, prófessor í olíurétti við Háskólann í
Björgvin.
11.35 Rory Boyd, aðstoðarskrifstofustjóri olíumálaskrifstofu
samgöngu- og auðlindaráðuneytis Írlands.
12.00 Hádegissnarl í boði Hafréttarstofnunar Íslands.
12.30 Sigurð í Jakupsstovu, yfirmaður Olíustofnunar
Færeyja.
12.50 Hans Kristian Schönvandt, yfirmaður
auðlindaskrifstofu heimastjórnar Grænlands.
13.10 Sveinbjörn Björnsson, sérfræðingur á Orkustofnun.
13.30 Umræður.
14.00 Slit.
Málstofustjóri: Tómas H. Heiðar þjóðréttarfræðingur,
forstöðumaður Hafréttarstofnunar Íslands.
Málstofan er öllum opin á meðan húsrúm leyfir.
Ómetanlegt
Gjafaegg til tæknifrjóvgunar
Við erum par sem eigum ekki kost á því að eignast barn saman
nema með utanaðkomandi aðstoð. Við leitum því að hugulsamri
konu sem er tilbúin að gefa okkur egg.
Fullum trúnaði er heitið, við komum ekki til með að vita hver þú
ert og þú ekki hver við erum. Allur lyfja- og lækniskostnaður
verður greiddur af okkur.
Ef þú ert yngri en 35 ára, átt a.m.k. eitt barn, heilsuhraust og vilt
veita okkur þetta tækifæri biðjum við þig vinsamlega að senda
bréf með nafni, aldri og símanúmeri til auglýsingardeildar Mbl.
Merkt: „GA-12000“ fyrir 30. október.
Við munum biðja lækni að veita bréfi þínu móttöku og hafa
samband.
Laugavegi 63, sími 551 4422
GERRY WEBER
BASIC DRAGTIN
Grunnurinn í fataskápinn
4 snið af jökkum,
buxum og pilsum,
stærðir 36-50
Októbertilboð!
15% afsláttur
af ullardrögtum
Kringlukast í DUKA
20% afsláttur af
matar- og kaffistellum
Vandaðar heimilis- og gjafavörur
Kringlan 8-12, sími 533 1322