Morgunblaðið - 16.10.2004, Qupperneq 19
Kvennakór | Kvennakórinn Embla
hefur upp raust sína á nýju starfsári
með tónleikum í Akureyrarkirkju á
sunnudag, 17. október kl. 17. Flutt
verða tvö verk eftir tónskáldin Perg-
olesi og Haydn. Flytjendur með
kórnum eru Hildur Tryggvadóttir,
sópran og Elvý G. Hreinsdóttir,
mezzósópran auk þess sem kórfé-
lagar syngja einsöng. Kammersveit
Akureyrar sér um hljóðfæraleik.
Kórinn var stofnaður 1. september
2002 og er skipaður konum við Eyja-
fjörð. Stofnandi kórsins og jafnframt
stjórnandi hans er Roar Kvam.
Draumar | Námskeið þar sem fjallað
verður um hlutverk, gagnsemi og eðli
drauma verður haldið í Mennta-
smiðjunni en það ber yfirskriftina:
Draumar – auður svefnsins. Kynntar
verða ýmsar kenningar um eðli og
hlutverk drauma og hvernig nýta má
þann auð svefnsins til aukinnar sjálfs-
þekkingar, lífsfyllingar og þroska.
Valgerður H. Bjarnadóttir félags-
ráðgjafi með framhaldsmenntun í
heildrænum fræðum, draumum og
trúarheimspeki kvenna hefur umsjón
með námskeiðinu. Það hefst 4. nóv-
ember næstkomandi og stendur til
30. sama mánaðar.
Músíka 2004 | Tónlistarhátíð
verður haldin í Ketilhúsinu í dag,
laugardaginn 16. október, en yfir-
skrift hennar er Músíka 2004. Þórey
Ómarsdóttir og Gilfélagið standa að
þessum viðburði. Hátíðin stendur
frá kl. 13.20 og fram yfir miðnætti.
Meðal þeirra sem koma fram eru
Benedikt Ómarsson sem leikur
frumsamin lög á klassískan gítar,
The Sexual Disaster Quarter,
Kingstone, The Mad Coffee Mach-
ine, Chelsea Clinton Style, Kristján
Pétur og hljómsveit Sigurðar Jóns-
sonar, Douglas Wilson, Arna Vals-
dóttir og þá verður upplestur á ís-
lenskum ljóðum við undirleik.
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. OKTÓBER 2004 19
MINNSTAÐUR
NÝ VARASTÖÐ fyrir Almannavarn-
ir, Neyðarlínuna og Fjarskiptamið-
stöð lögreglunnar var opnuð á Lög-
reglustöðinni á Akureyri í gær, en um
er að ræða stjórnstöð sem þjóna mun
landinu öllu. Stjórnstöðin mun einnig
vera varastöð fyrir vaktstöð siglinga
og stjórnstöð leitar og björgunar auk
þess að vera stjórnstöð almanna-
varnanefndar Eyjafjarðar. Lögreglu-
stöðin á Akureyri var opnuð formlega
eftir gagngerar endurbætur sem
staðið hafa yfir frá því í desember á
liðnu ári.
Björn Bjarnason dómsmálaráð-
herra opnaði nýju varastöðina form-
lega og sagði að með tilkomu hennar
hefði skref verið stigið til að auka ör-
yggi allra landsmanna. Hann gat þess
þó að vonandi rynni ekki upp sá dagur
að Björgunarmiðstöðin í Skógarhlíð
yrði óvirk og að grípa þyrfti til vara-
stöðvarinnar, „en það er mikilvægt að
hafa varastöð, hafa stjórnstöðvar á
tveimur stöðum á landinu,“ sagði
Björn. Hann sagði stöðina á Akureyri
styrkja starfsemina almennt og hún
stuðlaði að auknu öryggi í landinu. Til
staðar væri þjálfaður mannskapur og
nýr og fullkomin tækjabúnaður í sitt
hvorum landshlutanum. Björn sagði
það skipta máli hvað landfræðilegar
aðstæður varðaði að stöðin væri á Ak-
ureyri og eins varðandi aukið jafn-
vægi milli höfuðborgar og lands-
byggðar. Lögreglustöðin á Akureyri
hefur gengið í endurnýjun lífdaga, en
framkvæmdir vegna endurbóta hafa
staðið yfir frá því í desember á liðnu
ári. Húsnæðið, sem er við Þórunnar-
stræti var tekið í notkun á afmælis-
degi Akureyrarbæjar, 29. ágúst 1968,
en Björn Jósef Arnviðarson sýslu-
maður gat þess í ræðu við opnun þess
nú í gær að það hefði ekki síst verið
vegna þrotlausrar baráttu Gísla
Ólafssonar, fyrrverandi yfirlögreglu-
þjóns sem ráðist var í byggingu stöðv-
arinnar á sínum tíma. Gísli var að
störfum frá árinu 1958 til ársloka 1980
og tók hann fyrstu skóflustungurnar
að húsinu sumarið 1963. Björn Jósef
sagði Gísla hafa verið stórhuga, enn
rúmaði húsnæðið starfsemi lögregl-
unnar, en búnaður, fyrirkomulag og
annað hefði verið komið vel til ára
sinna og því brýnt að gera endurbæt-
ur á húsnæðinu.
Viðamiklar endurbætur
Daníel Guðjónsson, yfirlögreglu-
þjónn á Akureyri, sagði framkvæmd-
irnar hafa verið mjög viðamiklar, allt
hefði verið rifið innan úr húsinu þann-
ig að ekkert stóð eftir nema út- og
burðarveggir. Skipt var um allar
lagnir og allan búnað í húsinu, stjórn-
búnaður er nýr og húsgögn líka. Dan-
íel sagði framkvæmdir hafa gengið
vel en þó hefði ýmislegt óvænt og
ófyrirséð komið upp en öll mál verið
farsællega leyst. Á meðan á fram-
kvæmdum stóð var rannsóknar-
deildin flutt á skrifstofu sýslumanns
og almenna lögreglan hreiðraði um
sig um nokkurra mánaða skeið í sum-
arhúsi á bílastæði lögreglustöðvar-
innar. Í kjallara stöðvarinnar er bíl-
skúr, móttaka, útkallsbúnaður,
aðstaða fyrir lögregluhunda og vara-
aflsvél, sem og búningsaðstaða fyrir
starfsmenn, tæknirými og aðstaða
fyrir tæknirannsóknir sem og
geymslur. Anddyri er á fyrstu hæð og
móttaka viðskiptavina, kaffi- og setu-
stofa fyrir starfsmenn, skrifstofur og
vinnustöðvar vegna skýrslugerðar
auk varastjórnstöðvarinnar. Á ann-
arri hæð eru salur, skrifstofa yfirlög-
regluþjóns, herbergi fyrir viðtöl og
skýrslutökur, yfirheyrsluherbergi,
skrifstofa lögreglufulltrúa og vinnu-
rými rannsóknarlögreglumanna.
Ný varastöð fyrir Almannavarnir, Neyðarlínuna og Fjarskiptamiðstöð lögreglu
Skref í átt að
auknu öryggi
landsmanna
Morgunblaðið/Margrét Þóra
Klippt á borðann Björn Bjarnason tekur í notkun nýja varastöð fyrir Al-
mannavarnir, Neyðarlínuna og Fjarskiptamiðstöð lögreglunnar á Lög-
reglustöðinni á Akureyri. Sýslumaðurinn í Eyjafjarðarsýslu, Björn Jósep
Arnviðarson, aðstoðar Björn við að klippa á borðann.
Kraftakarl Gísli Ólafsson, yfirlög-
regluþjónn á Akureyri, átti stóran
þátt í að Lögreglustöðin við Þór-
unnarstræti var byggð á sínum
tíma. Gísli var yfirlögregluþjónn
frá árinu 1958 til ársloka 1980.
AKUREYRI