Morgunblaðið - 16.10.2004, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. OKTÓBER 2004 37
KIRKJUSTARF
Haustmessa í
Krýsuvíkurkirkju
HIN árlega haustmessa fer fram í
Krýsuvíkurkirkju sunnudaginn 17.
október og hefst hún kl. 14:00. Vor-
og haustmessur þar hafa fest sig vel
í sessi og laðað marga að til gefandi
helgistunda. Sr. Gunnþór Þ. Inga-
son messar og Sigrún M. Þórsteins-
dóttir leikur á hljómborð og leiðir
kirkjusöng. Við lok messunnar verð-
ur „Upprisa“, altaristafla kirkj-
unnnar eftir Svein Björnsson, tekin
ofan til veturdvalar í Hafnarfjarð-
arkirkju. Eftir messuna verður boð-
ið upp á kaffi og kökur í Sveinshúsi
á vægu verði. Þar stendur nú yfir
sýningin „Fuglar“ en fuglar eru
áberandi í myndverkum Sveins
Björnssonar og geta vísað til bæði
frelsis og hærri lífsvídda. Sætaferð
verður frá Hafnarfjarðarkirkju kl.
13:00 og frá Krýsuvík síðar um dag-
inn í boði kirkjunnar.
Tónlistarguðsþjónusta
í Árbæjarkirkju
ÞRIÐJA sunnudag hvers mánaðar
eru tónlistarguðsþjónustur. Eins og
nafnið gefur til kynna skipar tónlist-
in stórt pláss í guðsþjónustunni
ásamt útleggingu orðsins. Á sunnu-
dag mun Martial Nardeau þver-
flautuleikari heiðra kirkjugesti með
leik sínum. Ólafur Jóhann Borg-
þórsson, guðfræðinemi og æsku-
lýðsleiðtogi við kirkjuna, prédikar.
Viljum við hvetja fermingarbörn og
foreldra þeirra til að koma og eiga
stund í kirkjunni. Kirkjukaffi og
meðlæti á eftir. Sunnudagaskólinn á
sama tíma í safnaðarheimilinu.
Sorg og sorgar-
úrvinnsla í
Árbæjarkirkju
ÞRIÐJUDAGINN 19. október kl.
17.30 hefst námskeiðið Sorg og
sorgarúrvinnsla í umsjá sr. Þórs
Haukssonar og sr. Sigrúnar Ósk-
arsdóttur. Um er að ræða fimm
þriðjudaga, tíminn er frá kl. 17.30
og lýkur kl. 19.00. Öllum þeim sem
hafa misst ástvin er velkomið að
sækja þetta námskeið. Hugmyndin
er að þeir sem sækja námskeiðið
haldi áfram eftir þessa fimm þriðju-
daga að hittast og eiga stuðning
hver af öðrum.
Fyrirlestur í
Landakoti
„Í VOTTA viðurvist – Heilög messa
í vitnisburði helgra manna.“ Sr.
Jürgen heldur áfram fyrirlestri sín-
um 18. október kl. 20.00 í safn-
aðarheimilinu á Hávallagötu 16. Að
þessu sinni fjallar erindið um Bene-
dikt frá Núrsíu: Að rísa á fætur til
að lofa Guð – Lof- og þakkargerð:
Forgildi og Sanctus. Allir áhuga-
samir eru hjartanlega velkomnir.
Tíu leiðir til að lifa
lífinu lifandi
ÞRIÐJUDAGSKVÖLDIÐ 19. okt.
mun sr. Þórhallur Heimisson flytja
fyrirlestur á vegum trúfræðslu
Laugarneskirkju þar sem hann
fjallar um fjölskyldulíf og leggur
fram tíu leiðir til að lifa lífinu lif-
andi.
Fyrirlesturinn fer fram í safn-
aðarheimili Laugarneskirkju, hefst
kl. 19:45 og lýkur kl. 20:30. Að-
gangseyrir er enginn.
Að erindi sr. Þórhalls loknu gefst
fólki kostur á að ganga upp í kirkju
og taka þátt í hinum vikulega
kvöldsöng. Það er Þorvaldur
Halldórsson sem leiðir sönginn en
Gunnar Gunnarsson leikur á píanó.
Á eftir er molasopi í safnaðarheim-
ilinu og einnig boðið til fyrirbænar
við altari kirkjunnar. Verið velkom-
in.
Ferill fyrirgefning-
arinnar
LAUGARDAGINN 16. október
verður Marteinn Steinar Jónsson
sálfræðingur með fyrirlestur kl.
17.00 í Fríkirkjunni Kefas við
Vatnsendaveg og fjallar hann um
ferli fyrirgefningarinnar. Að lokn-
um fyrirlestri er boðið upp á súpu,
brauð og kaffi.
Allir eru velkomnir.
Barnaguðsþjónusta
í Seljakirkju
BARNAGUÐSÞJÓNUSTA verður í
Seljakirkju á sunnudaginn kl. 11.
Barnakórar kirkjunnar syngja und-
ir stjórn Önnu Margrétar Ósk-
arsdóttur. Allir velkomnir.
Hjónanámskeið
í Selfosskirkju
MIÐVIKUDAGINN 20. október
næstkomandi kl. 19.30 heldur síra
Þórhallur Heimisson hjóna-
námskeið í Safnaðarheimili Selfoss-
kirkju.
Námskeiðið stendur aðeins þetta
eina kvöld og má gera ráð fyrir að
því ljúki kl. 22.30, hálftíma kaffihlé
meðtalið.
Síra Þórhallur hefur mikla
reynslu af fræðslu á þessu sviði og
hafa námskeið hans orðið mörgum
að drjúgu gagni. Nú þegar hafa
mörg hjón skráð sig til þátttöku hér
á Selfossi. Ástæða er til að hvetja
alla þá, sem áhuga hafa á að vera
með, til þess að skrá sig hjá kirkju-
verði í síma 482 2175 eða sókn-
arpresti í síma 899 1908.
Sr. Gunnar Björnsson.
Kirkjudagur
Fríkirkjunnar
í Hafnarfirði
ÁRLEGUR kirkjudagur Fríkirkj-
unnar í Hafnarfirði er á morgun,
sunnudaginn 17. október.
Barnasamkoma verður að venju í
kirkjunni kl. 11 en þátttakan hefur
verið mikil síðustu sunnudaga.
Guðsþjónusta verður í kirkjunni kl.
13 og þar mun Hera Elfarsdóttir
guðfræðinemi predika en Hera er í
hópi þeirra sem stýra barna- og
æskulýðsstarfi kirkjunnar. Suðræn
sveifla mun setja svip á sálmasöng-
inn að þessu sinni sem kór kirkj-
unnar leiðir undir stjórn Arnar Arn-
arsonar og hljómsveitar kirkjunnar.
Að lokinni guðsþjónustu hefst svo
hin glæsilega kaffisala kvenfélags-
ins í safnaðarheimilinu en allur
ágóði af sölunni rennur til safn-
aðarstarfsins. Þess er vænst að safn-
aðarfólk og vinir kirkjunnar fjöl-
menni til kirkjunnar á þessum
hátíðisdegi.
Mark Anderson heim-
sækir Bústaðakirkju
UM þessar mundir er staddur hér á
landi bandaríski orgelleikarinn og
kórstjórinn Mark A. Anderson.
Sunnudaginn 17. október kl. 14
mun hann heimsækja Bústaðakirkju
í almennri guðsþjónustu og leiða
safnaðarsöng á orgel kirkjunnar,
auk þess að spila forspil og eftirspil.
Í guðsþjónustunni verður sérstök
áhersla lögð á almennan söng og er
fólk hvatt til að mæta og taka þátt í
þessum sérstaka viðburði.
Mikill fengur er að heimsókn
Marks og er Bústaðakirkja honum
þakklát fyrir að vilja koma í heim-
sókn og leyfa söfnuðinum að njóta
mikilla hæfileika sinna.
Fólk er hvatt til að fjölmenna í há-
tíðlega og skemmtilega guðsþjón-
ustu í Bústaðakirkju nk. sunnudag.
Laugardaginn 16. október mun
svo Mark flytja erindi á sálma-
ráðstefnu sem haldin er á vegum
Tónskóla þjóðkirkjunnar og Kirkju-
tónlistarsviðs Biskupsstofu. Um
kvöldið sama dag stýrir hann
Sálmaveislu í Hallgrímskirkju þar
sem hann leiðir veislugesti um
undraheima sálmabókarinnar.
Kópavogskirkja –
þakkargjörð
Þakkargjörðarguðsþjónusta verður
sunnudaginn 17. október kl. 14. Í
henni verður lögð áhersla á þakk-
argjörðina – á það að við munum
eftir að þakka allt það dýrmæta og
góða sem við njótum og höfum not-
ið.
Í guðsþjónustunni verður Her-
manni Lundholm, sem starfað hefur
við Kópavogskirkju í áratugi, þakk-
að sérstaklega en hann hefur unnið
kirkjunni af einstakri trúmennsku
og ljúfmennsku. Sóknarprestur, sr.
Ægir Fr. Sigurgeirsson, predikar
og þjónar fyrir altari og kór Kópa-
vogskirkju syngur undir stjórn Jul-
ian Hewlett organista. Kaffisopi eft-
ir guðsþjónustu.
Fræðsla og helgihald
í Hallgrímskirkju
SUNNUDAGINN 17. október hefst
dagskrá dagsins á fræðslumorgni
kl. 10.00. Sr. Sigurður Pálsson flyt-
ur erindi um trúarbragðafræðslu í
fjölmenningarsamfélagi. Eftir fyr-
irlesturinn gefst kostur á fyrir-
spurnum og umræðum.
Messa og barnastarf hefst kl.
11.00. Sr. Jón Dalbú Hróbjartsson
prédikar og þjónar fyrir altari
ásamt sr. Sigurði Pálssyni. Magnea
Sverrisdóttir djákni hefur umsjón
með barnastarfinu, sem hefst í
messunni, en síðan gefst börnunum
kostur á að fá fræðslu og samfélag
við sitt hæfi í safnaðarsalnum.
Sérstök áhersla verður lögð á al-
mennan sálmasöng í messunni, en
þessa helgi stendur yfir sálma-
ráðstefna á vegum þjóðkirkjunnar.
Hörður Áskelsson verður organisti
og stjórnar almennum safnaðarsöng
og hóp úr Mótettukór Hallgríms-
kirkju.
Næstu fjögur miðvikudagskvöld
kl. 20.00 verður fræðsla um Bibl-
íuna, – tilurð, sögu, áreiðanleika og
áhrif. Umsjón hefur sr. Sigurður
Pálsson.
KMS – fyrir ungt fólk
KMS er Ten-sing-starf fyrir ungt
fólk á aldrinum 14–20 ára. KMS
merkir Kristur-Menning-Sköpun.
Hér er boðið upp á listsköpun undir
stjórn frábærra fagmanna og skipt-
ist starfið í þrjá hópa; gospelkór,
hljómsveit og leiklistarstarf.
Leiklistarhópurinn og gospelkór-
inn æfa í Áskirkju (kirkjan fyrir of-
an Laugardalinn) á fimmtudögum
kl. 17:30–19:30, en hljómsveitaræf-
ingarnar eru á sama tíma í að-
alstöðvum KFUM/KFUK á Holta-
vegi 28. Í lok hverrar æfingar borða
svo allir kvöldmat saman inni í Ás-
kirkju.
Hér er einfaldlega um frábært
tækifæri fyrir ungt fólk að ræða.
Hægt er að fá nánari upplýsingar
um KMS með því að senda línu á
netfangið midborgarprest-
ur@kirkjan.is.
KFUM/KFUK,
ÆSKR,
Laugarneskirkja,
Áskirkja,
Fella- og Hólakirkja,
Miðborgarstarf kirkjunnar.
Sr. Gunnar vísiterar
Mosfellsprestakall
Á MORGUN, sunnudaginn 17. októ-
ber, vísiterar sr. Gunnar Krist-
jánsson, prófastur í Kjalarnespró-
fastdæmi Mosfellsprestakall.
Vísitasían hefst kl. 15.00 með
heimsóknum prófasts í kirkjur
prestakallsins og fundum með
prestum, sóknarnefnd og starfsfólki
safnaðarins.
Kvöldguðsþjónusta verður í
Lágafellskirkju kl. 20. 30 og mun
prófastur predika. Hanna Björk
Guðjónsdóttir syngur einsöng og
Hjörleifur Valsson leikur á fiðlu.
Kikjukór Lágafellssóknar leiðir
safnaðarsöng en organsiti safnaðar-
ins Jónas Þórir sér um orgelleikinn.
Að lokinni Guðsþjónustu verður
kirkjukaffi í safnaðarheimilinu að
Þverholti 3.
Sóknarnefnd Lágafellssóknar.
Morgunblaðið/RAXKrýsuvíkurkirkja
Samsung SGH-X450
Expert, Skútuvogi 2, sími 522 9000 • www.expert.is
Opið virka daga frá kl. 11.00 - 18:30
Laugardaga frá kl 10.00 - 18.00
Sunnudaga frá kl. 13.00 - 17.00
Fallegur
3 banda sími
með hágæða skjá.