Morgunblaðið - 16.10.2004, Blaðsíða 60
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 LAUGARDAGUR 16. OKTÓBER 2004 VERÐ Í LAUSASÖLU 220 KR. MEÐ VSK.
Heilsukoddar
Heilsunnar vegna Opi› í dag laugardag
frá kl. 11-16
HLUTVERKIN snerust við hjá bæjarstjóra Hafn-
arfjarðar og formanni Fimleikafélags Hafnar-
fjarðar þegar þeir undirrituðu viljayfirlýsingu
um uppbyggingu á
svæði FH á 75 ára
afmæli félagsins.
Fyrir nokkrum ár-
um undirrituðu
þeir Lúðvík Geirs-
son bæjarstjóri og
Ingvar Viktorsson,
formaður FH,
sams konar sam-
komulag fyrir
íþróttafélagið
Hauka, en þá var
Ingvar bæjarstjóri en Lúðvík formaður Hauka.
„Fyrir nokkrum árum skrifaði ég þar sem Lúð-
vík skrifaði í dag, og hann þar sem ég skrifaði,“
segir Ingvar. Þá fól samningurinn í sér uppbygg-
ingu á svæði Hauka á Ásvöllum, en nú stendur til
að fara í uppbyggingu í Kaplakrika.
Ingvar segir að haldið verði áfram með bygg-
ingu stúku fyrir knattspyrnuvöllinn. Í henni verð-
ur bæði búningsaðstaða og ekki síður aðstaða
fyrir félagsstarf FH. Hann segir að stúkan verði
hönnuð á næsta ári, og vonandi farið í fram-
kvæmdir í byrjun árs 2006. Ingvar segir einnig að
farið verði að leita að nýju svæði fyrir FH, Kapla-
kriki sé hreinlega sprunginn. Kjarni starfsem-
innar verði áfram í Kaplakrika þó að t.d. æfinga-
svæði fyrir knattspyrnu verði annars staðar.
Byggt upp á
svæði FH
Morgunblaðið/Kristinn
Lúðvík Geirsson og Ingvar
Viktorsson fallast í faðma.
FORELDRAR fatlaðra grunnskólabarna
eru mjög ósáttir við ástandið í verkfalli
grunnskólakennara, en nokkrir foreldrar
sem eru í Félagi CP á Íslandi hittu for-
mann Kennarasambands Íslands í gær til
að gera honum grein fyrir því ástandi
sem þeir búa við.
„Ég á góða að, og vinnan hefur sýnt
mér skilning. Það er bara það sem hefur
reddað manni. Það fólk sem er í kringum
okkur hefur sýnt þann skilning sem þarf
til að geta staðið í þessu,“ segir Auður
Sigurðardóttir, sem kom ásamt syni sín-
um, Gunnari Loga Tómassyni sem bund-
inn er við hjólastól.
Skilaboð foreldra fatlaðra barna til
deiluaðila voru einföld: „Það þarf að veita
börnunum okkar undanþágur svo þau
komist í skólann,“ segir Ingibjörg Ósk-
arsdóttir, formaður Félags CP á Íslandi,
sem er hér á myndinni ásamt syni sínum.
Aðrir foreldrar fatlaðra barna eru
einnig ósáttir við ástandið í verkfalli
grunnskólakennara. Ólafur Hilmar Sverr-
isson er faðir Kjartans, sjö ára drengs í
Foldaskóla sem er með downs-heilkenni,
þroskaskerðingu og sykursýki. Hann seg-
ir son sinn, og fleiri í hans stöðu, njóta
aðstoðar stuðningsfulltrúa í skólanum, og
vill að stuðningsfulltrúarnir fái að annast
börnin þrátt fyrir verkfallið.
Morgunblaðið/Golli
Vilja undanþágur fyrir börnin
Þarf að veita/4
BAKKAVÖR er í þriðja sæti á lista Europe’s 500
yfir framsæknustu vaxtar- og atvinnuskapandi
fyrirtækin í Evrópu. Alls eru fjögur íslensk fyr-
irtæki á listanum. Þau eru auk Bakkavarar Group
Össur hf., Opin kerfi Group og Creditinfo Group,
sem rekur m.a.
Lánstraust.
Samantekið
sköpuðu ís-
lensku fyrir-
tækin flest
störf allra
landa í úttekt-
inni á þriggja
ára tímabili,
eða að meðal-
tali 635 störf á fyrirtæki. Þar vegur Bakkavör
þyngst en störf hjá fyrirtækinu jukust úr 276 í
2.051 á þremur árum. Meðaltal nýrra starfa var
242 á hvert fyrirtæki í úttektinni.
Árlegur vöxtur mannafla var einnig langmestur
á Íslandi af öllum löndunum, eða 63% þó svo að
einungis væri um fjögur fyrirtæki að ræða. Með-
alvöxtur allra landanna var 15%. Þá var vöxtur
veltu fyrirtækjanna einnig langmestur á Íslandi,
eða 46%, en meðaltal veltuaukningar landanna var
15%.
Europe’s 500 tilnefnir á hverju ári þau fimm
hundruð meðalstóru fyrirtæki í Evrópu sem hafa
vaxið hvað mest og skapað flest störf.
Bakkavör þriðja
framsæknasta
fyrirtæki Evrópu
!"
#
!"
$
%"
!"
&'"
('
)"
"*+
")+
,
- .+
/
FULLTRÚI Launanefndar
sveitarfélaganna í undanþágu-
nefnd vegna kennaraverkfalls-
ins, Sigurður Óli Kolbeinsson,
telur nauðsynlegt að breyta því
fyrirkomulagi sem notað er við
veitingu undanþágna. Þá segir
hann að ekki verði hjá því komist
að upplýsa að fulltrúi Kennara-
sambands Íslands hafi synjað
fjölda undanþágubeiðna án þess
að þær hafi fengið nokkra efn-
islega umfjöllun í nefndinni og
auk þess neitað að mæta á fundi
nefndarinnar.
Í yfirlýsingu frá honum segir
ennfremur að fulltrúi KÍ, Þór-
arna Jónasdóttir, hafi auk þess
sett ýmis skilyrði fyrir undan-
þágum sem ekki voru á valdi
nefndarinnar og hafi m.a. farið
fram á að sótt væri um víðtækari
undanþágu en undanþágubeið-
andi hafi upphaflega talið nægj-
anlegt.
Eiríkur Jónsson, formaður KÍ,
segir yfirlýsingar Sigurðar Óla
Kolbeinssonar fráleitar og lýsa
fullkominni vanþekkingu á þeim
málefnum sem nefndin fjalli um.
Vinnubrögð Sigurðar Óla séu
með eindæmum og enginn hafi
skemmt jafn mikið fyrir vitrænni
umræðu um undanþágur fyrir
fötluð börn og hann. „Sigurður
Óli er ekki að vinna sína vinnu.
Hann er bara í kafbátahernaði,“
segir hann. Með yfirlýsingum sín-
um og starfsháttum hafi hann
grafið undan starfi nefndarinnar
og gert tilraun til að lítillækka
fulltrúa KÍ, Þórörnu Jónasdóttur.
Ásakanir í garð Þórörnu Jón-
asdóttur um að hún hafi hafnað
erindum án þess að kynna sér
efni þeirra og komið sér undan
því að mæta á fundi séu ómakleg-
ar og eigi ekki við rök að styðjast.
Þórarna vildi ekki tjá sig um mál-
ið í gærkvöldi.
Fulltrúi sveitarfélaga í undanþágu-
nefnd vegna kennaraverkfalls
Beiðnum synj-
að án efnislegr-
ar umfjöllunar
Nauðsynlegt að breyta/47
VESTMANNAEYINGAR munu á næstunni ganga til kosninga um
hvort bæjarsjóður eigi að fjármagna rannsóknir vegna jarðganga til
Eyja, einn og sér eða í félagi við aðra. Þetta var ákveðið í bæjarstjórn
Vestmannaeyja í fyrrakvöld að tillögu meirihlutans. Talið er að rann-
sóknirnar kosti á bilinu 50–80 milljónir króna.
„Þetta snýst um að kalla fram viðhorf bæjarbúa,“ segir Lúðvík
Bergvinsson, oddviti Vestmanneyjalistans. „Beinna verður lýðræðið
ekki.“
Lúðvík segir að mikið sé rætt um hvernig bæta megi samgöngur til
Eyja en umræðan verið ómarkviss. Það sé nauðsynlegt að marka um-
ræðunni skýrari farveg og atkvæðagreiðslan sé einn liður í því. Verði
niðurstaðan sú að Vestmannaeyingar vilji ekki taka frekari þátt í
kostnaði við rannsóknir hljóti menn að snúa sér að því að kanna aðra
kosti en jarðgöng. „Ef það kemur á daginn að menn vilja þetta ekki,
er það bara svar og þá þurfa menn ekki að velta jarðgöngum lengur
fyrir sér,“ segir hann.
Hann segir að ríkisstjórnin hafi ekki sýnt nokkurn vilja til að koma
að verkefninu og því verði að kanna aðrar leiðir. Í mars hafi bæj-
arstjórn raunar samþykkt að leggja fram 10% af kostnaði við rann-
sóknir en það hafi engu breytt um viðhorf ríkisstjórnarinnar.
Á bæjarráðsfundi 25. október verður lögð fram tillaga um hvernig
atkvæðagreiðslunni verður háttað. Lúðvík útilokar ekki að spurt
verði um fleiri atriði sem lúta að samgöngumálum Eyjamanna en
ekkert hafi verið ákveðið í þeim efnum. Aðspurður segist Lúðvík ekki
búast við öðru en að forsvarsmenn Ægisdyra, sem hafa barist fyrir
gerð jarðganganna, fagni atkvæðagreiðslunni.
Morgunblaðið/Sigurgeir Jónasson
Kosið um jarðgöng
í Vestmannaeyjum
MAÐUR hefur gengist við því hjá lögreglunni á
Selfossi að hafa rutt langan slóða í heimildarleysi í
Gufudal við Hveragerði. Rannsókn málsins er á
lokastigi og að henni lokinni verður hún send full-
trúa sýslumanns sem mun taka ákvörðun um hvort
maðurinn verður ákærður. Skemmdirnar blasa við
frá golfvellinum í Hveragerði. Þegar félagar í
klúbbnum leituðu skýringa hjá landeiganda, sem er
landbúnaðarráðuneytið, fengust þau svör hjá því að
ekki hefði verið veitt leyfi fyrir framkvæmdinni.
Náttúruverndarsamtök Íslands kærðu skemmdar-
verkin til sýslumanns í september og töldu að
þarna væri um að ræða skýlaust brot á lögum um
náttúruvernd, einkum þeim ákvæðum laganna er
varða akstur utan vega. Einnig kynni að vera um að
ræða brot á fleiri lögum, svo sem skipulagslögum.
Gekkst við
ýtuferð í Gufudal
♦♦♦
♦♦♦