Morgunblaðið - 31.12.2004, Qupperneq 2
2 FÖSTUDAGUR 31. DESEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Austurveri
til miðnættis
alla daga
í Austurveri.
OPIÐ
Líka um áramótin.
MIKLU FÉ SAFNAÐ
Nú er vitað að a.m.k. 119.000
manns biðu bana í hamförunum í
Suður-Asíu sl. sunnudag. Tala lát-
inna gæti enn hækkað verulega,
margra er enn saknað. Stjórnvöld
ýmissa ríkja hafa heitið fé til neyð-
araðstoðar á hörmungasvæðunum
og almenningur hefur líka lagt sitt af
mörkum, í gær var búið að safna um
35 milljörðum íslenskra króna.
Flugeldaslys í gær
Þrír alvarlegir augnbrunar urðu í
gær, þar sem börn voru að leik með
flugelda og púður. Í öllum tilvikum
voru það drengir sem slösuðust, sá
yngsti 9 ára og elsti 16 ára, og hlutu
þeir ýmist 2. gráðu bruna á augnlok-
um, yfirborðsbruna í augum og
bruna á húð í andliti. Tveir eldri
drengjanna voru lagðir inn á sjúkra-
hús.
Smygl á fólki
Tveir karlmenn og ein kona hafa
verið úrskurðuð í einnar viku gæslu-
varðhald eftir að tvö þeirra höfðu
framvísað vegabréfum á Keflavík-
urflugvelli sem tilheyra öðru fólki.
Grunur leikur á að smygla hafi átt
fólkinu til Bandaríkjanna og var
meintur fylgdarmaður þeirra einnig
handtekinn á flugvellinum.
Y f i r l i t
Í dag
Sigmund 8 Hugsað upphátt 37
Viðskipti 12 Minnisblað 38
Úr verinu 12 Brennur 39
Erlent 14/16 Krossgáta 39
Minn staður 18 Minningar 40/44
Höfuðborgin 20 Áramótavín 46
Akureyri 20 Dagbók 50/52
Suðurnes 24 Myndasögur 50
Austurland 24 Listir 53/55
Umræðan 26 Af listum 55
Bréf 26 Leikhús 54
Stjórnmálin 28/33 Fólk 56/60
Forystugrein 32 Bíó 58/61
Viðhorf 34 Ljósvakar 48/49, 62
Daglegt líf 34/35 Veður 63
Messur 36/37 Staksteinar 63
* * *
Kynning – Morgunblaðinu í dag fylgir
auglýsingablaðið Vorferðir frá Úrvali-
Útsýn.
Morgunblaðið Kringlunni 1, 103 Reykjavík. Sími 5691100 Innlendar fréttir frett@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Erlendar fréttir Ásgeir Sverrisson, fréttastjóri,
asv@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Agnes Bragadóttir, fréttastjóri, agnes@mbl.is Úr verinu Hjörtur Gíslason, fréttastjóri, hjgi@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Menning menning@mbl.is Orri Páll Ormarsson, ritstjórnarfulltrúi,
orri@mbl.is Skarphéðinn Guðmundsson, skarpi@mbl.is Umræðan|Bréf til blaðsins Magnús Finnsson, fulltrúi ritstjóra, magnus@mbl.is Hallur Þorsteinsson, hallur@ .is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók|Kirkjustarf
Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp|Sjónvarp Auður Jónsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
!
"
#
$
%&' (
)***
ÞRÍR af hverjum fjórum drengjum
og ein af hverjum fjórum stúlkum
sem sótt hafa vímuefnameðferð hjá
Götusmiðjunni eiga við spilafíkn að
stríða, skv. samantekt Félagsþjón-
ustunnar um fjölda spilafíkla og
meðferðarúrræði. Alls hafa um 400
ungmenni á aldrinum 14–18 ára
verið til meðferðar hjá Götusmiðj-
unni frá upphafi.
Athugunin er gerð í kjölfar fyr-
irspurnar borgarráðsfulltrúa Sjálf-
stæðisflokks í október sl. og var
lögð fram á fundi borgarráðs í
gær.
Hún byggist á samtölum við
ýmsa aðila sem þekkja til mála-
flokksins, s.s. Samtök áhugafólks
um spilafíkn, SÁÁ og Götusmiðj-
una, og segir í bréfi til borgarráðs
að karlmenn séu í miklum meiri-
hluta. Í raun sé vandamálið mjög
falið og ógerningur að gera sér
grein fyrir umfangi þess.
Samkvæmt lauslegri athugun
innan Félagsþjónustunnar er tutt-
ugu og einn einstaklingur innan vé-
banda hennar talinn stríða við
spilafíkn hér á landi. Ekki fer fram
sérstök skráning á spilafíkn hjá
notendum Félagsþjónustunnar.
Félagsþjónustan ræddi m.a. við
formann Samtaka áhugafólks um
spilafíkn og kom fram að líklega
eigi 1–3% þjóðarinnar við vanda af
þessum toga að etja.
Alls hafa 129 viðtöl verið veitt
vegna spilafíknar hjá SÁÁ það sem
af er árinu, 100 einstaklingar hafa
tekið þátt í stuðningshópum á
árinu, þar af eru 50 nýkomnir í
hópinn. Þess má geta að 11–12%
þeirra sem eru í áfengismeðferð á
Vogi eru spilafíklar, að því er fram
kemur í athuguninni. Flestir sem
leitað hafa aðstoðar með spilafíkn
hjá SÁÁ eru karlmenn, 30–50 ára,
sá yngsti var 15 ára og elsti sjötug-
ur.
Í viðtölum við Götusmiðjuna
kemur fram að algengt sé að
krakkarnir, sem eigi við spilafíkn
að stríða, hafi stundað spilakassa
áður en þau fóru í neyslu vímuefna.
100 einstaklingar hafa leitað sér aðstoðar hjá SÁÁ á árinu
Þrír af fjórum piltum í
neyslu eru spilafíklar
Morgunblaðið/Kristinn
VEGAGERÐIN á Ísafirði hreinsaði í
gær út úr „snjóflóðaskápunum“ und-
ir Súðavíkurhlíð. Hefjast átti handa í
Óshlíðinni í dag.
Að sögn Guðmundar Björgvins-
sonar, verkstjóra Vegagerðarinnar,
eru útskot sem gerð hafa verið í hlíð-
inni til að taka á móti snjóflóðum
kölluð skápar. Ýmist hefur verið
sprengt eða grafið út fyrir þeim.
Þegar flóð fellur á veginn er þessum
snjóflóðaskápum ætlað að taka við
sem mestum snjó til að draga úr því
magni sem lendir á veginum. Eftir
snjóflóð eru skáparnir síðan tæmdir.
Guðmundur segir að allnokkuð af
snjó hafi verið í skápunum í gær og
meira en menn höfðu búist við.
Morgunblaðið/Halldór Sveinbjörns
Hreinsað út úr snjóflóðaskápunum
VINNUMÁLASTOFNUN hefur
tekið ákvörðun um að samþykkja
umsókn Impregilo um atvinnuleyfi
fyrir 54 Kínverja. Stofnunin telur að
Impregilo hafi uppfyllt skilyrði sem
hún setti með starfsauglýsingum
sem birtust í dagblöðum nú í vikunni
og með auglýsingu sem sett var inn á
evrópska vinnumiðlunarvefinn,
EURES.
Þetta kom fram á fundi í sam-
starfsnefnd stjórnvalda og aðila
vinnumarkaðarins á grundvelli laga
um atvinnuréttindi útlendinga í gær.
Fundinn sátu fulltrúar ASÍ, Sam-
taka atvinnulífsins og félagsmála-
ráðuneytisins auk þess sem forstjóri
Vinnumálastofnunar var í símasam-
bandi við fundarmenn. Fyrir liggur
að Impregilo hyggst sækja um at-
vinnuleyfi fyrir 150 Kínverja til við-
bótar og hugsanlega enn fleiri.
Halldór Grönvold, aðstoðarfram-
kvæmdastjóri ASÍ, segist hafa and-
mælt þessari niðurstöðu Vinnumála-
stofnunar sem málamyndagjörningi.
„Ég mótmælti henni [afgreiðslunni]
sem rangri og reyndar efast ég mjög
um lögmæti hennar, m.a. í ljósi þess
að það liggur ekkert fyrir að þessir
aðilar hafi t.d. tilskilin réttindi. En
auðvitað er þetta í grunninn, eins og
við höfum alltaf sagt, svona vinnu-
markaðs- og atvinnupólitískt mál,
þ.e.a.s. á þetta tiltekna fyrirtæki að
komast upp með það að haga sér eins
og því sýnist hér á íslenskum vinnu-
markaði?“
Halldór segir ljóst að Impregilo
hafi aldrei ætlað sér að starfa á ís-
lenskum vinnumarkaði heldur hafi
þeir ætlað að vera á suður-evrópsk-
um vinnumarkaði. Það hafi hins veg-
ar ekki gengið og þá leiti fyrirtækið
til Kína þar sem verkamenn séu til-
búnir að sætta sig við ansi margt.
Impregilo fær atvinnu-
leyfi fyrir Kínverjana
AFLI íslenskra skipa á árinu 2004 er
áætlaður 1.725 þúsund lestir. Það er
minnsti afli síðan 1998 þegar aflinn
var 1.678 þúsund lestir. Mestur var
aflinn 1997 eða 2.199 þúsund lestir.
Næst kemur árið 2002 þegar aflinn
var 2.133 þúsund lestir.
Samkvæmt bráðabirgðatölum
Fiskistofu varð þorskaflinn 2004 20
þúsund lestum meiri en árið 2003.
Ýsu- og ufsaafli var líka talsvert
meiri en árið áður. Heildarafli botn-
fisks jókst um rúmlega 20 þúsund
lestir milli ára.
Afli uppsjávartegunda minnkaði
verulega frá fyrra ári. Loðnuafli var
155 þúsund lestum minni en 2003 og
80 þúsund lesta samdráttur var í afla
kolmunna. Afli uppsjávartegunda
var 1.171 þúsund lestir 2004 sem er
260 þúsund lesta minni afli en 2003.
Rækjuaflinn 2004 var 19 þúsund
lestir og hefur ekki verið minni í tutt-
ugu ár. Hörpudiskveiðar voru engar
á árinu. Humarafli minnkaði um tvö
hundruð tonn frá fyrra ári. Þrátt fyr-
ir minni heildarafla var aflaverðmæti
ársins 2004, miðað við fast verð,
áþekkt og á árinu 2003.
!
"#$ %%
!
"##
$#
Minnsti
afli síðan
1998
Á ÁRINU hafa orðið 34 banaslys og í
þeim biðu 37 manns bana, skv. upp-
lýsingum frá Landsbjörg. Flest urðu
slysin í umferðinni en samtals létust
23 í 20 umferðarslysum. Átta manns
biðu bana í slysum sem urðu á heim-
ilum þeirra og í frítíma. Þrír létust í
þremur sjóslysum, tveir drukknuðu
og einn lést í vinnuslysi. Sjö af þeim
sem létust voru erlendir ríkisborg-
arar og hefur tala þeirra ekki verið
hærri frá árinu 1994.
37 manns
létust í bana-
slysum á árinu
♦♦♦