Morgunblaðið - 31.12.2004, Qupperneq 6
6 FÖSTUDAGUR 31. DESEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Vorferðir
Bæklingurinn
Vorferðir
fylgir blaðinu í dag
www.urvalutsyn.is
ÞRÁTT fyrir gífurlegar hörmungar
og dauða sem umlykur fólk í Khao
Lak á suðurströnd Taílands ríkir
ekki yfirþyrmandi sorg eða doði
vegna hamfaranna í kjölfar flóð-
bylgjunnar annan í jólum. Khao Lak
er skammt frá Phuket sem eins og
fleiri staðir varð mjög illa úti vegna
flóðanna. Sverrir Vilhelmsson, ljós-
myndari Morgunblaðsins, er stadd-
ur á Phuket-eyju og heimsótti Khao
Lak í gær. Um tveggja tíma akstur
er á milli þessara staða. Hann segir
hjálparstarfið nokkuð vel skipulagt
af hálfu taílenskra yfirvalda og nóg
af mat og vistum. Eftirlifendur koma
honum síst fyrir sjónir sem lamaðir
syrgjendur, heldur er fólk ákveðið í
að bæta úr ástandinu eftir fremsta
megni. „Ég hef hvergi séð grátandi
fólk,“ segir hann. Þar sem hann
ferðast um með ljósmyndavél sína og
hittir fyrir fólk sem hefur misst fjöl-
skyldur sínar virðist hinn hræðilegi
missir jafnvel ekki stöðva fólk í að
brosa af gömlum vana til ókunnugs
manns með myndavél.
„Fólk er ákveðið í því að halda
áfram með lífið og því virðist vera
nokkur huggun í því að ekki verði
ráðið við náttúruhamfarir, ólíkt því
sem gerist við mikið mannfall af
mannavöldum t.d. stríði. Fólk vonar
bara að þessir atburðir muni ekki
hafa áhrif á lífsafkomu þess í fram-
tíðinni. Það heldur í vonina um að
ferðamenn haldi áfram að koma til
landsins þrátt fyrir allt. Hér er einn-
ig talsvert um gálgahúmor, sem fólk
grípur gjarnan til í viðbrögðum sín-
um við hörmungum.“
Vörubílsfarmar af líkkistum
Sverrir fór frá Phuket í gærmorg-
un og leigði sér bíl ásamt bílstjóra
sem ók honum til Khao Lak. „Á leið-
inni mættum við hverjum vörubíln-
um á fætur öðrum með líkkistur. Á
svæðinu var verið að ryðja burtu
pálmatrjám til að undirbúa grafir.
Þá var einnig verið að sprauta sótt-
hreinsandi efnum yfir jörðina. Taí-
lendingarnir virðast vera nokkuð vel
skipulagðir í störfum sínum hvað
þetta snertir. Hér er fjöldinn allur af
erlendum teymum sem sérhæfa sig í
að bera kennsl á hina látnu. Tekin
eru fingraför og DNA-sýni og allar
upplýsingar skráðar um hvert lík áð-
ur en þau eru númeruð og sett í kist-
ur og síðan í kælda gáma.“
Á Khao Lak er gífurleg nálykt í
lofti og stöðugt finnast fleiri lík undir
braki og rústum. Sverrir hefur áður
verið á hörmungarsvæðum en segist
aldrei hafa fundið aðra eins nálykt og
nú. Vitað er um lík inni á einu há-
gæðahóteli í nágrenninu en forsvars-
menn þar hafa neitað björgunar-
mönnum um aðgang að hótelinu af
ótta við þjófnaði á verðmætum sem
hinir látnu voru með á sér. „Menn
hér hafa miklar áhyggjur af ímynd
Taílands sem ferðamannaparadís og
vilja ekki hætta á að það spyrjist út
að lík séu rænd.“ Sverrir hefur
fregnað að verkamaður nokkur frá
Búrma hafi verið staðinn að verki við
að stela verðmætum af líkum og hafi
hann verið myrtur á staðnum af Taí-
lendingum. Hann segir ekki víst að
ferðamannaparadísin við Khao Lak
muni endurheimta fyrra aðdrátt-
arafl vegna þess að gróður hefur
spillst vegna sjávarseltu sem gegn-
sýrði jarðveg langt upp á land. Talið
er að flóðbylgjan hafi farið a.m.k. 1,5
km upp á land. Einu trén sem þoli
seltuna séu kókostré.
Ráðhúsið í Phuket er aðalmiðstöð
fólks í leit að ættingjum sem saknað
er. Þar eru hengdar upp myndir og
nöfn hinna látnu og þeirra sem sakn-
að er. Símafélög hafa boðið upp á
ókeypis símtöl fyrir eftirlifendur til
að þeir geti látið vita af sér í sínu
heimalandi. „Þrátt fyrir ýmsan rugl-
ing sem er í gangi hér, er næg aðstoð
og hjálparmiðstöðvar eru vel mann-
aðar. Erlend sendiráð eru með bása
við ráðhúsið og þar fæst ókeypis
matur og fleira. Hér er þó engin
áfallahjálp en hins vegar er enga
sorg að sjá á fólki.“
Sverrir telur ekki vera sérstak-
lega mikla hættu á farsóttum í Taí-
landi miðað við hættuna á stöðum
eins og Sri Lanka og Indónesíu.
„Kerfið virkar vel hér og samhjálpin
er mikil. Það er helst að fólk finni að
við stjórnvöld fyrir að gera lítið úr
hlutunum.“
Hótelið sem Sverrir gistir á í
Phuket er í klukkustundar fjarlægð
frá hörmungarsvæðunum annars
staðar á eyjunni. Á hótelinu er kraf-
ist snyrtilegs klæðnaðar á barnum
og segir Sverrir að fólkið þar sé al-
gerlega í öðrum heimi og geri sér
enga grein fyrir þeim hörmungum
sem eru í aðeins nokkurra tuga km
fjarlægð. „Þar gengur lífið sinn
vanagang með túristana.“
Sverrir segir umfang hörmung-
anna miklu meiri en hægt sé að gera
sér í hugarlund af myndum sem ber-
ast frá svæðunum. Gríðarlegt björg-
unar- og uppbyggingarstarf sé því
fyrir höndum.
Sverrir Vilhelmsson, ljósmyndari Morgunblaðsins, á hörmungarsvæðunum í Taílandi
„Fólk er ákveðið í að
halda áfram að lifa lífinu“
Morgunblaðið/Sverrir
Til að takast á við hættuna af farsóttum klæðast björgunarmenn sótthreinsuðum fatnaði þótt sótthætta sé minni
en á öðrum stöðum við Indlandshaf. Mikla nálykt leggur fyrir vitin vegna rotnandi líkamsleifa fólks.
Kennslasérfræðingur skoðar hring eins fórnarlambanna í Pang Na.
FORSÆTISRÁÐHERRA hef-
ur ákveðið að fáni skuli dreginn
í hálfa stöng við opinberar
stofnanir á nýársdag vegna
náttúruhamfaranna í Asíu.
Slíkt hið sama verður gert í
Noregi, Svíþjóð og Finnlandi
og hefur verið mælst til þess að
almenningur votti hinum látnu
virðingu sína á sama hátt.
Flaggað í
hálfa stöng á
nýársdag
ÞINGFLOKKUR Vinstrihreyfing-
arinnar – græns framboðs segist
telja einboðið að Íslendingar leggi
með myndarlegum hætti sitt af
mörkum til hjálpastarfs og síðan
uppbyggingar á hamfarasvæðun-
um í Suðaustur-Asíu. Hvetur þing-
flokkurinn til þverpólitískrar sam-
stöðu um að nú þegar verði
ákveðin aukafjárveiting upp á að
minnsta kosti 300 milljónir króna
sem renni til hjálparstarfs og upp-
byggingar á hamfarasvæðunum.
Kemur þetta fram í fréttatilkynn-
ingu frá VG.
Hefur þingflokkurinn falið
fulltrúum sínum í fjárlaganefnd og
utanríkismálanefnd að taka málið
upp á þeim vettvangi, enda eðlilegt
að Alþingi sjálft fjalli um og af-
greiði mál af þessari stærðar-
gráðu, segir í tilkynningunni.
Vilja aukafjárveitingu
vegna hamfaranna
ÍSLENSKT par, sem er í Taí-
landi en ekki var vitað hvar
hélt sig, hefur nú haft sam-
band og er heilt á húfi. Í gær-
morgun bárust utanríkisráðu-
neytinu hins vega upplýsingar
um tvo íslenska einstaklinga,
sem ekki hafa látið vita af sér
frá því flóðbylgjan mikla skall
á suðvesturhluta landsins á
sunnudag. Að sögn Péturs Ás-
geirssonar, skrifstofustjóra í
utanríkisráðuneytinu, er talið
að mennirnir hafi báðir verið
á Pattayaströndinni nálægt
Bangkok en þar gætti áhrifa
flóðbylgjunnar ekki.
Samkvæmt þessu eru enn
10 Íslendingar sem voru í Taí-
landi um síðustu helgi en ekki
hafa látið vita af sér. Þetta
eru hjón með þrjú börn, sem
talið er að séu á Bali, par með
barn sem var á Pattayaströnd-
inni þegar síðast var vitað,
auk fyrrnefndra tveggja
einstaklinga.
Á heimasíðu sem borgar-
yfirvöld í Phuket í Taílandi
hafa komið upp með upplýs-
ingum um fórnarlömb ham-
faranna, er nafn konu sem
sögð er vera íslensk og liggja
slösuð á sjúkrahúsi í borginni.
Að sögn Péturs var málið
kannað og reyndist konan
vera írsk.
Íslenskt par
í Taílandi lét
vita af sér
Á KHAO Lak hefur Svíinn Jónas
Nyqvist búið síðan 1985 og rekið
sportbátaleigu fyrir ferðamenn.
Faðir hans á áttræðisaldri, sem með
honum býr, slapp með ótrúlegum
hætti þegar flóðbylgjan mikla þeytti
honum fram og aftur um íbúðarhús
þeirra. Þeir búa í raðhúsi á tveimur
hæðum og sat faðir Jónasar úti á
verönd í sólstólnum þegar bylgjan
kom.
Hún þeytti gamla manninum í
gegnum þrjá milliveggi þar til hann
stöðvaðist við steinvegg. Þaðan
barst hann með straumnum upp á
efri hæð hússins, en bylgjan braut
sér leið í gegnum steinvegginn.
Gamli maðurinn lifði hremming-
arnar af og er nú á spítala. Fjöl-
skylda Jónasar slapp heilu og
höldnu en sömu sögu var ekki að
segja um þá fimmtíu sem fundust
látnir fyrir utan hús þeirra daginn
eftir.
Morgunblaðið/Sverrir
Jonas Nyqvist, íbúi á Khao Lak, sýnir skemmdirnar heima hjá sér, sem
flóðbylgjan mikla olli. Fjölskylda hans slapp heil á húfi.
Slapp með ótrúlegum
hætti úr hamförunum