Morgunblaðið - 31.12.2004, Side 11
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 31. DESEMBER 2004 11
FRÉTTIR
Landsvirkjun er í hópi stærstu fyrir-
tækja landsins. Tilgangur fyrirtækisins
er a› stunda starfsemi á orkusvi›i
ásamt annarri vi›skipta- og fjármála-
starfsemi. Hjá Landsvirkjun starfa um
260 starfsmenn me› mjög fjölbreytta
menntun.
Forgangsverkefni fyrirtækisins eru
m.a. a› taka flátt í fyrirhugu›um
breytingum á skipulagi orkumála til
a› tryggja stö›u Landsvirkjunar á
orkumarka›i og efla gæ›a- og
umhverfisstjórnun. Mikil áhersla er
lög› á nútíma mannau›sstjórnun
me› áherslu á flekkingarstjórnun,
fjölskylduvænt starfsumhverfi,
jafnrétti og tækifæri til starfsflróunar.
Landsvirkjun starfrækir sjó› til styrktar nemendum á framhaldsstigi
háskólanáms (meistara- og doktorsnám) sem eru a› vinna a›
lokaverkefnum sínum og eru styrkir veittir úr sjó›num árlega. Ákve›i›
hefur veri› a› verja samtals 3 milljónum króna í námsstyrki á árinu
2005 og ver›ur styrkjunum úthluta› í apríl næstkomandi. Hver styrkur
ver›ur a› lágmarki 400 flúsund krónur.
Markmi› me› námsstyrkjunum er a› efla menntun og hvetja til
rannsókna á hinum margvíslegu svi›um sem tengjast starfsemi
Landsvirkjunar. Umsækjendur eru sérstaklega hvattir til a› kynna sér
hina fjölbreyttu starfsemi Landsvirkjunar á vefsí›u fyrirtækisins.
Styrkjunum er ætla› a› standa undir hluta af kostna›i vi› lokaverkefni
sem hafin eru e›a munu hefjast á árinu 2005. Umsækjendur flurfa a›
leggja fram l‡singu á verkefninu, me›mæli lei›beinanda og rök-
stu›ning fyrir flví a› verkefni› tengist starfsemi Landsvirkjunar.
Umsóknum ásamt fylgigögnum skal skila á skrifstofu Landsvirkjunar,
Háaleitisbraut 68, 103 Reykjavík, merktum:
„NÁMSSTYRKIR LANDSVIRKJUNAR 2005“
Umsóknarey›ublö› og nánari uppl‡singar um styrkveitinguna og
starfsemi Landsvirkjunar er a› finna á vefsí›u Landsvirkjunar,
www.lv.is.
Einnig veitir Bjarni Pálsson upplýsingar í síma 515 9000 og
BjarniP@lv.is.
Umsóknarfrestur er til 25. janúar 2005.
Öllum umsóknum ver›ur svara› og
fari› me› flær sem trúna›armál.
Styrkir til nemenda
á framhaldsstigi
háskólanáms
Landsvirkjun augl‡sir eftir umsóknum um styrki vegna meistara- e›a doktorsverkefna
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
14
58
7
DÝR verða oft mjög stressuð í
kringum áramót og eru lengi að ná
úr sér hrollinum.
Með aðstoð frá Landssambandi
hestamanna og Dýralæknastofu
Dagfinns ásamt
vönu leitarhunda-
fólki úr röðum
björgunarsveit-
armanna hefur
Slysavarnafélagið
Landsbjörg útbúið
bækling með leið-
beiningum til dýra-
eigenda.
Meðal þeirra
leiðbeininga sem
þar koma fram eru að dýrum skuli
helst haldið inni á gamlársdag,
gamlárskvöld, nýárskvöld og á
þrettándanum. Gott er að draga
fyrir glugga og hafa opið fyrir út-
varp þannig að hvellir og ljósa-
gangur hafi minni áhrif.
Sérstakar leiðbeiningar eru fyrir
eigendur hunda, katta og hesta.
Gott er að útbúa góða aðstöðu
fyrir hunda í einhverju rými sem
þeir þekkja. Hafið hjá þeim uppá-
halds dótið þeirra þannig að þeir
geti leikið sér og gætið þess að ekk-
ert sé í rýminu sem þeir geta slasað
sig á eða skemmt. Mikilvægt er að
kettir séu inni allan gamlársdag.
Best er að hafa hesta inni í hest-
húsum en ekki lausa í gerðum og
alls ekki eftirlitslausa. Gott er að
líta til með þeim eftir miðnætti þeg-
ar mesti atgangurinn er yfirstað-
inn. Hestamenn eru hvattir til að
gæta fyllstu varúðar í útreiðatúrum
í kringum áramót.
Hvellir og ljósagangur
vekja ótta hjá dýrum
„EIGENDUR gæludýra hafa mikið
verið að hringja og spyrja um ráð og
hvort þeir ættu að gefa dýrum ró-
andi lyf,“ segir Hanna M. Arnórs-
dóttir dýralæknir í Garðabæ.
Lyfin sem eru gefin eru svokölluð
kæruleysislyf sem eru kvíðastillandi.
Þetta eru sömu lyf og gefið er áður
en dýr eru flutt milli landa eða gerð-
ar eru á þeim aðgerðir. Sjaldgæft er
að kettir þurfi róandi lyf fyrir ára-
mót. Raunar sé málum þannig hátt-
að að mikið sé sprengt dagana fyrir
gamlársdag og dýrin því þegar orðin
mjög stressuð þegar þau fái lyfin og
því virki þau ekki sem skyldi.
Hanna mælir ekki með því að
hundar séu utandyra á gamlárs-
kvöld, jafnvel þó þeir séu í taumi.
Mörg dæmi séu um að þeir hafi rifið
sig lausa og hlaupið út í buskann.
Flestir skili sér en einnig séu dæmi
um að hundar hafi horfið fyrir fullt
og allt. Sömuleiðis hlaupi kettir í fel-
ur og séu oft skelfingu lostnir marga
daga á eftir.
Hanna segir að gæludýr eigi að
vera innandyra. Eigendurnir eigi að
vera rólegir, hafa tónlistina á og
reyna að leiða huga dýranna að ein-
hverju öðru. Hundum eigi að hrósa
og ekki vorkenna of mikið.
Hundum á að hrósa
en ekki vorkenna
MISTÖK urðu við vinnslu fréttar um
útskrift Iðnskólans í Hafnarfirði sem
birt var í blaðinu í gær og er beðist
velvirðingar á þeim. Réttur fer um-
ræddur kafli hér á eftir:
Við skólaslitin minntist Jóhannes
Einarsson skólameistari Gunnars
Guðmundssonar, annars af tveim
fyrstu verknámskennurum skólans,
en Gunnar lést 4. des. sl.
Þá var nemendum og kennurum
þakkað fyrir hina stórglæsilegu sýn-
ingu „Má ég opna“ í Hafnarborg en
þar sýna nemendur verk sín sem eru
jólagjafir til þjóðþekktra Íslendinga,
og einnig fyrir að aðstoða við að gera
upp bíl Jóhannesar J. Reykdals, Ford
árgerð 1930. En sá bíll stendur í and-
dyri Hafnarborgar fyrir framan sýn-
ingu nemenda vegna sýningar í tilefni
100 ára afmælis rafmagns á Íslandi.
Útskrift
Iðnskólans
í Hafnarfirði
FLUTNINGSFYRIRTÆKIÐ
Landsnet hf. var opnað formlega í
gær í nýjum höfuðstöðvum sínum að
Hesthálsi en hlutverk fyrirtækisins
er að annast flutning raforku og kerf-
isstjórnun sem Landsvirkjun sinnti
áður.
Valgerður Sverrisdóttir, iðnaðar-
ráðherra, sagði í ræðu sinni í gær að
Landsnet mundi gegna veigamiklu
hlutverki í raforkukerfi landsmanna.
„Flutningskerfi Landsnets mun
tengjast öllum byggðum landsins og
færa þá nauðsynjavöru sem raforkan
er til dreifiveitna, sem síðan dreifa
orkunni til landsmanna. ... Nú um ára-
mót verður stigið mikilvægt skref í
markaðsvæðingu raforkukerfisins,“
sagði Valgerður. Hún opinberaði
merki Landsnets og opnaði heima-
síðu fyrirtækisins, landsnet.is. Eftir
að hún hafði opnað heimasíðuna bað
Þórður Guðmundsson, forstjóri
Landsnets, Valgerði um að opna nýj-
ustu fréttina á heimasíðunni. Í frétt-
inni var mynd af Valgerði og Þórði
sem tekin hafði verið á staðnum
stuttu áður og frétt um athöfnina.
Tímamót í rafmagnssögunni
Friðrik Sophusson, forstjóri
Landsvirkjunar, sagði að Landsnet
hf. markaði tímamót í íslenskri raf-
magnssögu.
Hann gat þess að lög kvæðu á um
að eigendum Landsnets væri bannað
að skipta sér af starfi, rekstri og
stjórn fyrirtækisins. „Samskiptin
verða að byggjast á viðskiptalegum
forsendum,“ sagði Friðrik.
Hann vísaði í fyrirsögn Morgun-
blaðsins í gær um að með athöfninni
yrði „klippt á naflastrenginn frá
Landsvirkjun“ og sagði að
þó vissulega mætti líkja
tímamótunum við fæðingu
liði þeim sem störfuðu hjá
Landsvirkjun frekar eins
og foreldrum sem horfðu á
eftir börnum sínum fara að
heiman fyrir fullt og allt.
Friðrik sagði Landsvirkj-
un hljóta að líta í kringum
sig í framhaldinu og að ekki
hefði farið framhjá neinum
að fyrirtækið renndi hýru
auga til RARIK og Orku-
bús Vestfjarða.
„Markaðstorg
raforku“
Páll Harðarson, stjórn-
arformaður Landsnets,
sagði að meginmarkmið
raforkulaganna sem Al-
þingi samþykkti í fyrra
hefði verið að innleiða sam-
keppni í íslenska raforku-
geirann og að setning lag-
anna hefði verið mikið
heillaspor.
„Í þessu nýja markaðs-
umhverfi er Landsnet markaðstorg
raforku og eru því miklar skyldur og
ábyrgð lögð á fyrirtækið,“ sagði Páll
og tók fram að stjórn og starfsmenn
stefndu að því að gera fyrirtækið að
einu best rekna flutningsfyrirtæki í
Evrópu.
Flutningsfyrirtækið Landsnet hf. opnað formlega í gær
Morgunblaðið/Þorkell
Valgerður Sverrisdóttir afhjúpar nýtt merki
Landsnets við hátíðlega athöfn í gær.
Gegnir veigamiklu hlut-
verki í raforkukerfinu
Í SAMTÖLUM við vin sinn Sæ-
mund Pálsson að morgni miðviku-
dags sagðist Bobby Fischer vera
mjög ánægður með þá yfirlýsingu
japanska dómsmálaráðherrans
Chieko Nohno að hún væri tilbúin
að hugleiða óskir hans um að fá að
fara til Íslands. Fischer er mjög
spenntur yfir þessum tíðindum og
vill helst fá Sæmund til Japans sem
allra fyrst en Sæmundur telur rétt
að bíða átekta enn um sinn.
Nohno lét þessi orð falla á blaða-
mannafundi á þriðjudag. „Almennt
séð, þá yrði honum vísað úr landi til
Bandaríkjanna en við munum hug-
leiða óskir hans og hvort eitthvert
land sé reiðubúið til að taka við hon-
um þegar við ákveðum að vísa hon-
um úr landi,“ sagði hún.
Sæmundur bindur talsverðar
vonir við þessa yfirlýsingu ráð-
herrans og bæði Fischer og stuðn-
ingsmönnum hans þyki ólíklegt að
hún hefði sagt þetta nema einhver
alvara væri að baki. Það væri þó
óvíst hvenær japönsk stjórnvöld
taki ákvörðun og Sæmundur segist
helst ekki vilja fara til Japan fyrr en
eitthvað er fast í hendi.
Upplýsingafulltrúi bandaríska
dómsmálaráðuneytisins sagði að
ráðuneytið gæfi ekki upplýsingar
um framsalsmál og hann vildi því
ekki tjá sig um mál Bobby Fischers.
Fischer er eftirlýstur fyrir að
brjóta gegn viðskiptabanni Samein-
uðu þjóðanna gegn Júgóslavíu árið
1992. Verði hann dæmdur gæti
hann fengið allt að 10 ára fangels-
isdóm, smkv. upplýsingum frá
bandaríska dómsmálaráðuneytinu.
Telur að alvara sé að baki
♦♦♦