Morgunblaðið - 31.12.2004, Síða 24
24 FÖSTUDAGUR 31. DESEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ
MINNSTAÐUR
Óskum viðskiptavinum okkar
og landsmönnum öllum
farsældar á nýju ári.
Þökkum viðskiptin
á liðnum árum
Starfsfólk Eignamiðlunar
Reykjanesbær | „Það er nauðsyn-
legt fyrir mig að hreyfa mig úr stað
og skipta um umhverfi. Allt nýtt
áreiti hefur góð áhrif á listamenn,“
sagði listakonan Sossa, Margrét
Soffía Björnsdóttir, í samtali við
Morgunblaðið en hún og eiginmaður
hennar Ólafur Jón Arnbjörnsson,
skólameistari Fjölbrautaskóla Suð-
urnesja, ætla að eyða næsta ári í
Kaupmannahöfn, mennta sig og end-
urnýja. „Annars er þetta eins og
snúa heim,“ bætti Ólafur Jón við „því
að við bjuggum í Kaupmannahöfn
svo lengi.“
Hjónin Ólafur Jón Arnbjörnsson
og Margrét Soffía Björnsdóttir,
Sossa hafa verið áberandi í bæjarlífi
Reykjanesbæjar frá því að þau fluttu
þangað árið 1995, hann sem skóla-
meistari FS og hún sem mikilsvirt
listakona. Blaðamanni Morgunblaðs-
ins lék forvitni á að vita hvers vegna
þau hjónin væru að halda af landi
brott og hvort þau myndu ekki
örugglega snúa aftur. „Þetta er nú
eitthvað sem við höfum gert mikið af
og þetta er í annað sinn sem við för-
um utan og dveljum í eitt ár í senn.
Ég er að nýta mér rétt sem ég á til
endurmenntunar samkvæmt samn-
ingum embættismanna um orlof og
mun í byrjun næsta árs setjast á
skólabekk í mínum gamla skóla,
Kaupmannahafnarháskóla. Ég ætla
að kynna mér nýjungar í starfs-
menntun, sem Danir eru mjög fram-
arlega í, auk námskeiða í skólastjórn-
un,“ sagði Ólafur Jón en hann er
magister í uppeldisfræðum.
Sossa nam einnig myndlist í Kaup-
mannahöfn og hélt sína fyrstu sýn-
ingu í Jónshúsi árið 1983, er hún tók
þátt í samsýningu. Núna rúmum 20
árum síðar hefur Sossa getið sér gott
orð í Danmörku og er vel þekkt með-
al Dana. Hún hefur í ellefu ár haldið
sýningu á menningarnótt Kaup-
mannahafnarborgar, sem er fyrsta
föstudag í október ár hvert, en sýn-
ingin í ár verður þó frábrugðin öðr-
um sýningum. „Ég hef aldrei getað
notið menningarnæturinnar í Kaup-
mannahöfn vegna vinnu við sýning-
arnar mínar þannig að núna óskaði
ég eftir því að fá að sýna í nóvember í
staðinn svo ég gæti notið hennar með
öðrum íbúum borgarinnar,“ sagði
Sossa. Auk þeirrar sýningar er Sossa
að undirbúa sýningu á Jótlandi í maí
og þátttöku í Flórens biennalinum í
desember 2005, sem Sossu var boðið
að taka þátt í og er henni mikill heið-
ur og gott tækifæri en auk þess verð-
ur sýning í Portúgal.
„Það verður mikið að gera hjá mér
á næsta ári við að undirbúa þessar
sýningar,“ sagði Sossa, sem segist
vera búin að finna sér vinnustofu í
kóngsins Köben en það hafi verið
þrautin þyngri. „Það verður síðan að
koma í ljós hvort hún henti mér, en
það er gott að vera búin að finna eitt-
hvað. Ég verð að máta hana við minn
stíl,“ sagði Sossa og Ólafur Jón bætti
við að umfram allt verði hljómurinn
þar að vera góður. Það kemur upp á
yfirborðið að Sossa er forfallinn
Queen-aðdáandi og hækkar vel í
græjunum þegar hún málar. „Og ég
var svo heppin að fá bunka af Queen-
geisladiskum í jólagjöf,“ sagði Sossa
með tilhlökkun.
Sossa og Ólafur Jón segja að ferð
sem þessi sé fjölskyldunni eðlileg og
að Kaupmannahöfn sé jafnframt eins
og heima. Eftir námsárin í Kaup-
mannahöfn bjuggu þau á Sauð-
árkróki í áratug, fóru þaðan m.a. eitt
ár til Boston, þar sem Sossa stundaði
meistaranám, en fluttu til Reykja-
nesbæjar árið 1995. Auk þess að vera
nauðsynlegt fyrir listamenn að örv-
ast í nýju umhverfi segir Sossa að
það séu jafnframt mikil forréttindi að
geta gert þetta. „Ég held reyndar að
þetta sé nauðsynlegt fyrir alla,“ sagði
Ólafur Jón, „að víkka út sjóndeild-
arhringinn og endurmennta sig. Það
þýðir ekkert fyrir mig sem skóla-
meistara að vera sífellt að predika
um gildi þess að mennta sig allt lífið
og fylgja því svo ekki sjálfur.“
Við ræðum að lokum um nýliðin
jólaboð þeirra hjóna sem eru jafn-
árviss og sjálf jólin. Þau þvertaka þó
fyrir að vera mikil jólabörn en segja
að það sé skemmtilegt að vera innan
um fólk á þessum árstíma. „Jólaboð-
in okkar Sossu eru reyndar á mjög
ólíkum forsendum. Ég fékk jólaboðið
fyrir kennara skólans í arf þegar ég
tók við embætti skólameistara FS.
Það hafði tíðkast um nokkurt skeið
að skólameistari byði kennurum
heim í byrjun aðventu, en á þeim 10
árum sem ég hef haldið þau hefur
orðið töluverð fjölgun í kennara-
liðinu. En þessi heimsókn er af-
skaplega skemmtileg og ég vildi fyrir
enga muni sleppa þessu eða færa
annað, enda heyri ég á starfsfólki
mínu að því líkar þetta sérlega vel.
Ég held þessu sem sagt áfram meðan
húsrúm leyfir og Þorvaldur íslensku-
kennari fær gott hljóð við lestur jóla-
sögunnar, sem er einn af ómissandi
dagskrárliðum kvöldsins.“
Jólaboð Sossu í vinnustofu hennar
var óvenju veglegt þetta árið, opið
hús í vinnustofunni marga daga í röð
enda um eins konar kveðjuhóf að
ræða. „Ég hef opnað vinnustofu mína
á aðventu alveg frá því að við fluttum
til Reykjanesbæjar, svona til að sýna
afrakstur ársins, en oftast aðeins í
einn eða tvo daga. Fyrst um sinn
voru aðallega vinir og viðskiptavinir
sem komu en gestum hefur alltaf
verið að fjölga. Nú síðast komu um
300 manns fyrsta daginn,“ sagði
Sossa og bætir við að ástæðan sé
meðal annars sú að hún sýni lítið orð-
ið á Íslandi.
Við tæmum úr kaffibollunum, ræð-
um um nýjar áherslur í verkum
Sossu og ýmsa skemmtilega jólasiði
sem þau hjónin hafa flutt með sér til
Íslands. Yfir borðstofuborðinu trónir
nýjasta verk Sossu „Í fámenninu“ og
ljóst að fámenni mun ekki hrjá þau
hjónin á nýju ári.
Skólameistarinn og listamaðurinn halda senn á fornar slóðir í Kaupmannahöfn til að endurnýja sig
Nauðsynlegt að skipta um umhverfi
Morgunblaðið/Svanhildur Eiríksdóttir
Í fámenninu Ólafur Jón Arnbjörnsson og Margrét Soffía Björnsdóttir, Sossa, halda á fornar slóðir í byrjun nýs árs og
ætla að víkka út sjóndeildarhringinn í Kaupmannahöfn. Í borðstofunni hangir verk listakonunnar, „Í fámenninu“.
SUÐURNES
AUSTURLAND
á árinu um 65 og eru þeir nú
3.175. Er þetta nokkurn veginn í
takt við væntingar sem gerðar
voru til fólksfjölgunar í sveitarfé-
laginu, en áhrifa vegna álvers-
framkvæmdanna er farið að gæta
að nokkru leyti. Mest fjölgar á
aldursbilinu 20 til 39 ára eða um
32 og um 10 á aldrinum 0 til 19
ára. Fjölgunin nemur 2,1 % og
eru karlar 1643 en konur 1532.
Sveitarfélagið Hornafjörður er
þriðja fjölmennasta sveitarfélagið
FLJÓTSDALSHÉRAÐ er fjöl-
mennasta sveitarfélag á Austur-
landi samkvæmt nýjum tölum frá
Hagstofu Íslands. Hagstofan hef-
ur gefið út bráðabirgðatölur um
íbúafjölda á Íslandi 1. desember
og samkvæmt þeim eru íbúar
Fljótsdalshéraðs 3.364 og hefur
þeim fjölgað um 433 frá sama
tíma í fyrra. Karlar eru talsvert
fleiri en konur, eða 1.897 á móti
1.467 konum.
Íbúum Fjarðabyggðar fjölgaði
á Austurlandi með 2.225 íbúa en
þar hefur íbúum fækkað um 79 á
milli ára, sem er mesta fækkun í
einu sveitarfélagi í fjórðungnum
á árinu. Þá hefur íbúum í Aust-
urbyggð fjölgað um 20 á þessu
ári. Samkvæmt tölum Hagstof-
unnar eru íbúar Austurbyggðar
873 talsins. Karlar eru 471 og
konur 402.
Í Vopnafjarðarhreppi eru 732
íbúar og hefur fækkað hefur um
9 íbúa. Á Seyðisfirði búa 714
manns, sem er fækkun um 27
íbúa. Djúpavogshreppur kemur
næstur með 479 íbúa og hefur
fækkað um 14. Í Fljótsdalshreppi
býr 261 íbúi og þar er fjölgun um
168 íbúa á milli ára. 249 búa í
Breiðdalshreppi og þar hefur
fækkað um 9 íbúa á árinu. Í
Borgarfjarðarhreppi búa nú 137
manns en þar hefur fækkað um 3.
137 búa einnig í Skeggja-
staðahreppi en þar hefur fjölgað
um fjóra á árinu. Tvö sveit-
arfélög eru með færri en hundr-
að íbúa en það eru Fáskrúðs-
fjarðarhreppur með 51 íbúa en
þar fækkaði um fjóra og Mjóa-
fjarðarhreppur með 38 íbúa en
þar fjölgaði um einn á árinu. Enn
liggja ekki fyrir tölur um íbúa-
fjölda í einstökum byggða-
kjörnum, né hlutfall útlendinga í
ofangreindum tölum.
Fljótsdalshérað
orðið fjölmennast
á Austurlandi
% 3
-%
!
$
$
,7 3=
,5
2($ %, !
&!!5
?*%,3$
2
5, !
N,#*(3$
,7 3$
+
3$
+,3$
2
,3$
#,3$
0,7,3$
2&0>&/2
'
'
4
456
2,
4
,
4 57
,
4
4
465
+$
Austfirðingar framtíðarinnar Íbúatölur á Austurlandi mjakast víðast hvar
upp á við í takt við vöxt í atvinnulífinu eystra.
45 ára lögmannsstofa | Á mið-
vikudag voru 45 ár liðin frá því að
fyrirtækið GMA lögmannsstofa ehf.,
sem jafnan er nefnd Lögmannsstofa
Gísla M. Auðbergssonar, var stofn-
að. Upphaflega hét fyrirtækið Katr-
ín hf. og var stofnað af Gísla M. Þór-
ólfssyni og fleirum um útgerð
skipsins Katrínar SU-54 frá Reyð-
arfirði. Á árinu 1990 var tilgangi fé-
lagsins breytt í lögfræðiþjónustu,
sem félagið hefur rekið í Fjarða-
byggð frá því í júní 1995.
Hjálpsamir | Björgunarsveit-
armenn hafa í nógu að snúast í flug-
eldasölu í dag. Á vef Björgunarsveit-
arinnar Ársólar á Reyðarfirði kemur
fram að auk björgunarstarfa vegna
vonds veðurs yfir jóladagana, máttu
menn gera hlé á flugeldasölunni á
miðvikudaginn var vegna björg-
unarviðviks: „Vegfarandi kemur í hús
sveitarinnar þar sem flugeldasala er í
fullum gangi og tilkynnir um bifreið
sem lent hafði í vandræðum vegna
hálku í brekku nærri húsi sveit-
arinnar. Fóru tveir menn á Land
Rover til aðstoðar, gekk þetta allt
fljótt fyrir sig og var aðgerðum lokið
um klukkan 17.00,“ segir á vefnum.
Það er sama hvort menn eru fjær eða
nær, upp við húsgafl eða á heiðum,
alltaf eru björgunarmenn til taks
þegar á þarf að halda.
Jón Hlíðdal selur | Verktakafyr-
irtækið Jón Hlíðdal ehf., sem stofnað
var árið 1978, hefur verið selt til
Malarvinnslunnar ehf. á Egils-
stöðum. Um 40 vinnuvélar og tæki
fylgja með í kaupunum; vörubílar,
gröfur, hjólaskóflur og heflar og yf-
irtekur Malarvinnslan jafnframt fyr-
irliggjandi verksamninga. Rúmur
tugur manna hefur verið í vinnu hjá
Jóni Hlíðdal undanfarið og verða
þeim boðin störf hjá Malarvinnsl-
unni í kjölfar sölunnar.