Morgunblaðið - 31.12.2004, Page 26

Morgunblaðið - 31.12.2004, Page 26
26 FÖSTUDAGUR 31. DESEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ UMRÆÐAN FYRIR skömmu kom út hjá út- gáfufyrirtækinu Skruddu bók um Austur-Skaftafellssýslu sem ber nafnið Jöklaveröld – náttúra og mannlíf. Bókinni er ætlað að gefa innsýn í stórfenglegt og fjölbreytt náttúrufar sýslunnar og liðlega ell- efu alda sambúð Austur-Skaftfell- inga við náttúru sem jöfnum höndum hefur verið gjöful og mis- kunnarlaus. Sambýli Íslendinga við jökla hefur hvergi verið nán- ara og afdrifaríkara en þar. Land Austur- Skaftafellssýslu er langt en tiltölulega mjótt landsvæði milli hafnlítillar strand- lengju og Vatnajökuls sem gnæfir ofan und- irlendisins og teygir arma sína niður á það. Það var fyrst með gerð hringveg- arins um landið sem almenningi gafst raunverulega kostur á að kynnast undraheimi sýslunnar sem síðan er orðin eitt fjölsóttasta svæði landsins. Bókin Jöklaveröld veitir einkar tímabæran og gagnlegan fróðleik um þennan áhugaverða landshluta. Að sögn ritstjóra bókarinnar, Helga Björnssonar jöklafræðings, var það einkum tvennt sem varð til- efni útgáfu hennar. Í ljósi nýrrar þekkingar um landslag undir Vatna- jökli suðaustanverðum er nú unnt að lesa hina aldalöngu sögu sambúðar Austur-Skaftfellinga og jökla. Hitt tilefnið er það að kaflaskipti hafa orðið í náttúrusögu sýslunnar vegna breytts veðurfars og mikils árang- urs af áratuga aðgerðum í land- græðslu og gróðurvernd. Land í sýslunni er óðum að skipta um ham. Í bókinni eru ellefu kaflar sem skipta má í þrjá efnisflokka. Í fyrsta hluta bókarinnar er fjallað um sögu og náttúru eftir að land byggðist. Þar skrifar aðalhvatamaður bók- arinnar, Egill Jónsson, fyrrverandi bóndi, ráðunautur og alþingismaður á Seljavöllum, um landgæði í sýsl- unni á landnámstíð, rýrnandi land- gæði með kólnandi loftslagi og vexti jökla. Þá lýsir hann vaxandi gróðri og framförum með aukinni ræktun við hlýnandi loftslag á 20. öld. Ít- arleg grein Egils ber öll merki ná- innar þekkingar og einlægrar vænt- umþykju á heimahéraði hans og gleði yfir stórkostlegum gróð- urframförum í sýslunni, sem hann, að öðrum ólöstuðum, mun sjálfur hafa átt mestan þátt í. Páll Bergþórsson, veðurfræðingur og fyrrverandi veð- urstofustjóri, ræðir um loftslag allt frá land- námi, harðæri, hafís, jöklabreytingar og áhrif veðurfars á land- búnað og sjávarútveg. Páll Imsland jarðfræð- ingur fjallar um lands- lag og landris í Horna- firði af völdum litlu ísaldar, sem talin er hafa staðið frá lokum 12. aldar til loka 19. aldar, og áhrif hennar á náttúrufar og mannlíf: lífsskilyrði og gróður, samgöngur og siglingar. Helgi Björnsson og Finnur Pálsson rafmagnsverkfræðingur lýsa nýjum rannsóknum á landslagi undir jökl- um í Austur-Skaftafellssýslu. Sveinn Runólfsson landgræðslustjóri ritar um landkosti og landbætur í sýsl- unni. Með samvinnu Landgræðslu rík- isins, Vegagerðarinnar og heima- manna, og fyrir tilstilli Þjóðargjafar til landgræðslu árið 1974, hefur ver- ið gert gífurlegt átak í vörnum gegn landbroti með beislun jökulánna með varnargörðum, í heftingu sand- foks og uppgræðslu. Eitt glæsileg- asta dæmi slíkra aðgerða er á Skóg- eyjarsvæðinu í Nesjum, sem Sveinn lýsir allítarlega. Hann telur að hvergi á Íslandi hafi sjálfgræðsla lands verið meiri og örari á und- anförnum áratugum en í Austur- Skaftafellssýslu og þakkar það öðru fremur framangreindum, mann- legum aðgerðum, betri búskap- arháttum og hlýnandi veðráttu. Í miðkafla bókarinnar fjalla tveir jarðfræðingar, Jón Jónsson og Guð- mundur Ómar Friðleifsson, um nokkurra milljón ára jarðsögu sýsl- unnar. Í þriðja þætti bókarinnar rekja nokkrir fræðimenn minningar frá störfum sem tengjast Austur- Skaftafellssýslu. Þeir eru Sverrir Scheving Thorsteinsson, jarðfræð- ingur, prófessor Gunnar Hoppe og Carl M:son Mannerfelt landfræð- ingur. Loks eru birt afar fróðleg minningabrot úr dagbókum Sig- urðar Þórarinssonar jarðfræðings frá árunum 1934–1938, sem sonur hans, Sven Þ. Sigurðsson prófessor, dró saman, og sjö sendibréf sem Sig- urður fékk frá Austur-Skaftfell- ingum á þessum árum. Bókin Jöklaveröld er afar efnis- mikil, fjölbreytt og fróðleg. Allmikill hluti hennar fjallar um fræðileg efni, einkum á sviði jarðfræði, jöklafræði, loftslagsfræði og gróðurfræði. Ým- islegt af því efni hefur að sjálfsögðu birst áður, en ekki í þeirri heild og því samhengi sem það er lagt fram í bókinni. Óhætt er að fullyrða að undantekningarlaust er efnið kynnt með þeim hætti að allir þeir sem áhuga hafa eiga að geta skilið fræðin og haft ánægju af. Bókin er um 400 bls. að stærð og fylgir hverri grein fjöldi mynda. Þær spanna vítt tímaskeið, eða allt frá fyrstu dögum landmælinga Dana á Íslandi í byrjun 20. aldar og sam- vinnu Svía og Íslendinga á 4. ára- tugnum, til nýlegra gervihnatta- mynda. Prentun myndanna hefur yfirleitt tekist mjög vel. Bókinni fylgir vel gerður margmiðl- unardiskur þar sem kynnt er í máli og myndum margt af því efni sem bókin fjallar um, einkum þó gróður í sýslunni þegar honum hrakaði á síð- ustu öld og nú eftir að hann tók að aukast að nýju. Þá er þar ítarleg lýs- ing í máli og myndum á landslagi sem hulið er jöklum. Að mínum dómi hefur verið afar vel vandað til gerðar bókarinnar Jöklaveröld. Hún er hafsjór af fróð- leik, auðveld aflestrar og falleg og kjörgripur í fórum allra þeirra sem unna íslenskri náttúru. Jöklaveröld Ingvi Þorsteinsson fjallar um bókina Jöklaveröld ’Hún er hafsjór af fróðleik, auðveld aflestr- ar og falleg og kjör- gripur í fórum allra þeirra sem unna ís- lenskri náttúru. ‘ Ingvi Þorsteinsson Höfundur er náttúrufræðingur. BRÉF TIL BLAÐSINS Morgunblaðið Kringlunni 1 103 Reykjavík  Bréf til blaðsins | mbl.is MARGIR nota áramótin til að taka sig á og tileinka sér bættan lífsstíl. Þessi tími getur til að mynda verið mjög góður til að hætta að reykja. Hér á eftir koma nokkur ráð sem geta vonandi auðveldað þeim að hætta, sem ætla að hætta að reykja um þessi áramót, og að halda reykleysið út. Fyrsta stig: Undirbúningur Gott er að búa sig vel undir það að hætta að reykja. Útvegaðu þér efni um tóbak, s.s. um skaðsemi þess fyrir þig og fólk í kringum þig. Upp úr þessu efni er gott að skrifa niður 10 mikilvægustu ástæður þess að hætta. Einnig getur verið gott að hafa sínar eigin ástæður – því öll erum við jú misjöfn. Reyklaus svæði: Þegar ákveðið hefur verið að hætta er gott að byrja að fækka stöðunum þar sem reykt er, búa til reyklaus svæði. Þetta getur t.d verið heimilið, bíll- inn o.s.frv. Reglan er að ef þú ert stödd/staddur á reyklausu svæði og löngunin er mikil, verður þú annaðhvort að standast löngunina eða fara eitthvert annað. Hafðu svæðin sem flest til að brjóta upp vanann og þá verður baráttan auð- veldari eftir að þú hættir. Stuðningur: Gott er að vita hvar er hægt að fá stuðning, ef þörf er á, áður en að dagurinn rennur upp. Ráðgjöf í reykbindindi í síma 800 6030 er símaþjónusta fyrir fólk sem vill hætta að nota tóbak. Þar starfa hjúkrunarfræðingar með sérþekkingu á tóbaks- meðferð. Þeir veita persónulega ráðgjöf, byggðri á reykingasögu þeirra sem hringja og þörfum hvers og eins. Þeir bjóða eft- irfylgni, hvatningu og stuðning. Á doktor.is er hægt að fá svör við fyrirspurnum um tóbaks- notkun. Krabbameinsfélag Reykjavíkur heldur reglulega námskeið í reyk- bindindi. Næsta námskeið hefst 12. janúar 2005 (nán- ari upplýsingar á krabb.is). Væntanlega getur heim- ilislæknirinn einnig að- stoðað. Annað stig: Að hætta Að hætta er mikil ákvörð- un en hún er fljót að borga sig, fjárhagslega og heilsufarslega. Hér koma nokkur ráð til að styðjast við: Hafðu listann yfir „hvers vegna þú ákvaðst að hætta“ alltaf við höndina. Ef þú ákveður að nota níkót- ínlyf eða níkótínlaus lyf hafðu þau þá við höndina þegar þú ákveður að hætta og farðu eftir leiðbein- ingum. Fáðu þér staðgengla fyrir sígar- ettur. Misjafnt er hvað hentar hverjum og einum en hægt er t.d. að nota mentól í munnúða, lakkr- ísrót eða eitthvað annað. Forðastu að nota sætindi. Safnaðu stubbum og ösku í krukku og helltu smá vatni yfir og settu lokið á. Opnaðu þegar löng- unin kemur yfir þig og lyktaðu uppúr krukkunni. Drekktu mikið af vatni og hreinum ávaxtasafa. Ef þú tengir reykingar við sér- stakar aðstæður, forðastu þær þá fyrst um sinn og prófaðu þig svo áfram. Mundu að þegar þú hættir að reykja skiptir hugarfarið öllu máli. Einbeittu þér alltaf að – og minntu þig á – jákvæðar hliðar þess að hætta og hættu að hugsa um að þú sért að pína þig eða get- ir þetta ekki. Þriðja stig: Að halda út Að halda sér reyklausum er breyt- ing á lífsstíl. Án efa tekur það á en þú getur þetta alveg – eins og allir hinir sem hafa hætt. Ef þú freistast til að fá þér eina sígar- ettu, líttu þá ekki á það sem að nú sé allt glatað. Haltu heldur áfram með jákvæðu hugarfari. Hafði ástæðurnar sem þú skrifaðir niður í undirbúningnum við höndina og minntu þig á þær reglulega. Verðlaunaðu þig reglulega, vikulega, mánaðarlega, árlega. Þú átt það skilið! Ef þú ert ekki tilbúinn núna geymdu þá þessi ráð – þinn tími mun koma. JAKOBÍNA H. ÁRNADÓTTIR, M.Sc. í heilsusálfræði og verkefnisstjóri tóbaksvarna hjá Lýðheilsustöð. Er þinn tími kominn? Frá Jakobínu H. Árnadóttur: TENGLAR ..................................................... www.8006030.is www.krabb.is, www.doktor.is Jakobína H. Árnadóttir Eftirfarandi greinar eru á mbl.is: Guðrún Lilja Hólmfríðardótt- ir: „Ég vil hér með votta okk- ur mína dýpstu samúð vegna þeirrar stöðu sem komin er upp í íslensku þjóðfélagi með skipan Jóns Steinars Gunn- laugssonar í stöðu hæstarétt- ardómara. Ég segi okkur af því að ég er þolandinn í „Pró- fessorsmálinu“.“ Ólafur F. Magnússon: „Ljóst er að án þeirrar hörðu rimmu og víðtæku umræðu í þjóð- félaginu sem varð kringum undirskriftasöfnun Umhverfis- vina hefði Eyjabökkum verið sökkt.“ Ásthildur Lóa Þórsdóttir: „Viljum við að áherslan sé á „gömlu og góðu“ kennsluað- ferðirnar? Eða viljum við að námið reyni á og þjálfi sjálf- stæð vinnubrögð og sjálfstæða hugsun?“ Bergþór Gunnlaugsson: „Ég hvet alla sjómenn og útgerð- armenn til að lesa sjómanna- lögin, vinnulöggjöfina og kjarasamningana.“ Á mbl.is Aðsendar greinarEITT af því sem gerir áramót að virkilegum tímamótum hjá okkur Ís- lendingum er sú staðreynd að þá flykkjumst við út og skjótum upp flugeldum. Fjöl- skyldur, vinir og ná- grannar sameinast í einhverjum galdri sem hvílir yfir þessu kvöldi og njóta himnaskreyt- inganna sem hvergi eiga sinn líka. Sumir virðast þó fá samviskubit dagana á eftir, finnst þeir kannski hafa eytt í óþarfa meðan þeir hreinsa upp rak- ettuprikin – og aðrir býsnast yfir sóuninni. Við þá vil ég segja þetta: Flugeldasala er grundvöllur þess að björgunarsveitir geti haldið úti lífsnauðsynlegri starfsemi sinni. Og ekki gleyma því að sveitirnar eru mannaðar sjálfboðaliðum sem leggja oft líf og limi í hættu til að koma sam- borgurum sínum til aðstoðar í neyð. Þetta er samfélaginu dýrmætt. Þið sem kaupið flugelda af okkur leggið ykkar lóð á vogarskálarnar samfélag- inu til heilla. Og þið gerið meira, skapið skemmtilegar minningar. Ég býst við að flestir eigi svipuð minningarbrot og ég frá gamlárskvöldum æskunnar, sem lifa vel og lengi. Ég man þegar pabbi fór að bjástra við að festa skotstæði fyrir flugeld- ana á svalirnar. Þetta var iðulega gert fyrir matinn og fyrir peyjann var nokkur viðhöfn og hátíðarblær yfir þessu. Eftir matinn fór spenn- an að stigmagnast og oft var farið og hitað upp með litla dótinu, stjörnuljósum og fleiru. Eftir Skaupið rann svo stóra stundin upp. Ég man sérstaklega þau áramót sem ég fyrst hélt á jókerblysi, hvílík sæla það var í hvert sinn sem kúla skaust út. Klukkan tólf var komið að þeim stóra. Með klukkurnar glymjandi þaut hann upp og ég var algjörlega sannfærður um að okkar flugeldur færi hærra en nokkur annar flug- eldur á himinhvolfinu. Gleðin var slík að ég var alsæll. Á slíkar minningar er ekki hægt að setja verðmiða fremur en allar aðrar góðar stundir sem við eigum í lífinu. Pabbi bruðlaði ekki með fé, en hann sá heldur ekki eftir aurunum sem fóru í flugeldakaup, enda var hann með á hreinu hvar ætti að kaupa flugeldana, hjá Hjálparsveit skáta. Í dag er ég hinum megin við borðið. Ég get ekki ábyrgst að með því að kaupa flugelda hjá Hjálp- arsveit skáta í Reykjavík sértu að kaupa minningar. En ég get ábyrgst að með peningunum sem þú verð til þess ertu að kaupa samfélagstrygg- ingu sem við getum öll þurft á að halda. Að lokum vil ég hvetja alla til að fara varlega um áramótin, eins og Jónas myndi orða þetta: „Passið ykk- ur á púðrinu“, notið hlífðarbúnað og látið ekki Bakkus bróður vera með neina stæla. Gerum þessi áramót að áramótum þar sem við öll verðum rík af góðum minningum. Með ykkar framlögum getum við hjá Hjálp- arsveitinni tryggt okkar starf í þágu samfélagsins. Og við getum sagt með góðri samvisku að þetta fé fer ekki í súginn. Með þökk fyrir stuðninginn gegn- um árin. Einar Daníelsson minnir á gildi þess að fara varlega með flugelda ’Flugeldasala er grund-völlur þess að björg- unarsveitir geti haldið úti lífsnauðsynlegri starfsemi sinni.‘ Einar Daníelsson Höfundur er sveitarforingi Hjálp- arsveitar skáta í Reykjavík. Himnaskreytingar öllum til heilla

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.