Morgunblaðið - 31.12.2004, Qupperneq 33

Morgunblaðið - 31.12.2004, Qupperneq 33
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 31. DESEMBER 2004 33 nga í kostnaði við r. Til þess eru ís- orgaralegt flug um flug minnkað. Ég m sé raunverulegur m og tryggja í þeim n málið er þó ekki senda þess af hálfu gurinn hafi merk- eru sömu augljósu m nágrannaríkjum iðausturlönd verið ar urðu þau miklu nt var litið svo á að ækifæri til að koma anna og Palestínu- r, nýtist eða ekki, manna gera nauð- g snúast opinskátt forsenda þess að st. Stuðningur ís- Palestínumanna er kki má hvika frá, er r við vonir mikils ði verði fest í sessi, voru nauðsynlegar ðast ekki síst bein- nig gegn málstað hluta. Átökin í Írak r sem barist er við r með árásunum á ábyrgð á mörgum gin ástæða er til að að beita gereyðing- . Sú hætta býr Ís- þjóðum okkar nú, ngaröfl fasisma og Íslendingum gott í ram væntingar og níunda árið í röð. kkru sinni áður og aðfestu á árinu að njóta mesta trausts óknarfæri. Í hart- jög að vöxtum og ýtt hagvaxtarskeið erði á næstu þrem- ram til ársins 2010 arframleiðsla okk- 006 og sé sú stærð að Ísland mun fær- óða heims. Skattar ríkissjóðs hafa ver- l heilbrigðis- og fé- na og lífeyrissjóðs- m, en þetta síðasta ramlög til mennta- kin og nú nýverið nberra vísinda- og nu. Frelsi í banka- arlegt afl, atvinnu- að langþráða festu rirtækja á erlenda þjóðarbúsins hefur því ekki á óvart að undi eru góðæris- er einna helst það tið til okkar helstu r verkefni. Of lítill yfirvofandi skatta- æðulausra lífeyris- ríkisstjórna ESB. ungs fólks í lönd- prósent og að ein- rinum 55 til 65 ára í skelfileg, og hlýt- ári hjá okkur um áta sem engin séu na hafa aukist og er verði nýttur til að anlega eignaaukn- ar allar gáttir lána- i það til aukinnar fið að við eigum að nýta alla þá lánamöguleika sem í boði eru. Því fyrirkomu- lagi hefur ekki verið breytt að það kemur að skuldadögum. Í þessu efni eins og svo mörgum öðrum er meðalhófið af- farasælast. Hækkandi gengi íslensku krónunnar hefur freistað margra til að taka lán í erlendri mynt. Nauðsyn- legt er að hafa hugfast að meginástæða fyrir háu gengi krónunnar nú eru miklar virkjana- og álversframkvæmdir. Að lokum hlýtur gengi krónunnar að endurspegla íslenskt efnahagslíf, framleiðslugetu atvinnuveganna. Þegar dreg- ur úr áhrifum þeirra framkvæmda mun gengi íslensku krónunnar aðlagast nýrri skipan. Reynslan af glanna- legum veðmálum með gjaldeyri ætti að vera öllum í fersku minni. Frelsinu fylgir ábyrgð. Sjálfstæðisflokkurinn hefur alla tíð barist fyrir því að innleiða samkeppni á sem flestum sviðum efnahagslífsins. Gleðiefni er hversu mjög því verki hefur miðað á und- anförnum árum. Samkeppnislöggjöfin er til stöðugrar end- urskoðunar og mestu varðar að ríkisvaldið hefur dregið sig út úr rekstri margvíslegra fyrirtækja og ber sölu ríkis- bankanna þar hæst. Stöðugleiki, lágir skattar, skýrar og skilmerkilegar leikreglur, greiður aðgangur að fjármagni; allt stuðlar þetta að heilbrigðri samkeppni. Arnljótur Ólafsson þingmaður og prestur skildi vel mikilvægi sam- keppninnar. Í riti sínu, Auðfræði, lét hann svo um mælt: „Samkeppnin er sjálf eigi annað en mannfrelsið, hún er kjörfrelsi, frelsi í vinnu og atvinnu, frelsi í viðskiptum, frelsi til að ljá og selja, leigja og kaupa.“ Að baki barátt- unnar fyrir samkeppni er sjálf krafan um mannfrelsi. Liðið er á aðra öld síðan séra Arnljótur reit bók sína. Boðskap- urinn er þó enn í fullu gildi. Forystumenn ríkisstjórnarinn- ar hafa á undanförnum misserum lagt á það þunga áherslu að samkeppni eigi að verða öllum til hagsbóta. Samkeppni er viðvarandi ástand, henni lýkur ekki með því að örfáir menn nái heljartaki á einstökum mörkuðum. Samkeppni er kröfuhörð, tímafrek og í eðli sínu endalaus. Það er því al- þekkt að viðskiptaforkólfar um allan heim sjá sér hag og hægindi í því að takmarka samkeppni, eins og þeir geta. Þetta er ekki rifjað upp neinum til áfellis. Þessi freisting liggur í mannlegu eðli. Eða hvernig halda menn að dáðustu knattspyrnumenn, uppfullir af sönnum íþróttaanda, myndu haga sér, ef enginn væri dómari eða línuverðir í þeirra leik, svo ekki sé talað um að þeir gætu ráðið því hverjir skipuðu lið andstæðinganna og þannig fram eftir götunum. Íslenska hagkerfið er smátt og því rík skylda á stjórnvöldum að reyna að stuðla að virkri samkeppni. Þrjóti samkeppnina, þrýtur frelsið. Nú liggja fyrir áætl- anir um breytt skipulag þeirra stofnana sem hafa eftirlit með samkeppni. En eftirlit og reglur geta einungis komið að takmörkuðu gagni. Knattspyrnudómarar eiga ekki að ráða þróun knattspyrnuleiks og eins varðar mestu að for- ystumenn í íslensku viðskiptalífi skapi sjálfir hið rétta and- rúmsloft í kringum sig og sýni ábyrgð í störfum sínum. Gott viðskiptasiðferði og heiðarleiki er margfalt mikilvæg- ara en allir eftirlitsmenn hins opinbera samanlagðir. IV Í aðdraganda síðustu kosninga lofuðu Sjálfstæðisflokk- urinn og Framsóknarflokkurinn, að skattar yrðu lækkaðir myndarlega á kjörtímabilinu. Á síðasta vorþingi var sam- þykkt að lækka og samræma erfðafjárskatt. Ákveðið hefur verið að fella niður sérstakan hátekjuskatt, enda hafði því verið lofað af Sjálfstæðisflokki og Alþýðuflokki að hann væri aðeins tímabundinn. Á haustþingi var samþykkt að lækka tekjuskatt einstaklinga um fjögur prósentustig og fella niður eignaskatt. Einnig liggur fyrir, staðfestur í stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar, vilji til að lækka virð- isaukaskatt á nauðsynjum. Þessar lækkanir koma í kjölfar annarra skattalækkana undanfarinna ára. Miklu skiptir að á sama tíma og skattar eru lækkaðir er dregið úr skuldum ríkissjóðs og útgjöld til mikilvægra málaflokka s.s. menntamála og heilbrigðismála halda áfram að vaxa. Þess- ar skattalækkanir eru mikil kjarabót fyrir heimilin í land- inu og eru grunnur að myndarlegum vexti kaupmáttar ráð- stöfunartekna á næstu árum. Lágir skattar á fólk og fyrirtæki eru forsenda öflugs atvinnulífs og fjölbreytts mannlífs. Því minna sem hið opinbera tekur í sinn skerf af launatekjum okkar því meira er frelsi okkar til að ráðstafa þeim eins og okkur sjálfum best hentar. Samfélag, sem byggir á lágum sköttum, en traustu velferðarkerfi er öfl- ugra, fjölbreyttara og lífvænlegra en þau sem hvíla á hárri skattheimtu. Starfsmenn stjórnarráðsins eru upp til hópa vandað og samviskusamt fólk en eru ekki endilega best til þess fallnir að ákveða í hvað laununum okkar er varið, um- fram það sem nauðsynlegt er. Lærdómsríkt var að fylgjast með málflutningi vinstri manna í umræðum um skatta- lækkanir. Vinstri-grænir voru samkvæmir sjálfum sér og vilja engar skattalækkanir. En talsmenn Samfylkingar hlupu um víðan völl að venju og þurfti nokkra einbeitingu til að fylgjast með síbreytilegum málflutningi þeirra. Fæst af því sem þar kom fram kallar á ítarlega rökræðu. Haft hefur verið á orði að skattalækkun nú sé óráð sökum þess hversu vel árar í íslenskum þjóðarbúskap. Við því er að segja að vandséð er hvenær heppilegra er að lækka skatta ef ekki þá, þegar ríkissjóður stendur vel og tekjur hans eru meiri en gjöld. Er það trúlegt að skattar verði lækkaðir þegar ríkissjóður er rekinn með halla? Möguleg þenslu- áhrif skattalækkunar verður að meta í ljósi stærðar hag- kerfisins. Skattalækkanirnar sem nú hafa verið samþykkt- ar munu nema rúmum tuttugu milljörðum árlega þegar þær eru allar komnar til framkvæmda. Þjóðarframleiðslan verður þá rúmir þúsund milljarðar. Eins má gera ráð fyrir því að almenningur noti hluta skattalækkunarinnar til að greiða niður skuldir sínar. Skattalækkanir nú ógna því engan veginn stöðugleikanum í efnahagsmálum þjóðarinn- ar. Til að vega á móti þenslu hefur ríkisstjórnin sett sér langtímamarkmið um þróun ríkisútgjalda og er stefnt að því að raunaukning þeirra verði innan við 2% á ári næstu árin. Gangi það eftir mun ríkisvaldið draga úr umsvifum sínum í hagkerfinu og hamla þar með gegn óæskilegri þenslu. Þegar Íslendingar gengu að kjörborðinu árið 2003 gátu þeir treyst því að loforð Sjálfstæðisflokksins, um að skatt- ar yrðu lækkaðir á kjörtímabilinu, yrði efnt fengi hann að- stöðu til. Einn skugga ber þó á. Í höfuðborginni sitja vinstri menn að völdum. Þvert á eigin loforð nota þeir nú tækifærið og ræna borgarbúa enn einu sinni hluta þeirrar kjarabótar sem felst í lækkun tekjuskatts. Hækkun út- svars í höfuðborginni staðfestir skipbrot stjórnar R- listans. Reykjavík var áður skuldlítið sveitarfélag sem í krafti stærðar sinnar og traustrar stjórnar sjálfstæðis- manna gat boðið borgarbúum góða þjónustu og lágt út- svar. Nú hafa skuldir borgarinnar vaxið óhugnanlega og álögur samt hækkað verulega. Reykjavík, sem áður var fremst í flokki er nú í hópi þeirra sveitarfélaga sem lökust kjör geta boðið íbúum sínum. R-listinn hefur gefist upp við að stjórna borginni. Hann á að fara frá. Liðin eru rúmlega níuhundruð ár síðan Gissur biskup Ís- leifsson fékk í lög festa tíund hér á landi. Sagt var að sú skattlagning hefði komist á sökum elsku landsmanna á Gissuri, þótt ólíklegt sé að allir greiðendur hafi verið spurðir. Tíundin var eignaskattur og höfum við Íslend- ingar greitt slíkan skatt allt frá árinu 1096. Það eru því merk tímamót í sögu landsins á þessum degi, er eigna- skattur á einstaklinga og fyrirtæki fellur niður. Þótt eigna- skatturinn sé gamall, er lítil eftirsjá að honum. Hann er í eðli sínu óréttlátur skattur og kemur gjarnan þyngst niður á þeim sem síst skyldi. Brottfall hans er mikil kjarabót fyr- ir eldri borgara, sem margir hafa á langri ævi eignast skuldlítið húsnæði og þurftu áður að greiða sérstakan skatt fyrir ráðvendni sína og sparnað. Sjálfstæðisflokkurinn hef- ur lengi barist fyrir lækkun eignaskatts. Lengi þorðu menn þó ekki að vona að eignaskatturinn yrði afnuminn. Það hefur nú verið gert með lögum. Við þurfum að greiða eignaskatt einu sinni enn, vegna þess árs sem kveður í dag, en síðan ekki meir. V Margvíslegt samstarf er nú á alþjóðavísu, enda margur vandinn og vá, sem ekki er bundin takmörkum á borð við landamæri. Slíkt samstarf leiðir stundum til þess að mögu- leikar einstakra landa til að koma hlutum fyrir eftir eigin höfði minnka til muna. Ekki er endilega víst að það sé alltaf til bóta. Það er öruggt að hið alþjóðlega samstarf dregur verulega úr lýðræðisáhrifum, að minnsta kosti verður ákvörðunin æ fjarlægari rótum lýðræðis. Stórar ákvarð- anir eru nú orðið iðulega teknar á svonefndum leiðtoga- fundum af margvíslegu tagi. Óþekkt er að aðdragandi slíkra ákvarðana sé á þjóðþingum, sem eru þó grundvöllur valda flestra leiðtoga. Málin eru fyrst send þingunum eftir leiðtogafundina og þá standa þingin frammi fyrir gerðum hlut og geta engu breytt vegna þess að þá yrði alþjóðlegt samstarf í uppnámi. Í þessari þróun hlýtur að felast mikill lýðræðislegur vandi, sem fyrr eða síðar verður að taka á. VI Hörmungarnar í framhaldi af jarðskjálftunum í Asíu eru yfirþyrmandi og óhugnanlegar. Vissulega hefur manntjón af mannavöldum iðulega verið meira en þetta og eru nýleg dæmi frá Afríku til um það. Er reyndar mikið umhugs- unarefni hvers vegna alþjóðasamfélagið tekur hörmung- artíðindum frá þeirri álfu af meira tómlæti en því sem ann- ars staðar gerist. En það er hið fyrirvaralausa ógnarafl eyðileggingarinnar í Asíu, sem er svo æpandi við síðustu atburði. Maðurinn hefur aldrei verið fyrirferðarmeiri og máttugri á jarðkringlunni en nú. En afl hans og tækni mega sín einskis, þegar náttúruöflin láta rækilega til sín taka. Á hinn bóginn er það fagnaðarefni að samkennd og samhjálp í neyð er vaxandi í veröldinni og því er hægt að létta þeim róðurinn sem fyrir áföllum verða. Ísland mun nú sem endra nær leggja sitt af mörkum í þeim efnum. Ég þakka löndum mínum samstarf og kynni á liðnu ári og bið íslenskri þjóð heilla og blessunar á nýju ári. herra, formaður Sjálfstæðisflokksins ÁRAMÓT Morgunblaðið/Kristinn
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.