Morgunblaðið - 31.12.2004, Page 33
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 31. DESEMBER 2004 33
nga í kostnaði við
r. Til þess eru ís-
orgaralegt flug um
flug minnkað. Ég
m sé raunverulegur
m og tryggja í þeim
n málið er þó ekki
senda þess af hálfu
gurinn hafi merk-
eru sömu augljósu
m nágrannaríkjum
iðausturlönd verið
ar urðu þau miklu
nt var litið svo á að
ækifæri til að koma
anna og Palestínu-
r, nýtist eða ekki,
manna gera nauð-
g snúast opinskátt
forsenda þess að
st. Stuðningur ís-
Palestínumanna er
kki má hvika frá, er
r við vonir mikils
ði verði fest í sessi,
voru nauðsynlegar
ðast ekki síst bein-
nig gegn málstað
hluta. Átökin í Írak
r sem barist er við
r með árásunum á
ábyrgð á mörgum
gin ástæða er til að
að beita gereyðing-
. Sú hætta býr Ís-
þjóðum okkar nú,
ngaröfl fasisma og
Íslendingum gott í
ram væntingar og
níunda árið í röð.
kkru sinni áður og
aðfestu á árinu að
njóta mesta trausts
óknarfæri. Í hart-
jög að vöxtum og
ýtt hagvaxtarskeið
erði á næstu þrem-
ram til ársins 2010
arframleiðsla okk-
006 og sé sú stærð
að Ísland mun fær-
óða heims. Skattar
ríkissjóðs hafa ver-
l heilbrigðis- og fé-
na og lífeyrissjóðs-
m, en þetta síðasta
ramlög til mennta-
kin og nú nýverið
nberra vísinda- og
nu. Frelsi í banka-
arlegt afl, atvinnu-
að langþráða festu
rirtækja á erlenda
þjóðarbúsins hefur
því ekki á óvart að
undi eru góðæris-
er einna helst það
tið til okkar helstu
r verkefni. Of lítill
yfirvofandi skatta-
æðulausra lífeyris-
ríkisstjórna ESB.
ungs fólks í lönd-
prósent og að ein-
rinum 55 til 65 ára
í skelfileg, og hlýt-
ári hjá okkur um
áta sem engin séu
na hafa aukist og er
verði nýttur til að
anlega eignaaukn-
ar allar gáttir lána-
i það til aukinnar
fið að við eigum að
nýta alla þá lánamöguleika sem í boði eru. Því fyrirkomu-
lagi hefur ekki verið breytt að það kemur að skuldadögum.
Í þessu efni eins og svo mörgum öðrum er meðalhófið af-
farasælast. Hækkandi gengi íslensku krónunnar hefur
freistað margra til að taka lán í erlendri mynt. Nauðsyn-
legt er að hafa hugfast að meginástæða fyrir háu gengi
krónunnar nú eru miklar virkjana- og álversframkvæmdir.
Að lokum hlýtur gengi krónunnar að endurspegla íslenskt
efnahagslíf, framleiðslugetu atvinnuveganna. Þegar dreg-
ur úr áhrifum þeirra framkvæmda mun gengi íslensku
krónunnar aðlagast nýrri skipan. Reynslan af glanna-
legum veðmálum með gjaldeyri ætti að vera öllum í fersku
minni. Frelsinu fylgir ábyrgð.
Sjálfstæðisflokkurinn hefur alla tíð barist fyrir því að
innleiða samkeppni á sem flestum sviðum efnahagslífsins.
Gleðiefni er hversu mjög því verki hefur miðað á und-
anförnum árum. Samkeppnislöggjöfin er til stöðugrar end-
urskoðunar og mestu varðar að ríkisvaldið hefur dregið sig
út úr rekstri margvíslegra fyrirtækja og ber sölu ríkis-
bankanna þar hæst. Stöðugleiki, lágir skattar, skýrar og
skilmerkilegar leikreglur, greiður aðgangur að fjármagni;
allt stuðlar þetta að heilbrigðri samkeppni. Arnljótur
Ólafsson þingmaður og prestur skildi vel mikilvægi sam-
keppninnar. Í riti sínu, Auðfræði, lét hann svo um mælt:
„Samkeppnin er sjálf eigi annað en mannfrelsið, hún er
kjörfrelsi, frelsi í vinnu og atvinnu, frelsi í viðskiptum,
frelsi til að ljá og selja, leigja og kaupa.“ Að baki barátt-
unnar fyrir samkeppni er sjálf krafan um mannfrelsi. Liðið
er á aðra öld síðan séra Arnljótur reit bók sína. Boðskap-
urinn er þó enn í fullu gildi. Forystumenn ríkisstjórnarinn-
ar hafa á undanförnum misserum lagt á það þunga áherslu
að samkeppni eigi að verða öllum til hagsbóta. Samkeppni
er viðvarandi ástand, henni lýkur ekki með því að örfáir
menn nái heljartaki á einstökum mörkuðum. Samkeppni er
kröfuhörð, tímafrek og í eðli sínu endalaus. Það er því al-
þekkt að viðskiptaforkólfar um allan heim sjá sér hag og
hægindi í því að takmarka samkeppni, eins og þeir geta.
Þetta er ekki rifjað upp neinum til áfellis. Þessi freisting
liggur í mannlegu eðli. Eða hvernig halda menn að dáðustu
knattspyrnumenn, uppfullir af sönnum íþróttaanda,
myndu haga sér, ef enginn væri dómari eða línuverðir í
þeirra leik, svo ekki sé talað um að þeir gætu ráðið því
hverjir skipuðu lið andstæðinganna og þannig fram eftir
götunum. Íslenska hagkerfið er smátt og því rík skylda á
stjórnvöldum að reyna að stuðla að virkri samkeppni.
Þrjóti samkeppnina, þrýtur frelsið. Nú liggja fyrir áætl-
anir um breytt skipulag þeirra stofnana sem hafa eftirlit
með samkeppni. En eftirlit og reglur geta einungis komið
að takmörkuðu gagni. Knattspyrnudómarar eiga ekki að
ráða þróun knattspyrnuleiks og eins varðar mestu að for-
ystumenn í íslensku viðskiptalífi skapi sjálfir hið rétta and-
rúmsloft í kringum sig og sýni ábyrgð í störfum sínum.
Gott viðskiptasiðferði og heiðarleiki er margfalt mikilvæg-
ara en allir eftirlitsmenn hins opinbera samanlagðir.
IV
Í aðdraganda síðustu kosninga lofuðu Sjálfstæðisflokk-
urinn og Framsóknarflokkurinn, að skattar yrðu lækkaðir
myndarlega á kjörtímabilinu. Á síðasta vorþingi var sam-
þykkt að lækka og samræma erfðafjárskatt. Ákveðið hefur
verið að fella niður sérstakan hátekjuskatt, enda hafði því
verið lofað af Sjálfstæðisflokki og Alþýðuflokki að hann
væri aðeins tímabundinn. Á haustþingi var samþykkt að
lækka tekjuskatt einstaklinga um fjögur prósentustig og
fella niður eignaskatt. Einnig liggur fyrir, staðfestur í
stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar, vilji til að lækka virð-
isaukaskatt á nauðsynjum. Þessar lækkanir koma í kjölfar
annarra skattalækkana undanfarinna ára. Miklu skiptir að
á sama tíma og skattar eru lækkaðir er dregið úr skuldum
ríkissjóðs og útgjöld til mikilvægra málaflokka s.s.
menntamála og heilbrigðismála halda áfram að vaxa. Þess-
ar skattalækkanir eru mikil kjarabót fyrir heimilin í land-
inu og eru grunnur að myndarlegum vexti kaupmáttar ráð-
stöfunartekna á næstu árum. Lágir skattar á fólk og
fyrirtæki eru forsenda öflugs atvinnulífs og fjölbreytts
mannlífs. Því minna sem hið opinbera tekur í sinn skerf af
launatekjum okkar því meira er frelsi okkar til að ráðstafa
þeim eins og okkur sjálfum best hentar. Samfélag, sem
byggir á lágum sköttum, en traustu velferðarkerfi er öfl-
ugra, fjölbreyttara og lífvænlegra en þau sem hvíla á hárri
skattheimtu. Starfsmenn stjórnarráðsins eru upp til hópa
vandað og samviskusamt fólk en eru ekki endilega best til
þess fallnir að ákveða í hvað laununum okkar er varið, um-
fram það sem nauðsynlegt er. Lærdómsríkt var að fylgjast
með málflutningi vinstri manna í umræðum um skatta-
lækkanir. Vinstri-grænir voru samkvæmir sjálfum sér og
vilja engar skattalækkanir. En talsmenn Samfylkingar
hlupu um víðan völl að venju og þurfti nokkra einbeitingu
til að fylgjast með síbreytilegum málflutningi þeirra. Fæst
af því sem þar kom fram kallar á ítarlega rökræðu. Haft
hefur verið á orði að skattalækkun nú sé óráð sökum þess
hversu vel árar í íslenskum þjóðarbúskap. Við því er að
segja að vandséð er hvenær heppilegra er að lækka skatta
ef ekki þá, þegar ríkissjóður stendur vel og tekjur hans eru
meiri en gjöld. Er það trúlegt að skattar verði lækkaðir
þegar ríkissjóður er rekinn með halla? Möguleg þenslu-
áhrif skattalækkunar verður að meta í ljósi stærðar hag-
kerfisins. Skattalækkanirnar sem nú hafa verið samþykkt-
ar munu nema rúmum tuttugu milljörðum árlega þegar
þær eru allar komnar til framkvæmda. Þjóðarframleiðslan
verður þá rúmir þúsund milljarðar. Eins má gera ráð fyrir
því að almenningur noti hluta skattalækkunarinnar til að
greiða niður skuldir sínar. Skattalækkanir nú ógna því
engan veginn stöðugleikanum í efnahagsmálum þjóðarinn-
ar. Til að vega á móti þenslu hefur ríkisstjórnin sett sér
langtímamarkmið um þróun ríkisútgjalda og er stefnt að
því að raunaukning þeirra verði innan við 2% á ári næstu
árin. Gangi það eftir mun ríkisvaldið draga úr umsvifum
sínum í hagkerfinu og hamla þar með gegn óæskilegri
þenslu.
Þegar Íslendingar gengu að kjörborðinu árið 2003 gátu
þeir treyst því að loforð Sjálfstæðisflokksins, um að skatt-
ar yrðu lækkaðir á kjörtímabilinu, yrði efnt fengi hann að-
stöðu til. Einn skugga ber þó á. Í höfuðborginni sitja
vinstri menn að völdum. Þvert á eigin loforð nota þeir nú
tækifærið og ræna borgarbúa enn einu sinni hluta þeirrar
kjarabótar sem felst í lækkun tekjuskatts. Hækkun út-
svars í höfuðborginni staðfestir skipbrot stjórnar R-
listans. Reykjavík var áður skuldlítið sveitarfélag sem í
krafti stærðar sinnar og traustrar stjórnar sjálfstæðis-
manna gat boðið borgarbúum góða þjónustu og lágt út-
svar. Nú hafa skuldir borgarinnar vaxið óhugnanlega og
álögur samt hækkað verulega. Reykjavík, sem áður var
fremst í flokki er nú í hópi þeirra sveitarfélaga sem lökust
kjör geta boðið íbúum sínum. R-listinn hefur gefist upp við
að stjórna borginni. Hann á að fara frá.
Liðin eru rúmlega níuhundruð ár síðan Gissur biskup Ís-
leifsson fékk í lög festa tíund hér á landi. Sagt var að sú
skattlagning hefði komist á sökum elsku landsmanna á
Gissuri, þótt ólíklegt sé að allir greiðendur hafi verið
spurðir. Tíundin var eignaskattur og höfum við Íslend-
ingar greitt slíkan skatt allt frá árinu 1096. Það eru því
merk tímamót í sögu landsins á þessum degi, er eigna-
skattur á einstaklinga og fyrirtæki fellur niður. Þótt eigna-
skatturinn sé gamall, er lítil eftirsjá að honum. Hann er í
eðli sínu óréttlátur skattur og kemur gjarnan þyngst niður
á þeim sem síst skyldi. Brottfall hans er mikil kjarabót fyr-
ir eldri borgara, sem margir hafa á langri ævi eignast
skuldlítið húsnæði og þurftu áður að greiða sérstakan skatt
fyrir ráðvendni sína og sparnað. Sjálfstæðisflokkurinn hef-
ur lengi barist fyrir lækkun eignaskatts. Lengi þorðu
menn þó ekki að vona að eignaskatturinn yrði afnuminn.
Það hefur nú verið gert með lögum. Við þurfum að greiða
eignaskatt einu sinni enn, vegna þess árs sem kveður í dag,
en síðan ekki meir.
V
Margvíslegt samstarf er nú á alþjóðavísu, enda margur
vandinn og vá, sem ekki er bundin takmörkum á borð við
landamæri. Slíkt samstarf leiðir stundum til þess að mögu-
leikar einstakra landa til að koma hlutum fyrir eftir eigin
höfði minnka til muna. Ekki er endilega víst að það sé alltaf
til bóta. Það er öruggt að hið alþjóðlega samstarf dregur
verulega úr lýðræðisáhrifum, að minnsta kosti verður
ákvörðunin æ fjarlægari rótum lýðræðis. Stórar ákvarð-
anir eru nú orðið iðulega teknar á svonefndum leiðtoga-
fundum af margvíslegu tagi. Óþekkt er að aðdragandi
slíkra ákvarðana sé á þjóðþingum, sem eru þó grundvöllur
valda flestra leiðtoga. Málin eru fyrst send þingunum eftir
leiðtogafundina og þá standa þingin frammi fyrir gerðum
hlut og geta engu breytt vegna þess að þá yrði alþjóðlegt
samstarf í uppnámi. Í þessari þróun hlýtur að felast mikill
lýðræðislegur vandi, sem fyrr eða síðar verður að taka á.
VI
Hörmungarnar í framhaldi af jarðskjálftunum í Asíu eru
yfirþyrmandi og óhugnanlegar. Vissulega hefur manntjón
af mannavöldum iðulega verið meira en þetta og eru nýleg
dæmi frá Afríku til um það. Er reyndar mikið umhugs-
unarefni hvers vegna alþjóðasamfélagið tekur hörmung-
artíðindum frá þeirri álfu af meira tómlæti en því sem ann-
ars staðar gerist. En það er hið fyrirvaralausa ógnarafl
eyðileggingarinnar í Asíu, sem er svo æpandi við síðustu
atburði. Maðurinn hefur aldrei verið fyrirferðarmeiri og
máttugri á jarðkringlunni en nú. En afl hans og tækni
mega sín einskis, þegar náttúruöflin láta rækilega til sín
taka. Á hinn bóginn er það fagnaðarefni að samkennd og
samhjálp í neyð er vaxandi í veröldinni og því er hægt að
létta þeim róðurinn sem fyrir áföllum verða. Ísland mun nú
sem endra nær leggja sitt af mörkum í þeim efnum.
Ég þakka löndum mínum samstarf og kynni á liðnu ári
og bið íslenskri þjóð heilla og blessunar á nýju ári.
herra, formaður Sjálfstæðisflokksins
ÁRAMÓT
Morgunblaðið/Kristinn