Morgunblaðið - 31.12.2004, Qupperneq 34

Morgunblaðið - 31.12.2004, Qupperneq 34
34 FÖSTUDAGUR 31. DESEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ DAGLEGT LÍF S low Food eru alþjóðleg samtök sem stofnuð voru árið 1986 á Ítalíu. Í stuttu máli beitir Slow Food sér fyrir því að vernda bragðgæði gegn hrað- virkum framleiðsluaðferðum og skyndibitamenningu með starfsemi sem nú teygir sig til um það bil 100 landa. Slow Food stundar ýmsa kynningarstarfsemi til að efla mat- armenningu og bragðmenntun auk þess að vinna almennt að fjöl- breytni í framboði matar og drykkjar og varna því að menning- arleg hráefni deyi út. Slow food teygir nú anga sína til Íslands og tóku nokkrir Íslend- ingar þátt í alþjóðlegum viðburði samtakanna í Tórínó á Ítalíu ný- verið. Einn af stofnendum Íslands- deildar Slow Food er Eygló Björk Ólafsdóttir og svaraði hún nokkr- um spurningum um Slow Food og þá hugmyndafræði sem að baki liggur. Unnið út frá handbragði Er eitthvað til sem heitir hægur matur eða hæg(slow) matseld? „Já, það má segja það, þó að Slow Food verði best lýst sem hug- myndafræði eða hreyfingu. Það hráefni eða matvæli sem Slow Food tekur upp á arma sína er gjarnan „artisan“, það er matvæli unnin samkvæmt handbragði og af þeirri virðingu sem hefur gegnum tíðina skapað viðurkennda hefð hvað varðar gæði og útlit. Slíkir framleiðendur eru oft líklegri til að virða upprunaleg einkenni vör- unnar, merki um handbragð, verk- lag og alúð handverksmannsins sem er nauðsynlegt til að gera hrá- efnið að þeirri listasmíð sem það best getur orðið. Í Slow Food eru menn ekki mikið gefnir fyrir mála- miðlanir í matvæla- og vínfram- leiðslu, til dæmis að fórna bragð- gæðum í sparnaðar- og hagræðingarskyni.“ Hvað lærir fólk af Slow Food? „Ofuráhersla á lágt vöruverð hefur verið að ógna menningar- legum matvælum og gæðafram- leiðslu víða um heim. Slow Food vinnur að því að gera almenning færari um að þekkja og meta raun- veruleg bragðgæði og standa vörð um að matarmenning glatist ekki, eða verði of einsleit. Segja má að Slow Food fjalli meira um hráefni og hugmyndir í matargerð en matseldina sem slíka. Aðild að Slow Food færir manni ákveðna þekkingu og hæfni til að velja sér besta hráefnið í hverjum efnislið fyrir sig, og þann- ig verður matseldin einfaldari og betri. Þá hugsar Slow Food-fólk gjarnan út frá land- eða menning- arsvæðum. Þegar sælkerinn er far- inn að setja saman mat- og vínseðil út frá uppruna, svæði eða öðrum slíkum vangaveltum kemur skemmtileg tenging í matseldina, sem færir okkur líka fleiri um- ræðuefni við matarborðið.“ Hvernig kemst maður í snert- ingu við hreyfinguna ? „Alþjóðlega fara fram viðburðir á vegum samtakanna t.d. risam- arkaðurinn Salone del Gusto eða Höll bragðlaukanna. Annað hvert ár hópast fólk til Tórínó til að taka þátt í þessum viðburði, enda er mikil fræðslustarfsemi, smakkanir og kvöldverðir skipulagðir af Slow Food þessa daga, auk þess sem starfræktur er 10.000 fermetra markaður með úrvals matvæli og vín. Hér heima er lítill en stækk- andi hópur meðlima sem tvisvar til fjórum sinnum á ári stendur fyrir uppákomum, nú síðast var farin hópferð á Salone del Gusto.“ Þurrkuð túnfiskshrogn Eygló gefur hér eitt einfalt dæmi um rétt sem byggist á dæmi- gerðu Slow Food-hráefni, sem kynnt var á Salone del Gusto, Bott- arga di Tonno di Favione, það er þurrkuð túnfiskhrogn frá Favione á Sikiley. „Bottarga di Tonno er mikið not- uð í matargerð á Sikiley, oft er hennar neytt í forrétt í félagi við ferska tómata og góða ólífuolíu, en einnig er Bottarga afbragð út á spaghetti. Þessi Bottarga er ein- stök að bragðgæðum, sölt og ríkjandi, ber uppi hvaða rétt sem er nær ein og óstudd. Í Favignana hafa menn stundað vinnslu á túnfiskafurðum í ein- stakri vinnslustöð sem heimildir eru um að hafi þegar verið í notk- un á árinu 50 eftir Krist. Hægt og rólega hefur túnfiskstofninn minnkað mjög í hafinu við Favign- ana, sem stofnar þessari ævafornu vinnslustöð og hefð í hættu. Þessi vara er nú undir sérstökum vernd- arvæng Slow Food, sem hefur sett á stofn ákveðinn hóp eða Presidia sem fær það hlutverk að hlúa að þessari gömlu framleiðsluaðferð og finna leiðir til að koma í veg fyrir að hún hreinlega leggist af. Í þennan rétt notaði ég úrvals ólífuolíu frá Sikiley, hægþurrkað ítalskt pasta gran duro, góðan hvít- lauk, steinselju og túnfiskhrognin frá Favignana. Sjóðið pastað samkvæmt leið- beiningum á pakka, hitið ólífu- olíuna við miðlungshita á pönnu, mýkið saxaðan hvítlaukinn í olíunni um stund, passið að brenni ekki. Skerið túnfiskhrognin í teninga og setjið út í réttinn í lokin, ásamt saxaðri steinselju. Blandið sigtuðu spaghetti vel saman við, og skenkið því næst á diska með smáskvettu af ólífuolíunni. Ferskt, úrvals hvít- vín frá Sikiley myndi setja punkt- inn yfir i-ið. Bottarga di Favignana er reynd- ar ekki fáanleg á Íslandi, enda er um mjög takmarkaða framleiðslu að ræða, slíka gersemi rekur ekki á fjörur manns nema við mjög sér- stök tækifæri. Prófið því uppskrift- ina með öðru uppistöðuhráefni sem sælkeraverslanir hér kunna að hafa á boðstólum,“ sagði Eygló B. Ólafsdóttir og bætti því við að Slow Food rekur heimasíðu, www.slowfood.com, og þar er hægt að skrá sig sem meðlim og fylgjast með starfseminni.  MATUR | Annað hvert ár er haldin matvælasýning í Tórínó á Ítalíu á vegum Slow Food-hreyfingarinnar Matarmenning og bragðmenntun Bottarga, eða þurrkuð túnfiskshrogn eru afbragð út á spaghetti. Morgunblaðið/Kristinn Eygló B. Ólafsdóttir með hráefni valið í anda Slow Food. www.slowfood.com www.terramadre2004.com svg@mbl.is G amlársdagur er runn- inn upp. Hjá flestum mun kvöldið í kvöld einkum snúast um gleði og glaum, góð- an mat og drykk og samveru með ættingjum eða vinum. Nýtt ár er að ganga í garð og því fylgir eft- irvænting vegna þess sem koma skal. En á gamlársdag erum við þó mörg hver með hugann við líð- andi ár og helstu atburði þess. Enda gera fjölmiðlar mikið af því á þessum degi að rifja stór- viðburði árs- ins upp fyrir almenningi. Ég er ein þeirra sem fylgjast af áhuga með fréttaannálum ársins í sjónvarp- inu að loknum hátíðarkvöldverði á gamlárskvöld. Fyrst koma inn- lendar svipmyndir ársins og þar á eftir þær erlendu. Það er þá sem ég missi gjarnan lystina á kon- fektinu í skálinni fyrir framan mig og hætti að sötra jólaölið. Á milli skemmtifrétta af ýmsu tagi, svo sem frétta af nýjustu gsm- símunum, nýfæddum börnum fræga fólksins, talandi páfagauk- um eða ámóta fyrirbærum – birt- ast myndir af allslausu fólki í þró- unarlöndum og sundurtættum líkum karla, kvenna og barna á átakasvæðum. Svo ekki sé nú tal- að um myndir af fórnarlömbum náttúruhamfara líkt og þær sem birst hafa okkur frá Asíu frá því á annan dag jóla. Það er óneitanlega óþægileg til- finning sem því fylgir að sitja spariklæddur heima í stofu og horfa á brot af óréttlæti heimsins í einum klukkustundarlöngum fréttaþætti, rétt áður en flugeld- arnir fara að springa og kampa- vínstapparnir rjúka úr flöskum. Þetta á að minnsta kosti við um mig. Margs konar hugsanir leita á huga minn – heldur mótsagna- kenndar ef satt skal segja. Í fyrsta lagi vekja annálarnir ár- legu hjá mér vonleysi, vanmátt- artilfinningu, reiði og sorg. Fólk heldur áfram að svelta, áfram eru saklausir drepnir og milljónir íbúa í þriðja heiminum halda áfram að þræla við bág kjör svo við getum haldið áfram neysluæð- inu. Og myndirnar frá Indlands- hafi undanfarna daga sýna vel hversu hverfult lífið getur verið. Meira en 100.000 manns eru látin eftir hamfarir sem gengu yfir á nokkrum klukkustundum og margar milljónir manna hafa misst heimili sín. Fólkið sem setti niður í töskur sínar í Stokkhólmi eða Gautaborg nokkrum dögum fyrir jól á leið í sólarfrí til suður- stranda Taílands renndi auðvitað ekki grun í hvað beið þess. „Lífið er fullt af eymd, einmanaleika og þjáningum og því lýkur allt of fljótt,“ er haft eftir hinum kald- hæðna Woody Allen, en auðvitað er nokkuð til í þessum ummælum hans. Þegar ég horfi á erlendu svip- myndirnar gera þó einnig annars konar tilfinningar vart við sig. Ég fæ gríðarlegt samviskubit yfir því að ég sem Vesturlandabúi, sem hefur allt til alls, skuli ekki leggja meira af mörkum en ég geri til þess að reyna að stuðla að bætt- um heimi. En um leið og sam- viskubitið nagar mig færist yfir mig löngun til þess að gera eitt- hvað í málunum. Ég vil geta verið stolt af framlagi Íslendinga, einn- ar ríkustu þjóðar heims, til þeirra sem minna mega sín. Sumar þær hörmungar sem eiga sér stað í heiminum er ógerningur að koma í veg fyrir. Í slíkum tilvikum, eins og þegar náttúruhamfarir eiga sér stað, getum við ekki annað en reynt að hjálpa þeim sem eiga um sárt að binda. Ekki veit ég hvort hægt er að segja að viðbrögð Ís- lendinga við flóðunum í Asíu hafi verið stórkostleg. Þegar þetta er ritað hafa um 16 þúsund Íslend- ingar hringt í söfnunarsíma Rauða krossins og lagt 1.000 krónur af mörkum. Ríkisstjórnin hefur gefið fimm milljónir og nokkur fyrirtæki hafa einnig lagt fram fé. Ég held að við getum gert miklu betur í þessu máli líkt og í svo mörgum öðrum. Það á til dæmis við um framlög okkar til þróunarmála. Þau þarf að hækka mikið og það sem fyrst, við höfum fyrir löngu orðið okkur til skamm- ar á þessu sviði. En kannski er mikilvægast af öllu fyrir Íslendinga að þeir geri sér grein fyrir því að fólkið í þriðja heiminum, eða fólk sem til- heyrir öðrum menningarheimum en við, er manneskjur rétt eins og ég og þú. Mannréttindi eru ekki afstæð – þá væru þau ekki rétt- indi. Því miður líta of margir hér á landi fyrst og fremst á bágstatt fólk á borð við hælisleitendur sem „vandamál“. Þeir hinir sömu telja að þessu fólki beri að halda fjarri okkar ágæta Íslandi sé þess nokk- ur kostur. Gjarnan er vísað til ná- granna okkar á Norðurlöndunum og bent á að þar hafi innflytj- endur skapað mikil vandamál. Um þetta hef ég það að segja að ég hef tvívegis búið um skeið í Danmörku. Því miður sýndust mér mörg vandamálin þar orsak- ast af neikvæðu viðhorfi Dana sjálfra til innflytjenda. Við myndum eflaust uppskera mikið ef við reyndum oftar að kynnast fleiri hliðum á mannlífinu en þeirri sem snýr að litla Íslandi. Sem betur fer eru sumir að reyna að brjóta ísinn í þessum efnum. Á það við um Jóhönnu Kristjóns- dóttur blaðamann en um jólin las ég alveg frábæra bók eftir hana. Jóhanna, sem dvalið hefur lang- dvölum í Austurlöndum og kynnt sér líf arabískra kvenna, ræðir í bókinni við fjölmargar konur í nokkrum arabískum samfélögum. Eftir að hafa lesið bókina er ég sannfærð um að það sem ég á sameiginlegt með þessum konum er miklu meira en það sem er ólíkt með okkur. Það er ómetanlegt að fá innsýn inn í líf fólks sem maður veit annars svo lítið um. Gleðilegt ár! Í öruggri fjarlægð En kannski er mikilvægast af öllu fyrir Íslendinga að þeir geri sér grein fyrir því að fólkið í þriðja heiminum, eða fólk sem tilheyrir öðrum menningarheimum en við, er manneskjur rétt eins og ég og þú. Mannréttindi eru ekki afstæð – þá væru þau ekki réttindi. VIÐHORF Eftir Elvu Björk Sverrisdóttur elva@mbl.is
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.