Morgunblaðið - 31.12.2004, Side 56
56 FÖSTUDAGUR 31. DESEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ
Stuttmynd sem Sigurjón Sighvatsson framleiðir erkomin á lokaforvalslista fyrir næstu Óskarsverð-launahátíð í flokki stuttmynda. Myndin er á lista
ásamt 11 öðrum myndum en tilkynnt verður hvaða fimm
af þeim verða tilnefndar undir lok janúar á komandi ári
en alls voru 800 myndir sendar inn. Myndin ber nafnið
Everything In This Country Must og er gerð eftir smá-
sögu írska rithöfundarins Colum McCann, sem hefur
vakið athygli sem einn af efnilegri rithöfundum sinnar
kynslóðar þarlendis. Leikstjóri er annar ungur Íri, Gary
McHendry. Myndin er 18 mínútur að lengd, var tekin
upp í Belfast og fjallar um átökin milli Breta og Norður-
Íra. „Myndin segir frá átökunum á ákaflega dramatískan
hátt en þetta er mynd í klassískum stíl. Hún var frum-
sýnd á virtri kvikmyndahátíð í Telluride og var tekið
mjög vel. Við sendum hana í Óskarinn í framhaldi af því,“
segir Sigurjón.
McCann og McHendry skrifuðu handritið í samein-
ingu en McCann þykir vera sérstaklega næmur á mann-
leg samskipti og smáatriði í sögu. Hann fæddist í Dublin
árið 1965, er nú búsettur ásamt fjölskyldu í Bandaríkj-
unum og hefur hlotið margvísleg verðlaun fyrir skrif sín.
McHendry er að þreyta frumraun sýna á hvíta tjaldinu
en hefur hlotið mikla reynslu við auglýsingagerð.
„Þetta er mjög spennandi,“ segir Sigurjón en ef svo
fer að myndin verði tilnefnd, kemur í ljós hinn 27. febr-
úar á næsta ári hvaða mynd hreppir verðlaunin þegar
Óskarsverðlaunahátíðin fer fram í Los Angeles.
Annar ungur leikstjóri
Sigurjón og fyrirtæki hans Palomar Pictures er líka
framleiðandi á myndinni Pretty Persuasion. Myndin hef-
ur verið valin til að taka þátt í aðalkeppninni í Sundance
og er leikstýrt af öðrum ungum leikstjóra, Marcos Siega.
Kvikmyndahátíðin í Sundance hefst 20. janúar og er
myndin ein af 12 myndum sem valdar voru í aðalkeppn-
ina af um 800 myndum. Þetta verður jafnframt frumsýn-
ing myndarinnar en Sundance er aðalhátíð sjálfstæðra
kvikmynda í heiminum.“
Sigurjón hefur unnið með báðum þessum leikstjórum
síðustu ár hjá Palomar og segja má að hann hafi alið þá
upp. „Þetta er fyrsta mynd Marcosar. Hann er þekktur
líka sem auglýsinga- og tónlistarmyndbandaleikstjóri.
Hann hefur meðal annars gert myndbönd fyrir hljóm-
sveitirnar Green Day, Blink 182 og System of a Down,“
segir hann en Siega er fæddur árið 1969 í New York.
Wood og Woods
Aðalhlutverkið er í höndum Evan Rachel Wood en hún
lék einmitt aðalhlutverkið í myndinni í Thirteen sem
fjallaði á raunsæjan hátt um líf táninga í miðstétt-
arbænum San Fernando Valley. Í Pretty Persuasion
færist leikurinn hinum megin við hæðina en myndin ger-
ist í einkaskóla í Beverly Hills og þykir vera í anda
mynda á borð við Heathers og American Beauty. „Þetta
er flókin ádeila á líf þeirra forréttindameiri í Beverly
Hills í dag,“ segir Sigurjón en myndin fjallar um þrjár
ungar stúlkur, sem ákveða að kæra leiklistarkennara
sinn fyrir kynferðislega áreitni, án þess að það sé neinn
fótur fyrir ákærunni. Stórleikarinn James Woods fer
með hlutverk föður Evan Rachel Wood í myndinni. Af
fleiri leikurum í myndinni má nefna Ron Livingston,
Selmu Blair og Jane Krakowski.
Eitt af einkennum Sigurjóns er að hann vinnur oft
með ungum og upprennandi leikstjórum. Hann er
ánægður með að svona vel hafi til tekist með þeirra
fyrstu verk og hyggur á áframhaldandi samstarf við þá.
„Ég mun framleiða næstu mynd Marcusar, sem heitir
Killer Marriage. Við vorum byrjaðir að vinna að henni
fyrir nokkru síðan áður en þessi kláraðist. Það er mjög
gleðilegt að ná þessum árangri með þessar myndir þó
það sé ekki lengra komið með þær ennþá. Þetta sýnir
það að leikstjórarnir og efnið vekur áhuga,“ segir hann.
Gætu orðið umdeildar
„Ég held að báðar myndirnar eigi eftir að vera um-
deildar. Þótt efnistök þeirra séu mjög ólík held ég að
báðar verði umdeildar og muni vekja athygli. Ekki bara
fyrir efnisval heldur einnig efnistök. Ég er mjög glaður
yfir því sjálfur að hvort sem önnur myndin verður loka-
tilnefnd til Óskarsins eða hin vinnur Sundance þá er frá-
bært að þær séu búnar að fá þessa viðurkenningu og
vekja þessa athygli,“ segir Sigurjón, sem þorir ekki að
spá hvernig fer með Óskarstilnefningu.
„Það er útilokað að spá en aftur á móti kom mér ekki á
óvart að hún kæmist allavega þetta langt því þetta er
sannarlega ein besta stuttmynd sem ég hef gert,“ segir
hann.
Sigurjón segir að sjaldan hafi verið meira að gera hjá
honum í kvikmyndunum. Til viðbótar við þessar tvær er
hann með þrjár aðrar myndir í lokavinnslu. A Little Trip
to Heaven er í eftirvinnslu í Banaríkjunum og tónlist-
armynd Ara Alexanders, Gargandi snilld, er á lokastigi.
„Síðan er ég þar að auki að ljúka við klippingar á heim-
ildarmynd um breska grínistann Eddie Izzard en hún
heitir Diva 51,“ segir hann.
Bandarísk mynd tekin á Íslandi
Sigurjón segir að það líti því út fyrir góða byrjun á
árinu en hann fer líka í tökur á tveimur eða þremur
myndum á næsta ári. Eins og margir vita var A Little
Trip to Heaven, mynd leikstjórans Baltasar Kormáks
með Forest Whitaker í aðalhlutverki, tekin að mestu
leyti upp hérlendis. Framhald verður á því á næsta ári að
bandarísk mynd á vegum Sigurjóns verði tekin upp á Ís-
landi. „Fyrsta myndin er erlend spennumynd, The Last
Winter, sem ég er meðframleiðandi að ásamt Zik Zak og
Jeffrey Levy-Hinte hjá Antidote Films, sem framleiddi
Thirteen. Sú mynd verður tekin upp á Íslandi. Þetta er
amerísk mynd sem á að gerast í Alaska en verður tekin
öll á Íslandi. Tökur hefjast væntanlega í mars eða apríl.“
Kvikmyndir | Sigurjón Sighvatsson með margar myndir í gangi
Í lokaforval Óskarsins
og aðalkeppni Sundance
Unga leikkonan Evan Rachel Wood leikur aðalhlutverkið í myndinni Pretty Persuasion, sem Sigurjón framleiðir
og tekur þátt í aðalkeppninni í Sundance. Hér er hún í myndinni Thirteen ásamt Holly Hunter.
Morgunblaðið/Þorkell
ingarun@mbl.is
Sigurjón Sighvatsson
er með mörg járn í eld-
inum um þessar mundir.