24 stundir - 19.12.2007, Síða 14
14 MIÐVIKUDAGUR 19. DESEMBER 2007 24stundir
24stundir
Útgáfufélag:
Ritstjóri:
Fréttastjórar:
Ritstjórnarfulltrúi:
Árvakur hf.
Ólafur Þ. Stephensen
Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir
Þröstur Emilsson
Elín Albertsdóttir
Auglýsingastjóri: Steinn Kári Ragnarsson Ritstjórn & auglýsingar: Hádegismóum 2, 110 Reykjavík
Aðalsími: 510 3700 Símbréf á fréttadeild: 510 3701 Símbréf á auglýsingadeild: 510 3711
Netföng: 24stundir@24stundir.is, frettir@24stundir.is, auglysingar@24stundir.is
Prentun: Landsprent ehf.
Þrátt fyrir viðleitni til einkavæðingar undanfarin ár hefur ríkisbáknið
þanizt út. 24 stundir birtu í gær fróðlegar upplýsingar um fjölgun rík-
isstarfsmanna, úr svari Árna M. Mathiesen fjármálaráðherra til þing-
mannsins Ármanns Kr. Ólafssonar. Þar kemur í ljós að starfsmönnum rík-
isins hefur fjölgað ívið hraðar en starfsfólki á almennum vinnumarkaði
undanfarinn áratug.
Ef áhrif af sameiningu stóru spítalanna undir hatti ríkisins eru undan-
skilin fjölgaði ríkisstarfsmönnum á þessu tímabili um 20,5%. Á sama tíma
var fjölgun á vinnumarkaðnum í heild 19,5%. Pétur Blöndal, formaður
efnahags- og skattanefndar Alþingis, bendir á það í 24 stundum í gær, að
ríkisvæðingin éti þannig jafnóðum upp árangurinn af einkavæðingunni.
Það er áhyggjuefni. Árangurinn af því að koma fyrirtækjum og stofn-
unum úr eigu hins opinbera og í hendur einkaframtaksins hefur verið
augljós og ríkisbankarnir eru þar skýrasta dæmið. Yfirleitt græða bæði
starfsmennirnir og viðskiptavinirnir á einkavæðingu.
Ný störf sem verða til hjá ríkinu eru hins vegar störf sem verða til á
ósveigjanlegum vinnumarkaði með niðurnjörvuðu launakerfi og lágum
launum. Þjónustan, sem viðkomandi stofnanir veita, er iðulega innt af
hendi án þess að nokkur samkeppni sé fyrir hendi, sem kemur niður á
hagsmunum neytenda.
Enn er talsvert til af dæmum um ríkisrekstur, sem er einfaldlega óþarfi
og tímaskekkja. Það á til dæmis við um verzlunarrekstur þess í Áfengis- og
tóbaksverzluninni og Fríhöfninni á Keflavíkurflugvelli. Stóru tækifærin til
að fækka ríkisstarfsmönnum og efla samkeppni liggja hins vegar í mennta-
og heilbrigðiskerfinu, eins og Pétur Blöndal bendir á í blaðinu í gær.
Þróun háskólakerfisins undanfarin ár sýnir hvaða
árangri það getur skilað að gefa einkaframtakinu laus-
an tauminn í almannaþjónustu. Einkareknir háskólar
hafa veitt þeim ríkisreknu samkeppni, sem þeir hafa
brugðizt myndarlega við. Hið opinbera greiðir áfram
háskólanám að stærstum hluta og lánar fólki fyrir
skólagjöldum þar sem þau eru innheimt. Fleiri njóta
þjónustu háskólanna og allir fá betri þjónustu. Starfs-
mennirnir eru ánægðari og betur haldnir.
Sambærilegum árangri er hægt að ná í heilbrigð-
iskerfinu, þar sem fjölgun ríkisstarfsmanna hefur ver-
ið mest. Þar þarf að færa fleiri verkefni í hendur einka-
framtaksins, þótt ríkið haldi áfram að greiða fyrir
þjónustuna.
Báknið burt
SÆKTU LEIÐARANN Á WWW.MBL.IS/PODCAST
Ef skammdegið er að drepa menn
úr þunglyndi ættu þeir að skoða
jólalag Orkuveitu Reykjavíkur á
YouTube. Það er
frábært!
Sjálfur hef ég
ekki fengið snert
af þunglyndi
nema dagspart
hér um árið þegar
DV mældi Sam-
fylkinguna í 11
prósentum. Síðan
hefur það allt horft til betri vegar.
Ég er kominn í hæðir 38% og í
dag þekki ég ekki pólitíska dep-
urð nema af afspurn innan úr
Framsókn. […]Ég hef sannast
sagna glott við fót síðan í gær að
ég sá fréttirnar í sjónvarpinu um
að Landsvirkjun hygðist nú feta í
útrásarspor REI.
Össur Skarphéðinsson
eyjan.is/goto/ossur
BLOGGARINN
Jólalag OR
Þó að Geir H. Haarde, forsætis-
ráðherra, hafi sagt í kvöldfréttum
í gær að ekki væru háværar radd-
ir uppi um einka-
væðingu Lands-
virkjunar getur
hann ekki neitað
því að þær eru til
staðar, einkum
innan Sjálfstæð-
isflokksins. Það
er enginn sam-
hljómur í þeim
efnum. Þeir eru til sem vilja
stokka þessa hluti upp og hugsa
hlutina með öðrum hætti. Það
kristallast vel nú af ummælum
Gísla Marteins Baldurssonar, for-
manns borgarstjórnarflokks
Sjálfstæðisflokksins. Það hefur
verið talað með þessum hætti í
ræðu og riti víða ...
Stefán Friðrik Stefánsson
stebbifr.blog.is
Einkavæðing
Nú í vikunni bar það til tíðinda
í heimi viðskiptanna að skipt
var um forstjóra í Icelandair
Group. Úr starf-
inu fór maður
sem hafði unnið
um áratuga
skeið í flug-
bransanum og
inn kom Björg-
ólfur Jóhanns-
son sem hefur
aðallega reynslu
úr sjávarútvegi og var síðast
formaður LÍÚ og forstjóri
stærsta fisksölufyrirtækisins,
Icelandic Group. Það er ekki
hægt að segja að hann skili
góðu búi. Útvegsmenn hafa ver-
ið að vola út sérstaka skatta-
lækkun vegna slæmrar rekstrar-
afkomu ...
Sigurjón Þórðarson
www.sigurjonth.blog.is
Forstjóraskipti
Ólafur Þ.
Stephensen
olafur@24stundir.is
Enn og aftur er komin upp umræða
um þjófnað í verslunum og allt
starfsfólk í verslunargeiranum liggur undir grun.
Við hjá VR furðum okkur á því að forsvarsmenn
verslana rjúki upp til handa og fóta æ ofan í æ
þegar þessi umræða fer af stað og þjófkenni
starfsfólk sitt - saki það um að stela vörum fyrir
milljónir króna á hverjum degi.
Yfirlýsingar á við þær sem birtust hér í blaðinu í
gær, um að þjófnaður starfsfólks á Íslandi sé
með því mesta sem þekkist í Evrópu, eru alvar-
legar. Er nema von að félagsmönnum VR sárni
að þurfa að sitja undir slíku? Við höfum ítrekað
fengið kvartanir frá starfsmönnum verslana sem
hafa að ósekju legið undir ásökunum um þjófn-
að.
Hér er ég ekki að bera blak af þeim sem fara
rænandi og ruplandi í verslunum á Íslandi.
Þjófnaður er glæpur. En ég tel mikilvægt að fara
varlega í að alhæfa á þann hátt sem ítrekað hefur
verið gert þegar þjófnað í verslunum ber á góma.
Starfsfólk í verslunum, rétt eins og allir aðrir,
hefur metnað til að sinna sínu starfi vel og af
trúmennsku. Væri ekki nær fyrir verslunareig-
endur að fá starfsfólkið í lið með sér og vinna að
því að koma í veg fyrir þjófnað?
Við höfum lagt til í kjarasamningaviðræðum að
tekið verði upp umbunarkerfi sem miði að því
að draga úr rýrnun í verslun, sama hvaða nafni
hún nefnist. Í umfjöllun í blaðinu hér í gær kom
fram að kostnaður vegna búðahnupls nemi
þremur milljörðum króna á ári.
Segjum sem svo að við gætum,
með sameiginlegu átaki vinnu-
veitenda og starfsmanna, dregið
úr þeim kostnaði um helming.
Hvað mælir á móti því að
starfsfólkið fái að njóta þess
ávinnings til jafns á við versl-
unareigendur? Hagsmunir versl-
unareigenda og starfsmanna
fara saman.
Höfundur er formaður VR
Allir liggja undir grun
ÁLIT
Gunnar Páll
Pálsson
gunnar@vr.is
Bækur þýska rithöfundarins og tónlistarmannsins Alexöndru
Kui eiga sér tryggan og sífellt stærri hóp aðdáenda, enda
tekst henni að byggja upp dulmagnaða spennu án þess að
fara troðnar slóðir. Bækur hennar ná stöðugt vaxandi
útbreiðslu, því hér er sleginn nýr tónn bæði hvað varðar stíl
og efnistök.
www.skjaldborg.is
Óvenjuleg og spennandi
skáldsaga um glæp