24 stundir - 19.12.2007, Blaðsíða 42

24 stundir - 19.12.2007, Blaðsíða 42
42 MIÐVIKUDAGUR 19. DESEMBER 2007 24stundir ÍÞRÓTTIR ithrottir@24stundir.is a Er árangur Jakobs því glæsilegri að Norðmenn eru al- mennt á mikilli uppleið í skíðaheimum og gera vel við sitt fólk. Jakob sýndi þó yfirburði sína er hann sigraði svig og stór- svigskeppnina með fjögurra sekúndna mun í báðum greinum. Gullknöttinn hlaut hann fyrir tveimur vikum og nú er hann formlega leikmaður ársins að mati Alþjóða knattspyrnusambandsins. 2007 fer því í sögubækur sem árið hans Kaká. Brasilíumaðurinn bráðungi er fyrir margt löngu orðinn þunga- vigtarmaður í liði AC Milan sem vann Meistaradeildina í vor og um helgina þaggaði hann niður í efa- semdamönnum þegar hann var pottur og panna í sigurleik AC Mil- an gegn Boca Juniors í heimsmeist- arakeppni félagsliða. Tveir helstu keppinautar hans um verðlaun þetta árið hafa verið Leo Messi og Cristiano Ronaldo en báðir þurftu aftur að bíta í súrt nú en þeir komu einnig til greina í keppninni um gullknöttinn. Athyglisvert er að bæði Kaká og Cristiano Ronaldo hafa á liðnum vikum lýst yfir áhuga að sparka bolta á Spáni í framtíðinni en báðir eru reyndar samningsbundnir langt fram í tímann hjá liðum sín- um. Óumdeilt hver er besti knattspyrnumaðurinn Árið hans Kaká Að vera með eða ekki aðvera með? Það er stóraspurn- ingin sem spænskir spyrja sig nú í aðdrag- anda hins klassíska leiks Barcelona og Real Madrid á sunnudaginn og eiga þar við Ronaldinho. Benda síðustu tölur úr Katalóníukjördæmi til þess að vegna fjarveru Leo Messi vegna meiðsla fái stjarn- an byrjunarliðssæti á nýjan leik enda alltaf blómstrað í þessum leikjum hingað til. Annar Börsungur,Thierry Henry, er 50/50 líklegur til að taka þátt en hann er byrjaður að æfa á ný eftir fjarveru vegna meiðsla. Körfuboltaséníið LeBron James hjá Cleveland Cavaliers varð í fyrrinótt yngsti leik- maður NBA til að skora níu þúsund stig og sökkti þar með nokkurra ára gömlu meti Kobe Bryant næsta auðveld- lega. Var James 22 ára og 352 daga en Bryant náði þessum áfanga 24 ára og 127 daga gamall. Munar því heilu ári og gott betur en eflaust verður þetta ekki eina metið sem James bætir næstu árin í NBA. James í níu þúsund stig Austurríski skíðakappinn Benjamin Reich þykir líkleg- astur til að standa uppi sem sigurvegari í heimsbik- arkeppninni í skíðaíþróttum samkvæmt könnun Eurosport og helstu veðbönkum. Askel Lund Svindal og Bode Miller eru nefndir sem helstu keppi- nautar hans í vetur en vetr- arvertíðin er rétt nýbyrjuð. Reich líklegur Badmintonstjarnan íslenska Ragna Ingólfsdóttir hefur leik í dag á sterku móti í Grikk- landi en það mót er jafnframt hennar síðasta á þessu ári. Er mikilvægt fyrir hana að standa sig vel enda gefur mót- ið stig á heimslistanum sem aftur er undirstaða þess að komast á Ólympíuleikana í Kína í sumar. Rögnu hefur ekki gengið sem best und- anfarið og þarf að hala inn fleiri stig en verið hefur. Spýta í lófa Hermann Hreiðarsson og Margrét Lára Viðarsdóttir voru í vikunni kjörin knatt- spyrnufólk ársins af hálfu KSÍ. Að valinu standa fjölmargir innan knattspyrnuheimsins íslenska og þótt bæði séu vel að heiðrinum komin og Mar- grét Lára sérstaklega skortir algjörlega rökstuðning vegna valsins. Hermann og Margrét Lára Eftir Albert Örn Eyþórsson albert@24stundir.is Franskir vísindamenn sem setið hafa með sveittan skalla undanfar- in misseri hafa loks reiknað út að eftir 52 ár sé afar ólíklegt og í raun útilokað að íþróttamenn setji fleiri heimsmet en þá verður orðin raunin. Ástæðan er sú að bestu íþróttamenn dagsins í dag ná að nota 99 prósent líkamslegs atgervis sem þeir búa yfir og að nokkrum árum liðnum verði hlutfallið 100 prósent og betur verði aldrei gert. Þótt ýmsir lyfti eflaust brúnum yfir slíkri niðurstöðu er ljóst að Frakkarnir hafa ýmislegt til síns máls. Niðurstöðurnar byggja þeir á rannsóknum á öllum heimsmet- um frá árinu 1896 en þá notuðu íþróttamenn 75 prósent þeirrar getu sem mannslíkaminn býr yfir. Ýtarleg úttekt á fimm greinum; frjálsum íþróttum, hjólreiðum, lyftingum, sundi og skautahlaupi leiðir þessa niðurstöðu í ljós. Og vísindamennirnir sem um ræðir eru engir aukvisar heldur koma úr ýmsum áttum og starfa fyrir hina virtu Irmes-stofnun. Úttekt íþróttadeildar 24 stunda á settum heimsmetum síðustu ár- in sem tekin var saman fyrir skömmu leiddi í ljós að heims- metum fer fækkandi og mörg hver eru orðin tíu til tuttuga ára gömul þrátt fyrir miklar framfarir í tækni og útbúnaði auk þess sem himinn og haf er milli þekkingar manna nú um áhrif æfinga, mataræðis og alls annars sem breytir meðal- manni í afreksmann og var fyrir 20 árum.  Engin heimsmet sett eftir 2060 að mati vísindamanna Toppnum náð fljótlega Ef marka má vís- indamennina fer hæðin í stangarstökkskeppnum ekki mikið hærra en þeg- ar er orðið. Lengra verður ekki komist SKEYTIN INN Jakob Helgi Bjarnason, tólf ára skíðakappi, gerði sér lítið fyrir og sigraði í tveimur alpagreinum með yfirburðum í sínum aldursflokki á einu sterkasta landsmóti Norð- manna í skíðaíþróttum, Lands- renn. Að auki varð hann annar í risastórsvigi þrátt fyrir að hafa alls ekkert æft þá grein að ráði fyrir leikana. Er framtíðin afar björt fyr- ir Jakob haldi hann þessu striki áfram. Landsrenn er með stærri mótum í Noregi og þátt taka allir helstu skíðakappar landsins. Er árangur Jakobs í því tilliti aldeilis frábær því Norðmenn eru á mikilli uppleið í skíðaheiminum almennt og gera vel við sitt fólk. Jakob sýndi þó fá- dæma yfirburði sína en hann sigr- aði í svigi og stórsvigi með fjögurra sekúndna mun í báðum greinum og voru sigrar hans aldrei í hættu. Bráðungur íslenskur skíðakappi að skjóta Norðmönnum ref fyrir rass Bjart framundan hjá Jakob Helga Jakob í brekkunni Jakob hefur skíðað hér heima undir merkjum Breiðabliks. Serblad 24 stunda Auglysingasimi Katrin s.510 3727 / kata@24stundir.is KOLLA s. 510 3722 / kolla@24stundir.is Heilsa 4.januar 2008
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

24 stundir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.