24 stundir - 19.12.2007, Blaðsíða 48
48 MIÐVIKUDAGUR 19. DESEMBER 2007 24stundir
Matseðill:
Blandaðir síldarréttir
Kæst skata, saltfiskur og saltfisk réttur
Stóruvalla-hamsatólg
Verð kr 2.950-
Engin biðröð
Skatan beint á borðið
Veitingahúsið Einar Ben Veltusund 1 (við Ingólfstorg)
S: 511 5090 einarben@einarben.is
Það ættu flestallir Íslendingar að
kannast við nafn Vífils Atlasonar,
16 ára pilts frá Akranesi, eftir að
hann bókaði símafund með
George Bush, Bandaríkjaforseta, í
nafni forseta Íslands. Að und-
anförnu hafa borist fréttir af því
að fjölmiðlar erlendis hafi sagt
frá uppátækinu, en nú hefur
hróður Vífils borist alla leiðina til
Ástralíu. Dagblaðið The Australi-
an greindi frá afrekum Vífils á
mánudaginn, en þar er reyndar
haft eftir talskonu Bandaríkja-
forseta að „herra Atlason“ hafi
aðeins hringt í númer sem sé op-
ið almenningi. Héraðsfréttblaðið
Skessuhorn á Vesturlandi hefur
haft í nógu að snúast síðan Vífill
komst í fréttirnar, en haft hefur
verið samband við blaðið frá fjöl-
miðlum víða um heim sem leita
upplýsinga um málið. Þá hefur
Skessuhorn selt myndir af Vífli til
nokkurra landa, m.a. Danmerk-
ur, Noregs og Þýskalands.
bjornbragi@24stundir.is.
Vífill umhverfis jörðina
Eftir Björgu Magnúsdóttur
bjorg@24stundir.is
Hildur Yeoman, fatahönnuður og
tískuteiknari, fékk hugmynd að
nýstárlegum jólakortum þegar
hún dvaldi í París á haustmán-
uðum og drakk í sig fornar
myndir á antíkmarkaði þar í
borg. „Jólakortin eru í gömlum
frönskum fíling í bland við pin-
up-stíl enda vinn ég við að
teikna skvísur allan daginn,“ seg-
ir stúlkan sem hefur starfað sem
tískuteiknari hjá Thelmu Björk
Jónsdóttur, fatahönnuði í París, í
nokkra mánuði. „Það hefur ekki
borið mikið á því að ungt fólk sé
að myndskreyta jólakort og
selja,“ segir hún og bætir því við
að á Íslandi virðist allt hægt.
Óhefðbundin jólakort
Jólakort Hildar eru af fimm
mismunandi gerðum og erfitt er
að horfa fram hjá þeim krúttlega
blæ sem þau hafa yfir sér. „Á
kortunum er ekki hefðbundið
jólaskraut eins og könglar og
kerti, þannig að þau eru
skemmtileg viðbót í flóruna,“
segir Hildur og bætir við að þau
séu líka nothæf sem merkimiðar
á pakka. Hún byrjaði á kort-
unum í október og ferlið var dá-
lítið púsluspil, þar sem hún
dvaldi í Frakklandi meðan fram-
leiðslan fór fram hérlendis. „Ég
þurfti að senda kortin til prent-
smiðjunnar á Íslandi frá París en
með hjálp ýmissa aðila fór þetta
allt vel að lokum,“ segir Hildur
sem var hin rólegasta yfir öllu
saman.
Heklar poodle-hunda
Hildur útskrifaðist frá Listahá-
skóla Íslands vorið 2006 og hefur
fengist við ýmis verkefni víða um
lönd síðan þá sem öll tengjast
hinni listrænu braut sem hún
hefur valið sér. „Ég ásamt vin-
konu minni seldi vörur undir
merkinu Brigitte Bird í versl-
uninni Trilogiu, hannaði búning
Sylvíu Nætur fyrir forkeppni
Eurovision og hef undanfarið
hannað og heklað töskur. Ein
gerð þeirra er eins og poodle-
hundur í laginu en þær verða
seldar í versluninni Systrum.“
Hildur hefur nýtt teiknigenin frá
unga aldri og byrjaði snemma að
rissa upp föt á ýmiss konar
pappírspésa. Áhugasamir geta
nálgast kort Hildar í Kronkron,
Systrum, Trilogiu og fleiri versl-
unum.
Hildur Yeoman Með
kortin góðu í Systrum á
Laugavegi 70.
Hildur Yeoman hannar nýstárlegan jólavarning
Pin-up jólakort
með frönskum blæ
Hún er fatahönnuður,
tískuteiknari og nýkomin
frá París. Hildur Yeoman
hannar óhefðbundin jóla-
kort fyrir hátíðina sem
hafa yfir sér franskan blæ
í bland við skvísulegan
pin-up stíl.
➤ Dregur heiti sitt af enskusögninni: to pin.
➤ Er mynd af föngulegri stúlkueða pilti sem hentugt er að
hengja á vegg.
➤ Með frægari pin-up stúlkumvoru Greta Garbo, Brigitte
Bardot, Marilyn Monroe og
Marlene Dietrich.
PIN-UP
24Stundir/Frikki
Teiknimyndin Bee movie, eða
Býflugnamyndin, segir af býflug-
unni Barry B. Benson, sem virðist
eina býflugan í búinu knúin ríkri
einstaklingshyggju og ævintýraþrá.
Hann er nýútskrifaður úr menntó
og fer í starfskynningu í bý-
flugnabúi sínu, í Central Park-
garðinum í New York-borg. En í
stað þess að vinna við hunangsgerð
alla sína ævi langar Barry að sjá
heiminn, sem hann og gerir. Á
ferðalagi sínu uppgötvar hann, sér
til mikillar skelfingar, að mann-
skepnan hefur verið að arðræna
býflugnastofninn með framleiðslu
og sölu hunangs og illri meðferð á
býflugum. Barry unir þessu ekki og
ákveður að höfða mál, með hjálp
mennskrar vinkonu sinnar, Va-
Samkvæmt öllum eðlisfræðileg-
um lögmálum á býfluga ekki að
geta flogið. Búkur hennar er of stór
og þungur fyrir litla vængina til að
halda uppi. En samt flýgur hún.
Svipað má í raun segja um mynd-
ina, bara í hina áttina. Samkvæmt
öllum markaðslögmálum ætti
myndin ekki að geta klikkað.
Dreamworks-teiknimynd með
stórleikurum, er höfðar til breiðs
hóps áhorfenda, milljónum dollara
eytt í markaðsherferðir, og dreifing
um víða veröld. Og vafalaust mun
myndin setja einhver aðsóknar- og
peningamet og kæta smáa sem háa
um allan heim. Samt ber myndin
nafn með rentu, því hún er, þegar
öllu hunanginu er á botninn
hvolft, einungis B-mynd.
Myndin er hins vegar mikið sjón-
arspil fyrir augað, mikið um bjarta
liti og hraða framvindu, hávaða og
læti, nokkuð sem nægir til að hafa
ofan af fyrir einföldum krökkum
með takmarkaða athyglisgáfu.
nessu Bloome. Það er gamanleik-
arinn góðkunni Jerry Seinfeld sem
ljær Barry rödd sína í myndinni
auk þess að koma að handritsgerð,
en sumir brandarar í myndinni
gætu hæglega verið úr Seinfeld-
þáttunum vinsælu. Það var helst
að maður saknaði bassa-sólósins
sem einkenndi þá þætti og auðvit-
að Kramers og George. Myndin fer
vel af stað og lofar góðu allt þar til
um miðbikið, en þá er eins og
botninn detti hálfpartinn úr henni.
Hennar helsti galli er eflaust sá, að
hún reynir að höfða til of breiðs
hóps. Hún er ekki nægilega sterk
einungis sem fullorðinsmynd, eins
og Antz var fyrir níu árum, og hún
á ekkert endilega mikið erindi við
fulltrúa yngstu kynslóðarinnar. Bitlaus Það vantar allan brodd í Barry.
B-mynd þegar öllu hunangi er á botninn hvolft
Bee Movie
Bíó: Smárabíó, Sambíóin
Kringlunni, Álfabakka,
Akureyri, Keflavík og
Laugarásbíó
Leik stjóri: Steve
Hickner, Simon J.
Smith
Að al hlut verk:
Jerry Seinfeld,
Renée Zellweger
Eft ir Trausta Salvar Kristjánsson
traustis@24stundir.is
BÍÓ
Vísindamenn uppgötva nú nýtt
spendýr á hverjum degi, eins og
lesa má í fréttum. Nú hefur upp-
götvast ný rottutegund, sem hefur
þá geðslegu sérstöðu að vera
óhugnanlega stór. Eins og sjá má á
myndinni er hún á stærð við kött
og vegur 1,5 kíló, hvorki meira né
minna. Kvikindið fannst í skógi
vöxnu fjalllendi Nýju-Gíneu og er
fimm sinnum stærra en venjuleg
rotta og hefur verið nefnd Mal-
lomy-rottan. Vísindaleiðangurinn
er skipulagður af Conservation
International og hefur hann verið
nefndur „the lost world“ eða týndi
heimurinn, með skírskotun til Ju-
rassic Park-myndanna, þar sem
risaeðlurnar voru vaktar til lífsins
með DNA-tilraunum. Þó ekki sé
það raunin að þessu sinni segja vís-
indamenn merkilegt að svo margar
uppgötvanir séu gerðar á svo
skömmum tíma. Þó ber að muna
að pandabjörninn var ekki upp-
götvaður af hinum vestræna heimi
fyrr en um 1920. Þó rottur séu al-
mennt ekki til vandræða á Íslandi
eru eflaust fáir sem vilja rekast á
eitt stykki Mallomy-rottu, þótt
hún sé sérstaklega gæf að sögn
leiðangursmanna.
Risastór rottutegund uppgötvuð
Kanadabúi nokkur hafði leitað
hátt og lágt í tvær vikur áður en
hann fann eintak af leiknum Gui-
ter Hero 3: Legends of Rock fyrir
Wii-tölvu, sem hann hugðist
hann gefa 15 ára syni sínum í
jólagjöf. Þegar hann kom að
stráksa að reykja hass með tveim-
ur vinum sínum brást hann hins
vegar ókvæða við og ákvað að
hann ætti ekki skilið að fá svo
góða gjöf. Ákvað pabbinn að
bjóða leikinn til sölu á eBay og
vænti þess að fá fyrir kaupverðið,
90 dollara. Baráttan um að eign-
ast leikinn var hins vegar harðari
en manninn hafði grunað og
hækkaði verðið upp úr öllu valdi.
Hæstbjóðandi reyndist tilbúinn
til að greiða 9.100 dollara, and-
virði tæpra 600 þúsund króna.
Maðurinn kvaðst ætla að nota
hluta af fénu til þess að kaupa
nýja jólagjöf handa syninum.
Guitar Hero-leikur á 9.100 dollara
24LÍFIÐ
24@24stundir.is a
Ég ásamt vinkonu minni seldi vörur undir
merkinu Brigitte Bird í versluninni Trilogiu,
hannaði búning Sylvíu Nætur fyrir forkeppni Euro-
vision og hef undanfarið hannað og heklað töskur.