24 stundir - 19.12.2007, Blaðsíða 15
24stundir MIÐVIKUDAGUR 19. DESEMBER 2007 15
Rei Rei ekki um jólin! Jóla-lag Orkuveitunnar slærrækilega í
gegn á netheimum
rétt fyrir jólin. Per-
sónur og leikendur
í ruglaðasta frétta-
máli ársins fá hrós
fyrir að hafa húmor
fyrir sjálfum sér. Bestur þykir
Guðmundur Þóroddsson for-
stjóri. Þótt Björn Ingi Hrafns-
son brosi hringinn, - eðlilega -
kemst enginn í hálfkvisti við
Guðmund OR á myndbandi
YouTube. Landsvirkjun gæti þó
enn átt leik í vel útpældum jóla-
húmor með Landsvirkjun Power.
Friðrik Sophusson er líka lið-
tækur leikari og hefur leikið
mörg klassísk hlutverk, þar á
meðal úlfinn í Rauðhettu.
Össur Skarphéðinssonspáir í bros Binga „varlahafi hann séð glitta í
ósamræmi á milli orða og gjörða
sjálfstæðismanna
eftir því hvort þeir
eru í borgarstjórn
eða landsstjórn-
inni.“ Össur segir
sexmenningana í
borgarstjórn hafa
sagað niður Rei-útrásina eftir
pöntun ritstjóra Morgunblaðs-
ins, sem nú hljóti að panta vélsög
á útrásarskóg Friðriks Sophus-
sonar. Össur telur upp fleiri
nöfn andstæðinga ríkisútrásar,
Davíð og Kjartan Gunnarsson
og einn enn sem Össur þorir
ekki að nefna „til að verða ekki
sakaður um að vera rétt einn
ganginn að skapa úlfúð innan
hinnar friðsömu stórfjölskyldu
við ríkisstjórnarborðið.“
Það er einungis tímaspurs-mál hvenær rappari undirheitinu LV Power kemur á
sjónarsviðið,“ segir Smári Karls-
son á mbl-bloggi.
Össur vill nýtt Ára-
mótaskaup:
„væri ég Þor-
gerður mennta-
málaráðherra
myndi ég láta boð
út ganga um að húmoristum
Orkuveitunnar yrði falið að sjá
um skaupið.“ En meðan orku-
boltarnir stela húmornum situr
útvarpsstjóri undir ásökunum
um lögbrot vegna auglýsinga-
tíma í miðju skaupi. RÚV gæti
friðað mannskapinn með auglýs-
ingu frá orkuhúmoristunum.
Eða selt Power og Rei áramóta-
pakkann í heilu lagi og grætt á
öllu saman.
beva@24stundir.is
KLIPPT OG SKORIÐ
Í október sagðist meirihluti Sjálf-
stæðisflokksins í Reykjavík hafa
stofnað fyrirtækið Reykjavík Energy
Invest. Fyrirtækið var að 93 prósent
í eigu OR en 7 prósent í eigu sérval-
ins einstaklings. Borgarfulltrúar
Sjálfstæðisflokksins, að fyrrverandi
borgarstjóra undanskildum, gerðu
uppreisn en þó ekki fyrr en sérstakt
samrunaferli REI og Geysis Green
Energy hafði farið fram án laga og
réttar eftir því sem best verður séð.
Meirihlutinn sundraðist og vinstri
öflin náðu honum.
Í tilviki REI virðist sem þeir sem
um völdin héldu hjá Sjálfstæðis-
flokknum hefðu ákveðið að stunda
opinberan rekstur með áhættu
borgaranna og tengjast starfsemi
einkafyrirtækis án þess að almennir
borgarar fengju sömu möguleika og
sérvaldir einstaklingar.
Sjálfstæðisflokkurinn barðist
einu sinni fyrir frjálsu markaðshag-
kerfi og gegn því að opinberir aðilar
stunduðu atvinnurekstur í sam-
keppni við einkaaðila þegar um al-
menna markaðsstarfsemi er að
ræða. Þetta mátti sjálfstæðismönn-
um í borgarstjórn vera ljóst því svo
mjög höfðu þeir gagnrýnt störf fyrri
meirihluta í OR.
Gagnrýni þeirra sjálfstæðis-
manna sem bentu á hversu óheppi-
legt það væri að opinbert fyrirtæki
tæki þátt í markaðsstarfsemi átti rétt
á sér. Nú hræða spor Alfreðs Þor-
steinssonar en minna má á að risa-
rækjueldi Orkuveitunnar hefur ver-
ið lagt niður. Feyging í Þorlákshöfn
sem átti að vinna hör hefur einnig
verið lagt niður. Þórsbrunnur sem
átti að flytja út vatn hefur einnig
geispað golunni. Lína net eða
Gagnaveitan eins og fyrirtækið heit-
ir nú lifir enn en óvíst er um framtíð
þess. Hvað hafa þessar tilraunir í
opinberum rekstri kostað?
Ætla mætti í ljósi gagnrýni sjálf-
stæðismanna á opinbera markaðs-
starfsemi Alfreðs að þeir mundu
gæta þess að falla ekki í sama brunn-
inn og Alfreð. Ó nei, ó nei, eins og
Davíð Oddsson sagði forðum. Þetta
þurftu sjálfstæðismenn líka að reyna
með þeim afleiðingum að þeir töp-
uðu völdum í Reykjavík.
Nú rúmum tveim mánuðum eftir
að ógæfuspor borgarstjórnarflokks
Sjálfstæðisflokksins voru stigin á
sviði aukinna opinberra afskipta
standa sjálfstæðismenn í Lands-
virkjun að því að stofna nýtt rík-
isfyrirtæki, Landsvirkjun Power.
Formaður Sjálfstæðisflokksins segir
að það sé allt í lagi og enginn hug-
myndafræðilegur ágreiningur sé um
stofnun og rekstur þessa fyrirtækis
innan Sjálfstæðisflokksins enda sé
hér um allt annað að ræða en með
REI sem hafi verið algjört klúður
eins og formaðurinn orðaði það.
Nýja fyrirtækið á að sjá um virkjanir
í neðri hluta Þjórsár og starfa að út-
rásarverkefnum erlendis.
Að gamni mínu fletti ég upp í riti
gamals hugmyndafræðings Sjálf-
stæðisflokksins, Birgis Kjaran, en
hann segir í riti sínu: „Hve mikil op-
inber afskipti eru samrýmanleg lýð-
ræðislegu þjóðskipulagi… Þá hlýtur
og efnahagslegt lýðræði að miða að
því að hindra of mikla valdasam-
drætti, byggða á einokun eða of
sterkum hagsmunasamsteypum er
skerða hagsmuni og rétt einstakling-
anna. Hversu víðtæk þessi starfsemi
hins opinbera þarf að vera á hverj-
um tíma ákvarðast auðvitað nokkuð
af því hvers einstaklingarnir eru
sjálfir megnugir og hvernig þeim
notast frelsi sitt.“
Niðurstaða þessa merka hug-
myndafræðings Sjálfstæðisflokksins
var síðan sú að þegar einstakling-
arnir gætu leyst málin og ekki væru
sérstakir hagsmunir í húfi þá ættu
stjórnmálamenn að láta markaðinn
reka slík fyrirtæki og sinna slíkri
áhættustarfsemi en fráleitt væri að
hið opinbera færi í atvinnurekstur í
samkeppni við einstaklinga eða fé-
lög þeirra.
Skyldu menn vera búnir að
gleyma því í Sjálfstæðisflokknum til
hvers hann var stofnaður og fyrir
hverju hann barðist meðan hann
var flokkur frjálslyndra viðhorfa
einstaklingfrelsis og athafnafrelsis?
Gildir ef til vill um Sjálfstæðis-
flokkinn: Það sem helst hann varast
vann varð þó að koma yfir hann?
Höfundur er alþingismaður
Styður Sjálfstæðisflokkur
sósíalisma?
VIÐHORF aJón Magnússon
Sjálfstæðis-
flokkurinn
barðist einu
sinni fyrir
frjálsu mark-
aðshagkerfi
og gegn því
að opinberir aðilar stund-
uðu atvinnurekstur í sam
keppni við einkaaðila.
Tilboð 4 - Canon Ixus 70
7.1 megapixla myndflaga. Þrefalt zoom. Traust og örugg Canon vél.
3570
Staðgreiðsluverð 34.900
Verð á
mánuði kr.
Tilboð 1 - Kodak C713
7.0 megapixla myndflaga. Þægileg í notkun með Kodak EasyShare.
1667
Staðgreiðsluverð 14.900
Verð á
mánuði kr.
Tilboð 3 - Canon Ixus 960 IS
12.1 megapixla myndflaga. Dúxar á öllum prófunum.
4995
Staðgreiðsluverð 49.900
Verð á
mánuði kr.
Tilboð 2 - Kodak M873
8.0 megapixla myndflaga. Traustur kassi, létt og meðfærileg.
2523Verð á mánuði kr.
Staðgreiðsluverð 23.900
Lítil
Minni
Minnst
www.hanspetersen.is
Auka
rafhlað
a og
taska f
ylgja!
* Meðalverð á mánuði m.v. 12 mánaða greiðslukortasamning. nóv 2007