24 stundir - 19.12.2007, Blaðsíða 31
24stundir MIÐVIKUDAGUR 19. DESEMBER 2007 31
Nú fer hver að verða síðastur að
kaupa jólafötin handa börnunum
og það er því mikið annríki í versl-
unum. Lilja Rós Sigurðardóttir,
eigandi barnafataverslunarinnar
Iana, segir að það hafi verið brjálað
að gera undanfarna daga. „Nú er
komið nýtt kortatímabil og þá bíð-
ur fólk ekki mikið lengur. Ég býst
því við miklu annríki fram að jól-
um,“ segir Lilja Rós og bætir við að
þau hafi fengið nýja sendingu af
jólafötum í síðustu viku. „Sú send-
ing er eiginlega öll búin, þetta fer
svo fljótt. Það eru alltaf ákveðnar
flíkur sem seljast fljótt upp, eins og
hvítar sokkabuxur, ljósir bolir og
hvítar skyrtur. Það getur því verið
erfitt að fá þessar flíkur rétt fyrir
jól og fólk hleypur um allan bæ að
leita.“
Aðspurð hvaða jólaföt séu vin-
sælust á börnin þessi jólin segir
Lilja Rós að ýmislegt sé í boði.
„Stelpurnar velja helst skokka og
pils. Grái liturinn hefur verið vin-
sæll og svo er rauði liturinn alltaf
vinsæll. Í ár eru margar flíkur með
fallegum silfurþráðum og perlum.
Hjá piltunum eru skyrtur, vesti,
sléttflauelsbuxur eða buxur úr
riffluðu flaueli vinsælast.“ Iana er
ítölsk verslunarkeðja en Lilja Rós
hefur rekið verslunina á Laugavegi
í sex ár. „Flíkurnar eru mjög vand-
aðar enda leggja Ítalir metnað í
verk sín. Þetta eru því mjög góðar
vörur á góðu verði. Það er svipað
verð á flíkunum hjá okkur og á
Ítalíu, enda er keðjan byggð þannig
upp. Þar sem þetta er eitt merki er
allt í stíl og það er alltaf hægt að fá
sömu litatóna. Það má til dæmis fá
bol, sokkabuxur, buxur og fleira í
stíl.“
Vandaður ítalskur fatnaður fyrir börn
Á sama verði og á Ítalíu
KYNNING
Vandaður Iana er ítölsk verslunarkeðja sem selur vandaðan fatnað á börn.
Eins skondið og það hljómar, þá
bera jólin vissulega með sér
ákveðna lykt. Það er misjafnt
hvaða lykt menn velja; sumum
þykir jólin lykta af smákökum,
öðrum af mandarínum og enn
öðrum af eplum. Jólin eru því
ekki komin fyrr en heimilið lykt-
ar rétt. Það er ýmislegt sem má
gera til að framkalla þessa einu
réttu lykt. Það er lítið mál að
henda tilbúnu deigi inn í ofn, eigi
heimilið að lykta eins og smákök-
ur. Mandarínur í skál í eldhúsinu
gera sitt gagn og mörgum finnst
jólin ekki koma nema neg-
ulnöglum sé stungið í mandarínu
en þá myndast þessi fullkomna
jólalykt.
Ilmurinn af jólum
Nánast á hverju ári berast fregnir
þess efnis að kviknað hafi í út frá
kertaskreytingu eða ljósaseríu í
desember. Það er sérstaklega
mikið af logandi kertum og ljósa-
seríum á aðventunni og því nauð-
synlegt að allar varúðarráðstaf-
anir séu í lagi. Best er að hafa
einungis kveikt á ljósaseríum
þegar einhver er heima, ekki á
næturnar eða þegar heim-
ilisfólkið er fjarri. Eins þarf að
gæta varúðar með logandi kerti
og gæta þess að þau séu ekki
nærri opnum glugga, séu á stöð-
ugri undirstöðu og ekki nærri
börnum. Ef kerti er í glugga þarf
að varast að gardína geti fokið til
og þannig valdið bruna. Það þarf
því að skoða heimilið með athug-
ulum augum og kanna hvað má
betur fara. Auk þess ætti á öllum
heimilum að vera slökkvitæki,
brunavarnarteppi að ógleymdum
reykskynjara sem er ómissandi í
baráttunni gegn bruna.
Eldvarnir í desember
Fullt verð er 29,000 kr.
Nuddpúðinn
Fæst í Kringlunni (1. hæð) á sérstöku jólatilboði, aðeins 24,900 kr.
Erum við Vínbúðina í Kringlunni, einnig á landsbyggðinni: Heilsuhorninu Glerártorgi, Akureyri og Nuddstofunni Borgarbraut 61 Borgarnesi.
Logy ehf. Sími: 661 2580 og 588 2580 Heimasíða: www.logy.is Tölvupóstur: logy@logy.is
G E R M A N Y
sem var uppseldur er kominn aftur
Umsagnir ánægðra notenda:
Nuddpúðinn
Lítill og þægilegur, mjög meðfæri-
legur og auðveldur í notkun.
Þægilegur og afslappandi
> > háls > > bak
> > hendur > > fætur
2 hraðastillingar og 4 kúlur
sem nudda í báðar áttir.
Einnig fyrir 12 Volta straum,
góður í ferðalagið.
Algjör Snilld. Tæki sem gott er að grípa í og er meðfærilegur. Kemur
sér vel þegar þreyta í öxlum eftir myndavélaburð segir til sín.
Árni Sæberg ljósmyndari Morgunblaðinu
Wellamed hefur hjálpað mér vegna slæmra höfuðverkja. Eftir
vinnudaginn þar sem ég sit mikið við tölvu er gott að koma heim og
grípa í púðann sem losar um stífleika í hálsinum. Atvinnurekendur
ættu að fjárfesta í góðri heilsu, sleppa koníakinu og konfektinu í ár
og gefa góðu starfsfólki nuddpúða. Gjöf sem borgar sig.
Svala Hilmisdóttir Thorarensen viðskiptafræðingur
Losar djúpt um í vöðva í hálsi. Sterkur púði sem endist. Það besta
sem ég hef prófað. Lítið tæki sem virkar á allan kroppinn.
Þóra María Erlingsdóttir sjúkranuddari til 20 ára
Snilldartæki sem ég nota á mjóbakið og kálfana eftir erfiðar
vaktir. Ótrúlegt! En hefur reynst mér sérstaklega vel við gigtinni.
Þetta er enginn víbringur, þetta er alvöru. Ekki dæma, fyrst þarftu
að prófa. Kemur öllum á óvart.
Nanna Arthúrsdóttir hjúkrunarfræðingur
Hjálpar til með blóðflæði í fótum og mýkir upp eftir göngur. Lítið
tæki sem líkir eftir þumalputtanuddi. Við vinnum saman, alltaf til
taks, góður á bólgur í kálfum.
Margrét Ástrós Helgadóttir nuddmeistari og stafagönguþjálfari
Nuddpúðinn er góður ferðafélagi í bílinn á leið í bústaðinn eftir
vinnuvikuna. Mýkir upp og tekur á líkt og maður í alvöru nuddi.
Mæli með honum fyrir kyrrsetufólk eða bara alla. Eykur blóð-
flæðið í líkamanum. Fer lítið fyrir honum og er fyrirtaks jólagjöf
fyrir unga sem aldna.
Arndís Guðnadóttir sjúkraliði
Snilldartæki sem framkallar bros á alla fjölskylduna. Tækið á heima
á kaffistofum allra landsmanna. Tvímælalaust jólagjöfin í ár.
Linda Björk Hávarðardóttir tæknihönnuður
Ég vinn við tölvu allan daginn, finn gjarnan fyrir músabólgunni og
þá hefur Wellamed nuddpúðinn hjálpað mér. Mæli eindregið með
nuddpúðanum og hægt er að ferðast með hann hvert sem er.
Ásta Marta Róbertsdóttir veftæknir og ferðaráðgjafi
Er að byggja. Bjargaði gjörsamlega bakinu eftir erfiðan dag. Tækið
ætti að vera staðalbúnaður á hverju skipi.
Kim Aage Petersen skipstjóri