24 stundir - 19.12.2007, Side 16

24 stundir - 19.12.2007, Side 16
Róbert Trausti Árnason skrifar: Þar sem öryggissamstarfið við Bandaríkin rofnaði ekki árið 2006, þarf Ísland hvorki að grípa til rót- tækra ráðstafana í öryggismálum né að móta nýja Evrópustefnu. Spurningarnar nú eru um það, hvernig á að framkvæma varn- arsamninginn við núverandi að- stæður. Það verður að sýna fram á með hvaða hætti verður snúist til Íslands og fyrir heimsviðskipti. Ljóst er að Íslendingar sjálfir verða hér eftir að vera virkari í eigin ör- yggismálum en verið hefur og þá ekki síst þegar kemur að innra ör- yggi ríkisins og borgaranna og verja þarf meiri fjármunum til þessara verkefna. Sérstök varnarmálastofnun í höndunum á utanríkisráðuneytinu er með öllu óþörf. Höfundur er fyrrverandi ráðuneytisstjóri varna á landi, að unnt sé að fylgjast náið með öllum siglingum við Ís- land, með hvaða hætti haldið verð- ur uppi loftvörnum á Ísland og að tryggt sé öryggi allra þeirra sem lenda í lífsháska á Íslandi eða í ná- grenni við landið. Því þarf að meta þýðingu þess út frá öryggis- og varnarhagsmunum Íslands að senn hafa aðflutnings- leiðir sem liggja um íslenska efna- hagslögsögu afgerandi þýðingu fyrir orkuöryggi bandalagsþjóða BRÉF TIL BLAÐSINS 16 MIÐVIKUDAGUR 19. DESEMBER 2007 24stundir Hermann Þórðarson skrifar: Í Fréttablaðinu 7. desember, áður í Sjónvarpinu og síðar í öðrum fjöl- miðlum fárast þjálfarar kvennaliða Fram og Stjörnunnar yfir frammi- stöðu dómara leiksins. Þeir skammast út í HSÍ yfir lélegum dómurum og hvernig pör eru valin til að dæma leiki. Varla getur HSÍ farið að gera út einhverja „Sher- lokka“ til þess að kanna vináttu- sambönd og annað milli dómara og þjálfara í bransa þar sem allir þekkja alla. Frekar ættu þjálfararnir að skammast út í félögin sem standa sig ekki í að mennta fleiri þjálfara. Ég held að Stjarnan hafi ekki tapað þessum leik vegna lé- legra dómara heldur vegna lakari frammistöðu í útileik á móti frá- bæru spútnikliði deildarinnar í ár. Af hverju tapaði Stjarnan fyrir FH? Af hverju tapaði Stjarnan fyrir Haukum? En reynslulitlir dómarar verða frekar fyrir áhrifum frá ólát- um þjálfara, áhorfenda og leik- manna heldur en þeir sem reynslu- meiri eru. Þetta er sálfræðilegt atriði sem illa verður ráðið við. En að ætla dómurum að vera hlut- drægir af ásettu ráði er einfaldlega rangt. Dómarar gera mistök, en það gera líka þjálfarar og leikmenn og miklu fleiri en dómararnir. Ég hef sjálfur gert mig sekan um að gera hróp að dómurum í hita leiksins og skammast mín fyrir það. Dóm- ararnir eru bestu vinir handboltans. Án þeirra færu engir leikir fram. Höfundur er fyrrv. formaður handknattleiksdeildar Hauka. BRÉF TIL BLAÐSINS Hannað af helstu sérfræðingum Evrópu í birtumeðferð Lífsklukkan Taktur góðrar hvíldarwww.lifsklukkan.is Fyrir þig... Fyrir barnið þitt... Vekur þig eðlilega með hægri sólarupprás á morgnana Hjálpar þér að slaka á á kvöldin með hægu sólsetri Allt að 30 mínútur af smáminnkandi birtu róar barnið þitt og svæfir Tvær sólsetursstillingar: að algeru myrkri eða að næturlýsingu Upplýsingar um útsölustaði í síma 577 1400 eða á www.l i fsklukkan.is Tilvalin jólagjöf!

x

24 stundir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.