24 stundir - 19.12.2007, Side 22
22 MIÐVIKUDAGUR 19. DESEMBER 2007 24stundir
KOLLAOGKÚLTÚRINN
kolbrun@24stundir.is a
Ef ekkert skrýtið hefur gerst
þá hefur dagurinn ekki verið
neitt sérstakur.
John A. Wheeler
Eftir Kolbrúnu Bergþórsdóttur
kolbrun@24stundir.is
„Eftir að ég gerði bókina Íslend-
ingar langaði mig til að halda áfram
að ferðast um landið og tala við fólk.
Fljótlega vaknaði hugmyndin um að
gera bók um trú manna á huldu-
fólk,“ segir Unnur Jökulsdóttir, höf-
undur bókarinnar Hefurðu séð
huldufólk? sem Mál og menning
gefur út. „Þegar ég ferðaðist um
landið og talaði við fólk vegna bók-
arinnar Íslendingar fannst mér at-
hyglisvert hversu margir töluðu um
huldufólk eins og ættingja sína eða
kunningja. Fyrir þeim var huldufólk
jafn raunverulegt fólk og það sem
við köllum lifandi. Mér fannst for-
vitnilegt að fara annan hring um
landið og einbeita mér að þessu efni.
Ég hef áhuga á skyggnigáfu og kall-
aði til Hildi Hákonardóttur, guð-
móður verksins. Hún er mjög næm
kona og fróð um ýmsa þætti tilver-
unnar, bæði hérna og að handan.
Hún leiðbeindi mér hvað ég ætti að
spyrja um og hvernig ætti að nálgast
efnið. Svo fór ég af stað og verkið
tók tvö og hálft ár. Ég varð margs
vísari.“
Nýbúar í álfheimum
Í bók Unnar eru 25 viðmælendur
víðs vegar að. „Sumir lýsa huldu-
fólki eða alls konar álfum og eru í
daglegu samneyti við einhver slík
öfl. Aðrir segja mér gamlar sögur,
kannski úr ætt þeirra eða staðnum
sem þeir búa á. Í Skáleyjum gerðust
til dæmis dramatískir atburðir á síð-
ustu öld, sem sumir vildu kenna
hefndum huldukonu, en hreyft
hafði verið við steini sem talið var
að hún byggi í.“
Þegar Unnur er spurð hvort hún
trúi á tilvist huldufólks svarar hún:
„Ég trúði á huldufólk áður en ég fór
að skrifa þessa bók. Ég ólst upp hjá
ömmu minni sem bar mikla virð-
ingu fyrir huldufólki og við reynd-
um oft að sjá það á gamlárskvöld.
Mér finnst tilveran miklu skemmti-
legri ef við trúum á eitthvað meira
en það sem við sjáum og finnum.
Ég hef setið andspænis mjög
mörgum sem segjast hafa séð
huldufólk. Ég finn að þetta fólk er
að segja satt og rétt frá.
Það kom mér á óvart hversu fólk
var reiðubúið að tala um huldufólk
og segja frá reynslu sinni.
Það kom mér líka á óvart að þetta
fólk lýsir hlutum sem ekki er getið
um í þjóðsögunum. Ég ræddi við
Gísla Sigurðsson á Árnastofnun og
hann sagði mér að vera ekki for-
dómafull gagnvart því sem fólk er
að sjá í dag. Auðvitað væru nýbúar í
álfheimum rétt eins og í landinu.“
Huldufólk og álfar
Margir hafa eflaust velt því fyrir
sér hver munurinn sé á huldufólki
og álfum. Unnur er spurð að því
hver munurinn sé. „Helgi Hall-
grímsson er mjög virtur líffræðing-
ur á Egilsstöðum en hann trúir á
huldufólk þótt hann hafi ekki séð
það. Hann skilgreinir muninn á
huldufólki og álfum og segir að
huldufólk sé ein tegund álfa,“ segir
Unnur.
Unnur Jökulsdóttir „Mér finnst
tilveran miklu skemmtilegri ef við
trúum á eitthvað meira en það
sem við sjáum og finnum.“
Unnur Jökulsdóttir sendir frá sér óvenjulega bók
Í félagsskap huldufólks
➤ Unnur Jökulsdóttir sendiásamt Þorbirni Magnússyni
frá sér ferðabækurnar Kjölfar
kríunnar (1989) og Kría siglir
um Suðurhöf (1993).
➤ Hún hefur skrifað eina barna-bók, Eyjadís (2003).
➤ Bókin Íslendingar (2004)fjallar um líf og lífsviðhorf
fólks í öllum landshlutum.
KONAN„Ég hef setið andspænis
mjög mörgum sem segj-
ast hafa séð huldufólk.
Ég finn að þetta fólk er
að segja satt og rétt frá,“
segir Unnur Jökulsdóttir
sem hefur skrifað bók um
huldufólk.
24stundir/RAX
Á þessum degi árið 1915 fæddist söngstjarnan Edith
Piaf. Þótt fjölmargar bækur hafi verið skrifaðar um
hana er enn margt á huldu um líf hennar.
Þessi lágvaxna kona (147 sentimetrar) var uppgötv-
uð árið 1935 af eiganda næturklúbbs. Hann gaf henni
nafnið spörfuglinn og sagði henni að klæðast svörtu.
Piaf naut lítillar hamingju í einkalífi. Stóra ástin í
lífi hennar var hnefaleikakappinn Marcel Cerdan sem
lést í flugslysi árið 1949 þegar hann var á leið til New
York að hitta hana. Cerdan var kvæntur maður og ást-
arsamband þeirra Piaf vakti mikla athygli fjölmiðla.
Piaf gekk tvisvar í hjónaband. Seinni eiginmaður
hennar var tuttugu árum yngri en hún. Þau giftust ár-
ið 1962 og ári síðar lést Piaf úr krabbameini í lifur.
Fyrr á þessu ári var frumsýnd kvikmynd um ævi Pi-
af og þar fer Marion Cotillard með hlutverk hennar.
Piaf er minnst sem mestu söngkonu Frakklands.
Spörfuglinn
fæðist
MENNINGARMOLINN
Bóksalar völdu bestu bækur
ársins á dögunum. Skáldsaga
ársins er að þeirra mati, og
margra annarra, Himnaríki og
helvíti eftir Jón Kalman Stef-
ánsson. Bókin hlaut 60 stig í
kosningu. Harðskafi Arnaldar
Indriðasonar lenti í öðru sæti
með 56 stig og Óreiða á striga
eftir Kristínu Marju Bald-
ursdóttur hlaut einu stigi
minna, 55 stig. Þessar þrjár
bækur höfðu yfirburði yfir
aðrar því Aska Yrsu Sigurð-
ardóttur sem lenti í fjórða
sæti fékk 25 stig.
Kalman þykir
bestur
Bóksalar
völdu Bíbí eft-
ir Vigdísi
Grímsdóttur
bestu ævisög-
una og hún
vann með yf-
irburðum,
hlaut 63 stig, en bókin í öðru
sæti, Þar sem vegurinn endar
eftir Hrafn Jökulsson, fékk 23
stig. Snert hörpu mína, ævi-
saga Davíðs Stefánssonar, fékk
20 stig. Þrjár bækur fengu sex-
tán stig: ÞÞ í Fátæktarlandi,
Postulín og Elías Mar – Nýr
penni í nýju lýðveldi.
Þúsund bjartar sólir eftir Kha-
lad Hosseini vann kosningu
um bestu þýddu skáldsöguna
með gríðarlegum yfirburðum.
Gælur, fælur og þvælur var
valin besta íslenska barnabók-
in og Harry Potter og dauða-
djásnin var svo vitanlega valin
besta þýdda barnabókin.
Besta ljóðabókin þótti Blót-
gælur Kristínar Þóru Tóm-
asdóttur.
Bíbí með
yfirburði
AFMÆLI Í DAG
Leonid Brezhnev
Sovétleiðtogi, 1906
eymundsson.is
Mikið úrval af
erlendum bókum
Modern Art 1900-1945
5.995 kr.
Making Money
2.995 kr.
The Mephisto Club
1.295 kr.