24 stundir - 19.12.2007, Page 24

24 stundir - 19.12.2007, Page 24
24 MIÐVIKUDAGUR 19. DESEMBER 2007 24stundir Eftir Hildu H. Cortez hilda@24stundir.is „Við höfum verið að selja úr fyrir allt upp undir hálfa milljón í jóla- pakkana og það er alls ekkert eins- dæmi,“ segir Andri Sævarsson hjá Leonard. „Við seljum líka mikið af hringum, armböndum og eyrna- lokkum, svo eitthvað sé nefnt. Fólk er mikið að koma hvað öðru á óvart með slíkum gjöfum. Ég myndi segja að það væri mikil traff- ík í desember, meira en gengur og gerist á öðrum tímum ársins, þannig að það leynast skartgripir í mörgum jólapökkum.“ Loðfeldir í jólapakkann „Það er meira að gera hjá okkur fyrir jólin en á öðrum tímum árs en annars hefur það jafnast frá því sem áður var og dreifist meira yfir allt árið,“ segir Hildur Guðlaugs- þess að skipta út gömlu græjunum og margir nýta sér það tækifæri, enda er mikið horft á sjónvarp yfir hátíðarnar þannig að í raun er þetta tilvalinn tími til þess að breyta til. Við erum til dæmis að bjóða upp á pakka þar sem fólk getur keypt heilt heimabíósett, sjónvarp og græjur með uppsetningu og kennslu á allan búnaðinn ásamt forritun á fjarstýringum og þess háttar fyrir rúmar 349.000 krónur.“ Hrafnkell segir tengistöðvarnar frá Bose einnig vera vinsæla jólagjöf. „Þetta eru einstakar græjur sem þess vegna er hægt að koma fyrir úti í garði á góðviðrisdegi og hægt er að njóta tónlistarinnar hvar sem er í húsinu. Við höfum verið að selja slíkar tengistöðvar á 49.900 krónur og síðan er önnur týpa á til- boði hjá okkur á 39.900 krónur.“ 24 stundir/Sverrir Vilhelmsson Gjafir á hundruð þúsunda íslenskra króna ekkert einsdæmi Dýrir loðfeldir, milljónaúr og heimabíó í jólapakkann ➤ Talið er að jólaverslun á Ís-landi muni aukast um tæp 10% á milli ára. ➤ Mest er aukning í jólaversluná Íslandi miðað við hin Norð- urlöndin. ➤ Mikil leikfangaverslun virðistætla að verða fyrir jólin en eins hefur sala á íþrótta- og rafmagnsvörum aukist. JÓLAGJAFIRÍslendingar gerast kaup- glaðir fyrir jólin og er ekkert óalgengt að þeir fjáðustu eyði hundruðum þúsunda í jólagjafir handa sínum nánustu. Skartgripir, græjur og dýrindis loðfeldir leynast þá meðal annars í jóla- pakkanum. Jólagjafir Sumar kosta allt upp í nokkur hundruð þúsund. dóttir, verslunarstjóri hjá Eggerti feldskera. „Sumir koma til okkar og kaupa eitthvað til þess að koma makanum á óvart en við höfum lagt áherslu á að eiginmennirnir leyfi konunum sínum að vera með í valinu, ef hægt er. Þetta eru of dýr- ar vörur til þess að vera ekki full- komlega ánægður með. Þeir sem ætla að gleðja konuna með loðfeldi hafa þá til dæmis verið að fá hjá okkur skinn sem þeir pakka inn og svo getur konan komið og valið sér feld.“ Hildur segir verðbilið vera breitt. „Við erum til dæmis með mokkajakka eða loðfóðraða jakka frá 70.000 krónum og svo er þetta alveg upp í mjög dýra loðfeldi. Það selst auðvitað aldrei jafn mikið af því allra dýrasta en það fer þó alltaf eitthvað af þeim fyrir hver jól.“ Tugþúsunda græjur „Heimabíóið er alltaf vinsælt í jólapakkann,“ segir Hrafnkell Pálmarsson, verslunarstjóri hjá Sense. „Það virðist ýmist vera sam- eiginleg ákvörðun að kaupa fyrir heimilið eða keypt er til þess að koma makanum á óvart, þannig að það er allur gangur á því. Það má segja að það sé meira að gera hjá okkur fyrir jólin en venjulega, enda er þetta tími þegar verslun eykst á öllum vígstöðum. Fólk virðist ekki setja það fyrir sig að kaupa stærri pakka enda er þetta góður tími til Nú er hægt að kaupa tilbúnar fyllingar í jólakalkúnann með ýmsu góðgæti í matvöruverslunum og úrvalið hefur aldrei verið betra. Hins vegar er sérlega auðvelt að út- búa fyllingu og gaman að gefa henni sérkenni og þróa jafnvel uppskrift sem stórfjölskyldan held- ur upp á. Stórskotalið matreiðslu- manna í Bretlandi hefur sent frá sér góðar uppskriftir að fyllingum sem hægt er að taka mið af. Nigella Lawson notar piparkökur í sína fyllingu, Sophie Grigson notar púrtvín, beikon og trönuber og Gordon Ramsay notar furuhnetur og salvíu. Engrar nákvæmni er þörf þegar kemur að því að útbúa fyllingu. Bragðlaukarnir ráða og fyllinguna skal smakka til. Hvort sem þú tek- ur mið af óvenjulegri fyllingu Ni- gellu Lawson, þar sem hún notast við piparkökur, eða trönuberja- og púrtvínsfyllingu Sophie Grigson, þá getur þú valið úr því sem þér hentar best og af því sem til er í matvöruverslunum þá stundina; ferskar kryddjurtir, uppáhaldsvínið þitt, sítrónubörkur, furuhnetur, heslihnetur, beikon, mandarínur, apríkósur, epli og sveskjur eru til að mynda meðal hráefna sem grípa má í. Í piparkökufyllingu Nigellu þarf smjör, matarepli, beikon, fínt skorinn börk af 2 klementínum (eða 1 appelsínu), 450 g af pip- arkökum og 2 egg, og svo er krydd- að til með pipar. Mælt er með því að steikja fyllinguna sér áður en henni er stungið (hálsmegin) í kal- kúnann. Piparkökur, mandarínur eða trönuber? Notaðu hugmyndaauðgina GJAFABRÉF OG ÚRVAL SKEMMTILEGRA GJAFAPAKKA FYRIRJÓLIN: Nýtt: Súkkulaðidekur Dekrum við líkama og sál með yndislegum súkkulaðimeðferðum: Súkkulaðiandlitsbað, Súkkulaðifótsnyrting Súkkulaðihandsnyrting Súkkulaðilíkamsmeðferð Súkkulaðivax Tilboð Þú kaupir súkkulaðiandlitsbað og -fótsnyrtingu og færð handsnyrtingu í kaupbæti Fríir prufutímar í Eurowave og sogæðanudd Smiðjuvegi 1 - Sími 564 4858 - www.fyrirogeftir.is Opið mán - fim 10 - 20 fös 10 - 18 og lau 10 - 18 Vantar þig ennþá gjöfina hennar? AÐEINS Í DESEMBER: Ársátak með 60 % afslætti! Veiðikortið veitir aðgang að 31 vatnasvæði vítt og breitt um landið og kostar aðeins 5000 kr. K R A FT A V ER K Fæst hjá N1, veiðibúðum og á www.veidikortid.is Frí heimsending þegar verslað er beint á vefnum Fullt af fróðleik og skemmtilegu efni Serblad 24 stunda Heilsa 4.januar 2008

x

24 stundir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.