24 stundir - 19.12.2007, Side 40

24 stundir - 19.12.2007, Side 40
40 MIÐVIKUDAGUR 19. DESEMBER 2007 24stundir Eftir Hildi Eddu Einarsdóttur hilduredda@24stundir.is Heimaræktun á grænmeti og kryddjurtum verður sífellt vinsælli hér á landi, enda margir sem kjósa fersk og lífrænt ræktuð matvæli umfram allt annað. En margir kunna að reka sig á að það kostar töluverða fyrirhöfn að rækta sitt eigið grænmeti, hvort sem það er gert úti á svölum eða inni í eld- húsi ásamt því sem íslenska skammdegið er afar óhagstætt plöntum sem þurfa mikið ljós. Auður Jóhannsdóttir, fram- kvæmdastjóri heildverslunarinnar Lifu ehf., hafði upplifað það hversu tímafrekt og erfitt það get- ur reynst að rækta eigið grænmeti, ekki síst á veturna, þegar hún rakst á sérstætt heimilistæki í verslunarleiðangri í Bandaríkjun- um fyrir tveimur árum. Um var að ræða sjálfvirkt, jarðvegslaust ræktunartæki til heimilisnota, en í því er meðal annars hægt að rækta kryddjurtir, salat og smærra græn- meti á borð við chili-pipar og kokteiltómata. „Ég skoðaði þetta tæki, leist vel á og ákvað að skella mér á eitt svoleiðis og drösla því með mér heim. Síðan þá hef ég ræktað alls kyns grænmeti og kryddjurtir í mínu eigin eldhúsi og nota það mjög mikið í mat- seldina,“ segir hún. Þar sem tækið var keypt í Bandaríkjunum þarf hún að tengja það við straum- breyti til að það virki, en nú hefur hún fengið í hús sendingu af þess- um tækjum sem eru sérstaklega ætluð fyrir Evrópu og þurfa því enga straumbreyta. „Ég sá um leið að þetta væri eitthvað sem ætti er- indi á íslenskan markað og byrjaði því strax að vinna að því að flytja þau inn. Fyrsta sendingin er nú komin og fer í verslanirnar bráð- lega,“ bætir hún við. Tækið er þannig úr garði gert að á því er lampi sem veitir plöntunum ljós eftir þörfum og það sér sjálft um að úða þær og næra. Það eina sem eigandinn þarf að gera er að fylla reglulega á vatnsgeyminn og setja í það næringartöflur, en í hvert skipti sem tími er kominn á meira vatn eða næringu kviknar ljós á tækinu og aðvarar þannig eigand- ann. „Þannig er fyrirhöfnin ótrú- lega lítil en vöxturinn á plöntun- um mikill. Það er helst að ég hafi ekki haft undan við að klippa af fyrir matseldina,“ segir Auður að lokum. Heimaræktun á grænmeti og kryddjurtum auðvelduð til muna Lítill sjálfvirkur matjurtagarður Senn kemur á markað hér á landi sjálfvirkt, jarð- vegslaust ræktunartæki til heimilisnota, þar sem hver og einn getur rækt- að sínar eigin fersku kryddjurtir, kokteiltóm- ata, salat og fleira. Það er heildverslunin Lifa ehf. sem flytur tækið inn til Íslands. Matjurtagarður í eldhús- inu Tryggir ferskt græn- meti í matseldina. ➤ Heitir á frummálinu Aero-garden og fæst bráðum í fyrsta skipti á Íslandi ➤ Lampinn yfir pottinum erstillanlegur og er því hægt að hækka hann eftir vexti plantnanna. HEIMILISTÆKIÐ Hér getur að líta svokallað húð- flúrshús eða tattoo-house eftir hinn þekkta ástralska arkitekt And- rew Maynard. Þetta er viðbygging við lítið fjögurra herbergja íbúðar- húsnæði í Fitzroy North í Virginíu- héraði í Ástralíu en nafnið á húsinu kemur til vegna hins risastóra hvíta trés sem hefur verið límt á gler- veggi og glugga. Tilgangurinn með trénu er ekki einungis fag- urfræðilegur heldur veitir það íbú- um hússins skjól fyrir forvitnum augum nágranna og steikjandi sumarsólinni. Húðflúrshúsið hefur vakið at- hygli víða um veröld enda sam- einar það ýmsa kosti. Í fyrsta lagi er það ákaflega óvenjulegt við fyrstu sýn ásamt því sem húðflúrið sjálft, hvíta tréð, er ákaflega nýtískulegt. Í öðru lagi er það mjög stílhreint í anda mínimalismans og í þriðja lagi var það hannað með hag- kvæmni og sparnað að leiðarljósi, enda mjög einfaldar útlínur á því og byggingarefnið tiltölulega ódýrt. Eins og fyrr segir er það húð- flúrið sjálft sem gegnir lykilhlut- verki í þessu húsi vegna hinna margþættu hlutverka þess. Víða um heim má sjá stórar og smáar skrifstofubyggingar þar sem gler er helsta byggingarefnið, en eðlilega er minna um að íbúðarhúsnæði sé þannig byggt vegna friðhelgi einka- lífsins sem flestum er afar kært. Þarna hefur arkitektinum þó tekist að finna stílhreina lausn sem býður upp á möguleika á gleríbúð- arhúsum fyrir einstaklinga og fjöl- skyldur. Hvort svona húðflúrshús henta vel íslenskum aðstæðum eður ei skal ósagt látið en þó er í fljótu bragði ekki margt sem mælir gegn því, en helst þá kannski bjartar sumarnætur. Hús með húðflúri í Ástralíu Glerviðbygging við íbúðarhúsnæði Furuilmur er að margra mati ómissandi í stofunni um jólin og geta þeir hinir sömu því sjaldnast hugsað sér annað en að fá sér lif- andi jólatré um hver jól. Slíku tré fylgir hins vegar gjarnan töluverð fyrirhöfn, enda hrynja furunálar af þeim niður á gólf ásamt því sem þau þarf að vökva og svo þarf að losna við þau út úr húsi eftir hátíð- arnar. Hið sama er ekki að segja um gervijólatrén. Vissulega fylgja þeim ákveðnir ókostir, eins og til dæmis ilmleysið, en kostir þeirra eru þó ótvíræðir. Gervijólatrén strá ekki nálum á gólfið og þurfa ekki vatn til þess að haldast græn. Svo er einfalt að setja þau beint aftur inn í geymslu eftir hátíðarnar og láta þau standa þar fram á næstu jól. Gervijólatré ekki svo galinn kostur Fara ekki „úr nálum“ Græn allt árið Gervi- jólatrjám fylgir ekki sóðaskapur. Jólasýning Handverks og hönn- unar var opnuð 8. desember síð- astliðinn en henni lýkur á Þor- láksmessu og fer því hver að verða síðastur að kíkja á al- íslenska hönnun í elsta húsi Reykjavíkur við Aðalstræti 10. Þetta er í áttunda sinn sem Hand- verk og hönnun heldur jólasýn- ingu, en það voru Margrét Jóns- dóttir leirlistakona og Oddrún Halldóra Magnúsdóttir skart- gripahönnuður sem sáu um upp- setningu á sýningunni. Alls sýnir 51 íslenskur hönnuður á sýning- unni. Jólasýningu lýkur senn LÍFSSTÍLLHEIMILI heimili@24stundir.is a Þannig er fyrirhöfnin ótrúlega lítil en vöxturinn á plöntunum mikill. www.eirberg.is • 569 3100 • Stórhöfða 25 Rafknúnir hæginda- stólar • Auðvelda þér að standa upp • Einfaldar stillingar og fjölbreytt úrval Verð frá 98.000 krónum

x

24 stundir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.