24 stundir - 19.12.2007, Page 46

24 stundir - 19.12.2007, Page 46
46 MIÐVIKUDAGUR 19. DESEMBER 2007 24stundir 24LÍFIÐ 24@24stundir.is a Kaldlyndi kötturinn er eiginlega verndarengillinn minn. Hann fer fyrst á svið áður en ég byrja að spila á hverjum einustu tónleikum. Eftir Ragnheiði Eiríksdóttur heida@24stundir.is Tim Ten Yen er nýstirni á hraðri uppleið í heimalandi sínu, Bret- landi. Hann spilar það sem hann kýs að kalla karókípopp og kemur fram vopnaður hljómborði og reykvél. Honum fylgir líka ávallt „Kaldlyndi kötturinn“ eða „The Sinister Cat“ sem er nokkurs konar verndari hljómsveitarinnar. Pakkar kettinum fyrst Tim gaf sér tíma til að svara nokkrum spurningum um köttinn og sig. „Kaldlyndi kötturinn er eig- inlega verndarengillinn minn. Hann fer fyrst á svið áður en ég byrja að spila á hverjum einustu tónleikum. Hann sest ofan á hljómborðið og gefur frá sér ein- hvers konar galdraáru sem leggst yfir tónleikagesti.“ Hvað myndi gerast ef kötturinn gleymdist heima? „Ég hreinlega veit það ekki, ég hef aldrei þurft að koma fram án hans. Ætli ég myndi ekki bara af- lýsa tónleikunum,“ segir Tim hlægjandi. „Kötturinn fer alltaf fyrst ofan í tösku, á undan hljóm- borðunum og öllum græjunum.“ Tónlist fyrir japanska launþega „Tónlistin sem ég spila end- urspeglar svolítið lífsstíl hins týp- íska japanska launþega,“ segir Tim þegar hann er spurður út í tónlist- arstefnuna. „Ég hef aldrei komið til Japans en hef mikinn áhuga á jap- önsku jakkafatamönnunum. Þeir njóta mikillar virðingar og karókí- tónlistin er samofin lífsstíl þeirra. Ég kaus að fara þessa leið með tón- listina og kötturinn er partur af því. Hann bætir við hinu dul- arfulla austræna andrúmslofti sem ég þarf á að halda.“ Hljómsveitirnar Hellvar og Sexy Jazz hita upp, en sú síðarnefnda samanstendur af meðlimum Ber- tel! og Sometime. Boðið verður upp á eggjapúns fyrir stundvísa til 22.00 en tónleik- arnir hefjast þá. Aðgangseyrir er 1000 krónur en hægt er að nálgast miða á midi.is. Tim Ten Yen Mun áreið- anlega stíga villtan dans ásamt kaldlynda kett- inum sínum. Tim Ten Yen spilar á tónleikum á Organ á fimmtudag Rafkötturinn slær taktinn Það er alltaf spennandi þegar óvenjulegir tónlist- armenn spila á Íslandi og Tim Ten Yen fellur svo sannarlega í þann flokk. Hann spilar karókípopp og kemur fram með ketti. ➤ Stofnaði hljómsveitina fyrirþremur árum, en var fyrsta árið að yfirstíga sviðsskrekk. ➤ Bætti við rafketti sem hannkallar „The Sinister Cat“ til að hafa einhvern með sér á svið- inu. TIM TEN YEN Leikstjórinn Peter Jackson og stjórnarformenn New Line Ci- nema og MGM kvikmyndaveranna tilkynntu með formlegum hætti í gær að sættir hefðu náðst milli Jacksons og New Line en deilur hafa staðið milli þessara tveggja aðila um hagnað af Lord of the Rings-þríleiknum. Við sama tækifæri var einnig til- kynnt að Jackson og eiginkona hans, Fran Walsh, myndu taka að sér kvikmyndun hinnar geysi- vinsælu bókar J.R.R. Tolkien, The Hobbit, sem og fyrirhugaðrar framhaldsmyndar hennar. Þetta eru gleðitíðindi fyrir aðdáendur ævintýraheims Tolkien en Jackson og Walsh tókst einstaklega vel til með gerð Hringadróttinssögu. vij Sögulegar sættir Snýr aftur til Miðgarðs Heitustu óskir aðdáenda Hringadróttinssögu hafa ræst því Peter Jackson mun gera The Hobbit. Jackson reynir við Hobbitann Hljómsveitin múm fagnar heimkomu sinni og vel heppnaðri tónleikaferð á Organ í kvöld kl. 21:00. Á tónleikunum koma fram múm (DJ set), Mr. Silla & Mon- goose og fleiri óvæntir gestir. Ókeypis er inn og skríplagos verð- ur í boði fyrir gesti á meðan birgð- ir endast. Múm mun ekki spila á Íslandi fyrr en eftir tónleikaferð sína til Japans snemma á næsta ári, þar sem hún spilar meðal annars á þrennum tónleikum með Skakka- manage. Í sumar lék sveitin á sér- völdum tónlistarhátíðum víða um Evrópu, til að mynda Primavera í Barcelona, La Mar de Musicas í Murcia, Villette Sonique í París, Sync festival í Aþenu, Afisha í Moskvu og nú síðast á hálfgerðum leynitónleikum á Museum of Gar- den History í London, þar sem gestir voru dregnir úr hatti. Múm hefur verið að kynna fjórðu hljóm- plötu sína „Go Go Smear the Poi- son Ivy“ sem er nýkomin út en platan var öll tekin upp í skólum, meðal annars í Tónlistarskólanum á Ísafirði og í gömlum skóla á eynni Nötö sem liggur á milli Sví- þjóðar og Finnlands. heida@24stundir.is Skemmtikvöld múm á Organ

x

24 stundir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.