24 stundir - 08.02.2008, Qupperneq 4
4 FÖSTUDAGUR 8. FEBRÚAR 2008 24stundir
Almannavarnadeild ríkislög-
reglustjórans vekur athygli á að
Veðurstofa Íslands spáir óveðri á
landinu í dag og á morgun. Það
hlýnar um allt land í dag og er
gert ráð fyrir 4-9 stiga hita á land-
inu og einnig talsverðu vatns-
veðri og snörpum vindhviðum.
Er húseigendum bent á, að
hreinsa vel frá niðurföllum og
huga að lausum munum. Þá verði
stórstreymt og eigendur báta á
Suðvesturlandi eru beðnir að
huga að þeim. mbl.is
Óveðursviðvörun
Rok og rigning
Vísitala íbúðaverðs á höfuðborg-
arsvæðinu var 357,4 stig í janúar
og hækkaði um 1,5% frá fyrra
mánuði, sam-
kvæmt útreikn-
ingum Fast-
eignamats
ríkisins. Síðustu
tvo mánuði liðins
árs og í janúar á
nýhöfnu ári stóð
vísitalan nánast í
stað, síðastliðna 6
mánuði hefur hún hækkað um
4,5% og hækkun síðastliðna 12
mánuði var 14%.
Vísitala íbúðaverðs á höfuðborg-
arsvæðinu, sýnir breytingar á
vegnu meðaltali fermetraverðs.
mbl.is
Fermetraverð íbúða
Breyting finnst
Hæstiréttur hefur dæmt karl-
mann í sex ára fangelsi fyrir tilraun
til manndráps, en hann skaut að
konu sinni úr haglabyssu inni á
heimili þeirra í Hnífsdal í júní á
síðasta ári. Áður hafði Héraðsdóm-
ur Vestfjarða dæmt manninn til
fjögurra og hálfs árs fangelsisvistar.
Í niðurstöðu Hæstaréttar kemur
fram að konan hlaut ekki alvarlega
áverka. Hins vegar hafi beiting
skotvopnsins verið þannig að
hending ein réð því að ekki hlaust
bani af.
Við ákvörðun dómsins var litið
til þess að ásetningur hins dæmda
til verknaðarins hafi verið einbeitt-
ur. hlynur@24stundir.is
Dómur felldur yfir skotmanni í Hnífsdal
Sex ára fangelsi fyrir
að skjóta að konunni
Neytendasamtökin eru frjáls félagasamtök: stofnuð árið 1953. Þau
verja hag félagsmanna og berjast fyrir hagsmunum neytenda.
Sjá www.ns.is - netfang:ns@ns.is
Gerð var verðkönnun á 1/4 ltr. af Kókómjólk
frá Mjólkursamsölunni.
Talsverður verðmunur var á fernunni eða 73,6% mun-
ur á hæsta og lægsta verði eða 53 krónur.
Óheimilt er að vitna í könnunina í auglýsingum.
73,6 % munur á kókómjólk
Kristín
Einarsdóttir
NEYTENDAVAKTIN
Söluaðili Verð Verðmunur
Björnsbakarí 72
Olís, Álfheimum 80 11,1 %
Select, Suðurfelli 82 13,9 %
N1, Ártúnshöfða 85 18,1 %
Bakarameistarinn 100 38,9 %
Jói Fel 125 73,6 %
ÍS
L
E
N
S
K
A
S
IA
.I
S
I
C
E
4
09
96
0
2
/0
8
TILBOÐ 7.–15. FEBRÚAR
+ Nánari upplýsingar og bókanir á
www.icelandair.is eða í síma 50 50 100
* Innifalið í verði: Flug aðra leið og flugvallarskattar. Ferðatímabil: 7. febrúar–31. desember.
Verð frá 1
4.890 kr.*
HELSINKI
24 stunda
Auglysingasimi
Kolbrun S.510 3722 / kolla@24stundir.is
Katrin s.510 3727 /kata@24stundir.is
SerbladBorn
og
uppeldi
13.FEBruar 2008
Eftir Ægi Þór Eysteinsson
aegir@24stundir.is
Vodafone á Íslandi hyggst kæra
ákvörðun Póst- og fjarskiptastofn-
unar um að birta tölfræðiupplýs-
ingar um fjarskiptamarkaðinn hér
á landi, til úrskurðarnefndar póst-
og fjarskiptamála.
Málið varðar upplýsingar um ís-
lenska fjarskiptamarkaðinn sem
fjarskiptafyrirtæki hafa látið Póst-
og fjarskiptastofnun í té í tengslum
við lögbundin verkefni hennar.
Margskonar upplýsingar
Á meðal þeirra upplýsinga sem
um ræðir eru heildarfjöldi mínútna
sem viðskiptavinir fyrirtækisins
hafa talað í sína farsíma og hversu
mörg mynd- og smáskilaboð þeir
hafa sent. Þá er þar að finna upplýs-
ingar um tekjur símafyrirtækjanna
af reikisímtölum og heildartekjur
þeirra af fjarskiptastarfsemi, sem og
fjárfestingar þeirra eftir fjarskipta-
starfsemi.
Þann 23. nóvember sendi Póst-
og fjarskiptastofnun hagsmunaað-
ilum bréf þar sem þeim voru til-
kynnt áform stofnunarinnar um að
birta umræddar upplýsingar. Voda-
fone sendi stofnuninni bréf 10. des-
ember þar sem óskað var eftir því
að tilteknar tölfræðiupplýsingar
yrðu ekki birtar um fyrirtækið.
Eftir þónokkrar bréfaskriftir tók
stofnunin þá ákvörðun að birta
umræddar upplýsingar að loknum
kærufresti sem rennur út á mánu-
daginn. Vodafone mun kæra
ákvörðun stofnunarinnar áður en
fresturinn rennur út.
„Við teljum mjög óeðlilegt að
stofnun sem hefur mjög ríkar
heimildir til að afla gagna noti þau
með þessum hætti. Okkur grunaði
aldrei að þær upplýsingar sem við
afhentum stofnuninni undir for-
merkjum trúnaðar, yrðu birtar og
samkeppnisaðilar okkar hefðu að-
gang að þeim,“ segir Hrannar Pét-
ursson, upplýsingafulltrúi Voda-
fone.
„Hér er um viðkvæm viðskipta-
leg gögn að ræða sem einfaldlega
verða til þess að okkar samkeppn-
isaðilar fá miklu betri sýn á okkar
rekstur en annars væri. Þetta hefur
ekkert að gera með upplýsingagjöf
til neytenda, þetta kemur fyrst og
fremst okkar keppinautum til
góða.“
Upplýsingar sem eiga rétt á sér
„Það er okkar lögbundna hlut-
verk að reyna að þróa fjarskipta-
markaðinn hérlendis. Við teljum
að vissar grunnupplýsingar og
stærðir hvað varðar þróun mark-
aðarins eigi rétt á sér út á mark-
aðinn,“ segir Hrafnkell V. Gíslason,
forstjóri Póst- og fjarskiptastofnun-
ar.
Hvorki Síminn né önnur fjar-
skiptafyrirtæki hér á landi hafa gert
athugasemdir við fyrirhugaða birt-
ingu á upplýsingunum.
Vodafone í hart
Póst- og fjarskiptastofnun kærð vegna birtingar á tölfræðiupp-
lýsingum Stofnunin sökuð um að nota trúnaðarupplýsingar
➤ Í skýrslu stofnunarinnarverða upplýsingar um fjölda
fastra GSM-áskrifta.
➤ Þar verður einnig að finnafjölda internetáskrifenda og
verðsamanburð á heimasím-
um og farsímum.
UPPLÝSINGARNAR
Óeðlilegt Hrannar
Pétursson segir
Vodafone ekki hafa
grunað að upplýs-
ingar frá fyrirtæk-
inu yrðu birtar op-
inberlega.