24 stundir - 08.02.2008, Page 27
24stundir FÖSTUDAGUR 8. FEBRÚAR 2008 27
Gott er að kaupa nýjan hárbursta
að minnsta kosti árlega en þess á
milli er mikilvægt að þrífa burst-
ann vel. Eftir að hafa tekið hárin úr
burstanum er gott að þvo hann
með volgu vatni og mildri sápu eða
sjampói. Gamall tannbursti getur
líka reynst vel til að hreinsa hár-
burstann sérlega vel. Ef þú eyðir
miklum tíma í hárið á þér ættir þú
sannarlega að eyða tíma í hár-
burstann líka.
Hreinn og fínn
hárbursti
Í vor og sumar verða einfaldir og
klæðilegir samfestingar áberandi
en allir helstu hönnuðirnir sýndu
slíkar flíkur á vor- og sumarsýn-
ingum sínum í byrjun janúar.
Samfestingarnir eru úr léttum efn-
um í klassískum litum og fara vel
við flotta hælaskó, eins má gera þá
enn sparilegri með réttum fylgi-
hlutum. Helstu litirnir eru svartur,
hvítur og grár en einnig voru
brúnir tónar áberandi.
Stílhreinir
samfestingar
Fatahönnuðurinn Matthew
Williamson sýndi hönnun sína á
tískupöllunum í vikunni. Haust-
lína Williamson einkennist af
sterkum, áberandi litum og
flottu mynstri í bland við þunga,
dökka liti. Skemmtileg snið,
flottir jakkar og kápur úr ýms-
um efnum voru áberandi ásamt
stuttum pilsum, kjólum, fal-
legum sokkabuxum og flottum
hálsklútum.
Haustlína
Williamson
Um áramótin var veitingastað-
urinn Brons opnaður að Póst-
hússtræti 9, þar sem Kaffi-
brennslan var áður. Davíð
Sigurðarson markaðsstjóri segir að
viðtökurnar hafi verið mjög góðar.
„Brons er veitingastaður og bar en
þó aðallega veitingastaður. Við
bjóðum upp á létta tapasrétti en
við leggjum mikið upp úr því að
maturinn sé góður og fallegur. Svo
bjóðum við líka upp á stærri rétti
en kostur þess að hafa tapas er að
fólk getur komið og fengið sér litla
rétti, þótt það ætli sér ekki að fá
heila máltíð,“ segir Davíð og bætir
við að staðurinn hafi verið tekinn
alveg í gegn. „Þetta er flottur stað-
ur.“
Næstkomandi laugardag verður
glæsileg veisla á Brons. „Það er allt-
af eitthvað skemmtilegt að gerast
hjá okkur um helgar og á laug-
ardag ætlum við að taka sér-
staklega vel á móti gestum okkar á
milli 21-22 og bjóða upp á frían
Baccardi Breezer half sugar. Maggi
Legó verður plötusnúður og bar-
inn er alltaf opinn til þrjú um helg-
ar þannig að það verður nóg um
að vera. Á fimmtudagskvöldum er-
um við með Wild Mojito-kvöld og
þá myndast mjög skemmtileg
stemning. Þá er vitanlega hægt að
fá venjulegan Mojito en við erum
búin að þróa Wild Mojito með
berjum. Við verðum alltaf með
Wild Mojito-kvöld á fimmtudög-
um ásamt góðum plötusnúði og
tökum vel á móti fólki þá, sem
endranær,“ segir Davíð og hlær
þegar hann er inntur eftir því hvort
alltaf sé stuð á Brons. „Við erum
dugleg að brydda upp á nýjungum
og erum oft með einhvers konar
þema. Um daginn vorum við með
kokteilþema sem var mjög vin-
sælt.“
Nýr veitingastaður í Pósthússtræti
Léttur og góður matur
Brons Um áramótin var veitingastaðurinn Brons opnaður að Pósthússtræti 9.
KYNNING
Ingólfur H. Ingólfsson kennir þér að spara
milljónatugi á námskeiðinu Úr mínus í plús.
Á námskeiðinu lærir þú meðal annars:
að greiða hratt niður lán með þeim peningum
sem fara nú þegar í afborganir
að byggja upp sparnað og eignir óháð
tekjum og skuldum
allt um vexti, verðbætur og lánakjör
að búa sig fjárhagslega sem best undir lífið
að undirbúa eftirlaunaárin
að hafa gaman af því að eyða peningunum
ÞÚ ÁTT NÓG
AF PENINGUM
... Ingólfur hjálpar þér að finna þá!
Námskeiðagjald 9.000,-
Skráning í síma: 587 2580
og á www.spara.is
Láttu peningana vinna fyrir þig!
Þú lærir að fjárfesta í eignum og verðbréfum.
Hversvegna hrynja hlutabréf en
hrávörumarkaðurinn er í hæstu hæðum?
Væntanlegur spútnik á markaði verður kynntur á
hverjum námskeiði.
Spútnik frá febrúarnámskeiðinu 2006 hefur skilað
yfir 500% ávöxtun!
Fjárfestingar
og hlutabréf
Úr mínus
í plús Metsölubókin „Þú átt nóg
af peningum“ er fáanleg á
námskeiðunum og í bók-
abúðum um land allt.
Umsagnir:
“Það er mér sönn ánægja að
mæla með þessari bók. Ég
keypti hana vegna þess að
ég trúði ekki hinni ögrandi
fullyrðingu höfundar:
“Þú átt nóg af peningum ...”
Nú veit ég að þessi fullyrðing
er sönn”
- Þráinn Bertelsson, rithö-
fundur
“Ég get svo sannarlega mælt
með bók Ingólfs. Félagsmenn
sem sótt hafa námskeið hans
eru sammála um að Ingólfur
hafi opnað þeim leiðir til að
endurskoða fjármál sín og ná
betri tökum á þeim”
-Þórunn Sveinbjörnsdóttir,
varaformaður Eflingar
Næstu
námskeið
Námskeiðin eru 4 tíma löng. Sum stéttarfélög greiða niður námskeiðin.
R E Y K J A V Í K
kl. 18:00 - 22:00 í Háskóla Íslands stofu 123 í Öskju
ÚR MÍNUS
Í PLÚS
4. mars
FJÁRFESTINGAR
OG HLUTABRÉF
6. mars
E G I L S S T A Ð I R
kl. 13:00 – 17:00 Hótel Hérað
ÚR MÍNUS
Í PLÚS
16. febrúar
FJÁRFESTINGAR
OG HLUTABRÉF
17. febrúar
Í S A F J Ö R Ð U R
Menntaskólanum Ísafirði
kl. 13:00 - 17:00 kl. 12:30 - 16:30
ÚR MÍNUS
Í PLÚS
23. febrúar
FJÁRFESTINGAR
OG HLUTABRÉF
24. febrúar
Þúsundir íslendinga eru að spara milljónir í vexti
og verðbætur með uppgreiðslukerfi spara.is.
Hvenær ætlar þú að bætast í hópinn?