24 stundir - 08.02.2008, Page 30
24 stunda
Auglysingasimi
Kolbrun S.510 3722 / kolla@24stundir.is
Katrin s.510 3727 /kata@24stundir.is
Serblad
Born
og
uppeldi
13.FEBruar 2008
30 FÖSTUDAGUR 8. FEBRÚAR 2008 24stundir
LÍFSSTÍLLHELGIN
helgin@24stundir.is a
Það verður einnig mikið af
„spontant“ uppákomum á
göngunum um daginn þannig að það
skapast svolítil karnivalstemning.
Eftir Einar Jónsson
einarj@24stundir.is
Börn og unglingar fá tækifæri til að
kynna sér menningu framandi
landa á Heimsdegi sem fram fer í
Gerðubergi á laugardag kl. 13-17.
Heimsdagur var einnig haldinn á
sama stað í fyrra og mættu þá allt
að 700 manns að sögn Evu Rúnar
Þorgeirsdóttur hjá Gerðubergi.
„Það var góð stemning hérna í
fyrra og við gerum okkur fullar
vonir um að fá sama fjölda og jafn-
vel fleiri,“ segir Eva Rún.
Framandi menningarheimar
Á Heimsdegi eru starfræktar
listsmiðjur sem tengjast menningu
landanna og segir Eva markmið
þeirra að kynna börnum og ung-
lingum fyrir menningarheimum
sem finnast í okkar nánasta um-
hverfi.
„Við erum til dæmis með
franskan fjöllistahóp sem heitir
Oki Haiku Dan-hópurinn. Þeir
ætla að kenna látbragð og einhver
sirkusbrögð. Svo getur maður
dansað skoskan dans eða salsa eða
kynnt sér japönsku pappírslistina
origami,“ segir Eva.
Ljós og hreyfing
„Þema Vetrarhátíðar í ár er ljós
og hreyfing þannig að við höfum
svolítið verið að vinna eftir því og
erum til dæmis með skuggaleik-
hússýningu Helgu Arnalds og
smiðju í kjölfarið. Það verður einn-
ig mikið af „spontant“ uppákom-
um á göngunum um daginn þann-
ig að það skapast svolítil
karnivalstemning,“ segir Eva. „Í
lok dags verður lokadagskrá í stóra
salnum í Gerðubergi þar sem af-
rakstur dagsins er sýndur. Þar geta
þeir sem hafa tekið þátt í smiðj-
unum sýnt hvað þeir hafa verið að
læra um daginn,“ segir Eva Rún að
lokum.
Nánari upplýsingar um Heims-
daginn má nálgast á vefsíðunni
gerduberg.is.
Framandi menning Börn
og unglingar geta lært allt frá
vopnasmíði til salsa og sirk-
usbragða á Heimsdegi í
Gerðubergi.
Fjölmenning á Heimsdegi í Gerðubergi
Fjölþjóðleg stemning
á alþjóðlegu karnivali
Fjölþjóðleg stemning
mun ríkja í Gerðubergi á
laugardag þar sem
Heimsdagur fer fram. Þar
gefst börnum tækifæri til
að taka þátt í listasmiðj-
um sem tengjast menn-
ingu framandi landa.
➤ Listsmiðjurnar eru meðalannars á sviði tónlistar, dans,
skriftar og vopnasmíðar.
➤ Einnig verður sýndur þjóð-dans frá Gana, bardagalist frá
Aikido og filippseyskur
bambusdans svo fátt eitt sé
nefnt.
HEIMSDAGUR
Árvakur/Ómar
Myrkir músíkdagar
Tónlist Nokkrir tónleikar verða
á tónlistarhátíðinni Myrkum
músíkdögum um helgina. Meðal
annars mun Ásgerður Júníus-
dóttir koma fram ásamt Adapter-
hópnum í Salnum í kvöld og Ca-
milla Söderberg heldur tónleika á
sama stað annað kvöld.
Menning að vetri til
Listahátíð Vetrarhátíð stendur
nú sem hæst og Reykvíkingum og
nágrönnum boðið upp á mikla
menningarveislu þar sem allir
ættu að finna eitthvað við sitt
hæfi. Dagskrána í heild sinni má
nálgast á vefsíðunni www.vetr-
arhatid.is.
Sprengjuhöllin á Akureyri
Tónleikar Ein vinsælasta hljóm-
sveit landsins, Sprengjuhöllin,
heldur tónleika á Græna hattin-
um á Akureyri í kvöld. Tónleik-
arnir eru haldnir í tilefni frum-
sýningar leikritsins Flóar á skinni
en sveitin á einmitt eitt lag í sýn-
ingunni.
Það besta í bænum
Toppfarar standa fyrir ljósagöngu á Esjuna á laugardag í tilefni Vetr-
arhátíðar. Lagt verður af stað á fjallið við sólsetur og gengið inn í
myrkrið. Þátttakendur ganga með ljós og mynda ljóskeðju upp Esjuna.
„Þetta getur verið mikið sjónarspil ef margir taka þátt og veður er
gott,“ segir Bára Agnes Ketilsdóttir sem fer fyrir hópnum upp fjallið.
Bára segir að ljósagangan sé fyrir alla. „Fólk á endilega að koma með
börn með sér. Við höfum tekið börn með og þeim finnst þetta alveg
meiri háttar,“ segir Bára sem hefur staðið fyrir Esjuferðum að vetr-
arlagi ásamt eiginmanni sínum. „Aðalhindrunin er að fólk trúir ekki
að þetta sé hægt. Jafnvel mjög vant fjallafólk tekur sér hlé yfir veturinn
og kemur ekki með okkur en um leið og menn prófa sjá þeir að þetta
er alveg hægt,“ segir hún.
Þátttakendur þurfa að skrá sig í gönguna fyrirfram á netfangið
bara@toppfarar.is. Nánari upplýsingar um gönguna má finna á vefsíð-
unni www.toppfarar.is.
Ljóskeðja upp Esjuna
Vísindasmiðja fyrir börn á öllum
aldri verður haldin í Ráðhúsi
Reykjavíkur í dag kl. 13-16. Þar
gefst þeim kostur á að vinna með
ljós og fjölbreyttan efnivið til
bygginga og kanna hvaða áhrif
ljós hefur á efnið. Guðrún Alda
Harðardóttir hjá Þjónustu-
miðstöð Miðborgar og Hlíða seg-
ir að skapað verði náms- og leik-
rými fyrir börnin til að vinna
sjálf. „Þetta er ekki sýning þar
sem þau eru bara þiggjendur
heldur taka þau þátt,“ segir hún.
„Þau byggja úr alls konar efni-
viði, allt frá trjágreinum yfir í
skókassa og allt þar á milli. Það
má eiginlega segja að við setjum
upp efnisveitu, ekki aðeins fyrir
börn heldur líka fullorðna,“ segir
hún. Sams konar vísindasmiðjur
hafa verið haldnar áður á Ak-
ureyri. „Þegar þetta hefur verið
gert fyrir norðan hafa foreldr-
arnir ekki síður leikið sér en
börnin og jafnvel meira,“ segir
Guðrún Alda að lokum.
Vísindasmiðja
fyrir börn
Halaleikhópurinn frumsýnir leikritið Gaukshreiðrið eftir Dale Was-
serman laugardaginn 9. febrúar. Sýnt verður í Halanum Hátúni 12
(Sjálfsbjargarhúsinu).
Leikritið endurspeglar þann uppreisnaranda sem ríkti í vestrænum
heimi á seinni helmingi sjöunda áratugar síðustu aldar. Það fjallar um
eðli geðveikrahæla, stöðu sjúklinganna innan þeirra eins og litið var á
geðjúkdóma um og upp úr miðri síðustu öld. Halaleikhópurinn er
áhugaleikhópur fyrir alla, fatlaða sem ófatlaða. Nánari upplýsingar og
sýningarplan má finna á www.halaleikhopurinn.is.
Gaukshreiðrið sýnt í Halanum