24 stundir - 08.02.2008, Qupperneq 32
32 FÖSTUDAGUR 8. FEBRÚAR 2008 24stundir
SÍMAR:
AX:
Alhliða bi
réttingar
GRÆNUMÝRI 3 - SÍMI 587 7659 - WWW.BILAPARTAR.IS
BÍLAPARTAR
VIÐ HÖFUM ÞAÐ SEM ÞÚ LEITAR AÐ
Ertu að flytja, láttu fagmenn
sjá um verkið fyrir þig
Örugg og trygg
þjónusta
Eftir Einar Elí Magnússon
einareli@24stundir.is
Fyrir nokkrum mánuðum fékk
ég til reynslu splunkunýjan Mit-
subishi Outlander með tveggja lítra
dísilvél. Þrátt fyrir að ég hafi kunn-
að vel við bílinn þótti mér mót-
orinn fullrólegur af stað. Ég var því
býsna forvitinn þegar ég fékk í
hendurnar annan bíl með 2,4 lítra
bensínvél og sjálfskiptingu.
Ef við rifjum upp nokkra af
helstu kostum bílsins má nefna raf-
stýrt fjórhjóladrif með læsingu á
millikassa, sparneytni, mikið af
hólfum og hirslum, stórt farang-
ursrými, tvískiptan afturhlera og
glæsilegt hljómkerfi.
Ég var hins vegar ekki eins
ánægður með íburðarleysi, hasta
fjöðrun og veghljóð. Dísilútgáfan
fékk þrjár og hálfa stjörnu á sínum
tíma og til að taka bensínútgáfuna
til kostanna dugði ekkert minna en
að skella sér norður á land í skíða-
ferð. Ferðafélagarnir voru 20
björgunarsveitarmeðlimir og veð-
urspáin hljóðaði upp á skítakulda
og rok. Helgin leit því mjög vel út.
Hálka? Ekki málið!
Þótt rútan með ferðafélögunum
hafi lagt af stað um klukkutíma á
undan okkur vorum við ekki kom-
in lengra en í Borgarnes þegar við
náðum þeim. Krafturinn í bensín-
vélinni er mikið jafnari en í dísil-
útgáfunni þannig að aksturinn
verður þýðari. Fjórhjóladrifið og
góð dekk sáu svo um að skila okkur
greiðlega áfram í hálkunni, en
stöku sinnum fannst mér hann
fullvakur í stýri.
Á leiðinni norður gafst líka gott
tækifæri til að kynnast Invecs-III
sjálfskiptingunni, sem er gríðarlega
skemmtileg blanda af tveggja kúp-
linga skiptingu og stiglausri skipt-
ingu. Síðastliðið haust prófaði ég
Lancer með sömu skiptingu. Hann
var búinn skiptiflipum við stýrið,
sem er líka hægt að fá í Outlander.
Sá búnaður bætir miklu við góðar
skiptingar, eins og þessa, en engu
við lélegar.
Björgunaraðgerðir
Ferðin norður var því hin
ánægjulegasta og vel fór um þá
fjóra sem í bílnum sátu. Þegar kom
að heimferð á sunnudag fóru hlut-
irnir fyrst að gerast.
Eftir skíða- og brettaiðkun laug-
ardagsins þurfti að búa sérstaklega
vel um sjúkling í björgunarsveit-
arsveitarrútunni. Þar sem veðurspá
var allt annað en góð ákváðum við
að leggja snemma í hann og vera í
samfloti með rútunni.
Á Öxnadalsheiði fór svo að fær-
ast fjör í leikinn. Þar var bíll fastur
langt fyrir utan veg og við ákváðum
að aðstoða björgunarsveitina frá
Dalvík við að koma honum upp á
veg. Þegar því var lokið var orðið
svo hvasst að kerran með farangr-
inum okkar dinglaði eins og skott á
hundi aftan í rútunni. Við fórum
því til baka í skjól, skildum kerruna
eftir og settum farangurinn í skott-
ið á Outlander.
Feikimikill farangur
Nú kannt þú að spyrja hversu
mikinn farangur 20 björgunar-
sveitarmeðlimir í skíða- og klifur-
ferð hafa meðferðis, þegar þeir eru
búnir að fara í útigallana. Jú, 7 pör
af skíða- og brettaskóm, 5 stök
snjóbretti, 6 bretti í töskum, 1
skíðapar í poka, 8 litlar töskur og
bakpokar, 7 stórar töskur og bak-
pokar, 2 dýnur, 1 stakur svefnpoki,
1 stakur hjálmur og tveir þoturass-
ar. Og þetta fór allt aftur í Out-
lander þegar búið var að leggja aft-
ursætin fram. Og enn var pláss
fyrir … ja, eiginlega ekkert.
Loks lögðum við aftur af stað og
komum til Reykjavíkur eftir tíu
tíma ferðalag. Outlander stóð sig
vel í svo að segja hinu versta veðri
og færi sem íslenskir vegir hafa upp
á að bjóða. Því má eiginlega segja
að bíllinn sé þjóðlegur, og það var
þægileg tilfinning að ferðast í hon-
um, eins og títt er um bíla sem
maður lærir fljótt á og sem hlýða
manni í einu og öllu.
Reynsluakstur Mitsubishi Outlander Intense 2,4 bensín
Sakleysislegur reynslu-
akstur getur auðveldlega
orðið hið mesta ævintýri.
Og þá er eins gott að vera
með rétta bílinn í hönd-
unum.
Bíllinn er skemmtilegri í þessari út-
gáfu en með dísilmótornum, þó
sparneytnin sé ekki sú sama. Svín-
virkar í íslensku vetrarumferðinni.
NIÐURSTAÐA
Rúmgóður Farangur fyrir 20 manns.
Björgunaraðgerðir Í góða veðrinu á Öxnadalsheiði.
Að utan
Sportlegur og álitlegur, tvískiptur
afturhlerinn vekur sérstaka lukku.
Að innan
Dulítið hrár en venst vel og er
þægilegur til íveru og ferðalaga.
Öryggi og búnaður
Isofix barnastólafestingar, sérlega
skemmtileg sjálfskipting,
Fjölskyldan
Fæst í sjö manna útgáfu, gott
farangursrými en dísilútgáfan er
hagkvæmari í rekstri.
Í HNOTSKURN
Þýður og þjóðlegur
MITSUBISHI OUTLANDER 2,4
Einar Elí Magnússon einareli@24stundir.is
2 lítra bensínmótor • 170 hestöfl • 232 Nm • Invecs-
III sjálfskipting • Fjórhjóladrif með læsingu í mil-
likassa • 10,8 sek. í hundrað • Eyðsla í blönduðum
akstri 9,3 l / 100 km • Stöðugleikabúnaður • ABS •
Verð: 3.650.000 kr. • Umboð: Hekla
+
-
Þýður, þægilegur
og skiptingin mjög
skemmtileg.
Ekki eins hagkvæmur
og dísilbíllinn, enn
hrár að innan.
Á pappír: Upplifun: Verð:
HEKLA frumsýnir um helgina
nýjan Volkswagen Tiguan sem hef-
ur þá sérstöðu í flokki sportjeppa
að vera hlaðinn staðalbúnaði. Þá
hefur jeppinn mesta dráttargetu í
sínum flokki og er sá fyrsti sem
leggur sjálfur í stæði. Tiguan fæst í
þremur útfærslum; Sport & Style,
Track & Field og Trend & Fun. All-
ar gerðir eru fáanlegar með sjálf-
skiptingu og TDI-dísilvél.
Hægt verður að reynsluaka
Tiguan-bílunum í sérhannaðri tor-
færubraut fyrir utan HEKLU um-
boðið. En þar verða heitar vöfflur,
kakó, pylsur og gos einnig á boð-
Með sérstöðu í flokki sportjeppa
Tiguan frumsýndur
stólum. Bílarnir verða einnig frum-
sýndir í umboðum HEKLU á
Akranesi, Akureyri, Selfossi, Reyð-
arfirði og Reykjanesbæ um helgina.
Í dag og á morgun verða frum-
sýndir þrír nýir bílar frá Porsche;
Cayman S Porsche Design Edi-
tion 1, Cayenne GTS og of-
ursportbíllinn 911 GT2. Cayman
S Porsche Design Edition 1 er
framleiddur í takmörkuðu upp-
lagi og er sérstök viðhafnarútgáfa
af bílnum. Ýmis smáatriði hönn-
uð í anda Porsche Design gera
bílinn tímalausan í hönnun.
911 GT2 er einn allra öflugasti
sportbíllinn á markaðnum og sá
kraftmesti sem nokkru sinni hef-
ur fengist skráður til notkunar í
almennri umferð. Engu að síður
er hann einn fárra í þeim flokki
sem geta státað af töluvert heil-
næmari útblæstri en ströngustu
kröfur nýjustu mengunarvarna-
staðla kveða á um.
Ofursportbíll frá Porsche
Í dag hefjast sérstakir þemadagar
hjá bifreiðaumboðinu B&L sem
nefnast Vetrarfjör. Þar verða
vetrarvanir bílar boðnir með ríf-
legum kaupauka auk þess sem
lækkað verð verður á völdum bíl-
um meðan á dögunum stendur. Í
sýningarsalnum mun ríkja nota-
lega stemning þar sem gestir fá
heitt kakó og kleinur auk
óvæntra gjafa.
Vetrarfjör hjá
B&L hefst í dag
LÍFSSTÍLLBÍLAR
bilar@24stundir.is a
Krafturinn í bensínvélinni er mikið
jafnari en í dísilútgáfunni þannig að
aksturinn verður þýðari.