24 stundir - 08.02.2008, Qupperneq 46
46 FÖSTUDAGUR 8. FEBRÚAR 2008 24stundir
„… til að græða sem mest nammi
fórum við félagarnir oft í búðir
frá 9-12, fylltum einn haldapoka
af nammi, fórum svo heim þar
sem aðeins var japplað á draslinu
og svo skipt um búning. Eftir há-
degi náðist svo sami árangur sem
þýddi tvo haldapoka af nammi,
sykursjokk og svefnleysi í viku.“
Páll P
stundinokkar.blog.is
„Ég er náttúrulaus. Ég er ekkert
feimin við að viðurkenna það.
Kannski er það aldurinn? Hvað
veit maður. Mér er eiginlega bara
alveg sama hvað veldur, veit bara
að ég er náttúrulaus. Veit líka að
það lagast, þekki það af reynsl-
unni sem er ólygnust ekki satt?“
Hallgerður Pétursdóttir
austangola.blog.is
„Ég las að leikmenn í efstu deild
karla yrðu skyldaðir til þess að
fara í hjarta- og æðaskoðun af
KSÍ frá árinu 2009. Þetta er frá-
bært framtak. En hvað með þá
leikmenn sem eru að spila í 1., 2.
og 3 deild? Mega þeir þá detta
niður dauðir af því að þeir eru
ekki að spila í efstu deild?“
Ómar Örn Ólafsson
eyjan.is/goto/omardiego
BLOGGARINN
Eftir Atla Fannar Bjarkason
atli@24stundir.is
„Þessi maður er að taka séns á okk-
ur og það er rosalega mikill heiður.
Við ætlum ekki að klúðra því,“
segir Jón Björn Árnason, með-
limur hljómsveitarinnar Our Lives.
Hljómsveitin heldur til Toronto
í Kanada þann 24. febrúar þar sem
upptökustjórinn David Bottrill
bíður í hljóðveri. Bottrill þessi er
meðal vinsælustu upptökustjóra
Ameríku og hefur unnið með
hljómsveitum á borð við Muse og
Tool, en breiðskífan Origin of Sim-
metry með þeirri fyrrnefndu var
tekin upp undir hans stjórn. Þá
hefur hann stýrt tónlistartröll-
unum Bryan Adams og Peter
Gabriel í hljóðveri við mjög góðan
orðstír.
Mikill herramaður
„Það er rosalega mikið afrek að
fá að vinna með David Bottrill án
þess að geta borgað honum,“ segir
Jón Björn og hlær. Upptökustjórar
af stærðargráðu Bottrills rukka
tugi milljóna fyrir upptökur á borð
við þær sem Our Lives eru að hella
sér út í. Bottrill er hins vegar mjög
spenntur fyrir að vinna með
hljómsveitinni og hefur því gert
við þá sérsamning.
„Þetta er flókið ferli allt saman
og byggist á prósentum og plötu-
sölu,“ segir Jón Björn. „Samnings-
hliðin er hjá lögfræðingunum, þeir
eru búnir að vera að finna út leiðir.
Hann er búinn að vera eins mikill
herramaður og hann getur.“
Blaðið (nú 24 stundir) sagði
frá því í september á síðasta
ári þegar Our Lives hafnaði
samningi við útgáfurisann
Columbia. Samningurinn
hljóðaði upp á fjórar breið-
skífur og spannaði sjö ár. Dav-
id Bottrill var þá einn af
tveimur upp-
tökustjórum sem
höfðu áhuga á að
taka upp breiðskífu
með Our Lives.
„Við hættum við
að skrifa undir hjá
Columbia og hon-
um fannst það spennandi,“ segir
Jón Bjarni. „Hann hélt sambandi
og við héldum áfram að senda
honum lög. Svo kom að því að
hann sagðist verða að grípa okkur
áður en einhver annar gerði það.“
Our Lives tekur upp fjögur lög
með David Bottrill. Lögin verða
svo send til útgáfufyrirtækja
erlendis og síðar verður
ákveðið hvort Bottrill tekur
upp breiðskífu með hljóm-
sveitinni. Ferðin til Kanada er
kostnaðarsöm og Jón Björn vill
koma þeim tilmælum til
fjármálafyrirtækja að
taka hljómsveitinni
vel. „Það eru vin-
samleg tilmæli til
bankanna að veita
okkur jákvæð við-
brögð við yfirdrátt-
arheimild.“
Our Lives vinnur með upptökustjóranum David Bottrill
Í fótspor Muse
og Bryans Adams
Hljómsveitin Our Lives
heldur til Kanada í lok
febrúar í upptökur undir
stjórn Davids Bottrills, en
hann hefur unnið með
mjög stórum nöfnum í
tónlistarbransanum.
Árvakur/Frikki
Our Lives Vinnur
með upptökustjóra
Muse og Tool.
Matt Bellamy í Muse
David Brottrill tók upp
aðra breiðskífu Muse.
HEYRST HEFUR …
24 stundir sögðu í gær frá komu Jeremys Clark-
sons, eins þáttastjórnenda Top Gear, til landsins.
Clarkson átti að vera viðstaddur forsýningu seg-
ulpóls-þáttar Top Gear í Laugarásbíói í gær, en sök-
um veðurs fór hann aldrei frá London. Aðdáendur
Clarksons, sem ætluðu að hitta hann, verða því að
vonast til að hitta kappann síðar, sem er ekki ólík-
legt þar sem hann hefur miklar mætur á Íslandi. afb
Hinn skeleggi tónlistar- og blaðamaður Dr. Gunni
byrjar með útvarpsþáttinn Snældu næstkomandi
sunnudag klukkan 14. Þættirnir verða fjórir og mun
Gunni fara yfir íslenska kassettu-útgáfu sem var á
sínum tíma blómleg. Í fyrsta þættinum kennir ým-
issa grasa en hæst ber loforð doktorsins um að spila
fyrstu útgefnu upptöku með kónginum sjálfum,
Bubba Morthens. afb
Höskuldur Höskuldsson og félagar hjá Senu gáfu
nýverið út tvöföldu skífuna Femin – 38 lög fyrir
konur. Íris Gunnarsdóttir og Soffía Steingríms-
dóttir hjá Femin.is hjálpuðu til við lagaval, en fólk
veltir nú fyrir sér hvernig líðan er hjá kvenfólki
landsins miðað við þverskurð laganna á skífunni,
þar sem lög eins og Rehab, Fix you, Hurt, Lost og
Unfaithful fara fremst í flokki. afb
„Það er sérstaklega gaman að fá
Sollu með í hópinn og fá að nota
aðstöðuna í Maður lifandi fyrir
námskeiðið. Sjálf er ég fastakúnni í
Maður lifandi og þannig svolítið á
heimavelli,“ segir söngkonan Alma
Guðmundsdóttir, sem nú fer af
stað með sjálfstyrkingarnámskeið
fyrir ungar stúlkur í annað sinn.
„Solla mun sjá um þann þátt
námskeiðsins sem snýr að hollu
mataræði, en hún er með þekkt-
ustu matreiðslumönnum á þessu
sviði og búin að halda fjölda nám-
skeiða um svokallað grænt mat-
aræði. Ég hef sjálf sótt námskeið
hjá henni og get með sanni sagt að
hún sé frábær kennari sem segir
skemmtilega og líflega frá. Hún
mun til dæmis kenna stelpunum
að búa til hollustusúkkulaði sem
jafnvel grennir, sem er einmitt
draumur flestra í dag.“
Ánægja meðal þátttakenda
Að sögn Ölmu mæltist nám-
skeiðið vel fyrir þegar það var
haldið í fyrra og var því afráðið að
leggja í annað núna í febrúar.
„Þetta var rosalega gaman síðast
og stelpurnar virtust ánægðar. Við
leggjum áherslu á leiklist, sjálf-
styrkingu, fjármál og fleira sem á
erindi til þessa aldurshóps.“
Skráning fer fram á nam-
skeid.com. halldora@24stundir.is
Alma heldur sjálfstyrkingarnámskeið
Solla og Alma
saman í sæng
Styrkja stelpurnar Alma og Solla
hyggjast fræða ungar stelpur um hollt
mataræði og aukið sjálfstraust.
Su Doku þrautin snýst um að raða tölunum frá 1-9 lárétt og
lóðrétt í reitina, þannig að hver tala komi ekki nema einu sinni
fyrir í hverri línu, hvort sem er lárétt eða lóðrétt. Sömu tölu má
aukin heldur aðeins nota einu sinni innan hvers níu reita fylkis.
Unnt er að leysa þrautina út frá þeim tölum, sem upp eru gefnar.
Su doku
5 4 3 6 8 1 7 9 2
7 1 2 5 4 9 8 3 6
8 6 9 2 7 3 4 5 1
9 8 4 7 5 2 6 1 3
6 3 1 8 9 4 2 7 5
2 5 7 1 3 6 9 8 4
4 2 5 9 1 8 3 6 7
1 9 6 3 2 7 5 4 8
3 7 8 4 6 5 1 2 9
Dóttir mín segir að þú sért lífvörður.
24FÓLK
folk@24stundir.is a
Nei, Vaka tengist ekki Sjálf-
stæðisflokknum og þarf ekki
á ölmusu frá öðrum að halda.
Fenguð þið ekki inni hjá xd.is?
Helga Lára Haarde er formaður Vöku í háskólapólitíkinni, en Lilja
Guðrún Jóhannsdóttir, stjórnarmaður í Röskvu, sór af sér tengsl við
stjórnmálaflokka í 24 stundum í gær.
Sama dag birtist á heimasíðu Samfylkingarinnar ákall frá Röskvu,
um að jafnaðarmenn legðu þeim lið í kosningunum sem lauk í gær.
24 stunda
Auglysingasimi
Kolbrun S.510 3722 / kolla@24stundir.is
Katrin s.510 3727 /kata@24stundir.is
Serblad
Born
og
uppeldi
13.FEBruar 2008